Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Blaðsíða 24
24 DV. MANUDAGUR12. SEPTEMBER1983. Iþróttir íþróttir íþrótt íþróttir Valsmenn k Pétur og fél töpuðu í Antv Willle Miller—fyrirliöi Aberdeen. „Millerer ákveðinn ogárás- argjarn” — segir Asa Hartford —Willie Miller er m jög sn jall varnar- maður. Hann er ákveðinn og árásargjam — og þá er hann geysilega sterkur í návíg- um. Fastur fyrir tæklingum án þess að vera grófur, sagði Asa Hartford, miðvallarspilari Manchester City og skoska landsliðsins, þegar hann lýsti Miller í stuttu máli. — Miller er mjög fljótur og þótt að hann sé smávaxinn þá er hann sterkur í loftinu og fljótur að bægja hættu frá þegar háar krosssendingar koma fyrir markið, sagði Asa Hartford. Willie Miller er fyrirliði Aberdeen og hefur hann leikið 27 landsleiki síðan hann lék sinn fyrsta landsleik gegn Rússum 1975. Miller er 28 ára. — Hann er mjög sókndjarfur og hefur mikla skemmtun af að bruna fram með knöttinn og leggja upp mörk, sagði Hart- ford, sem hefur leikið viö hliðina á Miller í skoska landsliðinu. Hann er yfirvegaður og sendingar hans eru nákvæmar og vel hugsaðar. Miller mun stjóma leik Aberdeen gegn Skagamönnum og við hliðina á honum leik- ur annar skoskur landsliðsmaður — Alex McLeish, en þeir eru taldir eitt sterkasta miðvaröadúett á Bretlandseyjum. — Já, þeir eru mjög sterkir saman — þekkja hver annan eins og puttana á sér, enda hafa þeir leikið saman í mörg ár með Aberdeen og skoska landsliöinu, sagði Hartford. -SOS. „Aberdeen er besta félags- lið Skotlands” — segir Kenny Dalglish - Ég vildi frekar hafa þá meö mér í liði heldur en á móti. Það vinna fáir miðveröir eins vel saman og þeir Willie Miller og Alex McLeish. Þeir em mjög skynsamir og leika af yfirvegun þó að það sé mikil pressa á þeim, sagði Kenny Dalglish hjá Liverpool, þegar hann var beðinn að segja sitt álit á miðvörðum Aberdeen og skoska landsliðsins—þeim MUler og McLeish. Dalglish sagði að það væri ekki að efa að Aberdeen væri nú besta knattspymulið Skotlands. — Það er búið að rjúfa einokun Celtic og Glasgow Rangers, enda var kom- inn tími til. Og það þurfti sterkt lið til að velta „Glasgow-dsunum” af stalii, sagði Dalglish. — Ég var mjög hrifinn af Aberdeen þeg- ar ég sá liðið vinna sigur 1:0 yfir Glasgow Rangers í úrslitaleik skosku bikarkeppn- innar. Hinn ungi Eric Black er stór- skemmtilegur og markið sem hann skor- aði var glæsilegt. Hann er fljótur og góður að skalla. Ég veit að hann á eftir að veröa miklu betri, sagöi Dalglish. -SOS Golfklúbbur Reykjavíkur vann tvö- faldan sigur — í sveitakeppni íslandsmótsins í golfi á Akureyri um helgina Karla- og kvennasveitir Golfklúbbs Reykjavíkur urðu sigurvegarar * sveitakeppni íslands í golfi sem háð var á Akureyri um helgina. Var þar mikil og hörð keppni og tóku þátt i henni flestir af bestu golfleikurum landsins. . Kvenfólkið lék 36 holur á tveim dögum. Voru þrjár konur í sveit og taldi árangur tveggja bestu eftir hverj- ar 18holur. GR sveitin lék á samtals 367 höggum. Sveitina skipuðu Asgerður Sverrisdóttir, Ágústa Guömundsdóttir og Aðalheiður Jörgensdóttir. Sveit Ak- ureyrar varð önnur á 372 höggum og sveit Keilis í Hafnarfiröi þriðja á 378 höggum. Sem sé jöfn og hörð keppni. Ásgerður var með bestan árangur kvenna — lék 36 holurnar á 169 högg- um. Inga Magnúsdóttir, GA, var á 178 og Kristín Pálsdóttir, GK, á 184 högg- um. Karlmennirnir léku 72 holur á tveim dögum. Voru fjórir í sveit hjá þeim og taldi árangur þriggja bestu eftir hverjar 18holur. Islandsmeistaramir frá í fyrra — sveit Golfklúbbs Suðumesja — hafði forustu eftir fyrri dag keppninnar. Var á 3 höggum á undan sveit GR. En síð- ari daginn tók sveit GR örugga forustu og hélt henni út mótið. Lék GR-sveitin á samtals 950 höggum. Sveit Golfklúbbs Suðumesja var á 961 höggi en síðan komu Keilir og Akureyri á 973 höggum og sveit Nes- klúbbsins á 1003 höggum. Borgnesing- ar komu