Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1983, Síða 15
DV. MANUDAGUR18. JOLI1983.
15
í kjölfar hennar fylgir ófrelsi og ógnar-
stjóm í likingu viö stjórn Khomeinis i
Iran eöa Pol Pots í Kampútseu eöa
stórkostlega bætt kjör alþýöu eins og á
Kúbu og í Nicaragua.
Það er raunar eftirtektarvert aö
Bandarikin viöurkenna stjórn Pol Pots
löngu eftir aö henni hefur veriö steypt
og ný stjórn tekin við sem hefur hlotiö
viðurkenningu fjölmargra rikja. Þó
börðust Bandaríkin með eldi og brenni-
steini gegn því aö stjóm Pol Pots yröi
til á sinum tíma og ef einhver stjórn
gengur upp í kenningu Kirkpatrick þá
er þaö hún. En sú stjórn sem viö tók er
hliöholl Sovétrík junum og á meiri sam-
stöðu meö frelsishreyfingum, verka-
lýðshreyfingunni og sósialistum viöa
umheim.
Mannróttindi — hugtak
sem ber að haf na
I kosningabaráttunni áöur en
Reagan var kosinn forseti lét hann
semja stefnuskrá um afstööu Banda-
ríkjanna tii málefna Rómönsku
Ameríku. Þessi stefnuskrá hefur verið
nefnd Santa Fé- skýrslan. Þar má lesa
eftirfarandi yfirlýsingu um
mannréttindi:
„Mannréttindin — hugtak sem er
menningarlega og pólitiskt afstætt og
núverandi stjóm (þ.e. Carter-stjórnin)
notar sem átyllu til að skipta sér af
pólitískum breytingum í löndunum í
okkar heimsálfu — hafa neikvæð áhrif
á friöinn, stööugleikann og öryggið á
þessu svæöi. Þaö ætti aö visa þessu
hugtaki á bug og setja í staðinn stefnu
sem hafnar íhlutun, pólitiskt og sið-
ferðilegt raunsæi. Við getum tekið
dæmi af Argentínu, Chile og Brasilíu
um hiö menningarlega og siðferðilega
afstæöa eöli sem hugtakið mannrétt-
indi hefur. I þessum ríkjum þykir það
ógeðfellt aö Bandaríkin, sem finnst
ekkert athugavert við morð meira en
milljón ófæddra ár hvert, skuli guma
af því að þeim finnist sér siðferðilega
misboðiö vegna morðs eins hryöju-
verkamanns sem meö sprengjum sin-
um og vopnum drepur saklausa borg-
ara. Hvað eigum við að segja — er
spurt þar — um mannréttindi fórnar-
lamba hryðjuverka vinstri öfgastefn-
unnar?,
Þeir sem eru ábyrgir fyrir stefnu
Bandaríkjastjórnar verða að
varpa frá sér þeirri hugmynd að
nokkur sá sem kastar bensínsprengju i
nafni mannréttinda eigi mannréttindi
skilið. Þar fyrir utan er ekki víst að há-
vær gagnrýni á stofnanir eöa stjórn
einhvers lands þjóni hagsmunum
meirihlutans.”
Ýmsum hefur fundist þessi kenning
nokkuö tormelt enda hefur Reagan átt
í erfiðleikum með að fá þingið til að
samþykkja aukna aðstoð við stjómina
í E1 Salvador og hafa þingmenn borið
við hinum miklu mannréttindabrotum
stjórnarinnar. Bandaríkjastjóm hefur
þess vegna neyðst til að þrýsta lítils-
háttar (en aðeins lítilsháttar) á að
dregið verði úr mannréttindabrotum
og aö undanförnu hefur Regan gert
mikið úr framförum í mannréttinda-
málum, t.d. myrða hægri sinnaðar
öryggissveitir nú aðeins (!) 100
óbreytta borgara á viku í stað 250 árið
1980 (Time, 9.maí).
