Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1983, Qupperneq 21
:
DV. MANUDAGUR18. JOU1983.
21
(þróttir
(þróttir
íþróttir
(þróttir
Blikamir náðu
jöfnu gegn Val
þrátt fyrir að Valsmenn tef Idu f ram hálfgerðu varaliði
vegna meiðsla lykilmanna
Hákon Gunnarsson sést hér vera i þann veglnn að renna knettinum i
markið hjá Val i gærkvöldi. DV-myndir S.
Ármenningar
á ný í 1. deild
Breiðabliksmenn geta sjálfum sér
um kennt að hafa ekki hlotið bæði
stlgin i viðureign sinni gegn Val i
Kópavogi í gsrkvöldl. Leiknum lauk
með jafntefli 2—2 eftir að staðan í lelk-
hléi hafði verið 1—1.
Um gang leiksins er það hsgt að
segja í stuttu máli að Blikarnir sóttu
mun meira framan af en er þeir höfðu
náð forystu 2—1 í s.h. slökuðu þeir á og
orsakaði það öðru fremur að Valsmenn
höfðu rétt stolið sigrlnum i lokin, gerðu
þá harða hrið að marki Blikanna sem
voru eins og viðvaningar í vörninni.
Hittu þeir ekki knöttinn er þelr bugðust
spyrna frá marki sinu og allt annað
var i svipuðum dúr.
Valsmenn mættu til leiksins með
hólfgert varalið. Meiðsli hrjá nú um
helming þeirra leikmanna sem hafa
verið fastamenn í liöinu í sumar. Þar
má nefna þá Hörö Hilmarsson, Guð-
mund Þorbjörnsson, Val Valsson og
Dýra Guðmundsson Tveir ungir leik-
menn léku með Valsliðinu í þessum
leik, þeir Bergþór Magnússon og Guðni
Bergsson Guðnasonar handknattleiks-
manns fyrrverandi. Það var einmitt
Guðni sem skoraði fyrsta mark leiks-
ins á 2. minútu og kom þaö eins og köld
vatnsgusa framan í Blikana og áhang-
endur þeirra. Með fyrstu snertingu
sinni sendi Guðni knöttinn í markið
eftir að hafa f engið knöttinn eftir auka-
spymu sem tekin var á miðjum vallar-
helmingi Blikanna.
Blikarnir létu þetta mark þó ekki
setja sig úr jafnvægi þvi á 22. minútu
jöfnuðu þeir leikinn og eins og svo oft i
sumar var Sigurður Grétarsson
maöurinn á bak við það mark. Stakk
hann sér inn fyrir vörn Valsmanna og
gaf vel fyrir á Hákon Gunnarsson sem
ekki þurfti að gera annað en að ýta
knettinum innfyrir marklínuna. Fleira
markvert átti sér ekki stað i fyrri hálf-
leik og staðan i leikhléi var því 1—1.
Síðari hálfleikur var vart hafinn
þegar besti maður vallarins í þessum
leik, Siguröur Grétarsson, komst einn
inn fyrir Valsvömina og átti þessi
snjalli leikmaður ekki í vandræðum
með aö skora. Bjuggust núflestir, i það
minnsta allt Breiðabliksliðið, við sigri
Kópavogsliðsins en annað átti eftir að
verða uppi á teningnum. Smátt og
smátt gáfu þeir Valsmönnum eftir
miðju vallarins og við það náðu Vals-
menn að skapa sér hættuleg marktæki-
færi og úr einu slíku skoraði Ingi Bjöm
af miklu öryggi. Hilmar Sighvatsson
gaf hnitmiðaða sendingu fyrir markið
á Inga Bjöm sem var algerlega óvald-
aður í vitateignum og fallegur skalli
hans sigldi óhindrað í Blikamarkiö.
Staðan því enn jöfn og níu mínútur til
leiksloka. Allur vindur virtist úr leik-
mönnum Breiðabliks og Valsmenn
voru nær því að skora. Ingi Bjöm fékk
til dæmis ákjósanlegt færi en Guö-'
mundur náði aö ver ja gott skot hans.
