Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Blaðsíða 43
DV. MANUDAGUR12. SEPTEMBER1983. 43 Sandkorn Sandkorn Sandkorn ■m a Engin miskunn Albert Guðmundsson fjár- málaráðherra er ákveðlnn maður með afbrigðum. Eins og fram hefur komið hefur ekki gengiö andskotalaust að koma saman fjárlögum. Al- bert vildl nefnilega skera og skera niður en samráðherrar hans kepptust um að verja ráðuneyti sta, að þvi er sagan segir. A fundi, sem ríkis- stjórnln hélt nýlega á þriðju- degi, lagði Albert svo fram tlllögor sem hann taldi miða að því að ná jöfhuði i ríkis- sjóði. Ekki leist samráðherr- um bans alls kostar á þær uppskriftir, svo að nú upp- hófst nokkur þæfingur í stjórnarllðtau. Lauk fundta- um án þess að nokkuð miðaði i fjárlagagerð. Var fyrirhug- að að stjórnin kæmi þá saman næsta fimmtudag tÚ að ræða málin frekar. Þegar sá fund- ur var að hefjast komu skila- boð frá fjármálaráðherra. Sagðist hann álíta að hann hefði ekkert á fundtan að gera þar sem samráðherr- arnir virtust ekki geta tekið ákvarðanir um þær tillögur sem fyrir lægju. Að öðru leyti visaðl hann til aðstoðar- manna slnna um fjárlaga- gerð. Svo fór Albert i lax. Aukafundur Þótti samráðherrum Alberts nú komið í slikt óefni að ákveðiö var að boða til aukafundar stjóraarlnnar snemma morguntan eftir. Þar vora svo teknar ailar meiriháttar ákvarðanir. AÖ þvi búnu ræsti forsætis- ráðherra jeppabifreið sina og renndi austur fyrir fjall til fundar við Albert. Segir svo ekki frekar af fjárlagagerð. Oft ratast kjöftugum ... Það er kunnara en frá þurfi að segja, hve tíðarfarlð í sum- ar hefur leikið margan lands- manninn grátt. Til dæmis mun kartöfiuuppskera vera með efadæmum léleg, svo elstu menn muna vart annað eins. Lítið er undir grösum og kartöflurnar smáar. En sem betur fer geta menn ennþá séð skoplegu hliðarnar á málunum. 1 hópi manna bar kartöflumál á góma og þá meðal annars hvort bændur væru almennt farnir að taka upp. Þá gall etan grtaarinn vlð: „Já, þeir eru víst farnir að taka upp — og pakka niður í ópalpakka.” Víðaeru hræringar Mikill viðbúnaður er nú uppi f Sjálfstæðisflokknum. Eru menn komnir í start- hoiuraar ef svo skyidl fara að Geir Hallgrímsson gæfi ekki kost á sér til formennsku eitt kjörtímabillð til viðbótar. En það er víöar hrært i pottum en hjá íhaldtau. Nú gengur sá orðrómur að marg- ir kratar getl hugsað sér að fá nýtt blóð í formennsku Al- þýðuflokkstas. Eru getur leiddar að því að Kjartan Jóhannsson muni bráðlega standa upp úr formannsstóta- Umsjón: Jóhanna Sigþórsdóttir. um og jafnframt fullyrt að hann verði frelsinu feginn. Etas og jafnan þegar slíkt hægindi iosnar eru margir kailaðir en féir útvaldir. Er þó sagt að kratar horfi etak- um til Eiðs Guðnasonar al- þtagismanns sem verðandi formannsefnis. Elnnlg hafa heyrst raddir meðmæltar J6- hönnu Sigurðardóttur. 