Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Blaðsíða 3
DV. MÁNUDAGUR12. SEPTEMBER1983.
3
\
Bifrewaíþróttaklúbbur Reykjavíkur stóð fyrir rally cross-keppni á sunnudag og var
keppnin haldin á nýrri braut í Mosfellssveit. Keppnin var liður í íslandsmeistara-
keppninni í rally cross. Þessi nýja braut var mjög laus í sér og dró það mikið úr
hraða bílanna, sérstaklega í beygjunum. Úrslit urðu þau að Þórður Valdimarsson
sigraði örugglega en Erik Carlsen varð í öðru sœti og Birgir Bragason í þriðja sœti.
Þórður er nú með örugga forystu í keppninni um íslandsmeistaratitilinn, en Þórður
ekur sern kunnugt er VW sem er sérútbúinn fyrir rally cross-keppnir.
DV-mynd Árni Bjarnason.
Viðar Eggertsson leikari gerir það gott:
Hefur fengið tilboð um
að starfa með heimsþekkt-
um erlendum leikhópum
— í kjölfar frábærra viðtaka sem einþáttungur hans „Ekki
ég—-heldur” fékk á leiklistarhátíð í Edinborg fyrir skömmu
Viðari Eggertssyni leikara hafa
borist allmörg tilboð frá þekktum leik-
húsum erlendis í kjölfar þeirra frá-
bæru viðtaka sem leiksýning hans á
Edinborgarfestivalinu hlaut, en þeirri
leiklistarhátíð lauk fyrir fáum dögum.
Eins og komiö hefur fram í fjöl-
miðlum sýndi Viðar þar einþáttung
sinn „Ekki ég — heldur” sem hann
vann upp úr einu leikverka meistara
Bertholds Brechts. Leikgerð Viðars er
fimmtán mínútna langt eintal sálar-
innar, og úti í Edinborg var sá óvenju-
legi háttur hafður á sýningum verksins
að aöeins einn áhorfandi fékk að sjá
flutnings verksins hverju sinni. Alls
urðu sýningar Viðars hundrað og tutt-
ugu, og fengu þær sem fyrr greinir ein-
róma lof, jafnt almennings og gagn-
rýnenda.
Ymis þekkt leikhús vestan hafs og
Vlðar Bggertsson Mkarí.
austan hafa nú sýnt áhuga á aö fá
Viðar til liðs við sig. Má þar nefna
Brighton-festivaliö svonefnda sem er
afar viðurkennd leiklistarhátíð og
veröur næst haldin i maímánuði á
næsta ári. Þá hafa aðilar í New York
boðið Viðari að koma til sín, svo sem
eins og hið heimsfræga leikhús
Lamama. Hafa forsvarsmemi þess
áhuga á að fá Viðar til að sýna einþátt-
ung sinn í leikhúsinu þar næsta haust.
Viðar sagði að hann væri nú að velta
fyrir sér þessum tilboðum. Hann kvað
allar h'kur á að hann tæki að minnsta
kosti þessum tveimur tilboðum, sem
nefnd eru hér að ofan.
Viðar sagði ennfremur að hann væri
afar ánægður með viðtökur einþátt-
ungsins í Edinborg. Þær hefðu verið
framar vonum. Hann nefndi að fjöldi
fjölmiðla heföi haft viö sig viötöl, til
dæmis þrjár sjónvarpsstöövar og jafn-
margar útvarpsstöðvar, aukreitis sem
um fimmtán blaöamenn víðs vegar að
úr heiminum, meðal annars frá News-
week, heföu tekið við sig ítarleg viðtöl.
-SER.
Broncojeppinn á myndinni sat kirfilega fastur í mýrlendi eftir að eigandi hans
hafði ekið honum utan vegar vestan rnegin við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi seinni-
hluta laugardagskvölds. Þegar séð var að jeppinn nœðist ekki upp var núrnerslaus
Willysjeppi sóttur til að draga hann upp, en Broncojeppinn sat áfrarn fastur. Að lok-
urn náði kranabíll honurn upp. Að sögn lögreglunnar á Seltjarnarnesi urðu þó
nokkur spjöll á landi eftir þessar aðfarir og aðspurður urn tilgang ferðarinnar
sagðist eigandi Bronco jeppans aðeins hafa verið að leika sér. SlS/DV-rnynd S.
Fynr
dömur og herra
Litir: blátt eða grátt ieður.
Verðkr. 1.165,-
Póstsendum.
Skóverslun
Þórðar Pétursscmar
Laugavegi 95, sími 13570,
Kirkjustræti 8, sími 14181.
Litur: reimaðir, svart leður.
Verðkr. 1.098,-
Litir: óreimaðir, svart eða brúnt leður.
Verðkr. 1.098,-
Litir: blátt eða brúnt teður með loðfóðri.
Verðkr. 1.565,-
✓