Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Síða 13
DV. MÁNUDAGUR12. SEPTEMBER1983. 13 Allt þetta er þó fýsilegra en aö við yröum fyrir það öflugri kjamorku- sprengju að allir á Islandi þurrkuðust út. Flestar heimildir um íslenska menningu mundu þá sennilega einnig farast með okkur. Á rás afstýrt? Af þessu ætti aö verða ljóst að bar- áttan um hemámið og þátttöku í hern- aðarbandalögum er ekki fyrst og fremst barátta um dægurmál, flokks- mál, þjóðernismál eða lýðræði, heldur baráttan um að verja Islendinga fyrir stórfelldu mannfalli, heilsutjóni og lífs- gæðamissi, í kjölfar árásar. Allir Is- lendingar eiga hér hagsmuna að gæta. Allir vilja forðast innrás, menn greinir bara á um leiöir. Það er erfitt fyrir Nato-sinna að berjast fyrir friði með ógnarjafnvægi að vopni. Það hlýtur alltaf í eðli sínu að vera eins konar „rússnesk rúlletta”, þar sem líf og heilsa þjóðar er sett í veö fyrir réttmæti kenningar sem er sögu- leg, sálfræðileg og tæknileg í bland. Aldrei hefur hugmyndafræði verið treyst fyrir svo stóru hlutverki, og er því hræðilegt að verða að taka þá áhættu. Við þetta bætist ógnunin um aö fólk sem þorir að hjálpa við að styðja við Nato og jafnvel aðrar f riðartilraun- ir muni trúlegast verða látið eialda þess af Sovéttum ef til innrásar þeirra kemur. Eru friðarhreyfíngar lausn? Til em þeir Nato-sinnar sem trúa því að Nato þurfi meira á kjarnorkuvopn- um og kjamorkuógnun að halda en Sovétríkin, af því hefðbundinn her Nato geti ekki staðist hefðbundnum her Sovétmanna snúning að neinu leyti. Andstæö uppskrift fyrir friði er að bíða og sjá hvort hinar þokukenndu til- raunir friðarhreyfingar til gagn- kvæmrar afvopnunar hafi einhver já-. kvæð áhrif. Mín skoðun er sú að þáð sé eðlilegra fyrir lýðræðisriki að hafa forgöngu um friðarviðræður heldur en einræðisríki, sér í lagi ef lýðræðisríkin eru stærri og einræðisríkin hræddari. Eg held að Iýðræðiskerfi okkar sé enn það sterkt að það sé þess megnugt að afbera þaö að leyfa almenningi að prófa leið friðarhreyfinganna. Tryggvi V. Líndal kennari. um ferskar hugmyndir? Þegar ríkisstjórnin opinberaði trú- lofun sína og tillögur í efnahags- málum, voru undirtektir almennings yfirleitt góðar. Stjórnmálamenn, emb- ættismenn og fjölmiðlar höföu vikum saman birt ógnvekjandi reikninga sína og spádóma um hmn íslenzka lýðveld- isins hinn 1. júní. Þjóðinni var sagt að hún hefði skemmt sér heldur hressi- lega og gerzt of djarftæk til veizlufang- anna og nú væri röðin komin að timburmönnunum. Fólk tók þessar umvandanir til sín og það var eins og menn fyndu til svolítillar iðmnar, líkt og oft gerist eftir góðar veizlur. Ábúð- armiklir og þungbúnir forystumenn- ■ irnir létu þess alltaf getið, að höfuð- vandinn væri vegna launa fólksins. Laun, sem væru svo og svo stór hluti framleiðslukostnaðar. Laun, sem hækkuðu sjálfvirkt. A endanum var þjóðin að drepast úr samvizkubiti yflr háu laununum sínum og þaö sjónarmið varð ofan á, að „eitthvað yrði að gera”. Þetta var á sinn hátt þjóöholl afstaða og lýsti vilja fólksins til að axla byrðar til að koma lagi á efnahags- málin. Þannig sættu menn sig möglunarlítið við að vera sviptir atkvæðisrétti um kjör sín, eins og hreppsómagar forðum, og samþykktu með þögninni að gefa stóran hluta vinnulauna sinna til endurreisnar efnahagslíf inu. En þetta var gert í þeirri góðu trú, að svokallaðar mildandi