Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1983, Side 3
DV. LAUGARDAGUR 21. MAl 1983.
3
væri að öllum likindum ekki öm að sjá
í Islandsbyggðum nú. Áriö 1964 var
eitrun fyrir refi bönnuð og nú mun arn-
arstofninn vera þrjátiu til þrjátíu og
fimm pör auk stakra fugla og fimmtán
til tuttugu ungfugla. Árlega komast
upp um fimmtán ungar og hefur stofn-
inn vaxið nokkuð síðan 1960. Nú eru að-
alheimkynni amarins við Breiðafjörð
og á Vestfjöröum og nokkur pör verpa
við Faxaflóa þar sem emir hurfu alveg
á tímabili.
Getur orðið allt að fertugur
Islenski haföminn er talinn til haf-
arnarættkvíslarinnar Haliaeetus, en til
hennar teljast átta tegundir sem lifa
við sjó eða vötn víða um heim. Sá
þekktasti þeirra — auk hafamarins —
er hvíthöfðaöminn í Norður-Ameríku,
en það er sá fugl sem er í skjaldar-
merki Bandaríkjanna. Þessiremir eru
ekki taldir til hinna eiginlegu ama,
Aquila, en af þeim má nefna gullörn-
inn, Aquila chrysaetus, í Noregi og
Skotlandi.
örninn er með allra stærstu ránfugl-
um, kvenfuglinn, assa, er ávallt stærri
en karlfuglinn. Vegur hún um fjögur til
sjö kíló og getur orðið yfir metri á
lengd, en karlöminn er sjaldnast
lengri en sjötíu og fimm sentímetrar
og er þyngd hans á bilinu þrjú til fimm
kíló. Vænghaf arnanna er yfir tveir
metrar en getur orðið allt að tveir og
hálfur metri.
Helstu auðkenni hafarnarins eru
annars vegar ófiðraðir fætur, sem er
einstakt meðal ránfugla, og hins vegar
stél fuglsins sem er hvítt og fleyglaga.
Annars er f ullorðinn örn dökk-móleitur
á lit en mun ljósari á höfði og hálsi þar
sem fiðrið er Ijós-mógrátt eða hvít-
grátt. Þá em augu og nef amarins gul
svo og fætur hans.
örninn nær hvað hæstum aldri í
fuglarikinu. Við eðlilegar aöstæður
getur hann oröið allt að fjömtíu ára
gamall en meðalaldur hans mun vera
rúmlega þrjátiu ár.
öminn er ekki matvandur fugl og
fær hann fæðu sína með ýmsum hætti.
Hann veiöir sér til matar, étur hræ og
rænir stöku sinnum bráð frá öðmm
fuglum. Fiska veiðir hann með því að
fljúga lágt og grípa þá við yfirborðið en
stingur sér yfirleitt ekki á kaf. Fuglar
era oftast teknir þeim að óvörum eða
hann þreytir þá á sundi með því að
neyða þá til aö kafa í sífellu. Einnig
tekur hann fugla á flugi, svo sem fýl,
meö því að renna sér á þá úr háalofti.
Fæðuval amarins hefur talsvert ver-
ið rannsakað bæði hérlendis og svo á
Grænlandi og í Noregi. Hafa þessar
rannsóknir aðallega farið fram um
varptímann og sýna þær að megin-
þorri fæðunnar eru fiskar og sjófuglar
af ýmsum tegundum. Af þeim fiskum
sem fundist hafa við arnarhreiður er
mest um hrognkelsi og ýmsa laxfiska
og em hrognkelsi einkum áberandi
hérlendis. Af fuglum sem örninn legg-
ur sér til munns má nefna fýl, lunda og
máfa og er það nokkuð breytilegt eftir
staðháttum hversu stór hluti fæöunnar
hver tegund er. Þá er því ekki að neita
að æðarfugl er allstór hluti fæðunnar
en þá ber að hafa í huga að æðarstofn-
inn hérlendis er um hálf milljón fugla
en amarstofninn ekki nema í hæsta
lagi hundrað fuglar. Þannig er fráleitt
aö ætla aö veiðar amarins hafi nokkur
áhrif á stofnstærð æðarfugis. Hins veg-
ar hefur öminn oft verið sakaður um
að spilla æðarvarpi með því að fæla
fuglinn í burtu. Þannig gerir örninn oft
usla í æðarvörpum, og er hann flýgur
yfir varplönd, ærist fuglinn og æðurin
fælist af eggjunum sem hættir þá viö
að ofkólna og verða fúl. En ernir geta
fæsta fugla tekið á flugi því að þeir em
seinir á sér og þungir í snúningum.
Þess vegna flýr allt fyrir þeim, því að
þaö sem á jörðu situr er dauðadæmt ef
öm ber þar að í veiðihug. Þær athugan-
ir sem hafr verið gerðar á þessu benda
til þess að varpið minnki ekki, heldur
færi æðurin sig f jær amarvarpinu.
Ekki er hægt að láta þess ógetið að
stundum finnast lambsleifar viö amar-
hreiöur. Hafa menn því oft dregið þá
ályktun aö örninn hafi orðið lömbunum
að bana. I flestum tilfellum mun þetta
vera rangt. Hefur öminn þá tekið lömb
sem þegar vom dauö eða afar máttfar-
in og nær dauða af vesaldónii. Vitað er
að örninn hiröir hræ hvar sem hann
nær í þau og þar sem alltaf er talsvert
um að lömb drepist af ýmsum orsökum
um buröinn er líklegast aö lambsleifar
|sjá næstu opnu
íslenski haförninn er fimur tlugtugl pott nann viröist oft nokkuð þung-
lamalegur þegar hann er að hefja sig tíl flugs. Eitt af sórkennum hans er
mikið vænghaf sem sóst greinilega þegar hann iðkar svifflug sitt á breiðum
beinum vængjum sinum.
Þrátt fyrir arnarnafn sitt telst haförninn ekki tíl hinna eiginlegu arna, en
er sennilega skyldastur gleðum. Nánari vitneskju um einkenni og háttu is-
lenska hafarnarins er að vitja i textanum sem hér gefur að lita á siðunum.
fíétt þóttí að greina litillega frá þessum merkilega ránfugli íslandsbyggðar
i þessu blaði þvi að nú einmitt um þessar mundir er að klekjast út ný kyn-
slóð arnarunga sem landið eiga að erfa, eða hvað!
Pinotex ^
Pinotex
Góð fúavörn
Með Pinotex verður
gamalt tré sem nýtt
og nýtt endist lengur.
extra
PIIMOTEX
þetta sterka tríó í fúa-
vörn.
PINOTEX
hefur í áratugi verið
meðal bestu fúavarnar-
efna í heiminum.
MEÐ VISINDALEG-
UM RANNSÓKNUM
hefur tekist að framleiða
fúavarnarefni sem góða
vöru í vörn gegn sýklum
og gróðri sem sækja í
tré.
HEILBRIGÐUR
VIÐUR
er undirstaða góðs húss.
Með réttri notkun
Pinotex frá byrjun er sú
undirstaða tryggð.
ÁFERÐ OG LITIR:
PINOTEX grunhur -
PINOTEX struktur —
PINOTEX extra mynda
tríó sem býður upp á
ótrúlegt úrval lita og
áferða.
PINOTEX
er vönduð framleiðsla
UTSÖLUSTAÐIR:
fæst í öllum helstu
byggingavöruverslunum
landsins.