Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1983, Síða 39
DV. MÁNUDAGUR18. JtJLl 1983.
39
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
„Gagnstéttin"
Það var fróðlegt að lesa
Þjóðvlljann á miðvikudag
þar sem sagði frá vatnsflóðl
við Reykjaveg þar sem „12
tonna” vatnslelðsla sprakk
að sögn blaðsins. Fyrlr utan
skemmdir á leiðslunnf og hús-
um i krlng, „fór gagnstéttin á
loft”.
Nú er það spurnlngin hvað
„gagnstétt” er. Er það stétt
verkamanna sem hefur verið
ÞjóðvUjamönnum helsta
„gagnstéttin” um árabU? Og
ef „gagnstétt” fer á ioft, er
þar þá „gagnbylting” á ferð?
Lfk?
Það kom undrunartónn í
rödd útvarpsþulu í auglýs-
lngalestri á fimmtudag, þeg-t
ar hún las eftirfarandi:
„Muniðlik.. ”
Eflaust hefur fleiri brugðlð
við þessa auglýsingu, en ekki
batnaði það þegar þulan lelð-
rétti sig og las, undrandi þó:
„Munlð líka mann”.
Svo létti yfir þulu og
hlustendum þegar auglýs-
lngin komst i sltt rétta horf:
„Munlð likamann...”
En það var spennandl að
hlusta á þetta.
Fjórar deitdb’
1 simsvara Hundaræktarfé-
lags tslands eru veittar upp-
iýsingar um starfsemi f éiags-
ins. Þar kemur i ljós að ná má
i formanninn á tilteknum tim-
um i sima og að i þann sama
sima máeinnlg hringja bygg-
ist menn hafa samband við fs-
lensku fjárbundadeOdina.
Hygglst menn (eða hundar)
hins vegar ganga i retriever-
deildina, poodle-delldina eða
setter-deildina eru sérstaklr
símar fyrir hverja deild.
Þetta er aideOis umfangs-
mikill félagsskapur um at-
hæfi sem víðast hvar í þétt-
býii er ólöglegt! En hvers
elga Afganistan-hundamir
að gjalda, að hafa ekki sina
eigindelid?
Fyrir hvaða
markað?
A forsíðu Heigarpóstsins
þess sem kom út fyrir sið-
ustu helgl er auglýsing frá
Sambandinu um Act-skófatn-
að. Mönnum ber ekki aiveg
saman um það á hvaða
markað sé sigtað með þess-
ari auglýsingu því að þótt
hún sé um islenska vöru og
birtist f islensku blaði er bún
með enskum texta!
Skyidl Heigarpósturlnn
seijast svo vel f útiöndum?
Blessuð
börnin
Albert fjármálaráðherra
hefur gefið eftir söluskatt af
Tívolí Miklatúni, eins og
kunnugt er. Meðal annars
hefur Albert sagt að þetta sé
gert fyrlr biessuð bömln.
Kollega hans, Matthías
Bjarnason, hefur ekki leitt
hugann eins ákveðlð að bless-
uðum börnunum. Þannig hef-
ur hann til dæmls ekld séð
ástæðu til að létta sérstak-
lega undlr með hjónunum á
Djúpavogi sem eignuðust þri-
bura fyrir nokkru (viðtal iDV
á laugardaglnn) en farið hef-
ur verlð fram á að móðirin fái
lengra fæðlngarorlof en veitt
er eftir fæðlngu eins bams.
Nú gera menn þvi vitaskuid
skóna aö ráðherran óttist að
ef undanþága verði veitt
muni slfkt hafa fordæmisgfldi
sem erfitt verði að ráða við
Óraunsæir
bankamenn
Það er undarlegt að skoða
ávisanaheftln frá Lands-
bankanum. Þar lnnan á káp-
unni era leiðbeiningar um
það hveraig eigi að halda
bókhald um útgefnar ávfsan-
ir og innlagt fé. Eitthvað
virðast þeir i Landsbankan-
um hafa undariegar hug-
myndir um verðlag, þvi þar
er tekið sem dæmi að ávisun
upp á 77 krónur og tiu
aura sé gefin út vegna mat-
arkaupa! Sú upphæð myndi
hins vegar ekki duga vísi-
töiufjölskyldu fyrir dags-
skammti af mjólk, hvað þá
því sem seigara er.
Umsjón:
Ölafur B. Guðnason.
