Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Blaðsíða 9
DV. MÁNUDAGUR12. SEPTEMBER1983.
Útlönd
Útlönd
9
Útlönd
Utlönd
BIFREIÐ
FORSETA
GRÝTT
Bifreiö Zia U1 Haq, forseta Pakistan,
var grýtt þegar hann kom í heimsókn
til bæjarins Dadu í Sind-héraöi á laug-
ardag, aö sögn sjónarvotta. Munu
mótmælendur hafa grýtt bílalest for-
setans og sent honum tóninn en engar
skemmdir uröu á bifreiöunum og eng-
inn meiddist.
öllum verslunum í bænum var lokað
og þrjár bifreiðar brenndar í mótmæl-
um sem hrjáð hafa bæinn þær fjórar
vikur sem mótmæli gegn ríkisstjóm
Haqs hafa staðið í Sind-héraöi. Að
minnsta kosti 31 maður hefur látið lífið
í þeim mótmælum, víðs vegar í hérað-
inu.
Mótmælendur komu í veg fyrir að
þyrla forsetans gæti lent á flugvellin-
um í Dadu og varð hann að fljúga beint
til fundar þess sem hann hafði komið
til þess að ávarpa. Þar beittu lögreglu-
þjónar kylf um til að halda mótmælend-
um í burtu og sveitir lögregluþjóna
fóru um bæinn viðbúnar öllu, meðan
forsetinn stóö við. Þetta eru fyrstu
mótmælaaðgerðirnar þar sem komið
hefur til ofbeldis f rá því Zia hóf för sína
um héraöið fyrir fjórum dögum.
Hreyfingin fyrir endurreisn lýðræðis
stendur fyrir mótmælunum og er
helsta krafa mótmælenda sú að Zia
segi af sér og efni til kosninga.
Noregur:
KOSNINGARIDAG
I dag er gengið til kosninga í Noregi
og kosið til bæjar- og fylkisstjórna.
Búist er við, samkvæmt nýjustu skoð-
anakönnunum, að Verkamannaflokk-
urinn vinni eitthvað á en Hægri flokk-
urinn, flokkur Káre Willoch forsætis-
ráðherra, tapi lítillega. Miðflokkarnir
tveir sem sitja með Hægri flokknum í
ríkisstjórn muni hinsvegar eiga að
tapanokkrufylgi.
Samkvæmt skoðanakönnunum má
búast við að Framsóknarflokkurinn
norski, sem er skattaniðurfellingar-
flokkur svipað og flokkur Glistrups í
Danmörku verði sigurvegari í kosning-
unum. Mest spenna er talin verða í
Osló og Þrándheimi en þar gætu völdin
færst milli flokka. Búist er við góðri
kjörsókn og er það talið víst að því
betri sem kjörsókn verður því betur
komi það sér fyrir Verkamannaflokk-
inn. JEG/Osló
Óeirðirnar i Sind-hóraði i Pakistan hafa nú staðið i fjórar vikur og er talið að minnsta kosti 31 hafi látist /
átökum milli lögreglu og mótmælenda. Hór sjást mótmælendur i bænum Moro standa fagnandi yfir líki
eins lögregluþjóns sem lóst þar i átökum fyrir tveim vikum.
N-írland:
Sjö grunaðir ÍRA
félagar kærðir
Sjö manns voru dregnir fyrir rétt á
N-Irlandi á laugardag og kærðir fyr-
ir ýms glæpaverk og mun helsta vitn-
ið gegn þeim vera Robert Lean,
fyrrum annar æðsti yfirmaður IRA í
Belfast. Lean þessi er þritugasti liðs-
maður IRA sem fellst á að bera vitni
gegn fyrrum félögum sínum gegn því
að hann fái lögregluvernd. Þá hefur
hann einnig fengið loforð um að hann
verði ekki sóttur til saka.
Framburður hans verður eini vitnis-
burðurinn gegn hinum ákærðu.
Hinir sjö handteknu eru kærðir f yr-
ir að eiga aðild að IRA, sem og fyrir
ýmis glæpaverk, svo sem morðtil-
ræði. Þeir hafa neitað öllum ákær-
um.
Fyrsti
Norðmaðurinn
deyraf AIDS
Frá Pétri Ástvaldssyni í Noregi.
Þrjátíu og fimm ára gamall maður
lést í sjúkrahúsi í Osló sl. föstudag af
völdum Aids, áunninnar ónæmisbækl-
unar. Hér er um að ræða fyrsta dauðs-
fallið í Noregi af völdum sjúkdómsins
en alls hafa þrír Norðmenn fengið
sjúkdóminn til þessa. Talið er að hinn
látni hafi smitast af sjúkdómnum í
Bandaríkjunum.
DANS-NÝJUNG
nefnum við skólann okkar. Hann býður ykkur upp a
að setja saman dansana, sem við kennum ykkur, í sýningar-
dansa og svo keppum við í hópum um brons — silfur — og gull.
ALVÖRUDÖMNEFND • GAMAN GAMAN • ALLIR MEÐ
Kcer kveðja,
VIÐ BYRJUM AÐ KENNA FIMMTUDAGINN 22. SEPTEMBER,
INNRITUN I SÍMA 46219 og 76261 KL. 10—12 OG 1—5
NEMA SUNNUDAGA. KENNSLA FER FRAM í TÖNABÆ,
FELLAHELLI OG ÞRÖTTHEIMUM.
KRAKKAR
OG
AT.T.TR
UNGLINGAR
Nú loksins eru
Kolla og Hebba
byrjaðar að kennal
-\yf SPLUNKUNYJU FORMI,
Yf FRÁBÆRA DANSA,
II ALLT EINS OG ÞIÐ OG VIÐ
VILJUM HAFA ÞAÐ