Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1983, Side 17
DV. FIMMTUDAGUR 28. JOLI1983.
17
Fálkaorðan hefur nokkuð verið til amrcðu að undanfðrnn og gerir Magnús Jðns-
son hana að umtalsefni í bréfi sínu.
OSÆMILEG
, VEITING
FALKA ORÐUNNAR
Magnús Jónsson, Hringbraut 53,
hringdi:
Veiting hinnar íslensku fólkaorðu er
orðin vægast sagt hláleg. Eg sá það í
blöðunum um daginn að aðmírál á
Keflavíkurflugvelli hefði verið veitt
þessi orða, æðsta heiöursmerki þjóðar-
innar.
Eg veit ekki fyrir hvað maðurinn
fær þessa orðu. Ég hélt að samkvæmt
reglum um orðuveitingar mætti ekki
sæma útlending þessari orðu nema
hann hefði unnið einhver afrek, svo
sem stórfellt björgunarafrek eða þess
háttar.
Eg skil þess vegna ekki þessa veit-
ingu. Þessir aðmírálar eru hérna eitt
til tvö ár. Og víst sagðist þessi tiltekni
aðmiráll s já eftir því aö fara héöan, en
ég er sannfærður um að hann hefur
aldrei verið ains feginn á sinni lífs-
fæddriæviognú.
Eftir þessari veitingu að dæma
verða um fimmtíu herforingjar sæmd-
ir fólkaorðunni áður en yfir lýkur.
Þetta er orðið hreint grín. Þetta er
hreint siðferðislegt brot á notkun
fálkaorðunnar, að láta mann sem vinn-
ur við hemað fá hana. Ég hef alls ekk-
ert á móti hemum, en þarna er um að
ræða eyðileggingu á æðsta heiðurs-
merki þjóöarinnar.
Því vil ég varpa fram þeirri spurn-
ingu til orðunefndar hvort þessi veiting
samræmist lögum um oröuveitingar.
Ég óska eindregið eftir svari.
Halldór Reynisson orðuritari svarar:
I forsetabréfi um hina islensku
fálkaorðu, sem að stofni til er frá 11.
júlí 1944, er ekkert sem mælir gegn
slíkri orðuveitingu, enda er rætt um
orðuveitingar til erlendra manna strax
í fyrstu grein bréfsins.
Þess má einnig geta, að um alllangt
skeið hefur það verið viðtekin venja,
að yfirmenn vamarliðsins á Keflavík-
urflugvelli séu sæmdir heiðursmerki
hinnar íslensku fálkaorðu þegar þeir
láta af störfum.
ToBlskoðun í m/s Eddu:
SNYRTIAÐSTODU
VERÐIKOMIÐ Á
Öónægður farþegi skrifar:
Frá borði ó m/s Eddu.
Þegar hið ágæta skip Edda kemur
hér aö landi, upp að hafnarbakka og
farþegar flykkjast i land með farangur
sinn til tollskoðunar, er eitt atriði til
óþæginda og leiðinda bæði farþegum
og tollþjónum. Það er að engin snyrti-
aðstaða er aðgengileg fyrir farþegana
meðan þeir bíöa afgreiðslu.
Vera má að erfitt sé að koma slíku
við, en á þetta er bent með ósk um aö
þessu verði kippt í lag, ef unnt er.
STAÐAR NEM!
Öll hjól eiga að stöðvast
Toyota Land Cruiser station árg.
'81 (disil), ekinn 60.000, hvitur.
Verfl 620.000. (Breifl dekk og
felgur fylgja mefl.)
Toyota Hiace benakt érg. '82,
ekinn 40.000, gulur.
Verfl 315.000.
Toyota Cressida 4ra dyra árg. 78,.
ekinn 61.000, rauður.
Verfl 160.000.
Toyota Hllux 4x4 árg. '81, ekinn
36.000, blá/grár.
Verfl 295.000. (Stóiar, vaMgrind,
breiðar felgur og dskk.)
BMW 316 '82. ekínn 23.000,
svartur.
Verð 300.000. Skipti mttguleg á
ödýrari.
Toyota Cressida statkm árg. '81,
ekinn 33.000, drapplitur.
Verfl 330.000. Skipti möguleg á
ódýrari.
Toyota Hiace bensin árg. '81,
ekinn 87.000, hvitur.
Verfl 270.000. Skipti möguleg á
ódýrari.
Toyota CeOca XT liftback árg. 78,,
ekinn 50.000, blár.
Verfl 210.000.
Toyota Crown Super Saloon árg.
'81, ekinn 48.000, rauflur.
Verfl 420.000.
H TOYOTA SALURINIM
V. T' ■ (Mýbýlavegi 8, sími 44144.
Nú getur þú notið sólar og suðræns andrúms-
lofts flesta mánuði ársins! Með nýja tvöfalda
plexiglerinu frá Akron kemur þú upp notalegri
garðstofu eða byggir yfir svalirnár á skjótan og
hátt og skapar þér þannig sólbaðs- og
blómaraektunaraðstöðu óháða nöprum kulda-
i norðursins. Tvöfalt plexigler er ekki
aðeins firnasterkt og sérlega ódýrt,- það býr
einnig yfir kostum sem gera það í senn
spennandi og sérstætt:
• Gulnar ekki
• Hita og hljóðeinangrandi
• Hleypir útfjólubláum geislum í gegn
• Þú verður sólbrúnn í gegnum það
• Blómaræktun verður leikur einn
• Raunverulegum sólardögum fjolgar til
muna
Vifl snáflum eftir máli og gefum góð ráð
Hafðu samband.
//
¥
okron
Síðumúla 31
C33706
|pleifigler|