Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Blaðsíða 5
DV. MÁNUDAGUR12. SEPTEMBER1983. Háskóli íslands: Norðlenskir mjólkurdagar Mjólkurdagar verða haldnir í íþróttahöllinni á Akureyri helgina 23,— 25. september. Sem fyrr er það mjólkurdagsnefnd sem stendur fyrir þessum kynningardögum á mjólkur- vörum, en þetta mun í fyrsta skipti sem þeir eru haldnir utan höfuðborgar- svæöisins. Alþjóðlegir mjólkurdagar eru yfir- leitt haldnir í maí en hér eru þeir jafn- an í september til nóvember. Tilgangurinn er alls staðar að vekja at- hygli á mjólk og mjóJkurvörum. Mjólk- urdagsnefnd hefur skipulagt mjólkur- dagana hér á landi og einnig staðið fyrir ýmiss konar annarri starfsemi til að vekja athygli á þessari vörutegimd. Nefna má útgáfustarfsemi, samstarf við skólayfirvöld, göngudaga og trimmdaga. Sýningar sem haldnar hafa verið á mjólkurvörum hafa ávallt verið vel sóttar og vakið athygli. Þá tvo daga sem sýning stóð í Reykjavík í fyrra komu rúmlega 9.400 manns, svo dæmi sé nefnt. Sýningin á Akureyri verðurí anddyri íþróttahallarinnar og verður því og svæðinu að áhorfendapöllum skipt niöur í sýningarbása og þar fara ýms- ar kynningar fram. Einnig verður sér- stök myndbandasýning þar sem sýnd er starfsemi í tveim mjólkurbúum. Þeir sem skoða sýninguna munu sjá allar helstu mjólkiu-vörur sem eru á markaðnum og hægt verður að bragða á þeim. Seldir veröa líka kynningar- pakkar með margvíslegum mjólkur- vörum, ostum,.G-vörum og Emmess- ís, svo dæmi sé tekið. Þá á að selja á vægu verði bæklinga með völdum mat- aruppskriftum. Opnunardaginn 23. september verða settar á markaðinn tveggja lítra mjólk- urumbúðir meö sérstökum skreyting- um í tilefni mjólkurdaganna. Á þeim er reynt aö segja sögu mjólkuriðnaðarins á Islandi og kynna framleiðsluvörur hans. Þessi kynning nær til landsins alls. Stefnt er aö því að nokkrar nýj- ungar í mjólkuriönaði líti dagsins ljós á mjólkurdögunum á Akureyri.' Þar má nefna kotasælu meö ananasbragði og aðra með kryddi og grænmeti, nýja osta, ídýfur og sósur. Mjólkurdagamir hefjast kl. 17 þann 23. sept. í íþróttahöllinni og er þá opiö til 21.00. Laugardag og sunnudag verður opið frá 13—21.00. Aögangur er ókeypis. -JBH/Akureyri. Slysavarnamenn til Skotlands — til að kynna sér ný tæki og tækni við björgun úr sjávarháska Stór hópur manna úr Slysavarnafé- lagi Islands hélt til Skotlands fyrir Metsala hjá Rauðanúpi Togarinn Rauðinúpur frá Raufar- höfn seldi afla í Hull í Englandi þann 6.9. síðastliðinn. Skipið sigldi með 110 tonn og 900 kíló og fengust fyrir aflann 77.706 sterlingspund. Aflinn var bland- aður og ekki nema 10.000 pund af þorski. -SLS. helgina til aö kynna sér tæki og fleira við b jörgun manna úr s já varháska. Verða Skotar með mikla æfingu nú næstu daga og buðu þeir Islendingun- um að vera með í henni. Verða þama til sýnis ýmis ný tæki, þar á meðal ný gerð af slöngubátum sem vakiö hafa mikla athygli við björgunarstörf. Þá verður kynnt ný tækni við björgun og margt fleira sem vert er fyrir slysa- varnafólk að sjá og kunna. Þeir sem fóru utan voru allt frammámenn í Slysavamafélaginu en auk þess fór einn maöur frá Landhelg- isgæslunni meö í ferðina. .felp- Verða að greiða dagvexti áður en þeir fá að sjá reikninginn Sparisjóðir og aöildarbankar Visa- sland hafa gefíö út nýja reglugerö um nnheimtu á Visa-reikningum sem fakiö hefur reiði meöal margra hand- lafa Visa-kreditkorta. Þessar nýju reglur voru sendar út nú vikunni og létu margir þegar í sér UMwn «.