Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1983, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1983, Blaðsíða 7
DV. LAUGARDAGUR 21. MAI1983. 7 Sigurður Hafídórsson, bóndi frá Skarðshfíð. Hann varð beint vitni að vald- níðslu og yfirgangi sýslumannsins Páis Briem í Austur-Eyjafjafíahreppi á árunum 1890 til 1895. Þá atburði skráði hann niður skömmu eftir að þeir gerðust, og er frásögn Sigurðar birt hér á siðunum. og lagðist í rúmið. Hún var líka orðin gömul og lúin og búin margt að reyna. Hún átti dóttur, sem þá var gift kona. Hún kom til mín grátandi og sagði mér að mamma sin væri lögst í rúmið og ætti svo bágt. Hún væri alein heima, búiö að taka næstu nágranna hennar fasta, svo að enginn gæti hjálpað henni. Spurði hún mig hvort ég mundi vilja skreppa til hennar og tala við hana og lofaði ég því. Svo fór ég til hennar, og var hún þá ósköp mædd og óróleg. Hún sagði mér, að þeir segðu, að Pétur væri búinn að meðganga ein- hver ósköp og mætti nærri því geta hvort hún myndi ekki vita af því líka: „þeir segja mér ekki hvað þaö er, þú átt að segja okkur það en við ekki þér,” segja þeir. Svo sagði hún mér að hún vissi um eina kind sem þau hefðu tekið og eru mörg ár síðan. Við áttum svo bágt og hvergi hægt að fá björg. „Eg má líklega ekki ráðleggja þérneitt, sagði ég, en þó ætla ég að gera það. Eg held, aö þér sé bezt að meðganga og segja satt, því þar sem sýslumaðurinn er eins strangur og hann er við alsak- lausa þá má búast við að hann veröi strangur við þig, aumingja útslitinn kvenmann, þar sem þú ert sek. Eg held aö þú verðir rólegri ef þú gjörir þaö.” Og ég er viss um að sú von mín brást ekki. Allt í eymd og volæði og allar bjargir bannaðar Eg held mér sé óhætt að segja þaö, aö þetta voru þær einu manneskjur sem sekar fundust af öllum þeim fjölda sem tekinn var fastur og settur í gæzluvaröhald, ég held óhætt að segja við lítinn kost. Og svo þegar loksins aö þeir máttu fara heim var þeim bannað að fara út úr hreppnum. Nokkrir af þeim voru ráðnir til sjóróðra úti í Vest- mannaeyjum. Ekki máttu þeir fara þangað. Það voru skrifaðar upp þessar fáu skepnur þeirra og hjá sumum hús- in líka, allt var kyrrsett, þaö mátti segja að allt væri eymd og volæði og allar bjargir bannaðar. Eg reyndi að hugga fólkið eins og ég gat, og ég von- aðist eftir aö allt mundi lagast, en því miður rættist þaö ekki. Eg skrifaði amtmanni og tjáði honum, hvernig far- ið væri með hreppinn, en það hafði enga þýðingu, hefir aö líkindum trúað öðrum betur en mér. Flestir af þeim sem teknir voru voru bláfátækir og all- ir fátækir svo það voru æði litlir matar- skammtarnir hjá þessu aumingja fólki þennan vetur. Eftir sumarmál fór ég út í Vest- mannaeyjar, og hafði með mér nokkra af þeim mönnum, sem bágast áttu. Við tepptumst þar í fjóra daga, en ekki vorum við fyrr landfastir en að maður kom frá Þorvaldseyri og okkur sagt að sýslumaöur sé kominn og hann skipi mér og þeim „seku” mönnum, sem ég hafði farið meö út í Eyjar, að fara taf- arlaust upp að Þorvaldseyri. Þegar við komum þangað, er komið kvöld. Þá er kallaö á mig inn, en ég segi hinum að fara heim, því að þeir þurfi víst að fara að sofa og hvíla sig, þar sem við vorum búnir að vaka svo lengi. Þegar ég kem til sýslumanns, þá byrjar hann á því að segja við mig: „Þú fórst að fara með þessa sakamenn til Vestmannaeyja.” Eg segi „það er satt”. Þá segir hann: „Varstu ekki búinn að heyra, aö ég "ar búinn að banna þeim að fara út úr hreppnum?” Jú, en ég trúöi því ekki.” Þá segir hann: „Af hverju gastu ekki trúað því? ” Eg segi: „Eg veit að þú ert strangur viö fangana þína, en því trúi ég þó ekki, að þú vildir helzt að þeir dæju úr hungri í kofum sínum.” Þá segir hann: „Þeir áttu aö fara til hreppstjórans.” Eg segi: „Það voru þeir búnir aö gera, en voru jafnsoltnir fyrir því eftir sem áður.” Þá segir hann: „Er það satt, Jón hreppstjóri?” Þá segir Jón: „Það er nú farið að minnka hjá mér