Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1983, Blaðsíða 9
DV. FIMMTUDAGUR 28. JULI1983.
Útlönd
Útlönd
Hryðjuverkamennirnir
sprengdu sig í loft upp
Hjónamiðlun og kynning er opin alla
daga. Sími 26628. Geymið auglýsing-
una.
KRISTJAN S. JÓSEFSSON.
Armenskir hryöjuverkamenn grönd-
uðu s jálfum sér og tveimur öðrum eftir
að tiiraun þeirra til að taka tyrkneska
sendiráðið í Lissabon mistókst.
Fimm hryðjuverkamenn réðust á
sendiráðið. Skutu þeir og særðu lög-
reglumenn fyrir utan sendiráðið en
öryggisverðir hindruðu þá í að komast
inn. Tóku þá skæruliðarnir það til
bragðs aö fara inn i sendiráðsbústaði
við hlið sendiráðsins. Er barátta
þeirra viö lögreglu sem umkringdi bú-
staðina var orðin vonlaus ákváðu þeir
að fremja sjálfsvig. Sprengdu þeir
handsprengjur sínar og létust allir.
Auk þeirra lést lögreglumaður og kona
staðgengils sendiherrans í sprenging-
unni.
Þetta var þriðja árás svokallaös
armensks byltingarhers á sendiráð
Tyrkja í þessum mánuði. Diplómat var
myrtur í Brussel 14. júlí og daginn eftir
sprakk öflug sprengja viö skrifstofur
tyrkneska flugfélagsins á Orly við
París og féllu þar 7 manns.
Til leigu
miðsvæðis í borginni.
Til leigu um 250 m2 salur á 4. hæð á Hverfisgötu 105. Salurinn
er til sýnis alla virka daga á milli kl. 9 og 16. Til greina kemur
langtímaleiga. Nánari upplýsingar í síma 17500 eða á staðn-
um.
Austur-Þjóðverjar leita
að fjársjóði Görings
— eftir korti f rá Gerd Heidemann
ÍSAFJÖRÐUR
FÓSTRUR
Auglýst er til umsóknar starf forstööukonu viö leikskólann við
Hlíðarveg. Ennfremur vantar tvær fóstrur við sama leikskóla.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst nk.
Upplýsingar gefur undirritaður í síma 94-3722 eða á bæjar-
skrifstofunni Isafirði.
BÆJARSTJÓRINN tSAFIRÐI.
Austur-Þjóðverjar leita nú fjársjóðs
sem var í eigu nasistaforingjans
Hermans Görings. Þetta þætti ef til vill
ekki í frásögur færandi ef það hefði
ekki birst á síðum hins virta þýska
dagblaðs Bild Zeitung.
Að sögn Bild keyptu Austur-Þjóð-
verjar kort af blaðamanninum á Stern
sem blekkti heimsbyggðina hressilega
með dagbókum Hitlers á dögunum.
Bild segir að blaðamaðurinn Gerd
Heidemann hafi afhent austur-þýskum
yfirvöldum fjársjóðskort sem sýnir
hvar Herman Göring lét fjársjóði að
verðmæti 100 milljarða þýskra marka,
sökkva á botn stöðuvatns.
Að launum átti Heidemann að fá
helming góðmálma sem kynnu að finn-
ast og fá leyfi til að fylgjast með og
ljósmynda leitina. Auk góðmálma
hafði f jársjóðurinn að geyma postulín
og málverk.
Heidemann hefur verið í varðhaldi
síðan upp komst að dagbækur Hitlers
voru falsaðar, í maí síðastliðnum.
Bild segir að Austur-Þjóðverjar leiti
fjársjóðsins i Stolpsee vatninu, 60 kíló-
metrum fyrir norðan Berlín.
Bild gefur ekki upp heimildir fyrir
fréttinni en segir að eigendur Stern viti
um samning Heidemanns við Austur-
Þjóðverjana. Talsmenn eigenda Stern
segja samninginn vera einkamál
Heidemanns.
Samkvæmt frásögn Bild borgaði
Heidemann hermanni vel yfir 100 þús-
und mörk fyrir kortið. Hermaðurinn
tók þátt í að sökkva fjársjóðnum í lok
seinna stríðs og laumaðist til að gera
uppdrátt af staðnum. Heidemann
keypti þrjá aðra uppdrætti af her-
manninum en lét Austur-Þjóöverja að-
eins fá einn.
Heidemann fékk vestræna aðila til
að leggja fram fé til að standa undir
kostnaði og áttu þeir að fá í skiptum
einhvern hluta auðæfanna sem Heide-
mann vonast til að fá er Austur-Þjóð-
verjar finna fjársjóöinn. Alls fékk
Heidemann á þennan hátt 1,4 milljónir
þýskramarka.
PANTANIR
SÍMI13010
X HÁRGREIÐSLUSTOFAN
KLAPPARSTÍG 29.