aðgerðir myndu í raun skipta máli fyrir þá, sem erfið- ast eiga, að hækkunum á vöru og þjón- ustu yrði haldið í skef jum og að strax yrði hafizt handa um breytingar á f jár- festingarstefnu og atvinnuháttum. Fólk mótmælti ekki kjaraskerðing- aráformunum vegna þess að það vildi trúa og treysta ráðherrunum til að nýta kjarafómirnar til raunverulegra efnahagsráðstafana. Hér átti að vera sameiginlegt átak allra landsmanna og allra þjóðfélagshópa. En hvað hefur gerzt? Ríkisstjórnin hefur algerlega brugðizt traustinu. ,,. . . Morgunblaðið. . . auglýstííloiðara aftir ráðherrum með ferskar hugmyndir." Kjallarinn Guðmundur Einarsson Einu sinni enn hafa stjórnmálamenn lofað og svikið. Kaupið stendur i stað en allt verðlag hækkar aðhaldslaust. Ekkert bólar á endurskipulagningu fjárfestingar, þar sem milljónatugir fara í súginn. Sólskinsbændur fylla hlöðumar af votviðrastyrkjum og sjávarútvégurinn gerir út á millifærsl- urnar. Dýmstu og ótrúlegustu bygg- ingaframkvæmdir Islandssögunnar eru hafnar á Arnarhóli og á Keflavík- urflugvelli. Þjóðinni er skipaö með nauðungarlögum aö láta af hendi mat- arpeningana sína og þeim er eytt í fáránlegar Versalahallir og skýjaborg- ir fyrir Seölabanka og flugstöð. Á hverjum degi átta fleiri og fleiri landsmenn sig á blekkingarleiknum. Ríkisstjórnin hafði aldrei neitt fram að fwa í glímunni við efnahagsdrauginn. Hún notfærði sér 1. júní hræðsluna til að ræna kaupinu. Síðan hafa aðgerðir i efnahagsmálum lýst sér í gagnslausu poti, s.s. tollalækkunum á örfáum vörutegundum, vísitöluheilabrotum og undanþágum frá stimpilgjöldum. Þetta krukk kemur vafalaust örfáum. • „Kannski stefnubreytingin verði gerð þegar nefnd Tómasar Arnasonar lýkur endurskoðun á störfum Tómasar Árnasonar í Framkvæmdastof nun. ’ ’ til góða, en þetta er langt frá átakinu í efnahagsmálum sem beðið var eftir. Kannski stefnubreytingin verði gerð þegar nefnd Tómasar Árnasonar lýkur endurskoðun á störfum Tómasar Arna- sonar í Framkvæmdastofnun. Hugsan- lega telur sá fyrrnefndi, að ástæða sé til að breyta skipulaginu hjá þeim síðamefnda. Ekki er ástæða til bjartsýni. Meira að segja Morgunblaöinu blöskraði hin andlega fátækt ríkis- stjómarinnar og auglýsti í leiðara eftir ráðherrum meö ferskar hugmyndir Einn stakk þá upp á að leysa vandamál í landbúnaði með því að fella niður tolla af landbúnaðartækjum. Var einhver að tala um ferskar hug- myndir? Það er spurning, hvemig Morgun- blaðið metur þennan ferskleika. Fólkið í landinu er hins vegar búið að gera upp sinn hug. Fundur húsbyggj- enda í Sigtúni var fyrsta ábendingin um úrskurðinn, og ef verkalýðsforyst an talaði mannamál, hefði önnur ábending komið 1. september. Guðmundur Einarsson, alþingismaður í Bandalagi jafnaðarmanna. Var einhver að tala ^ „Svona leiftursókn gegn líf skjörum— þótt hún sé gerð í þeim góða tilgangi að stöðva verðbólgu — gengur ekki upp í lífinu þótt hún geri það á pappírnum. Það geta stjómmála- menn, sem fást við lifandi fólk, sagt hagfræð- ingum, sem fást við tölur.” verðbólgunnar „aðeins” 35—40% hraöa: Hversu lengi halda menn að „jafnvægi” haldist sem byggist á, að fólk sætti sig til frambúðar við ástand þar sem 40% launahækkun skortir til þess að ná kaupmáttar- stigi síöastliðins árs? Átta menn sig á hv'ílíka lífskjarabyltingu slíkt boðar? Halda menn, að íslenskur almenningur séu reiðubúinn til þess að una því um nokkurra