Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Blaðsíða 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR15. NOVEMBER1983.
3
Alþingi:
Hér veröa ekki
staðsettar
landfastar
eldflaugar
— sagði Geir Hallgrímsson um athugun á
möguleika uppsetningar eldflauga í GIUK-hliðinu
Frétt sjónvarpsins í fyrrakvöld um
athugun á staösetningu eldflauga í
GIUK-hliðinu, nánar tiltekiö á landi á
Islandi og Skotlandi, varö tilefni mik-
illa umræðna í neöri deild Alþingis í
gær.
Tilefni fréttar sjónvarpsins sl.
sunnudagskvöld var skýrsla sem þaö
fékk frá blaðamanni viö skoska blaöiö
„The Scotsman” og frá háskólanum í
Sussex. Skýrsla þessi er unnin af fyrir-
tækinu Science Application Inc. í
Virginia fylki í Bandaríkjunum og
stendur á skýrslunni aö þetta sé upp-
kast að endanlegri skýrslu fyrir tíma-
bilið september 1982 til júíí 1983 og
undirbúiö fyrir yfirmann vamar- og
kjamorkumáladeildar í Washington
D.C.
Skýrsla þessi greinir m.a. frá
athugun (þ.e. ekki áætlun) á möguleik-
um þess að koma fyrir meðaldrægum
eldflaugum án kjarnorkuvopna á um-
ræddusvæöi.
Svavar Gestsson kvaddi sér hljóðs
utan dagskrár um leiö og fundur hófst í
neöri deild Alþingis í gær og innti
utanríkisráðherra m.a. eftir nánari
upplýsingum varðandi umrædda
skýrslu og hugsanlega möguleika á því
að þetta yröi að veruleika,hver væri
réttur Islands í þessu sambandi og
hugsanleg áhrif á eöli vamarsamnings
okkar við Bandarikin. Geir Hallgríms-
son sagði m.a. aö eftir þeim upplýsing-
um sem hann heföi væri þessi skýrsla
marklaus. Tugir athugana sem þess-
ara væru í gangi en sendiráði Islands í
Washington D.C. heföi verið faliö að
gera athugun á málinu. Sagöi
utanríkisráðherra ennfremur aö það
heföi aldrei verið á dagskrá aö hálfu
stjórnvalda aö staðsetja á Isiandi
kjamorkuvopn eða landfastar eld-
flaugar meö eða án kjamorkuvopna.
Sagöi utanríkisráðherra aö slikar
framkvæmdir kæmu ekki til mála né
stæðu þær til. Sagði Geir Hallgrímsson
aö samkvæmt varnarsamningi okkar
við Bandaríkjamenn frá 1951 heföu
Islendingar fyrsta sem síðasta orð í því
hvaöa vopn væru staðsett hér á landi
sem og hvernig þau væru notuð.
Fóru fram miklar og heitar umræður
um þessi mál á meðan á fundinum í
neðri deild stóö. HJ>.
Þoka lagðist upp að suðurströnd landsins i gær og fyrradag og byrgði mönnnm
sýn. Hún mun vera sttuð sunnan úr böfum og frá meginlandi Evrópu og lítið eitt
menguð. Þokubeltið náði frá Faxaflóa austur með ströndinni austur á Homafjörð.
Norðurhluti landsins mun hafa sloppið við þoku þessa sem vonandi verður farin
þegar þessar linur birtast. Að sögn veðurfræðings þarf aðeins lítilsháttar vind til
að hrekja þokuna á flótta. SþS.
Hæstiréttur sviptir tímaritið Líf nafninu:
Fjarri raun-
veruleikanum
„Við munum að sjálfsögðu hlíta
þeim dómi sem Hæstiréttur er búinn að
kveða upp,” segir Magnús Hreggviðs-
son, framkvæmdastjóri Frjáls fram-
taks, en síðastliðinn fimmtudag féll
dómur í Hæstarétti þess efnis að
Frjálsu framtaki væri óheimilt að nota
nafnið Líf á tímarit sitt vegna þess að
nafnið væri of líkt nafni ameríska
tímaritsins Life.
Nýtt nafn á tímaritiö hefur ekki
veriö ákveðið en það mun fljótlega
verða gert því jólahefti blaðsins, sem
kemur út í byrjun desember, verður að
bera nýtt nafn.
Málaferlin út af nafninu Líf hófust
1979 er bandariska útgáfufyrirtækið
Time Incorporated höfðaði mál gegn
Frjálsu framtaki á þeim forsendum að
nöfn blaðanna væru allt of lik.
Héraðsdómur dæmdi í málinu í
september 1981 og voru allir dómarar
sammála um að sýkna bæri Frjálst
framtak.
Time Incorporated áfrýjaði málinu
til Hæstaréttar og þar féll svo dómur
síöastliöinn fimmtudag á þann veg að
Frjálsu framtaki var framvegis
bannað að nota nafniö Líf á tímarit
fyrirtækisins. Vissulega var Hæstirétt-
ur klofinn í afstöðunni til málsins, tveir
vildu sýkna en þrír voru á móti þvi.
„Þetta er tvíþætt áfall fyrir okkur,”
segir Magnús, ,,í fyrsta lagi að mega
ekki nota áfram þetta góða nafn og
þekkta sem Líf er orðið og í öðru lagi
særir það mig sem Islending að geta
ekki notað íslenskt orð og að erlend
fyrirtæki geti fengið einkaleyfi á
íslenskum orðum.”
„Þegar farið er í forsendur dómsins
finnst mér íhugunarvert hve fjarri
raunveruleikanum meirihluti Hæsta-
réttar er því meö þessum dómi eru þeir
að segja aö íslenskir lesendur ruglist á
nöfnum bandaríska tímaritsins Life og
íslenska tímaritsins Líf og allir sjá
hversu fjarri raunveruleikanum það
er,” segir Magnús Hreggviðsson,
framkvæmdastjóri Frjáls framtaks.
-SþS.
HATTABÚÐIN, FRAKKASTÍG 13.
Sími 29560.
KANGOL
DÖMUHATTAR
alpahúfur — angórahúfur — slæður — dömuhanskar o. fl.
VERSLUN
Ösk unga
fólksins í ár
Sólhlífarnar nú komnar aftur.
Fœgja, puda, púla, pússa og
skítugar hendur?
Nei, nei. Nú strýkurdu bara hanskan
um yfir án nokkurrar fyrirhafnar og
pússar vid sjónvarpið.
Lausnin
er fundin.
Höfum bast í miklu úrvali, tilvalið til
að hengja eldhúsáhöldin á.
Vantar þig efni í jólaskreytinguna?
Vandinn er leystur. Við eigum úrvals
skraut í óróa og skreytingar.
Hjá okkur eruð þið
alltaf velkomin.
' Sendum ,
í póstkröfu
um land
allt.
SUtnlminrAiistín T.nnrtnnoni 11 ; íoror
Skólavörðustíg 8, Laugavegi 11 Sími 18525.