Nýjar bækur
Nýjar bækur
ÁGÚST H BjARNASON
íslensk f lóra
með litmyndum
Bókaútgáfan Iðunn hefur gefið út Is-
lenska flóru með litmyndum. Höf-
undur bókarinnar er Ágúst H. Bjama-
son grasafræðingur en Eggert Péturs-
son myndlistarmaður hefur gert lit-
myndir af meginþorra islenskra
plantna og margar svarthvítar skýr-
ingarmyndir. Þetta em einhverjar
vönduðustu plöntumyndir, sem sést
hafa, og allar gerðar eftir völdum,
þurrkuðum eintökum úr isienskum
söfnum, en með því að handgera
myndirnar koma öH einkenni plantn-
anna greinilegast fram. Bókin er 352
blaðsíöur i Skírnisbroti, bundin i þægi-
legt band, með mörgum skrám, yfir-
litsköfium og skýringu hugtaka en
meginefni hennar er þó fróðleikur um
einstakar plöntur og alveg ný aðferö til
að þekkja þær.
I kynningu forlagsins á bókarkápu
segir svo: „I bók þessari er fjallað um
330 tegundir plantna sem vaxa villtar á
Islandi. 270 forkunnargóðar litmyndir
prýða bókina. Plöntunum er raðað upp
á nýstárlegan hótt eftir lit og skipan
blóma. Bæði litmyndimar og einfaldir
leiðbeiningalyklar auðvelda öllum al-
menningi að greina plöntur á nýjan og
einfaldan hátt og koma í stað hinna
eldri greiningalykla sem oft reyndust
mönnum þungir og torlærðir. — Stutt
lýsing fylgir hverri tegund, þar sem
'jafnframt er getið um helstu vaxtar-
staði, útbreiðslu og blómgunartíma.
Þá er getið um margvísleg not sem
menn höfðu eða töldu sig hafa af plönt-
um, svo sem lækningamátt, hressing-
ardrykki, hvenær best var að byrja
slátt og margt fleira. — Bók þessi er
með ailt ööm sniði en áður hefur
tíðkast enda gerð handa almenningi.
Islensk flóra með litmyndum á erindi
til allra sem unna íslenskum plöntum
og ætti að vera til á hverju heimili.”
Iðunn hefur áður gefið út eftir Agúst
H. Bjarnason tvær bækur, Almenna
vistfræði og Leiðbeiningar um plöntu-
söfnun en hin síðamefnda og flóran
ættu að reynast notadr júgar einmitt á
þessum árstíma þegar mesta ánægju
og fróðleik má hafa af því aö skoða
gróðurlandsins.
Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði Is-
lenska flóru með litmyndum en Prent-
myndastofan hf. litgreindi myndirnar.
'_.
SiguríEvrópu
15. og síðasta bindi stríðs-
sögu Almenna bókafélags-
_ins.
Bókaklúbbur Almenna bókafélags-
ins hefur sent frá sér 15. og síðasta
bindi Heimsstyrjaldarsögu sinnar.
Nefnist það Sigur í Evrópu og fjallar
um lokaátök heimsstyrjaldarínnar
síðarí sem oft voru ótrúlega harðvítug
og grimm, dauðateygjur þýska hers-
ins, dauða Hitlers og Göbbels og upp-
gjöf Þjóðverja.
Höfundur bókarinnar er Gerald Sim-
ons, einn af ritstjórum TIME-LIFE-
bóka, og ráðunautar hans, tveir sagn-
fræðingar, sem báðir hafa komiö við
sögu áður við samningu þessarar rit-
raðar um heimsstyrjöldina. Þýðandi
Sigurs í Evrópu er Bjöm Jónsson.
Þessi ritröð Bókaklúbbs Almenna
bókafélagsins um síðari heimsstyrjöld
er nú alls orðin 15 bindi, og kom fyrsta
bindið, Aðdragandi styrjaldar, út hér
árið 1979. Ritstjóri alls verksins hefur
verið ömólfur Thorlacius rektor.
Lygn streymir
Don
eftir Mikhail Sjolokhov
Bókaklúbbur Almenna bókafélagsins
hefur sent frá sér hið víðkunna lista-
verk Lygn streymir Don eftir
rússneska nóbelsverölaunahöfundinn
Mikhail Sjolokhov í 2. útgáfu. Þýðand-
inn er Helgi Sæmundsson. Þetta er
fyrra bindi verksins, en síðara bindið
kemur út í næsta mánuði.
