Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1983, Side 41

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1983, Side 41
DV. MÁNUDAGUR18. JULI1983. 41 Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Vinsæll ökuníð- ingur David Essex þekkja sjólfsagt þeir er leggja eyrun við sætmullu. David hefur auðgast vel á öllu saman og var alveg tilvalið að nota eitthvað af þeim aurum í eitt stykki sportbíl. Þvílíkt tæki keyra menn ekki í fyrsta gír og David þeysti beint út á næstu hraö- braut og nánast rak bensínfetann niður úr gólfinu. Aður en menn gátu áttað sig var bíllinn kominn upp i 220 km per. klst. En á sekúndubroti skaust David inná radar réttvísinnar, og voru vælandi sírenur umsvifalaust settar í gang. Kauði var umsvifalaust látinn punga út stórri sekt, sem hann nú reyndar fór létt með, en því miður fékk ökufanturinn að halda ökuskír- teininu. Aðgangsmet Dægurlagaflytjandinn frægi, hann Barry Manilow, er gríöarlega vinsæll í h malandi sínu Ameríku, og líklega í fleiri löndum. Hann afrekaði það, eða r ' ttara sagt aðdóendur hans, að allir miðar ó fimm tónleika hans seldust upp á tveim tímum. Þetta þykir vel að verki staðið, sérstaklega vegna þess að Barry fær í sinn hlut nokkra tugi millj- óna, sem ábyggileta koma sér vel. Það fylgdi einnig frétu'nni að fyrir þetta kæmist Barry í he msmetabókina, en sjálfsagt finnst houum meira til að- gangseyrisins koma. Kosningar afstaðnar Vinsældakosningar ýmiskonar eru mjög tíðkaðar erlendis. Ein slfk var haldin i Ameríku fyrir skömmu og voru þeir vinsælustu og óvinsælustu valdir. Það vakti athygli að þaö voru ekki Ameríkanar sem voru taldir vin- sælastir, heldur Pólverji einn og ensk kona, nánar tiltekiö Jóhannes Páll páfi og Díana prinsessa. En það sem vakti ennþá meiri athygii var það að þeir óvinsælustu voru báöir Bandaríkja- menn en þeír sem börðust um botn- sætin voru þeir Ronald Reagan og tenniskempan John McEnroe. Önefnd bréfdúfa vitjar heimaslóða. ENN KLIÚFA BRÉF- DÚFUR LOFTIN Hvorki þeir bréfdúfnamenn né dúf- urnar þeirra láta deigan síga um þessar mundir, því hver stórkeppnin rekur aðra. I byrjun þessa mánaðar var enn eitt kappflugið, og í þetta sinn flogið frá Vestmannaeyjum og flugu dúfumar á þöndum vængjum vonarinnar 125 kílómetra leið, í heilar tvær klukkustundir með rok og lemjandi rigningu i fangið alla leið. Þó ekki hafi borist nákvæm tiöindi hvaöa fuglar hafi staöiö sig best þá má ætla að þar sem fuglar þeirra Steindórs, Einars og Björns fró Bræðraparti í Laugardal urðu í þrem efstu sætum, að þá hafi E.T., Skító og Silfri tyllt sér í efstu sætin. I 4.-6. sæti urðu fuglar Jóns Guðmundssonar, Alfabrekku. I 7. sæti fugl Reynis Lútherssonar frá Mosfellssveit og í 8.—10. sæti fuglar Guðmundar Olafssonar frá Njarð- vík. -SLS. Til sios með Væna Það eru fleiri en John Lennon sem eiga erfitt með að hverfa af jarðsviöinu. Nafni hans, leikarinn John Wayne, er enn á ferli, ekki í kvikmyndum sem kúastrákur eöa hermaður heldur um borð í skútu sem hann ótti, en var seld þegar hann lést fyrir fjórum árum síðan. Skúta þessi heitir „Gæsin”, og segir nýi eigandi skútunnar aö bæði sé hægt að finna fyrir og sjá „Stóra Jón” um borð í skútunni, og skelfí það alla upp úr skónum. Dæmi þessa eru, að nótt eina fyrir skömmu, þegar eigandinn lagði sig til svefns þá hafi hann heyrt fóta- tak ofan af dekki, og gekk skó- hljóðaeigandinn hring eftir hring. Þegar hann k vartaöi næsta dag var honum sagt að einmitt þennan hring hafi hann Wayne rölt á hverju kvöldi. Eins og aödáendur „Væna” muna þá var hann með stærri mönnum og átti hann í erfið- leikum, er hann rölti um skipiö, aö hann var sífellt að reka sig upp- undir lampa sem héngu hist og her um skipið. Þeir voru teknir niöur meðan John var á lífi. Eftir lát hans voru þeir settir upp aftur, og það var eins og við manninn mælt, menn fóru aö heyra hljóð, keimlík því þegar einhver rekur sig upp- undir. Þetta allt saman, auk annars, hefur leitt til þess aö skíthræddur eigandi skútunnar hefur ákveðið að selja hana. Því liggur hún þessa dagana við bryggju með skilti hangandi, þar sem stendur: ,ySkúta til sölu, draugur fylgir í kaupbæti.” FJÖLSKYLDUSKEMMTUN AÐ TJÖRNESI Fró Ingibjörgu Magnúsdóttur, fréttaritara DV á Húsavík. Kvenfélagiö Aldan gekkst fyrir fjölskylduskemmtun í og viö félags- heimilið Sólvang á Tjömesi föstu- dagskvöldiðB. júlí. I hreppnum eru 102 íbúar, 54 mættu á samkomuna. Var það fólk á öflum mögulegum aldri sem lék sér saman af hjartans list. Farið var í boðhiaup i iila passandi fötum og pokum, konumar ráku nagla en karl- amir þræddu nál, relptog var og fót- boltaleikur milli karia og kvenna. Enginn vann því dómarann vantaði. Að síðustu voru frábærar kaföveit- ingar seldar á mjög vægu verði. Félagið haföi áöur haldiö svona samkomu fyrir tveim árum. Næsta verkefni félagsins verður að taka á móti kvenfélagskonum á skemmti- ferð úr Fljótum í Skagaörði. Núverandi formaöur kvenfélags- ins er Margrét Bjartmarsdóttir. -JBH. DV-myndir IM. Kvenfólklð hamast við að reka títommuna í bjálka. Sigtry ggur Bjarnason þræðir nál af miklum móð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.