4. Kvikmyndir Kvikmyndir Fj órmenntagamlr á yngri árum skála fyrir velgengni. Laugarásbíó—Ghost Story MARTRÖÐ FJÖGURRA ÖLDUNGA Heiti: Chost Story. Leikstjóri: John Irvin. Handrit: Lawrence D. Cohen eftir skáldsögu Peter Straub. Kvikmyndun: Jack Cardiff. Tónlist: Phílippo Sarde. Aflalhlutverk: Fred Astaire, Melvyn Douglas, Douglas Fairbanks jr., John Houseman, Craig Wesson og Alice Kríge. Ghost Story er byggð á frægri bók eftir Peter Straub og hefur það verið samdóma álit þeirra er bæði hafa lesið bókina og séð myndina að kvik- myndin sé lítils virði miðað við skáldsöguna. Þar sem ég hef ekki lesið bókina þótti mér nokkuö tii myndarinnar koma og hafði sérstak- lega gaman af að s já gömlu mennina einu sinni enn en þetta var síðasta mynd hins ágæta leikara Melvyn Douglas. Ghost Story er saga um fjóra aldna herramenn er hafa haldið hópinn í fimmtíu ár. Það er ekki. aðeins vinskapur er bindur þá saman heldur hafa þeir á samviskunni morð á ungri stúlku er þeir voru aliir hrifnir af. Þegar myndin byrjar fara að ger- ast undarlegir og hrollvekjandi at- buröir í kringum þá. Þeir fá allir miklar martraðir og sonur eins þeirra lætur lífið á voveiflegan hátt. Þá fer heldur betur aö fara um þrjá þeirra þegar sá f jórði lætur lífið fyrir eigin hendi að því er sýnist. Til sögunnar kemur sonur þess látna og hefur hann orðið fyrir þeirri reynslu að hitta og vera með hinni löngu látnu stúlku. Það borgar sig ekki að fara meira út i söguþráðinn því að myndin byggist á hinu óvænta en þess má geta aö einn kafli myndarinnar fjallar um þann atburð er öldung- arnir, þá fimmtíu árum yngri, urðu stúlkunni að bana. Það er kannski helst að finna að Ghost Story að efnið, eins og það birtist okkur, er nokkuö samhengis- laust og er greinilegt að handrits- höfundur hefur lent í vandræðum með að koma boðskap bókarinnar til skila. Eins er um myndir eins og þessar að áhorfandinn býst við að hrökkva við af og til en í Ghost Story veit maður yfirleitt hvað skeður eftir að fyrstu senurnar hafa komið á óvart. En það er einnig margt ágætt við Ghost Story. Leikur hinna öldnu leikara er skemmtilegur á að horfa og þrátt fyrir aldurinn hafa þeir engu gleymt. Craig Wasson, sem lék svo eftirminnllega í mynd Arthur Penn, Fjórir vinir, er sýnd var hér fyrir stuttu, stendur sig vel í hlut-_ verki sonarins er kemur gömlu mönnunum til hjálpar. Kvikmynda- takan er oft á tíðum góð og kemur myndefninu vel til skila. Sjálfsagt hefði verið hægt að gera miklu betri mynd úr þessum efnivið en þó er þarna sannariega um draugasögu að ræða, enda þótt ekki sé hún eins og við Islendingar þekkj- um úr þjóðsögunum. Ghost Story er ekki í sama klassa og tvær aðrar nýlegar draugamyndir er ég man eftir þessa stundina, sem sé The Fog og Poltergeist, en er þrátt fyrir það hin ágætasta skemmtun. Hilmar Karlsson. Kvikmyndir Kvikmyndir ------VIDEO"“ OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 23 Kvikm yndamarkaðurinn Skólavörðustig 19. Videoklúbburinn Stórhottí 1. Simi35450. I- - MYNDUSTA- OG HANDÍÐASKÓU ÍSLANDS NÝ NÁMSKEIÐ HEFJAST VIÐ MYNDLISTA- OG HANDÍÐASKÓLA ÍSLANDS 26. SEPTEMBER 1983. 1. Kennsla fyrir börn og unglinga, í teiknun, málun og leir. 2. Teiknun og málun fyrir fullorðna. Byrjendanám- skeið og framhaldsnámskeið. 13. Bókband. Námskeiðin hefjast mánudaginn 26. september. Innrítun fer fram daglega á skrífstofu skóians, SkiphoHi 1. Námskeiðsgjöid greiðist við innritun. SKÓLASTJÓRI. Reykjavík, Skipholt 1, Sími 19821 TRULOFUNARHRINGAR GULL KÆRLEIKANS Sendum litmyndalista - » Laugavegi 70, JON og OSKAR, ’ sími 24910.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.