Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1983, Page 36
36
DV. MANUDAGUR18. JÚLI1983.
Andlát
Guðmundur Halldórsson fró Isafiröi
lést í Hrafnistu í Reykjavík 15. júlí.
Klara Gisladóttir frá Bíldudal, Máva-
Wíð 29, verður jarösungin frá Foss-
vogskirkju þriðjudaginn 19. júlíkl. 15.
Kristinn Sumarliðason, Háagerði 43
Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bú-
staöakirkju mánudaginn 18. júli kl.
13.30.
Tilkynningar
Frá Vestfirðinga-
félaginu í Reykjavík
Styrklr til Vestíirðtnga.
Eins og undanfarin ár verða veittir styrkir
til vestfirskra ungmenna úr Menningarsjóði
vestfirskrar æsku til framhaldsnáms sem þau
geta ekki stundaö í heimabyggöinni. Forgang
hafa:
I. Ungmenni sem misst hafa fyrirvinnu sína,
föður eða móður.
II. Konur, meðan ekki er fullt jafnrétti í
launum.
III. Vestfirðingar búsettir á Vestf jörðum.
Vestfirðir eru allt félagssvæði Vestfirðinga-
félagsins (Isafjörður, Isafjarðarsýslur,
Stranda- og Barðastrandarsýsla). Umsókn
skal senda fyrir lok júlí og skal vottorð fylgja
frá skólastjóra eða öðrum sem þekkir
viðkomandi, efni hans og aðstæður. Umsóknir
skal senda Sigriði Valdimarsdóttur, Hrafns-
eyri við Amarfjörð, 465 Bildudalur.
Fundur Verð-
lagsstofnunar
A fundi sinum 11. júli 1983 samþykkti
Verðlagsráð eftirtaldar hækkanir á verði
vöru og þjónustú:
1. Bensin hækkaði um 13,5%, úr 19,30 kr. hver
h'tri í 21,90 kr. eöa um 2,60 kr. Mestur hluti
hækkunarinnar rennur til ríkissjóðs eða 2,07
kr. en 0,33 kr. er vegna hækkunar innkaups-
verðs.
2. Gasolía hækkaði um 2,4%. Verð frá leiðslu
var 8,40 kr. hver lítri en verður nú 9,60 kr.
Verðhækkunin 0,20 kr. er vegna hækkunar
ínnkaupsverðs.
3. Svartolía hækkaði um 0,7%. Hvert tonn
kostar nú 7.000 kr. en kostaði áður 6.950 kr.
Orsök hækkunarinnar er aukið framlag til
innkaupajöfnunarreiknings.
4. Brauð hækkuðu um 10—19%. Sem dæmi má
nefna að 500 g franskbrauð kostaði áður 11,95
kr. en kostar nú 14,15 kr. og sigtibrauð
(normalbrauð) kostaði 11,25 kr. að hámarki
hver 625 g en kostar nú 12,35 kr. Orsakir
hækkunarinnar eru hráefnahækkanir í kjölfar
gengisfellingarinnar 27. maí sl.
5. Borðsmjörliki og jurtasmjörliki hækkaði
um rúmlega 5%. Er hækkunin heimiluð vegna
breytinga á hráefnaverði eftir áðumefnda
gengisbreytingu.
6. Þjónustugjöld skipafélaga, þ.e. upp- og út-
skipunargjöld og geymsluleiga, hækkuðu um
21,0%. Þessi gjöld hækkuöu síðast 28. apríl en
síðan þá hafa orðið hækkanir á rekstrarkostn-
aði vinnuvéla, rekstri fasteigna og launum.
Eru þessir liðir meginorsök heimilaðrar
hækkunar þjónustugjaldanna.
Verðhækkanir á brauðum, smjörlíki og
þjónustugjöldum vegna gengisbreytingarinn-
ar 27. maí hafa ekki áður komið fram í verði.
Telur Verðlagsstofnun að áhrif gengis-
fellingarinnar séu nú að mestu komin fram í
vöruverði.
Kirkjuritifl
Ut er komið Kirkjuritið — 49. árgangur 2.
befti 1983.
Meðal efnis er Kirkja og myndlist, kirkju-
leg og trúarleg list á Islandi, dr. Gunnar
Kristjánsson; Um kirkjulist á Kjarvalsstöðum
og þátt trúar í list samtímans, Halldór Björn
Runólfsson; „Hér stend ég...”, kafli úr ævi-
sögu Lúthers eftir R.H. Bainton; Barátta
Alkirkjuráðsins gegn kynþáttamisrétti, sr.
