Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1983, Qupperneq 30
30
DV. FIMMTUDAGUR 28. JULI1983.
Viðskipti
Viðskipti
Viðskipti
Viðskipti
Tap á rekstrí Iðn-
lánasjóðs í fyrra
—orsökin sú að gengi erlendra mynta hækkaði um 100%
meðan lánskjaravísitalan hækkaði aðeins um 64%
Iðnlánasjóður var rekinn með tapi
á síðasta ári og nam það 4,5 milljón-
um króna. Til samanburðar má
nefna að árið 1981 varð hagnaður af
rekstri sjóðsins 16,6 milljónir króna.
Ástæður fyrir tapinu eru fyrst og
fremst sagðar vera mikil gengis-’
hækkun erlendra gjaldmiöla en f jár-
magn Iðnlánasjóðs er að stórum
hluta bundið þeim. Hækkun erlendra
mynta sem varða sjóðinn nam 90 til
105% á fyrra ári. Hins vegar varð
samsvarandi breyting á lánskjara-
og byggingavísitölu ekki nema 60 til
64% é árinu. Utlán sjóðsins eru bund-
in þeim. Framlag ríkissjóðs til Iðn-
lánasjóðs lækkaði einnig verulega
áriöl982.
I ár kemur til framkvæmda lækk-
un á iðnlánas jóðsg jaldi sem iðnfyrir-
tæki greiða. Lækkar gjaldiö úr 0,5%
af aðstöðugjaldsstofni, niður í 0,05%.
Er þetta í samræmi við lög sem Al-
þingi samþy kkti vorið 1982.
Arið 1982 bárust 384 umsóknir um
lán úr Iðnlánasjóöi. Er það 12%.
aukning frá árinu áöur. ilækkun
lánsbeiöna nam 67% samtals í krón-
um talið. Lán, sem veitt voru á árinu
1982 námu samtals 125,1 milljón
króna. Er það aðeins 34% aukning'
miðað við árið á undan. En heildar-
ráðstöfunarfé sjóðsins jókst aðeins
um 37%áárinu.
Ingi R. Helgason var formaður
Iðnlánasjóðs en nýverið tók Jón
Magnússon við því starfi. Fram-
kvæmdastjóm annast bankastjórar
Iðnaðarbankans en skrifstofustjóri
Iðnlánasjóös er Gísli Benediktsson.
Gísli Benediktsson, skrifstofustjóri
Iðnlánasjóðs.
Nýir eigendur
að Húsgagna-
versluninni
Skeifunni
Arni Björgvinsson tók ásamt Guð- upp á húsgögn af öllu tagi í 1100 fm
mundi Jóhannssyni í síðustu viku við verslun, bæði innflutt og íslensk, Um
rekstri Húsgagnaverslunarinnar bólstrun húsgagna eða framleiðslu
Skeifunnar á Smiðjuvegi 6. Þeir yrðihins vegarekkiaðræða.
kaupa reksturinn af Magnúsi Jó- Hvernig líst Ama á að fara út í
hannssyni kaupmanni, sem um langt rekstur húsgagnaverslunar á óvissu-
árabil rak Skeifuna sem húsgagna- tímumíefnahagsmálumeinsognú?
verslun og húsgagnabólstrun, lengst „Eg hefði ekki snúiö mér að þessu
af í Kjörgarði við Laugaveginn en ef ég væri svartsýnn,” svaraði Arni
síðari árin að Smiðjuvegi 6. Björgvinsson. .JSIíkt þýðir ekki neitt
og þrátt fyrir voðaspár ýmissa aðila,
Arni Björgvinsson rak bókaversl- þá er ég bjartsýnn og tel að slæmt
unina Vedu í Kópavogi um tólf ára ástand sé ekki til annars en að snúa
skeið. I viðtali við DV sagði hann að því upp í gott og góða tíma. Mér líst
Skeifan yrði rekin áfram á sama veláframtíðarreksturSkeifunnar og
grundvelli og áður, þar yrði boðið tel bjart framundan.
„Vtð erum alltaf bjartsýnlr,” leglr Guómimdur Jóhannsson sem ásamt Arna
Björgvinssynl rekur Húsgagnaverslnnina Skeifnna.
DV-mynd Bjarnleifur.
Milliveggirínýja
rafveituhúsið:
Mátveggir
samþykktir
— með þvi sparast 6 til 8
milljónir króna
Borgarráð Reykjavíkur hefur
ákveðið að ganga til samninga við
fyrirtækiö Mát hf. um framleiðslu og
uppsetningu milliveggja í hið nýja
skrifstofuhúsnæöi Rafmagnsveitu
Reykjavíkur aö Suðurlandsbraut 34.
Tilboð í verkið voru opnuð fyrir
nokkru og kom þá i ljós að tilboö
Máts hf. var til muna lægra en önnur
tilboð sem bárust og einnig mun
lægra en kostnaöaráætlun hönnuða
verksins. Aætlun nam kr. 8,1 milljón
króna en tilboð Máts hf.3 milljónum.
Við frekari athuganir mun einnig
hafa komið í ljós að tæknilega full-
nægðu veggeiningar Máts hf. þeim
kröfum sem gerðar eru.
