Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Page 4
4 DV. ÞRIÐJUDAGUR15. NOVEMBER1983. Flugleiðaskákmótið 1983: Bolvikingar hnekktu bankaveldinu! Logi Kristjánsson, bœjarstjóri á NeskaupstaO, fylgdistgrannt meó frammi- stöðu sinna manna á mótinu, og hár hefur hann skorist i leikinn og tefiir af mikiiii grimmd. Næstur honum situr Einar Már, sem tefldi á 2. borði en sá sem er i þann veginn aO leika er fyrsta-borðsmaðurinn, Þorvaldur Logason, 17 ára gamall. Niðdimm þoka grúfði yfir höfuð- borginni um síöustu helgi þegar 5. Flugleiðaskákmótið var í algleymingi. Þessi helgi átti eftir að veröa skák- veldi borgarinnar þung í skauti. Þrisvar sinnum hefur Búnaðarbanki íslands haldið heimleiðis frá þessu móti með bikarinn glæsilega í farangr- inum. Einu sinni var það Utvegsbank- inn sem fékk hann til árslangrar vörslu, en aldrei hefur þaö gerst aö skáklið utan af landi hafi lagt á hann hald — fyrr en núna. Búnaöarbankinn á sér að baki ótrú- lega glæsilegan feril á hinum eilífu veiðilendum skáklistarinnar og það myndi æra óstöðugan að fara að rif ja upp þá sögu einu sinni enn. Við gerðum það fyrir hálfu ári og það verður að nægjaíbili. En það varð snemma ljóst á laugar- dagsmorguninn, að nú var Bleik brugöiö. Hinir glöggu skákvinir sem á staðnum voru til þess að fylgjast með hinum drengilega leik fundu strax að einhvers staðar var ekki aUt með feUdu. — Öskaplega eruö þiö eitthvað treg- ir í gang, sagöi ég viö Braga Kristjáns- son sem tefldi á öðru borði fyrir Búnaðarbankann., „Þetta er nú bara rétt að byrja,” sagði Bragi, „það er sem betur fer langt í síöustu umferðina.” Svo fór reyndar aö Búnaöarbankinn tók við sér og náði forystu. Gat nú A ■mt Daði Guðfinnsson, á 3. borði skáksvettar Elnars Guðflnnssonar, teflir við Áslaugu Kristinsdóttur. Við hlið hans situr Halldór G. Einarsson og þar næst sunnansveinninn Karl Þorsteins, sem að þessu sinni keppti á vegum þeirra Vestfirðinganna. Yfir þeim, lengst tH hægri, stendur HOsstjóri Búnaðarbankans og fylgist sponntur með. nautanna og fyrr en varði var hún komin upp fyrir hina sigursælu sveit Búnaöarbankans. Skáksveit Einars Guöfinnssonar naut góðs af frábærum fyrsta-borðs- manni, Karli Þorsteins, sem er nú einn af efnUegustu skákmönnum yngri kyn- slóöarinnar, aöeins 18 ára aö aldri. Karl er búsettur fyrir sunnan og borgarbúi í húð og hár, en hinar for- sjálu örlagagyðjur beindu för hans vestur á bóginn í sumar, og beint í fisk- iðju Einars Guðfinnssonar, og það kom sér velað vonumþessa örlagahelgi. Skipulagsreglum mótsins er nefni- lega þannig háttað að tekjur manna skera úr um hvaða sveit þeir mega tefla fyrir, en búseta skiptir hreinlega ekki máli. A ööru borði Bolvíkinganna tefldi Halldór G. Einarsson, sem margoft hefur vakið á sér athygU undanfarin ár fyrir vaxandi skákstyrk, en einnig hann er enn á unglingsaldri. Á þriðja borði tefldi svo Daði Guð- mundsson, gamalreyndur liðsmaður í þessari öflugu, vestfirsku skáksveit. ögmundur Kristínsson, hinn snjalll markvörður Vlklngs, tefídi afalkunnu harðfylgi á 2. borði Dagblaðsins-Vísis. Jón L. Árnason var nú fjarri góðu gamni en hann hefur yfirleitt teflt á 1. borði D V. Hann var rátt ókominn frá stórmótínu i Júgóslavíu og fróttíst síðast afhonum á ferð ásamt stórmeist- aranum Jansa, þar sem þeir óku á ofsahraða i áttína að austurrisku landa- mærunum. En Jón komst ekki heim i tæka tíð og fyrir hann tefldi 1. vara- maður, Tómas Björnsson, 15 ára, sem gegnt hefur sumarstörfum hjá blaðinu. Tómas stóð sig frábœriega, hlaut 10 vinninga af23, en meðaland- stæðinga hans voru margir sterkustu skákmanna landsins. Á 3. borði DV tefldi Baldur Hermannsson, sá sem myndina tók. skeð, sagði þá hver við annan.. Hvaö ætti líka annað að vera um aöra eins sveit, þar sem sjálfur Islandsmeistar- inn nær ekki hærra en á þriðja borðið. En svo skall óveðrið á. Hin harð- snúna skáksveit Einars Guðfinnssonar frá Bolungarvík lónaði ekki langt undan forystunni og skyndilega tók hún á skrið uppeftir stigatöflunni, sax- aði miskunnarlaust á forskot keppi- STIGATAFLAN Alls tóku 24 skáksveitir þátt í Flugleiðamótinu að vanda; þar af voru 11 utan af landi, en eitt af því sem ljær þessu árlega stórmóti svo hugþekkan; blæ eru einmitt þessar dreifbýlissveitir, komnar um langan veg til þess að etja kappi viö skákmenn af höfuðborgarsvæðinu. Stigatölur einstakra sveita urðu sem hér segir. 