Bemharður Guðmundsson; Myndir af
uppgerðum kirkjum og margur annar
fróðleikur.
Kvenfélagasamband
íslands
Landsþing Kvenfélagasambands Islands, hiö
tuttugasta og fimmta, var haldið að Hrafna-
gili í Eyjafirði daganna 11. til 13. júni 1983.
Forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir,
vemdari samtakanna, sat þingið og meðal
annarra gesta voru frú Joan Coady, forseti
Alþjóðasambands húsmæðra , A.C.W.W., As-
geir Bjamason, forseti Búnaðarfélags
Islands, og kona hans, frú Ingibjörg Sigurðar-
dóttir.
Fyrirlesarar þingsins voru þær Sigríður
Thorlacius, fv. formaður K.I., er hélt erindi
um friðarhreyfingu íslenskra kvenna og Elsa
E. Guöjónsson safnvörður er hélt erindi um
störf Þjóðbúninganefndar.
Landsþingsfulltrúar þáðu boð Kaupfélags
Eyfirðinga, bæjarstjórnar Akureyrar og
hinna þriggja héraðssambanda Eyjafjarðar,
sem og stóðu fyrir þinghaldi að þessu sinni, en
undanfarið hafa landsbyggðarsamböndin
haldið landsþing til skiptis.
Landsþingið ræddi mörg mál. Mestur
áhugi var á að auka starf Leiðbeiningar-
stöðvar húsmæðra, sem K.I. hefur rekið um
langt árabU. Ennfremur að komið verði á
leiöbeinendastarfsemi úti á landi, héraös-
ráðunautar verði ráðnir tU farkennslu. Stefnt
skuli að aukningu starfsUðs K.I. úr hálfu
stöðugUdi i þrjú og stjóminni faUð að sækja
um fjárstyrk tU þess úr ríkissjóði.
Friðarmál voru og rædd og samþykktu
þingfuUtrúar áskorun á aUar islenskar konur
að stofna með sér friðarhópa og vinna mark-
visst að þvi að komandi kynslóöir geti Ufað i
heimi friðar og frelsis.
Varðveisla hmna íslensku þjóðbúninga var
talin of brýnt erindi til þess að búa við fjár-
svelti, þar er mikið verkefni framundan sem
ekki getur beðið lengur og skora konur ein-
dregiö á Alþingi að veita þessu mikla verk-
efni, vemdun þessa þjóðararfs, fastan árleg-
an fjárstyrk.
ÞingfuUtrúar samþykktu áskorun á ríkis-
stjóm Islands aö hraöa undirbúningi sam-
feUds lifeyriskerfis fyrir aUa landsmenn,
þannig að lífeyriskerfið tryggi öUu fóUci sömu
réttindi.
Mörg önnur mál voru rædd og biða úr-
vinnslu nýrrar stjómar, en hana skipa: María
Pétursdóttir formaður, Stefanía Maria
Pétursdóttir varaformaður, Sólveig Alda
Pétursdóttir ritari. Varastjóm skipa: Helga
Guðmundsdóttir, Unnur Schram Agústsdóttir
og Þórunn Eiriksdóttir.
Ferðalög
Ferðir á
Hornstrandir
I sumar mun Djúpbáturinn á Isafirði halda
uppi ferðum á Homstrandir svo sem verið
hefur undanfarin ár. Ot hefur verið gefin
áætlun, sem sýnir á töflu ferðir þær sem fara
á og tíma þann sem ráðgert er að vera á hin-
um ýmsu viðkomustöðum bátsins. Nú þegar
er orðið ljóst að þessi áætlun mun riðlast
eilítið og hafa upplýsingar um það veriö send-
ar þeim aðilum sem selja í ferðir bátsins.
Breytingar þær sem um er að ræða snerta litt
fyrr auglýsta brottfarartíma bátsins frá Isa-
firði heldur fremur viðkomustaði og tíma þar.
Því vill hf. Djúpbáturinn benda fólki á að leita
sér upplýsinga um þessar breytingar um leið
og itrekað er að nauðsynlegt er að fólk bóki
sig í ferðirnar með nokkrum fyrirvara, því
ferðir geta verið felldar niöur eða breytt ef
ekki er bókað í þær eöa á viðkomandi staði.