Blikarnir léku oft vel í þessum leik
en það verður að segjast eins og er aö
sofandaháttur þeirra á köflum varð
þeirra banabiti í leik þessum. Bestur
var Sigurður Grétarsson en einnig
vom þeir góðir Jóhann Grétarsson og
Jón Gunnar Bergs. Þrátt fyrir að Vals-
liðið hafi náð stigi út úr þessari viöur-
eign var leikur liðsins hrein della
langtímum saman og hjálpast þar
margt að. Lykilmenn meiddir, þeir
yngri vart tilbúnir til að taka við og svo
er að minnast á liðsuppstillingu þjálf-
arans. Hún hefur reyndar oft verið
furðuleg í sumar og er það undarlegt í
meira lagi að þjálfari sem er með liðið
annaö áriö í röð skuli ekki enn vera bú-
inn að finna út hverjir ellefu Valsmenn
séu sterkastir.
Grétar Norðfjörð dæmdi leikinn og
hann sýndi þeim Sigurði Haraldssyni,
Guðmundi Kjartanssyni og Sigurjóni
Kristjánssyni gula spjaldið.
Liðin voru þannig skipuð:
BREIÐABLIK:
Guðmundur, Úmar, Benedlkt, Ölafur, J6n
Gunnar, Sigurjón, Vignir, Trausti (Björn),
Hákon (Sœvar Þór), Slgurður Grétarsson og
JóhannG.
VALUR:
Sigurður H., tjlfar H., Grimur, Guðmundur,
Þorgrimur, Bergþór M., (Valur V.), Magni,
Ingi Björn, HOmar H., Hilmar S., Guðnl
Bergsson.
MAÐUR LEIKSINS:
Sigurður Grétarsson, Breiðablik.
-SK.
— urðu sigurvegar-
arí2. deildar-
keppninni
ífrjálsum
íþróttum
um helgina
Glímufélagið Armann, sem féll í 2.
deild i frjálsum íþróttum í fyrra, hafði
þar ekki langa viðdvöl. Um helgina var
2. deildarkeppnin haidin i Kópavogi og
þar slgruðu Armenningar og endur-
heimtu þar með ssti sitt i 1. deild. Tvö
efstu félögin fsrast upp í 1. deild og
það var UM5K sem hafnaði i öðru ssti
og tekur félagið þar með þátt í 1. deild-
ar keppninnl nssta sumar.
Armenningar sigruöu með nokkrum
yfirburðum, hlutu 150,5 stig en UMSK
hlaut 128,5 stig og réöust úrslit um þaö
hvaða Uö fylgdi Armenningum i 1.
deild ekki fyrr en eftir síðustu grein
mótsins, svo jöfn var keppnin. Þaö
voru Borgfirðingar sem veittu UMSK
svo harða keppni og mátti vart á milli
s já hvort liðiö var sterkara.
Besta afrek mótsins var að sjálf-
sögðu spjótkast afreksmannsins Eln-
ars Vilhjálmssonar. Hann kastaði 81,78
metra sem er lengsta kast sem Islend-
ingur hefur náð hér á landi. Arangur í
öðrum greinum var frekar slakur enda
veður slæmt báöa keppnisdagana,
rigning fyrri daginn og sföan leiðinda-
rok í gær. Þar meö náöist ekki góöur
árangur í hlaupagreinum en þó má
maöur til með að geta árangurs 13 ára
telpu úr UMSK. Friða Þórðardóttir
heitir hún og sigraði nokkuð óvænt i
1500 metra hlaupi á tímanum 5:28,4
mín. sem er mjög góður timi hjá 13 ára
telpu.
„Eg byrjaði að æfa í júni í fyrra og
hljóp þá á um 6:30,0 min. Eg átti ekki
von á því aö vinna en það var gaman,”
sagði hún eftir keppnina.
I þriðja sæti i 2. deild urðu sem sagt
Borgfirðingar með 126 stig og fjórðu
Ungmennasamband Austur-Húnvetn-
inga með 101 stig. Tvö neðstu félögin
HSK (75,5 stig) og USVH (67,5 stig)
féllu í 3. deild.
-SK.
^ * - -