Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1983, Blaðsíða 6
6
DV. FIMMTUDAGUR 28. JtJLl 1983.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Reykvíkingar eru að breytast:
Hjónabandiö úr tísku
— einbýli kemur í staðinn
Sambýlishættir eru mikiö að
breytast í Reykjavík um þessar
mundir. I staö þess aö börnin alist
upp í foreldrahúsum og fari úr þeim
um og upp úr tvítugu til þess aö
stofna heimili meö sinni eigin fjöl-
skyldu eru bömin lengur heima og
gifta sig síður. Þau sem þó gifta sig
skilja oft og Iifa þá ýmist ein eöa með
börnum sínum.
Þetta kemur meöal annars fram í
ákaflega fróölegri skýrslu sem
Bjarni Reynarsson landfræðingur
tók saman fyrir Borgarskipulag
Reykjavíkur. Skýrslan nefnist:
Ibúar og húsnæöismál. Skýrslan
hefur þann megintilgang aö draga
saman á einn staö upplýsingar um
þróun íbúa og húsnæðismála i borg-
inni. Aöalskipulag er nú runnið út og,
til þess aö gera nýtt þarf aö reyna að
átta sig á þvi hvernig fólk kemur til
meö aö búa í höfuöstaönum næstu
áratugina. Er þetta fólk, sem vill
margar og litiar íbúöir, margar og
stórar, fáar og litlar eöa fáar og
stórar? Þetta er aðeins hægt aö finna
meö því aö gera sér grein fýrir því
hvernig fólk býr í borginni núna og
hvemig, miðaö viö þaö fólk, sé
liklegt að íbúar breytist.
I skýrslunni kemur fram aö íbúar í
Reykjavík eru nú um 25 þúsundum
færri en gert var ráð fyrir árið 1967.
Ástæður fyrir því aö fjölgunin var
ekki eins ör og gert var ráð fyrir em
einkum tvær. Hin fyrri er sú að
konur eignast ekki eins mörg börn
hver og þær gerðu áður. I staö þess
að hver kona átti að meðaltali 4 böm
á árunum í kringum 1960, á hún
aðeins 2,1 bam núna. Hin ástæðan er
sú aö mikill f jöldi f ólks hef ur flutt frá
Reykjavík. Milli áranna 1966 og 1982
fluttu rúmlega 8 þúsundum fleiri
burt úr borginni en til hennar. Þetta
eru aöallega börn og ungt fólk. Fóik
sem flyst til borgarinnar er aftur á
móti helst miðaldra og eldra f ólk þótt
töluvert af ungu fólki flytji enn til
Reykjavíkur.
Reykvfkingar að
eldast
Meöalaldur Reykvíkinga hefur
verið stööugt að hækka siöastliöin 20
ár. Áriö 1960 var41% bæjarbúa innan
við tvítugt. Núer aðeins 31% íbúanna
innan við tvítugt. Á hinn bóginn
hefur gamla fólkinu fjölgað. Ibúum,
sem em orðnir 65 ára, hefur fjölgað
Úr7%áriðl960íl3%nú.
Vegna þess aö aldursskiptingin
hefur veriö að breytast hefur þörfin
fyrir húsnæöi líka veriö aö breytast.
Eftirspum eftir svonefndu sérbýli
hefur aukist. Þetta eru einbýlis- og
raöhús. Þrátt fýrir þetta hefur mest
verið byggt af blokkum. Þó að
fólkinu hafi fjölgaö minna en gert
var ráö fyrir, hefur þörfin fyrir
húsnæöi ekki minnkað. Þaö búa
einfaldlega færri í hverri íbúö.
Byggðin í borginni hefur verið að
færast æ austar. Um 1960 var miö-
punktur bæjarins, ef miöað var viö
íbúa, á móts viö Kjarvalsstaöi. Nú er
hann á mótum Grensásvegar og
Miklubrautar.
Eins og sagöi í upphafi gifta menn
sig seinna nú á dögum en fyrrum.
Meöalaldur brúöhjóna hefur hækkaö
um 1—2 ár síöan 1970. Brúöir em nú
að meðaltali 25,3 ára og brúðgumar
27,5 ára. Hjónavígslum fóiks innan
viö 25 ára aldur hefur fækkað
talsvert síðustu árin.
En hvaö gerir þetta fólk áður en
þaö giftir sig? Svarið er að þaö býr
ýmist heima hjá foreldrum sínum
eða það leigir sér herbergi eða íbúð.
Fólk sem býr eitt eöa heima hjá for-
eldrum sínum eftir 16 ára aldur er
orðið37,4% borgarbúa. Hefur fjölgað
Úrl5%fráárinul964.