* W.U. K.X______|__l.t___ sparisjóöirnir og aöildarbankarnir settuá. Til þessa hefur sú regla gilt meö Visa-kortin að viöskiptavinurinn hefur haft 14 daga til aö greiöa reikninginn eftir aö hann hefur veriö sendur til hans. Eftir þaö hafa verið lagöir drótt- arvextir á upphæðina. vininum 5. dag hvers mánaöar. Dag- vextir séu reiknaöir fyrstu sjö dagana, á eftir en síöan komi dráttarvextir hafi reikningurinn ekki verið greiddur. Handhöfum kortanna finnst þetta mjög svo óréttlátt og margir, sem blaðiö haföi samband viö í gær, töldu vafasamt aö þetta væri löglegur aö greiöa dagvexti áöur en hann sjái reikninginn eða hafi vitnesk ju um hvaö UK>hæöin, sem hann ó aö greiöa, sé há. Ef reikningurinn væri settur í póst 5. hvers mánaðar væri öruggt aö hann kæmi ekki til viðkomandi fyrr en tveim til þrem dögum siöar. A meöan tæki bankinn dagvexti fyrir þessa þjónustu Fréttín i DV um innheimtu dagvaxta hjá Visa-lsland. „Komum ekki til með að taka upp dagvexti” Endurmenntun fyrir háskólamenn I haust hefst á vegum Háskóla Islands og fleiri aðila endurmenntun fýrir háskólamenntað fólk. Er fyrirhugað að staöið verði fyrir fjölbreyttri viöbótar- og endur- menntun fyrir háskólamenn og aðra sem áhuga hafa, í samvinnu viö deildir Háskólans, Tækniskólans og fleiri aðila. Auk þess er fyrirhugaö að kynna þaö úr almennu kennslu- framboði H.I. og T.I. sem hentað getur sem endurmenntun og veita upplýsingar um endurmenntun er- lendis, einkum á Norðurlöndum. Fyrsta námskeiðiö um tölvur og gagnavinnslu hefst í lok september. Það er byrjendanámskeið þar sem kynnt verða helstu hugtök, aðferðir og tæki sem notuð eru við sjálfvirka gagnavinnslu. Þá verður í október m.a. námskeið um tölvur og notkun þeirra í iðnaöi og í nóvember námskeið sem nefnist Ljósleiðara- tækni. Margrét S. Bjömsdóttir þjóðfélagsfræðingur hefur verið ráðin starfsmaöur endurmenntunar- nefndar og hefur hún aðsetur í húsnæði H.I. í Nóatúni 17. Upplýsingar um hvert námskeið munu birtast í blaði Bandalags háskólamanna og fréttabréfum félaga tæknifræöinga og verkfræð- inga, sem öll koma út um miöjan september. -JSS — segir Gunnar Bæringsson, framkvæmdastjóri Kreditkorta sf. Eins og við sögöum frá í blaðinu á dögunum hafa aðildarbankar og spari- sjóðir Visa-Island ákveðið aö inn- heimta dagvexti frá og með þeim degi sem reikningar Visa-kortanna eru sendir út, þ.e.a.s. 5. hvers mánaðar. Hafa fjölmargir handhafar Visa- kortanna mótmælt þessu og telja að það sé óréttlátt að innheimta þessa dagvexti áður en þeir hafa séð reikninginn sem þeir eiga að borga. Við spuröum Gunnar Bæringsson, framkvæmdastjóra Kretitkorta sf., sem er hinn stóri aöilinn í kretitkorta- viðskiptunum hér á landi, Eurocard, hvort fyrirtæki hans myndi taka upp sams konar innheimtu á dagvöxtum og Visa-Island. „Það hefur mikið verið spurt um þetta síðan fréttin í DV kom,” sagði hann. ,,Svarið er einfalt nei. Við höldum sama fyrirkomulagi og verið hefur við innheimtu hjá þeim liðlega 6000 handhöfum Eurokorta. Eftir að reikningurinn er sendur út hafa þeir 10 til 15 daga greiðslufrest, en eftir það eru innheimtir dráttarvextir. Dagvexti höfum við aldrei veriö með og komum ekki til með aö taka þá upp,” sagði Gunnar. -kip- lorskói ÓLAFS GAUKS INNRITUN er hafin og fer fram daglega i skólanum, Stórholti 16, kl. 2-5, sími 27015. UPPLÝSINGAR ð öflrum tíma í sima 85752. BYGGINGAVORUR HRINGBRAUT 120: Byggingavörur Golfteppadeild Simar: Timburdeild................. 28-604 28-600 Malningarvörur og verkfæri. 28-605 .28-603 Flisar og hreinlætistæki... 28-430 HRINGBRAUT 120 (Aðkeyrsla frá Sólvallagötu)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.