Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Side 31
•S8si paaM3Tqág si HiKiArnm/.M vn
DV. MANUDAGUR12. SEPTEMBER1983.
31
f)£
Hér kemur sigurvegarinn í tölti og fjórgangi, Hans-Georg Gundlach á Skolla.
Skolli er rauður aðlit undanSvip K(SH) 580 og Glóu K(SH) H296.
farið útí sjálfstæða ræktun á íslenska
hestinum, ef þeir hefðu fengið aö
kaupa hér heima þaö sem þeir vildu.
Þeir halda því fram, að Islendingar
séu lélegir kaupsýslumenn, tími aldrei
að selja bestu hestana og þess vegna
verði útlendingar einfaldlega að reyna
ræktun sjálfir, ef þeir eigi að fá góða
hesta. Þeir benda á óhemju vinsældir
íslensku hestanna meðal almennings,
sem þeir segja að hluta til sprottnar af
glæsilegum sýningum gæðinga, sem
hafi hreinlega heillaö áhorfendur og
þeir hafi fengiö sér íslenskan hest.
Þetta hefði auövitað aldrei verið hægt
ef aldrei hefði komið góður hestur
fram erlendis til sýninga.
Margir Islendingar telja þó þetta
sjónarmið frekar léttvægt, vegna þess
að alltaf hafi farið út í bland miklir
gæðingar, þótt auðvitað hafi það sjón-
armið verið til að losna við ruslið á
markað. Þeir segja útlendingana bara
mikla kaupsýslumenn sem vilji ein-
faldlega ekki lengur neina samkeppni
héðan frá Islandi í hestasölum. Þessir
Islendingar telja einnig það rangt aö
selja góða kynbótagripi út, vegna þess
aö þannig séu Islendingar smám
saman að eyðileggja sinn eigin mark-
að og vegna ríkidæmis útlendinganna
geti svo farið um síðir að bestu Islands-
hestana sé að finna erlendis.
Utlendingarnir halda því þó stíft
fram að mikil tregða sé aö fá keypta
bestu hestana frá Islandi og Islending-
ar megi ekki gleyma þeirri gífurlegu
landkynningu og vináttu á íslandi sem
hinn almenni áhugi á íslenskum
hestum leiðir af sér. Markaðurinn sé í
rauninni ótæmanlegur og Islendingar
geti alltaf selt vel tamda góðhesta, að
hluta til vegna hins mikla starfs, sem
erlendu ræktendumir leggja á sig við
kynningu og auglýsingu á íslenska
hestinum. Þetta hjálpi Islendingum á
svo mörgum sviðum og þótt ein og ein
sala tapist á hesti, þá sé það hreint
aukaatriði, miðað viö svo margt annað
sem leiöir af þessu og Islendingar fá í
sinn hlut. T.d. benti dr. Walter Gueldn-
er, forseti þýska Islandshestasam-
bandsins, á að á næsta ári ferðuðust
um þúsund Þjóðverjar til Islands
einungis vegna áhuga á hestunum.
Þessir ferðamenn sæktust sérstaklega
eftir íslenskum vörum, t.d. ullarfatn-
aði og þeir myndu allir muna eftir ís-
lenskum útflutningsvörum, ef þeir
sæjuþæríbúðum.
Hvort sem þetta er rétt eða ekki. var
það altalað á hestamótinu að tískan í
ár væri knapi í lopapeysu á íslenskum
hesti með hund með hringað skott lall-
andiáeftir sér.
-G.T.K.
„Deutschland, Deutschland iiber alles,” stendur þar og hvað sem varöar öllum texta, pa er víst að tónlistin er hin
sama og þjóðsöngur Þýskalands hljómaði oft á mótinu, enda voru Þjóðverjar mjög sigursælir. Hér eru þær Mady
Schwoerer og Daniela Stein úr þýsku keppniss veitinni sem f ánaberar við mótssetninguna.
„La grandeur de la France”, franska keppnissveitin ríður inn á svæðlð.
Vlnlr vorir frá Austurriki mæta til leiks. Það eru hinir kunnu bræður í hestamennskunni, Piet og Johannes Hoyos
frá Gratz, sem eru fánaberar.
Eyjólfur tsólfsson og Krákur urðu í öðru sæti Evrópumeistarakeppninnar í e
anlögðum flmmgangi.
Islenska keppnissveitin ríður inn á svæðið. Fánaberar eru hinir iandsfrægu hestamenn, Aðalsteinn Aðalsteinsson,
er þýski þulurinn þekkti greinilega betur undir nafninu Alli og Eyjólfur tsóifsson. Milli þeirra er svo gott dæml
um norræna samvinnu í reynd, en það er norska stúlkan Olil Amble, sem keppti fyrir tsland og stóð sig með stakri
prýði, skaust m.a. upp í annað sætið í Evrópumeistarakeppninni í samanlögðum f jórgangi.
Ljósm.: G.T.K./K.H.G.