þar á eftir en þeir mættu til leiks þótt þeir eigi enga meistara- flokksmenn í sínum röðum. Það gerðu aftur á móti ekki sveitir sem eiga mun betri golfara, eins og frá Húsavík, Akranesi og Vestmannaeyjum, og er þaö miður. Þeir sem skipuðu sigursveit GR voru Sigurður Pétursson, sem lék á samtals 311 höggum, Ragnar Olafsson sem var á 314, tvar Hauksson sem var á 328 og Sigurður Hafsteinsson sem lék á 338 höggum. Magnús Jónsson, GS, lék best ailrai einstaklinga í mótinu — var á 309 högg- um. Þar á eftir kom Sigurður Péturs- son GR, á 311, þá Jón Haukur Guð- laugsson, NK, á 313 og síðan þeir Ragn- ar Olafsson, GR, og Björgvin Þorsteins- son,GA,á314höggum. -klp. — fyrir CS Brugge 0:1. Sævar kom inn á Frá Krlstjáni Bernburg-fréttamanni DVíBelgíu. Það er ekkl hsgt að segja að það hafi verið góð helgi hjá tslendingunum í Belgíu um helgina. Waterschei fór í heimsókn til Mechelen og mátti þola tap 1—2 fyrir nýliðunum sem þykja erfiðir heim að sækja. Þrjár vítaspyrn- ur voru dæmdar i þessum leik og skor- að úr öllum. Mechelen fékk tvö vítanna og náði þar með tveggja marka forystu áður en Lárusi Guðmundssyni var brugðið gróflega í vítateig Mechelen og víti dæmt. Vordecker skoraði úr víta- spymu Waterschei. Þetta var slakur leikur hjá öllu liði Waterschei og miðjumenn þess voru oft eins og úti á þekju. Framlínumennirnir fengu því iítið af boltum til að vinna úr. 18 þúsund áhorfendur mættu til að sjá Anderlecht leika gegn Seraing. Hættu- legasta færið í fyrri hálfleiknum átti danski landsliðsmaðurinn Freemann en skot hans fór í slá. Staðan í hálfleik var 0—0. Seraing varð fyrri til að skora í seinni hálfleiknum. Oblitas náði for- ystunni. Eftir markið sótti Anderlecht stíft og náði að jafna með góðu skalla- marki frá Vercauteren. Það sem eftir lifði leiksins var eins og bæði liðin gerðu sig ánægð með jafnteflið og dofn- aði nokkuð yfir honum. Alfreð Gíslason byrjaði mjög vel í v-þýska handboltanum. Lið hans Essen gerði jafntefli í Gummersbach og komu þau úrslit mjög á óvart. „Þetta var fyrst og fremst barátta á báða bóga og sig- urinn er sætur. Strákarnir börðust mjög vel og ég er ánægður með það. Hins vegar er ég ekki ánægður með knattspymuna sem leikin var, hún hefði getað verið betri, en það vill nú oft bitna á henni þegar baráttan er í fyrir- rúrni,” sagði Sigurður Dagsson, þjálfari Valsmanna, eftir sigurleik þeirra 2—1 yfir Víkingi. 54. mín. leiksins þegar Omar Bjöms- son skallaði f ramhjá úr ágætu f æri. Valur réð lögum og lofum í fyrri hálf- leiknum. Þeir mættu mjög ákveðnir tii leiks, enda mikið í húfi fyrir þá, fall- baráttan í algleymingi. Ulfar bak- vörður átti gott skot úr aukaspyrnu á 7. Leikurinn var háöur á Valsvellinum í besta knattspymuveðri. Valur verð- skuldaði þennan sigur, þeir vom betri aðilinn í þessum leik. Víkingarnir vom mjög slakir framan af, hresstust að- eins er líða tók á seinni hálfleik. Þeir náðu ekki að ógna marki Vals fyrr en á Þama er ögmundur vel á verði i upphafi leiksins gegn Val og ver hörkuskot frá Ú — unnu Víking2-1 Alfreð skoraði jöfnunarmarkið — þegar Essen gerði 13-13 jafntefli við Evrópumeistarana frá Gummersbach „Það eru mikíl viðbrigði að leika hér í V-Þýskalandi því handboltinn er miklu harðari hér en heima,” sagði Alfreð Gíslason hand- knattleiksmaður í Essen. Essen lék sinn fyrsta deildarleik í Gummersbach á laugardaginn og varð jafntefli 13—13. Skoraði Alfreð jöfnunarmark Essen rétt fyrir Ieiks- lok. Þessi úrslit koma töluvert á óvart þar sem Gummersbach er v-þýskur meistari og tapaði ekkl stigl á heima- vellisínumífyrra. Alfreð skoraði 3 mörk í leiknum og fær góða dóma. önnur úrslit í hand- boltanum í V-Þýskalandl urðu þessi: Schwabing-Kiel Dankersen-Núraberg Hofweier-Bergkamen Berlin-Huttenberg Giinzburg-Grosswallstadt 21—20 31—19 24—17 27—20 20—22 -AA fþróttir fþróttir fþróttir íþróttir fþró

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.