(Einkanlega á þetta við um þær ferðir sem
eru áætlaðar aðra daga en föstudaga.)
Bókun og sölu í ferðir bátsins annast
Ferðaskrifstofa Vestf jarða á Isafirði og aðrar
almennar ferðaskrifstofur.
Sumarleyfisferðir:
6. 19.-25. júli (7 dagar): Barðastrandar-
sýsla. Gist í húsum.
7. 20.—24. júli (5 dagar): Tungnahryggur —
Hólamannaleið. Gönguferð með viöleguút-
búnaði.
8. 22.-26. júlí (5 dagar): Skaftáreldahraun.
Gist að Kirkjubæjarklaustri.
9. 22.-27. júlí (6 dagar): Landmannalaugar ■
— Þórsmörk. Gönguferð milli sæluhúsa.
UPPSELT.
10. AUKAFERÐ. Landmannaiaugar — Þórs-
mörk. 29. júli — 3. ágúst. Nauðsynlegt að
tryggja sér farmiða i sumarleyfisferðirnar
timanlega. Allar upplýsingar á skriðstofunni,
öldugötu 3.
Ferðafélag lslands.
— VIÐ EIGUM
“ SAMLEIÐ
íþróttir
íslandsmeistaramót
aldursflokkanna
14ára(69)ogyngrií
frjálsfþróttum 1983
Meistaramót Islands 14 ára (1969) og yngri 1
frjálsíþróttum 1983 fer fram í Reykjavík dag-
ana 23. og 24. júli i umsjá frjálsiþróttadeildar
IR. Keppt verður á frjálsíþróttavellinum í
Laugardal.
Keppnisgreinar eru:
Laugardaginn 23. júli:
Piltar: Hástökk, kúluvarp og 4X100 m
boðhlaup.
Telpur: Langstökk, 800 m hlaup og 4X100 m
boðhlaup.
Strákar: 60 m hlaup, hástökk og kúluvarp.
Stelpur: 60 m hlaup, hástökk og kúluvarp.
Sunnudaginn 24. júlí:
Piltar: 100 m hlaup, 800 m hlaup, langstökk og
spjótkast.
Telpur: 100 m hlaup, hástökk, kúluvarp og
spjótkast.
Strákar: 800m hlaup, langstökk og 4X100 m
boðhlaup.
Stelpur: 800 m hlaup, langstökk og 4X100 m
boðhlaup.
Félög mega senda 3 þátttakendur í hverja
grein en þó fleiri ef allir hafa náö 800 stigum
eða meira i greininni, samkvæmt stigatöflu
FRI fyrir börn og unglinga, miðað viö aldur
keppenda.
Þátttökutilkynningar þurfa að berast til
Hafsteins Oskarssonar IR eða á skrifstofu
FRI á þar til gerðum keppniskortum ásamt 20
kr. þátttökugjaldi fyrir hverja einstaklings-
grein og 50 kr. fyrir boðhlaupssveit í síðasta
lagi að kvöldi laugardagsins 16. júli.
Fyrirtæki
Jón V. Olafsson, Barbara Armanns,
Amar Jónsson og Vignir Jónsson
Lerkilundi 31, Akureyri reka sameign-
arfélag á Akureyri undir nafninu Beta-
leigan sf. Tilgangur félagsins er út-
leiga á myndböndum, myndsnældum,
tölvum og leiktölvum.
Sveinn Magnússon, Háeyrarvöllum 22,
Eyrarbakka og Höröur Jónsson, Há-
eyrarvöllum 42, Eyrarbakka reka i
sameiningu fyrirtæki undir nafninu
Bakkavélar sf. Tilgangur meö rekstr-
inum er rekstur vinnuvéla, lánastarf-
semi og rekstur fasteigna. Heimili
firmans er aö Háeyrarvöllum 22, Eyr-
arbakka og vamarþing á Eyrarbakka.
örn Magnússon, Túngötu 15, Súðavík
og Siguröur Sigurösson, Stóragerði 26,
Reykjavík reka i Reykjavík sameign-
arfélag undir nafninu Stálvöm sf. Til-
gangur er sandblástur og málmhúöun
á skipum, tönkum og öörum mann-
virkjum.
Margrét Ingólfsdóttir, Hverfisgötu 54
Reykjavík hefur gerst eignaraöili aö
1/3 Wuta í Morkinskinnu sf.
