Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Síða 2
DV. MANUDAGUR12. SEPTEMBER1983. Ólafur BJömsson. Ólafur Björnsson, út- gerðarmaður í Kef lavík: „Skárri útkoma með þorskinn en éghafði búist við” Ölafur Björnsson, útgerðarmaöur í Keflavik: • „Þetta er ugglaust þeirra besta yfir- sýn og því lítiö um þessa skýrslu aö segja. En ef þetta er rétt hjá þeim meö þorskinn er þaö skárra en ég haföi búist við miðað viö síðustu vertíð. Annars er máliö ekki þetta. Það er veriö aö drepa hér allan smáfisk og svo er safnað liöi allt frá Ástrah'u til að krukka í þessa bútunga. Það tekur því varla oröiö fyrir þessa fáu þorska sem eftir eru í sjónum samkvæmt skýrslum fræðinganna aö hrygna þegar fiskur- innfærekkifriðtilaövaxa.” -klp- GísH Konréðsson. Gísli Konráðsson, framkvæmdastjóri Otgerðarfélags Akureyringa: „Þetta er Ijótt útlit” „Þetta er ljótt útht ef svona er, sér- staklega ef þorskurinn er aö hverfa með öllu af miðunum. Maöur vonar aö skýrslan sé ekki rétt en hvorki ég né aðrir geta hrakiö þaö sem sér- fræöingarnir segja. Þetta er þeirra fag og þeir vita örugglega hvað þeir eru aö segjaoggera.” -klp- HörðurJónsson, skipst jóri á Heimaey VE: „Ekki svona svartsýnn einsogþeir” „Eg veit ekki hverju maður á að trúa. Þeir finna aldrei neitt þessir fiskifræðingar — hvorki fisk í sjónum né hvaö þá heldur seiöi. Nú er hér allt aö kafna í ufsa — bátamir og togar- amir koma inn drekkhlaönir, en þaö hefur samt aldrei verið talaö um að neinn ufsi sé í sjónum. Eg er ekki svona svartsýnn eins og þeir. Þessi fræði þeirra er eitthvað götótt. Þaö er alltaf fiskur þótt þeir segi eftir hverja rannsóknaferð af ann- arriaðástandiðsémjögslæmt.” -klp- Ekiarsson. Ágúst Einarssonffulltrúi hjá Landssambandi íslenskra útvegsmanna: „Átti von á {iessum régnum” , ,Þetta er langt f rá því aö vera góö tíö- indi. Þaö sem mér finnst alvarlegast í þessari skýrslu er hvaö lítiö hefur fundist af karfaseiöum. Karfinn hefur mikiö veriö inni í veiði togaranna og gert útgerðum þeirra kleift aö halda þeim úti. Það góöa viö þessa skýrslu er að út- breiðsla og fjöldi grálúöuseiöa hafi veriö meö mesta móti í Grænlandshafi og við Austur-Grænland. Eg átti annars von á þessum fregnum því s jórinn hefur verið kaldur og skilyrðin í sjónum því slæm. Þrátt fyrir aö ég ætti von á þessu, varö ég, eins og flestir Islendingar hljóta að verða, fyrir miklum vonbrigöum meö þessitíöindi.” -klp- Höröur Jónsson. ÞRESTIR A VIK- INGAHÁTÍÐ í SKOTLANDI Karlakórinn Þrestir í Hafnarfirði er nú staddur í Skotlandi þar sem hann tekur þátt í Víkingahátíð, sem haldin er i ferðamannabænum Largs í nágrenni Giasgow. Stendur hátíðin yfir dagana 10.—18. september. Víkingahátíðin, sem nú er haldin í þriöja sinn, nýtur þegar viðurkenn- ingar sem önnur tveggja alþjóðlegra hátíöa í Skotlandi. Tónleikar og aðrir listviðburðir eru daglega, en auk þess íþróttakappleikir og siglingar. Vemdari hátíðarinnar er Magnús Magnússon útvarpsmaöur og rithöf- undur. Karlakórinn Þrestir ásamt ein- söngvurunum Ingu Maríu Eyjólfs- dóttur og John Speight mun koma fram á tvennum tónleikum á há- tíöinni. Verður útvarpað og sjón- varpað frá öðrum þeirra. Einnig syngur kórinn við hátíðarguðsþjón- ustu. Þá munu kórinn og einsöngvar- ar halda sjálfstæöa tónleika i tengsl- umviöhátíöina. Stjórnandi Þrasta er John Speight. Undirleikarar í förinni eru Svein- björg Vilhjálmsdóttir og Olafur Vignir Albertsson. -JSS. Skýrsla Haf rannsóknastof nunarinnar eftir ágústleiðangrana ASTANDIÐ ALLT ANN- AÐ EN GLÆSILEGT Hinum áriegu ágústleiðöngrum Hafrannsóknastofnunarinnar er nýlok- ið og skýrsla um niðurstöður verið send út. Þessum ágústrannsóknum er einkum ætlað að gefa fyrstu vísbend- ingu um árgangsstærð þorsks, ýsu, loðnu og karfa. Þá voru ýmsar aðrar rannsóknir gerðar í þessum ferðum m.a. mælt