Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Blaðsíða 1
Barátta í húsnæðismálum að bera árangur:
STEINGRÍMUR LOF-
AR 50% LÁNUM
líkleg niðurstaða ríkisstjórnarfundar á morgun
„Ríkisstjórnin stefnir aö því aö
veita 50% lán af kostnaði staðalíbúð-
ar til húsbyggjenda og íbúðakaup-
enda og munu þær nýju reglur taka
gildi um nk. áramót,” sagði Stein?
grímur Hermannsson forsætisráð-
herra m.a. á fundi sem hann átti með
baráttumönnum i húsnæðismálum
nú fyrir nokkrum dögum. Miöast
þessar nýju reglur fyrst og fremst
við þá sem eru að hef ja framkvæmd-
ir í fyrsta sinn en þeir sem fóru af
stað eftir að verðtrygging útlána tók
gildi 1979 munu fá sambærilega lána-
fyrirgreiðslu. Einnig sagði forsætis-
ráðherra að næstu fjóra mánuði, eða
fram að áramótum, yrðu bankar eöa
aðrir aöilar að hlaupa undir bagga
og hjálpa fólki.
Er fastlega gert ráö fyrir að þetta
verði niðurstaða ríkisstjómarfundar
sem haldinn verður snemma í fyrra-
málið og er búist við aö hann veröi
langur því auk vandamála húsbyggj-
enda verður álmálið einnig á dag-
skrá.
Nú í morgun gengu baráttumenn í
húsnæðismálum á fund félagsmála-
ráðherra með nánari útfærslur á
kröfum sínum enda veitir ekki af að
búa vopnin vel í hendur ráðherra, því
innan rikisstjómarinnar eru hávær-
ar raddir sem kyrja þann söng að
engir peningar séu til og því lítið til
ráða, aðsögn baráttumanna. Félags-
málaráöherra hefur fram að þessu
'sýnt vandamálum húsbyggjenda og
íbúðakaupenda mikinn skilning og
nú hefur Steingrímur Hermannsson
einnig bæst í þann hóp. Eru orð for-
sætisráðherrans ein helsta trygging
baráttumannanna fyrir því að niður-
staða ríkisstjómarfundarins á morg-
un verði þeim í hag. -EDt
S/ökkviliðsmenn og lögreglumenn við húsið á Oddagötunni þar sem eldur varð óviðráðanlegur íeldhúsinu. D V-mynd S
Nágranninn réðst á eld-
inn með garðslöngunni
Töluverðar skemmdir urðu á einum
prófessorbústaðnum við Oddagötu í
Reykjavík í gær þegar eldur kom þar
upp í eldhúsi.
Ein kona var í húsinu og tókst henni
að komast út og gera slökkviliðinu við-
vart. Nágranni kom henni til hjálpar
og réðst að eldinum með garðslöngu og
hélt honum í skefjum þar til slökkvilið-
iö var komið á staöinn.
Reykkafarar fóru inn í húsið og náðu
þeir að ráða niðurlögum eldsins á.
skömmum tíma. Var mikill reykur í
húsinu en eldurinn var aðeins í eldhús-
inu. Þar urðu mestu skemmdimar en
einnig urðu skemmdir af vatni og reyk
á fleiri stööum.
-klp
Sáeiniá
Vestfjörðum
- sjá Sviðsljós
bls.45
SkýrslaHaf-
rannsóknar-
stofnunareftir
ágústleiðangur
-bls.2
Veiðivon
bls.4