Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Blaðsíða 17
Voðaverk
Andropovs
Halldór Karlsson skrifar:
Eg held aö allur heimurinn standi
agndofa af undrun og hryllingi vegna
voöaverks Sovétmanna er þeir skutu
niður varnarlausa farþegavél í ná-
grenni við Sovétríkin. Illvirki þetta er
svo voðalegt að varla er öðru til aö
jafna nema þá er nasistar eyddu
þorpinu Lidice í Tékkóslóvakíu. Síst
ættu þeir að líkja öðrum við nasista því
að enginn munur er á Rússum og
nasistum.
Er erlendir fréttamenn spurðu fólk
á götum Moskvu um þennan atburð
vildi enginn trúa slíku á sína menn,
sem eðlilegt er. Fólk í Sovétríkjunum
er ekki verra fólk en annað heldur er
það hin hryllilega kommúnistaglæpa-
maskina sem er að tröllríða öllu í því á-
gæta landi.
Andropov, Romanoff eða hvaða
glæpamenn sem er ættu að muna að
um allan heim er þeim bölvað réttilega
og þeir hataðir. Aldrei trúir nokkur
maður einu eða neinu sem þeir segja.
Megi bölvun hvíla yfir þeim illmennum
sem skipuöu svo fyrir að suður-
kóreska farþegaþotan skyldi skotin
niður.
Vonandi kemur sá tími að alþýðan í
Sovétríkjunum fær að lifa án kúgunar
og ótta. Sá timi mun koma að
Romanoff og félagar munu þurfa að
svara til saka, því fy rr því betra.
ENN BERA
MENN UF-
ANDIDÝR ÚT
— „slík svfvirða sýnir að mannfólkið
of metur sig þegar það segist vera
æðsta skepna jarðarinnar”
Svanlaug Löve, formaður Kattavina-
félagsins, hringdi:
Enn í dag gera menn þá svívirðu að
bera út lifandi dýr. Eg hef nýlegt dæmi
um slíkt. Þaö er hreint ótrúlegt en
sýnir vel, sem einn maður sagði, að
mannfólkiö ofmetur sig þegar það
segist vera æðsta skepna jarðarinnar.
Tveir drengir komu á mánudag til
Kattavinafélagsins með læðu um
þriggja til þriggja og hálfs mánaöa
gamla.
Sögðust drengimir hafa verið
staddir fyrir utan RARIK. Þar kom
skyndilega bíll sem stansaöi.
Bílstjórinn steig út úr bílnum haldandi
á kassa sem hann lagði síðan frá sér
úti við vegg.
En þá stökkva allt í einu tveir
kettlingar, högni og læða, upp úr kass-
anum. Maðurinn biður drengina um að
elta þá sem þeir og gera. Drengirnir ná
læðunni en högninn slapp.
Þegar drengimir koma aftur er
maðurinn á bak og burt. Auðvitað urðu
drengimir hissa. Þeir ákváðu síðan að
koma með læöuna til Kattavina-
félagsins.
Eg vil aðeins ítreka það að lokum
hvað ég tel það mikla svívirðu aö bera
Skemmtíleg mynd af fallegum kettí
sem tíður vel. „Enn í deg gera menn
þá svívirðu, eð bera út tifandi dýr.
Ég hefnýlegt dæmi um slikt. Það er
hreint ótrúlegt en sýnir ve/....."
segir Svanlaug Löve, formaður
Kattavinafélagsins.
lifandi dýr út. Ef fólk vill láta lóga
dýranum sínum á það að gera það með
siösamlegum hætti.
Nýkomnar „SCOTCH"-diskettur frá 3M
ýmsar stærðir og gerðir — Úrvals vara.
HAFiÐ SAMBAND
G. ÞORSTEINSSON & JOHNSON H/F
ARMÚLA 1 — REYKJAVÍK - SÍMI 85533.
vlTIÐ
í Nokía stígvélum
er óhætt að bjóða bleytu
og snjó byrgínn.
Nokía stígvél
eru þrælsterk og þolín,
og þau endast
von úr vítí.
Það er því vít í að kaupa
Nokía stígvél.
Handunnin
gæðavara frá Finnlandi
IMOKIA
jsr
STIGIÐ í
/v