Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1983, Síða 5
DV. MANUDAGUR18. JUU1983.
Frá Hallá í Hallárdal.
Mikið komið af iaxi í ána og 30 bafa veiðst.
DV-mynd G. Bender.
Á laugardagskvöld:
82
LAXAR KOMNIR
ÚR FLÓKU
—f réttir af kef Ivískum veiðimönnum
Keflvískir stangveiðimenn renna
mikiö fyrir lax í sumar sem endranær.
Hafa þeir sem fyrr árnar Flókadalsá í
Flókadal í Borgarfirði, með SVFH,
Reykjadalsó í Reykholtsdal í Borgar-
firði, Hvolsá og Staðarhólsá í Saurbæ í
Dalasýslu, Halló á Skaga, Höföa-
hreppi, A-Húnavatnssýslu og Geir-
landsá og Vatnamót á Síðu, V-Skafta-
fellssýslu. En hvað skyldi vera að
frétta frá þeim Keflvíkingum? Ragnar
Pétursson formaður félagsins sagði:
VEIÐIVON
GunnarBender
„82 laxar komnir úr Flóku á laugar-
dagskvöldið og áin er kjaftfull af laxi.
Fiskurinn er orðinn smærri en fyrst er
veiðin hófst í ánni í sumar. Ur Reykja-
dalsá eru komnir 17 laxar sem er sér-
staklega gott því fyrsti laxinn í fyrra
kom ekki fyrr en um 20. júlí. Ur Hvolsá
og Staðarhóisá eru komnir 18 laxar,
fengust 8 laxar er áin var opnuð.”
Blm.: Hvernig líst keflvískum stang-
veiðimönnum á nýja fyrirtækið í Döl-
unum, Dalalax?
„Laxinn hefur komið seint í Hvolsá
og Staðarhólsá, en dólað út aftur. En
núna er hann tekinn í gildrur og settur í
ána. Stangveiðimenn hafa töluverða
ótrú á þessu máli. En burtséð frá því
held ég að þetta eigi eftir að ganga,
kannski erfiðleikar í byrjun. Fóru svo-
lítiö klaufalega að er rætt var um þetta
í sjónvarpinu nýlega. Eins og allt hefði
verið tekið úr gildrunum og ekkert sett
i ámar. En svo var ekki.
Komið mikið af laxi í Hallá og hafa
veiðst um 30 laxar. Frekar vænn lax úr
henni en smálaxinn að koma. Einn lax
hefur veiðst í Geirlandsá en veiðin
ekkert byrjuð þar strax. Menn hafa
bara verið að laga í kringum veiði-
húsið, byrja upp úr næstu mánaða-
mótum.”
G. Bender.
LaxáíDölum:
Tvöholl i fjóra daga
fengu 101 lax
— sá stærsti 18 pund
Það eru víst óvíða fleiri straumvötn
sem eiga ós í sjó en í Hvammsfirði,
norðan Snæfellsness. Já svo segja
menn að Dalirnir séu líka söguríkasta
héraö landsins. Ein af þeim ám sem
renna í Hvammsfjörð er Laxá i Dölum
og án efa besta veiðiáin á svæðinu.
Laxá er tæplega 30 km að lengd en fisk-
geng 22 km að Sólheimafossi. Búast
má við að veiðin verði eitthvað betri en
siðustu sumur i ánni og dagamir betur
nýttir en áður, því áin hefur verið van-
veidd siöustu árin. En núna i sumar
munu erlendir veiðimenn aðeins veiða
í tvær vikur í ánni, af sem áður var. En
hvað skyldi vera að frétta úr Laxá í
Dölum, en þar hófst veiðin 28. júní? A
mónudaginn um hádegi kom i ána
hópur galvaskra stangveiðimanna fró
Patreksfirði, Bildudal og Tálknafirði
og áttu þeir aö veiða fram aö hádegi á
miðvikudag. Fengu þeir á þessum
tveimur dögum 51 lax og var sá stærsti
14 pund. Veiddu þeir á 7 stangir og má
þetta teljast góð veiði. Enda þrælvanir
veiðimenn á ferð og hafa þeir veitt í
ónni áður. A maðk fengust 45 laxar og
á flugu 6. A eftir þessu holli komu veiði-
menn úr Borgamesi og veiddu þeir
fram að hádegi á föstudag. Fengu þeir
50 laxa og einn 18 punda. Mikið af laxi
er víst komiö í óna og ættu næstu veiði-
menn h'ka að fá hann. Til þess er lika
leikurinn gerður. En heildarveiðin?
Við höfðum samband viö veiðihúsið í
Þrándargili og voru komnir á land í
gærmorgun rúmlega 200 laxar.
G. Bender.
5
BARIMAREIÐHJOL með hjálparhjólum.
\
Verð frá
kr. 2.052.
Verslunin
AAA Dl/ln Varahluta- og
/ W Iri Hl\lft/ viðgerðarþjónusta.
Suöurlandsbraut 30 - Sími 35320 Sendum ípóstkröfu.
NC plast-þakrennur eru sérhannaðar fyrir breytilegt
veðuríar og standa því auðveldlega al sér harða
íslenska vetur.
Serlega lett og einíöld uppsetning gerir þér kleift að
ganga írd rennunum sjdlíur dn mikillar fyrirhaínar.
uss
r H8
nif
NC plast-þakrennur eru skynsöm fjárfesting
GLERBORG HF
DALSHRAUN! 5 - HAFNARFIRÐI - SIMI 53333