Þó aö foreldramir varpi ugglaust
öndinni léttar þegar bömin þeirra
eru gengin út eftir aö hafa heyrt
þessa staðreynd, er ekki þar meö
sagt að börnin veröi gift þaö sem þau
eiga eftir. Hjónaskilnuðum hefur
nefnilega fjölað geysilega. Um heil
125% siöan árið 1961. Þeir em nú
11,2% af öllum hjónavígslum, vom
áöur 4,9%.
Reykjavfk
framtíðarinnar
Ymsar spár hafa verið gerðar á
undanförnum ámm um þaö hvernig
Reykjavík muni líta út á næstu árum
og áratugum. Bjami telur líklegt aö
um næstu aldamót verði Reykvík-
ingar orðnir 7—15 þúsundum fleiri en
þeir eru nú. Nákvæmar treystir hann
sér ekki til að setja töluna vegna
sveiflna sem hann telur liklegar í
flutningum manna. Mestu fjölgunar
á hann von á hjá aldurshópnum 30—
50 ára og í hópi eldra fólks. Hann
heldur aö litlu heimilunum muni
halda áfram að fjölga og því sé brýn
þörf á að byggja litlar íbúðir. En
þessar ibúöir þurfi ekki endilega aö
vera í blokkum. Eins megi byggja
lítil einbýlis- og raðhús og þau þurfi
ekki að vera svo miklu dýrari.
Bjarni leggur áherslu á að stefnt
verði aö fjölbreytni í íbúðabyggö.
Sjálfsagt sé að hafa byggðina þétta
til aö skapa skjól og spara land.
Jafnt og nægilegt lóöaframboð sé
nauösynlegt til þess aö þetta geti
gengið.
DS.
BORDUM TÍFALT MEIRA SALTEN NAUÐSYN KREFUR
— af leiðing meðal annars hár blóðþrýstingur
Salt er hverjum manni nauðsynlegt.
En flestir menn fá allt of mikiö af því.
Flestir liklega margfaldan nauðsyn-
legan skammt. Salt er nauösynlegt til
þess aö jafnvægi vökva haldist í
líkamanum. Of mikið salt veldur hins
vegar of háum blóðþrýstingi.
Hvers konar salt sem selt er, þó það
heiti hafsalt, jurtasalt eða einhverjum
nýjum nöfnum, er skaðlegt í of miklum
mæli, þó að mælt sé með jurtasalti í
kost handa þeim sem vilja minnka við
sig salt.
Gamalt máltæki segir að vanti menn
salt þá vanti þá allt. Salt hefur alltaf
haft og hefur enn mikla þýðingu fyrir
manninn. Á árum áður var það
nauðsynlegt til geymslu á matvælum.
Hægt var að salta bæði kjöt og fisk til
heils árs í einu.
Nú á dögum er þessi þáttur í salt-
neyslu mun minni. Þótt menn borði
enn saltkjöt og saltfisk er það eingöngu
af því að þeim finnst slíkur matur
góður. Ekki af því að aðrir möguleikar
á geymslu séu ekki fyrir hendi. FrystÞ
kistan hefur tekið við sem aðal-
geymslustaður matvæla og niöursuöa
tíðkast i auknum mæli. Salt er hins
vegar orðið aðalkryddið sem menn
nota.
Salt, og þá er átt við venjulegt borð-
salt, er tvö frumefni. Það eru natrium
(Na) og klóríð (Cl). Þessi efni hafa
bæði mikiö að segja i starfsemi lik-
amans. Natríum er nauðsynlegt tll
þess aö halda salt- og vökvajafnvægi
líkamans. Klóríö í rauninni líka, en er
því til viðbótar nauösynlegt fyrir melt-
inguna og sýrumyndun likamans.
Nýrun eru þau líffæri sem vinna
mest úr saltinu. Nokkuð af salti tapast
auk þess við að menn svitna. Við erfiða
vinnu eða í miklum hita getur salttapiö
verið verulegt. Þá er ekki aðeins
nauösynlegt að drekka mikinn vökva
heldur að bæta einnig við sig salti.
Líkaminn tapar stöðugt nokkru af
salti. Því er nauðsynlegt að við fáum
nokkuö af því í matnum. En flestir fá
mun meira salt en þeir þurfa.
Rannsóknir hafa sýnt að saltnotkun
er nauðsynleg fyrir blóðstreymið.
Tómatsúpa bmiheldur um það bil 30
sinnum meira salt en ferskir tómatar.
Tómatsósa inniheldur um það bil 50
sinnum meira af salti en ferskir tómat-
ar.