1. Einar Guðfinnsson 58 v. 2. Búnaðarbankinn 56,5 v. 3. Ríkisspítalarnir 52,5 v. 4. Flugleiðir 48 v. 5. -6. Skákfélag Akureyrar og Útvegsbankinn 47 v. 7. ísl. járnblendifélagið 45,5 v. 8. Verkamannabústaðir Rvk. 42 v. 9. DV 41,5 v. 10. Þjóðviljinn 36,5 v. 11. Fjölbrautaskóli Suðumesja 35,5 v. 12. Jón Friðgeir, Bolungarvik, 33,5 v. 13. Landsbankinn32v. 14. Morgunblaðið 30 v. 15. Taflfélag Garðabæjar 28 v. 16. -17. Taflfélag Norðfjarðar og Taflfél. Vestmeyja 27,5 v. 18. Veðurstofan 26,5 v. 19. Skákfélag Sauðárkróks 24 v. 20. Sölumiðstöðhraðfrystihúsanna20v. 21. Ríkisútvarpið 19 v. 22. Hraðfrystihús Stöðvarfjarðar 18,5 v. 23. Islenska álfélagið 16,5 v. 24. Trausti, sendibíl. 15 v. Skákklúbbur Flugleiöa hafði forgöngu um að útvega keppendum lands- byggðarinnar flugfar og gistingu á vildarkjörum. Hálfdán Hermannsson stjórnaði mótinu af alkunnri röggsemi og naut þar liðveislu Andra Hrólfs- sonar, en dómgæslu annaðist skákfrömuðurinn góðkunni, Jóhann Þórir Jónsson. -BH. í dag mælir Dagfari_____________j dag mælir Pagfari___________I dag mælir Dagfari Allt frá því að Gylfi Þ. Gíslason reið um á hvítum hesti í hópi lista- og menntamanna, jós menningarfé á báðar hendur, reisti skóla, styrkti námsmenn og vemdaði listamenn fyrir brauðstriti, hefur það þótt fint að vera menntamálaráðherra á ís- landl. Gallinn er hins vegar sá að meðan Gylfi var vakandi og sofandi í starfinu hafa eftirrennarar hans aðaUega sofið. Gylfi flutti snjallar ræður á aðskUjanlegum máUýskum, kunni ljóðabækur utan að og var þannig af guði gerður að oftast stóðu menn í þeirri trú að hann væri nægtarbronn- ur lista og menningar í landinu prívat og persónulega. Þegar Gylfi hafði deUt og drottnað í íslenskum menningarmálum í hálfan annan áratug þótti einhverj- um lítUsigldum mannvitsbrekkum ástæða tU að ýta honum tU hUðar og gengu þar fremstir eigin flokksmenn Gylfa sem voru og em, eins og flokk- urinn sjálfur, smáir í sniðum. öf- undin og afbrýðisemin hafa gert það að verkum að enginn er spámaður í sínu föðurlandi og það fór fyrir Gylfa eins og öðrum hæfum mönnum. Honum var sparkað með kurt og pí. En því er þetta rakið hér að enn hini var maður að nafni Ingvar Gísla- son. Ingvar þessi mun enn sitja á Al- þingi, eftir því sem fróðir menn upp- lýsa, en aldrel varð hans vart í menntamálaráðuneytinu og því hvorld hægt að hæla honum fyrir málfræðikunnáttu né mjólkurþamb. Þó mun það haft fyrir satt að vín hafi aftur verið borið fram á vegum ráðu- neytisins og segir ekki frekar af Ingvari. Nú er Sjálfstæðisflokkurinn búbin að hreppa sætið, eftir þrjátíu ára eyðimerkurgöngu, og þótti mörgum manninum timi til kominn. Var hefðarfrúin, RagnhOdur, dubbuð tfl hásætis enda getið sér gott orð hjá ihaldinu fyrir járnfrúarlega and- stöðu gegn kommaáróðri í skólum og vinstri mengun í listum. Enn sem komið er hefur hún stundað skóla- setningar í betri fötunum og kynnt sér „yes mbiister” á mánudags- kvöldum. Hins vegar var það vel tfl fundið hjá sjálfstæðismönnum að til- nefnda konu sem menntamálaráð- herra, úr þvi að ráðuneytið er orðið hvíldarheimili fyrir svefngengla. Það fer auðvitað mun betur á því að þymirósiraar séu kvenkyns. Dagfari. Þymirós var kvenkyns hefur enginn pólitikus sem ráðist hefur í menntamálaráðuneytlð kom- ist með tærnar þar sem Gylfi hafði hælana. Hafa þó aðskiljanleg gáfu- menni rekist þar hin fyrir dyr með vandaðan svip og menningarlegt yfirbragð. En hér hefur sannast hið fornkveðna að enginn verður mikill af sjálfum sér. Aform og fyrirheit stoða lítið ef engar eru framkvæmd- irnar og cfndirnar. Fyrstur gekk þar í sali Magnús Torfi Ölafsson, vitur maður og margfróður að upplagl en eftir inn- vígsluna á busadagbin heyrðist hvorki til hans né spurðlst ef undan er skilinn slagurinn um setuna. Vilhjábnur Hjálmarsson reið þar næstur í hlað og var vel tekið, enda ljúfmenni hiö mesta og vei máli far- inn á íslensku. Erlendum gestum gekk hbis vegar illa að skilja þennan austfirska bónda og hans verður einkum minnst fyrlr vínlausar kokkteildrykkjur á vegum ráðuneyt- isins. Var hann meir og betur heiðraður og vegsamaður af stór- stúkunni en aðrir menntamálaráð- herrar en menningarvitar höfðu af honum litlar spurnir. Vilmundur heitinn Gylfason hafði stuttan stans í ráðuneytinu við Hverflsgötu en næstur honum í röð-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.