líka.” Sýslumaður segir: „Það var ekki ráðlegt að fara með þá til Eyja einmitt um þann tíma sem póstskipið er á ferð.” Þá segi ég: „Er sýslumaðurinn svo grunnur, að hann hugsi aö þessir aumingjar fari aö strjúka? Eg skal segja sýslumannin- um það, að vel getur skeð, að hann frétti það, að þeir veslist upp í kofum sínum heima, en hann fréttir þaö aldrei, aö þeir fari að strjúka úr landi. En hvernig sem þessu er nú varið, þá hugsa ég að mér væri þetta leyfilegt. I vetur, þegar þú varst búinn að taka alla feögana í Steinum fasta og konan lögst í rúmið, þá skrifaðir þú mér bréf sem varaoddvita og sagðir mér að sjá um heimilið, og því hugsaði ég, aö ég mætti eöa jafnvel ætti aö hugsa um fleiri heimili sem eru stödd í sama eymdarskapnum. Og svo er ég nú kom- inn með þá heim aftur, og þá getur þú farið með þá eins og þú viit, og þér þykir sem bezt.” Svo var mér sagt að fara, en ekki mátti ég fara heim. Leggjum eld í kofa- skömm sýslumanns! Þetta var á laugardagskvöldi. Þegar fréttist daginn eftir, aö ég var ekki kominn heim, sendir Einar bóndi á Raufarfelli skyndiboð um hreppinn og biður ýmsa menn aö finna sig. Eftir skamma stund var kominn stór hópur manna, og var efni fundarins, að þeir skyldu ekki láta þá skömm eftir sig liggja að láta hann Sigurð í Skarðshlíð vera lengi innibyrgöan á Þorvaldseyri og væri einna bezt að leggja eld í kofa- skömmina og drífa sýslumann út yfir Markarfljót. Fundurinn var snemma á sunnudegi og ætluöu þeir að gjöra þetta á mánu- dagsnóttina. Nú fréttist þetta fljótt að Þorvaldseyri, og þá var ég viss um að þeir voru töluvert hræddir. Þeir sendu út að Holti og báðu prófastinn að fara austur að Raufarfelli og reyna að af- stýra þessum ósköpum. Prófastur á stað og ríður í einum spretti austur að Raufarfelli. Þegar hann kemur þang- að, er enginn maður úti, svo hann ber að dyrum hjá áðurnefndum Einari. Það er komið til dyra, þá er Einar að lesa húslestur svo prófastur bíöur úti, þangaö til Einar kemur út. Nú fer prófastur að tala viö hann og spyrja hvort það sé satt, sem hann hafi frétt, að þeir ætli aö ráðast á sýslumann. Þá segir Einar: „Já, komiö hefir það til orða, og þó aö það verði kannske ekki í þetta sinn, þá máttu segja sýslumanni þaö, að ef hann heldur áfram þessu verki, sem hann byrjaði á strax og hann kom í sýsluna og sem þér er eins kunnugt um og mér. Þetta hefur geng- ið í allan vetur og ég held að sumarið ætli að byrja líkt. Hann kom hingað í hreppinn eins og hvert annað illhveli og tekur hvern af öðrum alsaklausan, sem ekkert haföi honum til saka gjört. Er það furða, þó mönnum sárni að sjá þessa aumingja bláfátæka, sem eru aö berjast fyrir lífinu með ærlegu móti, vera drifna upp að Þorvaldseyri og vera kvaldir þar öllum kvölum? Eða þykir þér það merkilegt af honum að fara að taka hann Sigurð Halldórsson fastan, undir eins og hann var land- fastur, fyrir það að hann fór með þessa menn til Eyja? Eg held að hafi verið hyggilegra fyrir sýslumann að fara eftir því sem Sigurður hefir sagt hon- um, heldur en hatast viö hann, en ég held að hann hafi aldrei Sigurð undir þótt hann sýnist ekki fara hart. Já, prestur minn, skilaöu kveðju minni til þeirra og segðu þeim, hvað ég sagði þér.” Svo kvaddi prófastur og fór, kom aö Þorvaldseyri á heimleið og hefir víst sagt söguna, því þegar prófastur var farinn var mér sleppt, en sá ekki sýslumann. Eg kom til Einars á Raufarfelli. Þá sagði hann mér hvað hann sagði viö prófast og áður er ritað. Eg segi: „Ekki hefir ykkur verið alvara að brenna kofagreyið.” Þá brosir hann og segir: „Ekki núna, heldur gjörðum við þetta til aö vita hvort þér yrði ekki sleppt og hvaö þeim mundi verða viö. ” „Brennumönnum" smalað að Þorvaldseyri Á mánudaginn var heldur en ekki mannareið um héraðið, því nú var far- iö að smala þeim og reka að Þorvalds- eyri, sem þeir héldu að hefðu verið upphafsmenn að samkomunni daginn áður. Nú var að heyra, að þeim fyndist þeir hafa nokkurt