Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1983, Síða 5
DV. FIMMTUDAGUR 28. JÚLI1983.
5
Omar Ragnarsson: „Er ekld baraa-
karl samkvœmt rikisstjórninni. Þau
era ekki á ríkisstjórnaraldrinum.”
Viídiborga
áannanhátt
Ómar Ragnarsson, fréttamaður sjón-
varps:
„Ég segi nú eins og Tolli í Sild og
fiski, ég kvarta ekki yfir sköttunum.
En ég vildi aö ég gæti greitt þó á annan
hátt. Sýnist nefnilega megniö af laun-
unum sem eftir er ársins fara i skatt-
ana.
Annars er ég meö stóra fjölskyldu,
en telst því miður ekki barnakarl sam-
kvæmt ríkisstjórninni þar sem þau eru
öll komin yfir átta ára aldurinn. Þau
eru sem sagt ekki á ríkisstjórnaraldr-
inum.”
Finnst þér að leggja eigi aukna
áherslu á óbeinu skattana á kostnað
þeirra beinu?
„Já, ég er hlynntur því að ná skött-
unum inn með neyslu.”
Sýnist þér bruðlað með skattpening-
ana?
„Veit þaö ekki. Hef að minnsta kosti
ekki neitt vit á þjóðarbókhlöðunni.
-JGH.
Skattamir
Þórarinn Friðjónsson stöðumæla-
vörður:
„Skattarnir eru prýðilegir, þeir eru
lágir.”
Er skatturinn ekki miklu hærri en í
fyrra?
„Eg hef ekkert hugleitt breytingar
frá því í fyrra. Hann var líka lágur
þá.”
Ert þú fylgjandi þvi að draga úr
beinum sköttum en hækka óbeina ?
„Það má alveg taka söluskatt af
nauðsynjavörum eins og fatnaði og því
sem maöur notar daglega. En hins
vegar má hann vera á munaðarvörum,
til dæmis fegrunarlyfjum og öðru sem
maður kallar drasl.”
Hvað um sjónvörp og bíla, er það
munaður?
..Sjónvarpið er jú lúxusvamingur.
Eg lenti nú lika í því um daginn að
skrifa stööumælasekt é Playmobil. Eg
lít reyndar á alla svona einkabíla sem
„Playmobil”.
En þú ert þá ekkert óhress með
skattana?
„Nei, ég er að minnsta kosti ánægður
fyrirsjálfanmig.” -JBH.
Upphæðin kom ekki á óvart
Helga Karlsdóttir: „Sé ekkert.
hrópandi bruðl í ríkiskerfinu.”
Helga Karlsdóttir, vinnur á skrif-
stofu veðurstof unnar:
„Ja, ég er ekki óánægð. Þetta er
svipað og ég átti von á og þess vegna
kemur upphæðin mér ekki á óvart.”
Viltu hafa öðruvísi skattheimtu,
leggja til dæmis niður tekjuskattinn og
auka neysluskatta?
„Já, ég vil tvímælalaust láta leggja
niður tekjuskattinn og leggja aukna
áhersiu á óbeinu skattana.”
Finnst þér bruðlað meö skattpen-
ingana?
„Sjálfsagt má alltaf fara betur með,
en ég sé nú ekkert hrópandi bmðl í
rikiskerfinu.”
-JGH
Sýnistbara
vera taxtinn
Ellert Guðmundsson skipstjóri:
„Fljótt á litið sýnist mér að þetta sé
taxtinn og bara eins og það eigi að
vera. Þetta lítur bara svona út.”
Finnst þér skattarnir óréttlátir ?
„Nei, kannski ekki óréttlátir, það er
ekki hægt að segja.”
Hvernig finnst þér hlutfallið milli
beinna skatta og óbeinna?
„Beinu skattarnir eru ekkert hærri
en annars staðar en þeir óbeinu eru
alveg hrikalegir.”
-JBH.
Lækka skatta á matvörum
Anna Sigtryggsdóttir verslunarmaður
oghúsmóðir:
„Mér leist bara vel á þá. Þetta er
svipað og ég átti von á.”
Var mikil hækkun frá í f yrra ?
„Það er nú ekkert að miða við í
fyrra, ég vann ekkert úti þá.”
Hvaða skoöanir hefur þú á óbeinu
sköttunum?
„Það má náttúrlega lækka söluskatt
á nauðsynjavörum en hækka á
munaðarvörunum, til dæmis áfengi.
Eg er með mikið af börnum og vil endi-
lega að lækkað sé á matvörum. Mat-
vörur og aðrar þannig nauðsynjar eru
svo dýrar að maður verður að fara að
vinnaúti.”
JBH
BÍLDSHÖFDA 16.
SIMAR 81530 OG 83104
SELJUM (DAG
Saab 900 GLE
79,
S dyra, sjálfsk. +
vökvastýri, dökk-
Hár, akkn 57J8B.
Saab M0 GLE
12.
4 dyra. ajiHxk. +
vikvtýri. topf+
H»kMgler,
TÖGGURHR
SAAB UMBOÐIÐ
-----—
í HELGARNtATlNN
Allar vörur á markaðsverði.
JL-PORTIÐ • NYR INNGANGUR
RAFLJÓS
í
MIKLU ÚRVALI
í
RAFTÆKJADEILD
ALDREI MEIRA ÚRVAL
AFHÚSGÖGNUM
í HÚSGAGNADEILD m#* :
,elk°
rn*11
Munið okkar
hagstæðu
greiðsluskilmála
Opið til
kl. 81 kvöld
í öllum
deildum
jis
Jón Loftsson hf.
/A AA A A,
isEiuiais'sa'
Hringbraut 121 Sími 10600