Lygn streymir Don er ein af fræg-
ustu skáldsögum Rússlands á þessari
öld og fyrir hana hlaut höfundurinn
Sjolokhov nóbelsverðlaunin árið 1965.
Hún fjallar um Rússland byltingarinn-
ar, eins konar ættarkrónika er segir
frá landi og þjóð á veðrasömum
örlagatímum, en er jafnframt
ógleymanleg ástarsaga, djúptæk bar-
áttusaga og tilkomumikil þjóðlifssaga,
eins og þýðandinn, Helgi Sæmundsson,
kemst að oröi í grein um söguna sem
hann ritar í Fréttabréf bókaklúbbsins.
Aöalpersóna sögunnar er Gregor
Melekoff. Hann lifir í æsku að gömlum
og hefðbundnum kósakkasið, stritar,
elskar, gleðst og hatar. Svo hefst
heimsstyrjöldin fyrri. Síðan skellur
yfir bylting og borgarastyrjöld, og
hinn glæsilegi Gregor berst fyrir þung-
um straumi atburða og örlaga uns
hann stendur uppi ráðlaus og vonlaus.
Þetta er saga um mikilhæfan einstakl-
ing í óstjórnlegum hamförum lands og
þjóðar.
Þetta fyrra bindi er 375 bls. aö
stærð og unnið í Prentsmiðjunni Odda.
íslensk
ferðaflóra
Almenna bókafélagiö hefur sent frá
sér tslenska ferðaflóra eftir Askel
Löve í enskri þýðingu höfundarins
undir nafninu Flóra of Iceland.
Myndirnar í bókinni eru eftir Dagny
Tande Lid.
Islensk ferðaflóra kom fyrst út árið
1970 og síðan í annarri útgáfu endur-
skoöaðri 1977 og var sú útgáfa endur-
prentuö 1981. Enska þýðingin er gerð
eftir hinni endurskoðuðu útgáfu bókar-
innar.
I þessari bók er lýst öllum þeim teg-
undum æöri jurta sem vitað er að vaxi
villtar á Islandi og auk þess þeim slæð-
ingum sem örugglega hafa numið hér'
land.
Islensk feröaflóra er mikil bók, hin
enska útgáfa 403 bls. aö stærö og er
með mynd af sérhverri plöntu sem
nefnd er. Auk þess eru fremst í bók-
inni litmyndir af nokkrum algengustu
islensku jurtunum. Nákvæmur ættar-
lykill er framan við megintextann og
er auðvelt aö greina plöntumar með
hjálp hans og myndanna í bókinni.
I lok bókarinnar eru skrár yfir
latnesk, ensk og íslensk heiti plantn-
anna og vísað til blaðsiðna þar sem um
þær er ritað.
Bókin er gefin út á ensku vegna
hinna mörgu ferðamanna sem hingaö
koma og áhuga hafa á að kynna sér
gróðurríkilandsins.
Afgreiðum .x— '
stimpla 11
með stuttum
fyrirvara. ’H
Stimplagerð “
Félagsprentsmiðjunnar hf.
Spitalastig 10 - Simi 11640
DÖMU-OGHERRA-
PERMANENT
strípur í öllum litum. Lit-
anir, lagningar, klipp-
ingar, blástur, djúpnær-
ing og glansskol. Erum
aöeins með fyrsta
flokks vörur. Ath. Opið
fimmtudaga til kl. 20.00.
Vandlátra val er
Hárgreiðslustofa
EDDU & DOLLÝ
Æsufelli 6 - Simi 72910.
MEIRA ÖRYCCI
Á VOTUM VECUM
STYTTRI VEGALENGD VIÐ HEMLUN
Þegar þú færð þér dekk undir bílinn, gerir þú
þér þá grein fyrir bremsueiginleikum og veg-
gripi dekksins?
GOODYEAR Grand Prix-S er þeim eiginleikum
búið að það er með 74% snertiflöt við veginn
á 90 km. hraða í 2 mm. vatnsborði.
Þetta er einn sá besti árangur sem náðst hefur
hvað varðar öryggi við varasöm akstursskilyrði.
Fullkomin hjólbarðaþjónusta
Tölvustýrð jafnvægisstilling
GOODfYEAR
GEFUR 0'RÉTTA GRIPIÐ