Samkvæmt upplýsingum Ivars
Þorsteinssonar, forstöðumanns
tæknideildar Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, er ætlunin að húsnæðið
að Suðurlandsbraut 34 verði að fullu
tilbúið fyrir næstu áramót. Þegar
fyrirhuguðum flutningum þangaö
verður lokið mun öll starfsemi
Rafmagnsveitunnar í Hafnarhúsinu
veröa komin þangaö og auk þess
mælastöðin sem nú er til húsa við
Meistaravelli.
Iðnþrounarsjóður:
Margir fengu af-
borgunarfrest
Iðnþróunarsjóður lánaði áriö 1982 til
43 aðila, samtals 81,9 milljónir króna.
Einkum er um að ræöa fjárfestingar-
lán til iðnfyrirtækja, samkvæmt lögum
sjóðsins. 1 ársskýrslu hans, sem ný-
lega kom út, segir að nokkur aukning
hafi orðið á umsóknum um lán miðaö
við fýrra ár. Arið 1982 voru umsóknir
49 og óskað eftir 104,5 milljónum króna
en árið áður voru lánsumsóknir 35,
samtals að upphæð 51,3 milljónir
króna.
Lán hjá Iðnþróunarsjóði eru gengis-
tryggö miðað viö Bandaríkjadal.
Vextir eru nú 12% p.a. en voru 13%
nokkurn hluta ársins 1982. Sjóðurinn
lánar almennt ekki meira en 70% af
heildarfjárfestingu og sú upphæð
lækkar hlutfallslega ef lán eru veitt úr
öðrum sjóðum til sömu framkvæmda.
Lánstími er að jafnaði 5—7 ár á lánum
til vélakaupa en 10—12 ár á fasteigna-
lánum.
Sterk staða Bandarikjadollars áriö
1982 jók verulega greiðslubyröi af lán-
um Iönlánasjóðs. Til að létta hana var
allmörgum lántakendum veittur frest-
ur á greiðslu afborgana á árinu.
Auk fjárfestingarlána veitir sjóður-
inn einnig lán til vöruþróunar og
rekstrarhagræðingar. Eru þau óverö-
tryggð en bera 47% vexti. Lán til þess-
ara verkefna námu 2,2 miiljónum
króna áriö 1982.
Jóhannes Nordal er formaður
stjórnar Iðnþróunarsjóðs, fram-
kvæmdastjóri sjóösins er Þorvaröur
Alfonsson.
Þorvaröur Alfomuon, framkvcmda-
•tjórí Iönþróunarsjóði.
VISBENDING
VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG f f NAHAGSMAI
Vfsbending,
nýtt vikurit
um ef na-
hagsmál
Vísbending, nýtt tímarit um erlend
viöskipti og e&iahagsmál, er komiö út.
Fyrsta tölublaðið er dagsett 20. þessa
mánaðar, annað tölublaöið kom út í
gær og ætlunin er að miövikudagar
hverrar viku verði útkomudagar í
framtiðinni. Utgefandi er Kaupþing hf.
og er útgáfan einn liður gjaldmiðils-
þjónustu þeirrar sem tekin hefur verið
þar upp.
I fyrsta tölublaðinu er m.a. rætt um
hátt og stöðugt gengi bandaríska doll-
arans, sagt frá því hvemig flugfélag
Freddie Lakers fór yfrum vegna geng-
istaps af erlendum lánum fyrirtækis-
ins. Þá er rætt um veröbólguna hér á
landi. Boðað að fyrsta spá timaritsins
Vísbendingar um veröbólguna árið
1984 muni birtast síðari hluta ágúst-
•mánaöar.
Jafnframt kemur fram að þegar er
hægt að sjá fyrir að aukning hækkunar
lánskjaravisitölu og framfærsluvísi-
tölu mun minnka strax í ágúst og
septembernk.
Ritstjóri Visbendingar er Sigurður
B. Stefánsson hagfræðingur, en hann
er jafnframt forstöðumaöur gjaldmið-
ilsþjónustu Kaupþings hf.
I framtíðinni er ætlunin að eftirfar-
andi efnisþættir verði í Visbendingu:
Tölulegar upplýsingar um gengi helstu
gjaldmiðla, vexti á helstu peninga-
mörkuðum, svo og reiknaðar tölur um
meöalgengi, raungengi og raunvexti
og yfirlit yfir verðbólgutölur, hagvaxt-
ar- og framleiðslutölur. Af íslensku
talnaefni má t.d. nefna gengi islensku
krónunnar, verðvisitölur og spá 6 til 12
mánuði fram í tímann, ásamt tölum
um vexti, meöalvexti, raunvexti og
raungengi. Þá verður einnig að finna í
ritinu stuttar frásagnir af atburöum og
viðhorfum í alþjóðlegum efnahagsmál-
um ásamt spám erlendra aöiia um
framvindu í efnahagsmálum svo og
ýmisiegt fræðsluefni tengt erlendum
viðskiptum og efnahagsmáium.
Freddie Laker tapaðl itórfé 6 óhag-
stæðri gengisþróun.
Viðskipti
Ólafur Geirsson og
Gissur SigurÖsson.