missera skeiö að gerbreyta svo öllum neysluvenjum sínum? Viö búum ekki í lokuðu landi. Fólk er frjálst ferða sinna og hefur samanburö við aörar þjóðir. Norðurlöndin eru sameigin- legur vinnumarkaður. Sjá menn ekki hvað gerist er ætlast verður til, að Islendingar sætti sig til frambúðar við lífskjör, sem eru kannski 1 til 2 áratugum á eftir því, sem gengur og gerist í nágrenninu? Viðskiptahrun Jafnvel þótt fólk vildi umbera slíka stjómarstefnu þá er hún ekki framkvæmanleg. Flestallir lands- menn hafa tekið á sig skuldbinding- ar, sem miðast við það lífskjarastig, ! sem við höf um verið á og neysluvenj- ur nútímaþjóðfélags. Ef reynt er að stíga á einni nóttu skref aftur á bak um 10 ár þá einfaldlega brestur greiðslugetan. Halda menn að sam- félag standist, þar sem t.d. 50. hver f jölskylda er með eigur sínar á upp- boöi? Hvað verður um atvinnu- og ‘ viðskiptalíf í þjóðfélagi þar sem enginn getur borgað? öll viðskipta- og þjónustustarfsemi hér í höfuðborginni byggist á að selja fólki þarfir nútíma neysluhátta hvort sem þær em nú algóðar eða alslæmar. Gangi menn bara niður Laugaveginn og líti í kring um sig. öll þessi starf- semi hrynur til gmnna ef kaupmáttarskerðingin verður um hríð eitthvað nálægt því, sem ríkis- stjómin áformar. Farið hefur fó betra? Farið hefur fé betra, en þessar tuskubúðir, segja sumir. Eitthvað má nú missa sig af öllum þessum veitingahúsum, segja aðrir. Það skaöar nú ekki stórt þótt einhverjir hljómtækjasalar fari á hausinn eða ferðaskrifstofunum fækki eitthvað, segja hinir þriðju. Það má rétt og satt vera. En því aðeins, að eitthvað annað komi þá í staðinn í viöskiptum og þjónustu eða annarri starfsemi. Við þær aðstæður, sem ríkisstjórnin er að skapa, kæmi hins vegar ekkert í staðinn. Ur rústunum rís nákvæm- lega ekki neitt. Og tuskubúöunum, veitingahúsunum og ferðaskrif- stofunum fylgir í fallinu önnur at- vinnustarfsemi, sem menn mundu e.t.v. meira sjá eftir. Islenskur iðnaður þolir ekkert betur en önnur starfsemi að fólk hætti að geta borg- að. Ekki f ramkvæmanlegt Svona leiftursókn gegn lífskjörum — þótt hún sé gerð í þeim góða til- gangi að stöðva verðbólgu — gengur ekki upp í lífinu þótt hún geri það á pappírnum. Það geta stjómmála- menn, sem fást við lifandi fólk, sagt hagfræðingum, sem fást við tölur. Vegna þess, að úrræði ríkisstjómar- innar bygg jast á því að menn umberi stórfellda lífskjaraskerðingu lengi, munu þau ekki duga. Eitthvað hljóta jafnvel tomæmustu menn að geta lært af reynslunni. Svikalogn í lægðarmiðju geta menn hins vegar notað til þess að gera ráöstafanir til þess að styrkja hús sín og búa þau undir komandi fárviðri svo þau fjúki ekki af 'grunninum. Þannig hafa íslenskar ríkisstjómir, aðrar en viðreisnar- st jórnin, þó aldrei haft vit eða getu til þess að nota skamvinnt svikalognið, sem þær hafa búið sér til með afnámi veröbóta á laun. Núverandi ríkis- stjóm er þar engin undantekning. Stefnu- og kerfisbreytingamar, sem gera þarf í atvinnu-, efnahags- og stjómkerfismálum, em ekki aðeins óundirbúnar heldur að mestu óhugsaðar hjá ríkisstjórninni og með öllu óræddar. Löngu áður en nokkur niöurstaða verður í þeim málum fundin verður tími svikalognsins lið- inn og fárviðrið skollið á, sem feykja mun þessari ríkisstjórn úr stjómar- ráðinu eins og hænsnafiðri. Sighvatur Björgvinsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.