Gunnlaugur V. Gunnlaugsson, Skógar-
lundi 6, Garöabæ, hefur selt Olafi
Gunnari Glíslasym Söluturninn aö
Vesturgötu 27 þann 4. mars 1983.
Halldór Sigurðsson, Heynesi, Innri-
Akraneshreppi, rekur fyrirtæki á
Akranesi, aö Sandabraut 2, undir nafn-
inu Vélaleiga Halldórs Sigurðssonar.
Starfsemin er fólgin í útleigu tækja og
vinnuvéla.
Eyþór Heiðberg, Brúnalandi 18,
Reykjavík rekur í Reykjavík einka-
fyrirtæki undir nafninu Feröaskrifstof-
an Flugferðir-Sólarflug. Tilgangur er
rekstur feröaskrifstofu.
Guömundur Halldórsson hefur selt
þeim Reyni Finnbogasyni, Austur-
bergi 2, Reykjavik, Páli V. Einarssyni,
Langholtsvegi 102, Reykjavík og Olafi
Sigurðssyni, Bollagörðum 37, Seltjam-
arnesi hlut sinn í Bilasölu Garðars sf.
þannl.ágúst 1982.
Úlfar Þormóösson, Grjótagötu 9,
Reykjavík, rekur í Reykjavik einka-
fyrirtæki undir nafninu Spegillinn.
Tilgangur er útgáfa blaös undir sama
nafni.
Ragnar Halldórsson, Haukshólum 2,
Reykjavík og Þórður Kr. Sigurðsson,
Þingaseli 5, Reykjavík reka í Reykja-
vik sameignarfélag undir nafninu
Belco sf. Tilgangur er umboðs- og
heildverslun.
Einar Amalds, Drafnarstíg 2, Reykja-
vík hefur gengið úr fyrirtækinu Faktor
Company. Jafnframt hefur Einar af-
salað Eyþóri Amalds, Asvallagötu 26,.
Reykjavflc eignarhlut sinum.
Garöar H. Svavarsson, Hæðarbyggð
22, Garöabæ, hefur lýst því yfir aö
Jónas R. Jónsson Sörlaskjóli 40,
Reykjavík varð einkaeigandi Kjöt-
verslunar Tómasar Jónssonar hinn 1.
janúar 1983:
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lögbirtlngablaðinu á fasteignlnni Gerðavegi
14A í Garöi, þingl. eign Ingimars Kr. Þorsteinssonar, fer fram á eign-
inni sjálfri að kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl. og Veðdeildar
Landsbanka tslands fimmtudaglnn 21.7.1983 kl. 14. 45.
Sýslumaðurinn í GuUbringusýslu.
Sveinn Fjeldsted, Prestbakka 7,
Reykjavík og Lúðvík R. Kemp, Rauða-
læk 11, Reykjavík reka í Reykjavík,
sameignarfélag undir nafninu Sveinn
og Lúðvík sf. Tilgangur er rekstur vél-
smiöju.
Ólafur Thoroddsen, Suðurlandsbraut
20, Reykjavík, rekur í Reykjavík
einkafyrirtæki undir nafninu Kjúkl-
ingastaðurinn v/Tryggvagötu.
Tilgangur er vinnsla og sala kjúklinga.
Ólafur Ægisson, Hlíðarbyggð 43,
Garðabæ, rekur í Reykjavík einka-
fyrirtæki undir nafninu Hár-gallerí.
Tilgangur er rekstur hársnyrtistofu.
Bjöm Bjömsson, Miðvangi 109, Hafn-
arfirði og Birgir Ottósson, Neshaga 14,
Reykjavík reka í Reykjavík sameign-
arfélag undir nafninu Bjöm og Birgir
sf. Tilgangur er umboös- og heildversl-
un.
Eysteinn Þórir Yngvason, Kleppsvegi
40, Reykjavík og Bergijót Viktorsdótt-
ir, sama stað, reka í Reykjavík sam-
eignarfélag undir nafninu Dynur sf.
Tilgangur er smiði og sala á háþrýsti-
vatnsdælum og búnaði og sem verktaki
á háþrýstispúlun og sandblæstri.
Valdheiöur Valdimarsdóttir, Rauða-
gerði 55, Reykjavík rekur i Reykjavík
einkafyrirtæki undir nafninu Laugar-
nesti. Tflgangur er rekstur btöskýlis að
Laugamesvegi 2, Reykjavík.