Hvernig það má vera er mönnum
reyndar ekki alveg ljóst ennþá.
Hversu mikið er nauðsynlegt?
Vökvajafnvægi likamans er mjög
flókið. Bæði hormónar og stjómstöðv-
ar tauganna hafa á þaö áhrif. Stjómun
er flókin og látum við okkur nægja að
taka bara dæmi af stjórnuninni á natrí-
uminnihaldi blóösins.
Natríum er sá hluti saltsins sem
menn hafa verið mest varaðir við. Á
mjög einfaldaðan hátt er hægt að segja
að aukið natriummagn í blóðinu og
annars staðar í líkamanum valdi því
að líkaminn safnar auknum vökva.
Líkaminn getur ekki geymt salt án
þess að geyma vökva líka. Meðal
annars þess vegna eykst blóð-
þrýstingurinn. Ef hann er stöðugt of
hár í langan tíma verður álagið á
hjartaö mikið. Þaö veröur aö vinna af
meira afli við þaö að koma blóðinu út
um líkamann. Hár blóðþrýstingur er
einn af þeim þáttum sem geta orsakaö
hjartasjúkdóma.
Mönnum hefur ekki alltaf komið
saman um það hversu mikið salt viö
þurfum. Margir þekkja það ugglaust
aö þá hungrar í salt. Þetta getur verið
merki um það að likamann skorti salt.
Oftast er þó ekki svo. I flestum tilfell-
um er þetta salthungur ekkert annaö
en afleiöing af undangenginni ofneyslu
á salti í langan tíma. Ef menn venja
sig á að salta allan mat verður ósaltað-
ur matur smátt og smátt alveg bragð-
laus.
Margt bendir til þess að við borðum
margfalda þörf okkar af salti á hverj-
um degi. Erlendar rannsóknir benda
til þess að saltneyslan geti verið fimm
til tífali meiri en nauðsynlegt er.
Við þurfum þetta eitt til tvö grömm
á dag en f áum um það bil 10.
Þó aö ekki sé nákvæmlega vitaö um
það hversu mikið salt við þurfum er
gott að vita hvaðan við fáum megniö af
því sem við borðum. Ef við vitum það
getum við minnkað magnið ef við vilj-
um eða okkur finnst það nauösynlegt
heilsu okkar vegna. Margir geta valið
um það að minnka fremur saltið eða
taka hjartalyf og oft getur verið nauö-
synlegt að minnka saltneysluna þó að
þaulyfséutekin.
Salt er salt.
Um það bil helmingurinn af því salti
sem við borðum daglega er falið aug-
um okkar. Það er í pylsum, tómatsósu,
súkkulaði, brauði, i stuttu máli sagt i
Kartöfluflðgor og laltatar hnetur ern
óskaplega saltrfk fæða. Af þeim ættl
ekki að borða mikið.
unnum matvælum. Saltið er sett í við
vinnsluna. Magn þess er sjaldan eða
aldrei tilgreint. Varan er í besta falli
merkt með því að hún innihaldi salt,
ekkert er sagt um það hversu mikið
það er. Gera má ráð fyrir að þvi meira
: sem maturinn er unninn, því saltari sé
hann.
Saltsalar hafa tekið upp á því í
seinni tíð að kalla salt eitthvað annað
en salt. Með því eru þeir að reyna að
telja fólki óbeina trú um að það sé eitt-
hvað ööruvísi en venjulegt salt. Svo er
ekki. Borðsalt, sjávarsalt, hafsalt,
kryddsalt og jurtasalt er þrátt fyrir
nafngiftina aðeins salt.
Mælt er með jurtasalti í rétti handa
þeim sem vilja minnka við sig salt. En
það er eldri hollt ráð. Aöeins er hægt aö
minnka saltmagnið með þeirri ein-
földu ráðstöfun að salta minna.
Jurta- og kryddsalt er að 95
hundraðshlutum natríum klórið. Það
má því nota örlítið meira af því en
venjulegu salti, en munurinn er
hverfandi.
Best er að minnka bæði saltið sem
sett er í þegar maturinn er búinn til og
eins þegar hann er borðaður. Miög
saltan mat er best að reyna að forðast.
Joði hefur verið bætt í nokkrar teg-
undir af salti. Joð er snefilefni sem er
mikilvægt í efnaskiptunum. Ef menn
fá ekki nægilega mikið joð, fá þeir
hörgulsjúkdóm sem nefnist struma.
Besta joðuppsprettan er sjávarfiskur.
Betra er að borða meira af fiski en að
bæta við sig joðblönduöu salti.