27. apríl sl. kvaddi Reagan þingið á
sérstakan fund til að ræða málefni
Miö-Ameriku. Slfkt gerist mjög sjald-
an og ekki nema brýn ástæöa sé til.
A þessum fundi færði Reagan rök
fyrir íhlutun í Nicaragua og aukinni
aðstoð við stjórn E1 Salvador. Þessi
rök eru gamalkunn og mjög í anda
Jeane Kirkpatrick.
I fyrsta lagi em efnahagslegir og
hemaðarlegir hagsmunir Bandarikj-
anna í veði þótt Bandaríkin eigi ekki
verulegra hagsmuna að gæta í sjálfu
E1 Salvador. „Tveir þriðju hlutar allra
utanríkisviðskipta og oliu fara um
Panamaskuröinn og Karabíska hafið,”
sagði Reagan á fundinum. „Komi upp
alvarlegt ástand i Evrópu fer a.m.k.
helmingur þess sem við leggjum
Atlantshafsbandalaginu til sjóleiðina
umþessarslóðir.”
I öðru lagi er hér ekki um að ræða
alþýðuuppreisn gegn harðstjóm, órétt-
læti og ójöfnuði, heldur er þama á ferð
útþenslustefna Sovétríkjanna og
heimskommúnismans gegnum Kúbu
ogNicáragua.
Og í þriðja lagi em uppreisnar-
mennimir í Mið-Ameríku ekkert annað
en ofbeldisseggir og hryðjuverkamenn
sem eiga engin mannréttindi skilin
eins og segir í Santa Fé-skýrslunni. A
þingfundinum 27. apríl sagöi Reagan:
„Ofbeldi hefur verið mikilvægasti út-
flutningur Nicaragua til umheimsins.”
Og hann sagði einnig að hernaði skæm-
liða i E1 Salvador væri „stjómað frá
höfuöstöðvum í Managua, höfuöborg
Nicaragua.”
Alþjóöahyggja
auflstóttarinnar
Það sem liggur aö baki þessum mál-
flutningi er vitaskuld það sem Jeane
Kirkpatrick segir nánst hreint út í
grein sinni: Það stjórnarfar og sú sam-
félagsskipan sem má búast við í kjöl-
far uppreisnar gegn „hefðbundnum”
einræðisstjórnum raskar „viðtekinni
úthlutun auös, valda, stöðu og
annarra lifsgæða, sem „hefðbundnir
einræðisherrar viðhalda”. Slík upp-
reisn ógnar hagsmunum þeirræstéttar
sem Kirkpatrick, Reagan og banda-
risk stjórnvöld hafa alltaf verið aö
verja, og samkvæmt kenningu núver-
andi stjómar Bandarikjanna verður
að víkja hugtakinu mannréttindi til
hliðar þegar slík ógnun steðjar að auð-
stéttinni. Siðferðilegar grillur verða þá
aö víkja fyrir raunsæi.
„Við viljum ekki að Mið-Ameríku-
ríki verði kommúnistaríki fyrir augun-
um á okkur,” er haft eftir einum
starfsmanni Regans. Undir það tekur
sjálfsagt obbinn af þingmönnum á
bandaríska þinginu. En spurningin er
hvemig skuli verjast þvi og þá koma
upp bæði siðferðileg álitamál og raun-
sæið leiðir lika til mismunandi niður-
staðna. Christopher Dodd öldungar-
deildarþingmaður, einn helsti tals-
maður demókrata, svaraði Reagan á
fyrmefndum þingfundi og svar hans
ber ekki vott um það pólitíska og sið-
ferðilega (!) raunsæi sem farið er
fram á í grein Jeane Kirkpatrick og
Santa Fé-skýrslunni.
, Jíf Mið-Amerika væri ekki þjökuð
af örbirgð væri ekki um neina byltingu
að ræða þar. Ef Mið-Ameríka væri ekki
þjökuð af hungri væri ekki um neina
byltingu að ræða þar. Ef Mið-Ameríka
væri ekki þjökuð af óréttlæti væri ekki
um neina byltingu aðræða þar.”