verkefni að glíma við. Þaö sagði mér maður, sem kom að Þorvaldseyri um morguninn og talaði við þá. Þeir sögðu honum að nú skyldu Eyfellingar þó sjá að til væri lögregla í Rangárvallasýslu, en hvernig sem því hefir nú verið variö, þá var öllum sleppt nema einum. En eftir því sem þeir sögöu sjálfir, þeir sem teknir voru, þá hefir víst verið nokkuð einkennilegt samtalið í húsinu á Þorvaldseyri þann dag, og ekkert heyrðist um það síðar. En þessi, sem ekki var sleppt, var piltur um tvítugt, bezti drengur og efnilegur. Hann var einkastoð móður sinnar, sem var bláfátæk ekkja, og yngri systkina. Þeir höfðu heyrt, að hann hefði átt að vera nokkuö oröhvat- ur á nefndum fundi. Nú fer sýslumaður að spyrja hann hvað hann hafi sagt á fundinum. Þá segir piltur: „Það var nú ekki mikið, sem ég sagði. Eins og þið vitið, á ég heima á sama bæ og fundurinn var. Svo þegar allir voru komnir saman, fór ég þangaö og heyri, aö þeir eru aö tala um hvað þeir eigi að gjöra við sýslumann, þegar þeir séu búnir að taka hann. Þá segi ég: „Á ég aó segja ykkur það? Þið skuluð reyna að ná stóra pokanum hreppstjórans (það var strigapoki, sem þeir létu búa til, ef einhver yrði óþægur af þeim sem teknir voru, þá skyldi hann í pokann, Jón Hjörleifsson reiddi pokann og var því ýmist kallaður Jón með pokann eða poki) og láta sýslumann í hann og binda svo pokann upp á hest, fara með hann út yfir Markarfljót, láta hann á vestri bakkann og skrifa svo á pokann; Sá á fund sem finnur, og ef þiö hittið einhvern á leiðinni, skuliö þið kalla upp og segja: „Gettu hver er í pokanum.” Svo fór ég inn í bæ og vissi ekki, hvaö gjörðist eftir þetta.” Þessum manni var haldið allt vorið á Þorvaldseyri. Þar mátti hann þræla og róa þegar sjóveöur var, og þá fiskaðist vel, og hirti Þorvaldur þetta allt, en móðir hans og systkini bjargarlaus heima, og varð hún aö fá af hreppnum til að lifa af. Veturinn eftir stefndi móðir hans sýslumanni fyrir sátta- nefnd, en sá sem ekki kom á sáttafund- inn var Páll Briem. Svo skrifaði hún suður og bað um setudóm, en því var ekki sinnt. Dúsaði skjálfandi og sársvangur í útihúsi í fimm vikur Það var bóndi í Steinum sem hét Jón Valdason. Hann var tekinn eins og fleiri alsaklaus og látinn vera í gæzlu- varöhaldi á Þorvaldseyri fimm vikur og haföur uppi á lofti í útihúsi, alltaf í sömu fötunum sem hann var í þegar hann var tekinn, fékk illt og lítiö að borða. Þarna varð hann að vera skjálf- andi af kulda og sársvangur fimm vik- ur samfleytt. Þrír synir hans voru hjá honum, allir innan viö tvítugt, þeir voru allir teknir, sá yngsti síðast. Hann var að reyna að gegna skepnunum. Hann var tekinn einn morgun í rign- ingu, forugur og blautur, frá því starfi Sjá næstu síðu ÓDÍRAR KEREYJAFERÐIR MEÐ FLUGLEIÐUM! Átján eyjai og hundrað þoip Öllum íslendingum, sem hala heimsótt Fœreyjar, ber saman um að þangað sé gaman að koma. Landslagið er ekki afskaplega ólíkt því íslenska. Aðaleyjarnar 18 eru grasi vaxnar írá íjöruborði upp í íjallstinda, en á eyjunum eru 100 þorp og bœir. Fœreyingar eru ákaflega gestrisnir og því góðir heim að sœkja. Þeir halda íast í ýmsa gamla og góða siði, dansa og syngja upp á gamla mátann, klœðast þjóðbúningi til hátíðar- brigða og slunda kappróðra. Séistakt leiðatilboð í tilefni opnunar Norrœna hússins í Fœreyjum bjóða Flugleiðir sérstakt verð á Fœreyja-íerðum. Miðað er við 4ra daga dvöl í Fœreyjum með brottför írá Reykjavík. Verð kr. 6.680.-, en þá er miðað við flugíerðir, gistingu í 3 nœtur á hinu nýja vistlega Hotel Foroyar í 2ja manna herbergi og morgunverð. Flugvallaskattur er innilalinn en ekki terð frá flugvelli til Þórshaínar. Þetta tilboð stendur til 15. júlí n.k. Fœreyjalerð er ódýr og einlöld fyrir alla, - og ekJd veldur tungumálið erfiðleikum! Upplýsingar um Fœreyjalerðir Flugleiða íást hjá a söluskrilstofum og umboðsmönnum Flugleiða og einnig > hjá ferðaskrilstoíunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.