Jóhannes Guðmundsson, Garðbraut
78, Garði, hefur selt eignarhlut sinn í
Miöhúsum sf., Garði.
Vilberg Þór Jónsson, Vogagerði 25,
Vatnsleysustrandarhreppi og Magnús
Guðbjartsson, Langeyrarvegi 18,
Hafnarfiröi reka sameignarfélagið
Virki sf. Tilgangur félagsins er
húsbyggingar, verktakastarfsemi og
skyldur rekstur.
Agnes Jóhannsdóttir ritar ein nafn
firmans Kistan, sem eigandi, en frá
Snjóaði nióur
ífjöll
Veður til útivistar var allt annað en
skemmtilegt um helgina. Fjöldi fólks
sem ætlaði í útivem sneri við, enda allt
annað en fýsilegt að dvelja i tjaldi eöa
illa upphituöum bústööum i kuldanum
semþávar.
Rokiö og kuldinn var svo að segja
um allt land. Á Norðurlandi snjóaöi
t.d. niöur í miö fjöll og í byggð á Vest-
fjörðum var sums staöar slydda á
laugardagskvöldið.
-klp-
Bráðkvaddur
fbátámiðri
Reykjavíkur-
höfn
Menn sem leið áttu um Reykjavikur-
höfn i morgun tóku eftir þvi að lítill
fiskibátur var úti á miöri höfninni og
keyrði þar hring eftir hring.
Hafnsögubáturinn sem var aö fara
út í skip á ytri höfninni fór og kannaði
hvað þarna væri um að vera. Kom þá í
ljós að látinn maður var um borð i
bátnum. Er taliö að hann hafi orðið
bráðkvaddur við stýrið, en hann var
einnábátnum.
-klp-
tilkynningardegi fellur brott nafn
Guðrúnar Njálsdóttur.
Jakob Jónsson, Guðmundur
Guömundsson, Hafþór Sigurðsson,
Rósa M. Sigursteinsdóttir, Baldur
Reynisson, Hróðmar Sigurðsson,
Eiríkur Ingi Björnsson, Þorgrímur
Pálmason, Páll Ingþór Kristinsson,
Guðmundur Sæmundsson, Ottó Finns-
son, Guðný Sigurðardóttir, Lárus Jóns-
son, Þormar Kristjánsson, Hilmar
Kristjánsson, Emil Þorbjömsson og
Þórður Pálmi Þórðarson reka
sameignarfélag á Blönduósi undir
firmanafninu Starfsmannafélag Stíg-
anda. Tilgangur félagsins er að útvega
félagsmönnum, skv. pöntunum, góðar
vörur á kostnaðarverði.
Björn Valdimarsson, Markarflöt 53,
Garðakaupstaö rekur innrömmun á
myndum að Markarflöt 53, Garða-
kaupstaö undir firmanafninu Virkni.
Stofnaö hefur verið sameignarfélag-
ið Búbót, sultugerð sf., til heimilis að
Efstalundi 10, Garöabæ. Stofnendur
félagsins eru Eiríkur Kristinsson
Efstalundi 10, Garðabæ og Axel Ingi
Eiríksson, s. st. Tilgangur félagsins er
framleiösla og sala á sultu og saft.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup eiga i dag, mánudaginn
18. júli, hjónin Rannvelg Hjaltadóttir
og Guðráður Sigurðsson, Sunnubraut
31 Kópavogi. Þau eru stödd aö Laugum
í Þingeyjarsýslu.
85 ára er i dag, mánudaginn 18. júlí,
Jón Katarinusson frá Arnardal viö Isa-
fjörð. Afmælisbarnið ætlar að taka á
móti gestum sínum í dag, sunnudag, á
heimili sinu i Stigahlíð 20 hér i
Reykjavflc.
ÓK Á STAUR
Það óhapp varð á Suðuriandsbraut-
inni siöastliðið laugardagskvöld aö
ökumaður missti stjóm á bifreið sinni
með þeim afleiöingum að hún hafnaði
á ljósastaur. Bifreiöin hringsnerist
umhverfis staurinn og rifnaöi síðan
frá. Staurinn gekk allt inn að fremra
farþegasæti bifreiðarinnar og þykir
mesta mildi að enginn skyldi hafa setið
þar. ökumaður var einn í bílnum
þegar óhappið átti sér stað og mun h'tið
slasaður samkvæmt upplýsingum DV.
DV-mynd: S.