Einar Ólafsson
rithöfundur.
||| „27. apríl kvaddi Reaganþingið á sérstak-
an fund til að ræða málefni Mið-Ameríku.
Slíkt gerist mjög sjaldan og ekki nema brýn
ástæða sétil.”
Menning
Menning
Svava Jakobsdóttir. 19. júní flytur skemmtilegt viðtal við hana, tekið af
Rannveigu Jónsdóttur. DV-mynd: GVA
'skrifar skemmtilega grein undir fyrir-
sögninni Kristur krefst jafnréttis.
Auðvitað lagði hann gott til jafnréttis-
mála, en það læðist að lesanda 19.
júní sá gmnur aö furðu lítið hafi verið
gert úr jafnréttisboðskap Biblíunnar
alveg fram á þennan dag. Sem betur
fer ætlar þetta að lagast með kvenna-
guðfræðinni.
Guðrún Kristinsdóttir félagsráðgjafi
f jailar í 19. júní um fóstureyðingarlög-
in, en eins og fram hefur komiö í
fréttum að undanförnu hefur reynsla
síðustu ára sýnt að islenskar konur
grípa einungis til fóstureyðinga í
neyðartilfellum. Oskandi væri að
afturhaldsmenn, sem agnúast út í
lögin eins og þau eru, hættu að brýna
gogginn, örfáum ilia stöddum konum
tilarmæðu.
Enn er ótalið mikið efni i 19. júní og
má nefna bókmenntagagnrýni. Þar er
ítarlega f jaliað um bækur sem út komu
á siðasta ári eftir þær Álfrúnu
Gunnlaugsdóttur og Olgu Guðrúnu
Arnadóttur. Eins er í blaðinu að finna
opnu um leirkerasmiðinn Elísabetu
Haraldsdóttur með myndum af
verkum hennar án nokkurrar eigin-
iegrar umfjöllunar um listmunina.
Rétt er að minnast á stórskemmtilegt
viðtal Rannveigar Jónsdóttur við
Svövu Jakobsdóttur. Satt best aö segja
var þaö sú grein i blaðinu sem ég hafði
einna mesta ánægju af aö lesa einkum
fyrir þá sök að hún sýnir vel hver
reginmunur er á reynslu kvenrithöf-
unda og karlrithöfunda.
I 19. júní er að þessu sinni saman
kominn mikili fróðleikur fyrir konur
jafnt sem karla en blað Kvenréttinda-
félagsins á auðvitað erindi til beggja
kynja og alira aldurshópa, þvi aö
„kvennamál” eru og verða „karla-
mál” og öfugt. -SKJ
FARANGURSGRINDUR
í ÚRVALI
AÐSTOÐUM VIÐ
ÁSETNINGU
• Teygjurfyrir farangursgrindur
• Ferðapokar
• Yfirbreiðslur
ALLT í BÍLINN
ifflmnaustkf
SÍDUMÚIA 7-9 • SIMI 82722
REYKJAVIK
1 Áttu: VASADISKÚ _ |
| FERÐAKASSETTUTÆKI7 5
2 FJARSTÝRÐAN BÍL " 3
u. >
J eða annað tæki fyrir rafhlöður sem þú 2
notar mikið. ^
§ Ef svo er þá eru Sanyo-cadnica o
•g rafhlöðurnar og hleðslutækið fyrir þig. ^
Meira en
500 hleðslur.
Gerið
verðsamanburð.
SPARNAÐUR - ÞÆGINDI
FÆSTIVERSLUNUM UM LAND ALLT
OG ESS0 BENSÍNSTÖÐVUM.
CADNICA
DIESELVÉLAR HF., SUÐURLANDSBRAUT 16, SÍNll 35200.
RÍKISSKIP Sími: 28822
BROTTFARARDAGAR
FRÁ REYKJAVÍK:
Alla fimmtudaga austur,
alla þriðjudaga vestur og norður,
annan hvern laugardag vestur og norður.