hitastig sjávar, safnað gögnum til aldursgreiningar, berg- málsmælingar á kolmunnastofni, og loðnu og ýmislegt fleira. Margir biðu spenntir eftir skýrsl- unni um seiðarannsóknirnar. Þær eiga að segja til um hvemig ástandið er og hvernig það verður í náinni framtíð með hina ýmsu fiskistofna. Samkvæmt skýrslunni er ástandið allt annað en glæsilegt, en þar kom m.a. þetta fram: Þorskur — Ýsa Fjöldi þorsk- og ýsuseiða reyndist með minna móti. Útbreiðslan var hins vegar umtalsverð enda þótt nær ekkert hefði rekið vestur um í átt til Græn- lands. Mest var af þessum tegundum á grunnslóð á Breiðafirði og í flóum og fjörðum norðan- og norðaustanlands, en minnkaði víðast ört er f jær dró land- inu. Þegar á heildina er litið virðist lík- Iegast að 1983 árgangur þorsks og ýsu muni reynast í slöku meðallagi er fram í sækir. SmyglíRauðanúpi Smygl fannst í togaranum Rauða- núpi frá Raufarhöfn seinnipart laugar- dags. Togarinn var að koma úr sölutúr frá Hull í Englandi og fundust við leit um borð 43 kassar af bjór og 62 flöskur af áfengi. Smyglgóssinu hafði ve.rið komið fyrir í fiskikössum í fiskilest og reyndust tveir skipverjar eiga þaö allt saman. -SLS Loðna Loðnuseiði voru einkum út af Norður- landi og Vestf jörðum og hafði nær ekk- ert af þeim rekið vestur um haf að þessu sinni. Að því er varðar fjölda loðnuseiða flokkast yfirstandandi ár með hinum lélegu árgöngum seinni ára. Þó má geta þess að mikill hluti loðnuseiðanna var óvenjusmár og trú- lega árangur hrygningar sem staðið hefur lengra fram eftir vori en venju- legt getur talist. Enda þótt erfitt sé að byggja framtíðarspár um stærð ár- ganga á fjölda loðnuseiða virðast þess- ar aðstæður ekki gefa til kynna aö bú- ast megi við sterkum árgangi að þessu sinni. Karfi Mjög lítið var um karfaseiði í Græn- landshafi og við Austur-Grænland að þessu sinni og hefur aldrei verið jafn- lítið um þau síðan þessar seiðarann- sóknir hófust árið 1970. Karfaseiði var einkum að finna um miðbik Græn- landshafs, en sáralítið fannst af þeim á austur-grænlenska landgrunninu, þar sem annars hefur veriö mest um þau á undanförnum árum. Það er því ljóst að seiðin frá gotinu í vor hafa að verulegu leyti farið forgörðum. Nærtækasta skýringin á þessu er hið óvenjulega ástand sjávar á þessu hafsvæði í ár. Grálúða Útbreiðsla og fjöldi grálúðuseiða var með mesta móti í Grænlandshafi og við Austur-Grænland. Hlns vegar var sáralítið um önnur fiskseiði, sem finnast þar þó að jafnaði í nokkrurn mæli, eins og t.d. seiði hrognkelsis og blálöngu. Kannað var magn og útbreiösla smákarfa viö Austur-Grænland en þar eru helstu uppeldissvæði karfans. Virt- ist minna um hann þar en oftast áður. Hinsvegar bar nokkuð á kolmunna á svæðum þar sem hans hefur lítiö orðið vart áður. Sjávarhiti í Grænlandshafi og við Is- land var mjög lágur í ágústmánuði en þó ekki eins og 1975,1979 og 1981. Hef- ur það sitt aö segja fyrir fiskinn eins og sumar fyrri rannsóknir hafa sýnt að áliti Hafrannsóknastofnunarinnar. Ekki eru samt allir á einu máli um það frekar en annað í sambandi viö þessar rannsóknir. Kemur það best fram í viðtölum sem DV átti við nokkra kunna menn tengda sjávarútvegi og eru hér á síðunni. -kip- PéturSigurðsson, skipst jóri á Bjarna Benediktssyni: „Það hefur áður annað komið i Ijós” „Eg hef mínar efasemdir um þessa skýrslu. Eg ber virðingu fyrir starfi fiskifræðinganna en finnst þeir oft vera of afdráttarlausir í yfirlýsingum sín- um miðað við þann tækjabúnað og að- stöðu sem þeir hafa til rannsókna. Það er ekki hægt að treysta þessum rannsóknum í blindni eins og sumir gera. Það hefur áður komiö annað í ljós en þeir hafa fullyrt, og ég held ég trúi þessari skýrslu og yfirlýsingum þeirra ekki alveg út í ystu æsar frekar enáður.” -klp-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.