Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Síða 10
10 DV. ÞRIÐJUDAGUR15. NOVEMBER1983. Utlönd Útlönd Útlönd Umsjón: Herdís Þorgeirsdótí ir og Guðmundur Pétursson þurfi tíma til aö átta sig á hlutunum áöur en hann ákveöur hvernig bregöast skuli viö skuldabagganum. En endurgreiðslur eiga aö miöast viö útflutningsmöguleika og þar af leiö- andi eftirspurn á hinum alþjóðlega markaði. Raúl Alfonsín er maöur alþýðlegur og opinskár. Hann er afkomandi spænskra innflytjenda og lögfræöi- menntaður. Hann hóf snemma afskipti af stjórnmálum og fór sínar eigin götur þar. Klauf hann sig úr flokki róttækra í upphafi 7. áratugar- ins vegna ósamkomulags við flokks- forystuna, sem Aifonsín fannst of' samvinnuþýö viö perónista. Stofnaði hann sitt eigið flokksbrot, sem náöi yfirhöndinni innan flokksins sl. sumar. Hann hefur veriö óspar í gagnrýni sinni á perónista og herforingja- stjórnir sl. áratugar. Nú þegar jarövegurinn í Argentínu hefur veriö ■ plægöur fyrir lýöræöislegra stjómar- far í kjölfar áratuga spillingar og óstjómar var hann næstum sjálf- kjörinn til aö taka viö forystu vegna harðrar andstööu sinnar og þrásinnu viö málamiölunum áður. Hans bíður þó ekki létt verk og búist er viö að herinn ýti á eftir aö hann taki fyrr viö embætti en formlega var ætlað, sem er í janúar 1984. Efnahagsástandiö er slíkt svo og er þjóöin í sámm pólitískt séö, bæöi eftir Falklandseyiastríðiö 1982 og ofsóknir gegn vinstri mönnum á síöasta áratug þegar um sex þúsund manns hurfu sporlaust. Stjóm Alfon- sín verður einhvern veginn aö leysa efnahagsvandann sem mörgum' kann að viröast næstum ógjömingur en þaö þarf mikiö pólitískt hugrekki til aö framfylgja settum skilyrðum Alþ jóðag jaldey riss jóösins. Verka- lýösf élögin gætu gert stjóminni erfitt. fyrir aö ráöa niðurlögum verðbólg- unnar og áhrif perónista innan hersins gætu velgt hinni nýju stjórn vemlega undir uggum. I blaöaviötali nýlega sagöi Alfonsín, sem kjörinn er til sex ára, aö þeir eiginleikar sem hann mæti mest í fari leiötoga væri heiðarleiki og hugrekki til að mæta erfiðleikum.. Það er víst óhætt að fullyrða að það mun alla vega reyna mjög á hvort Raúl Alfonsín hefur til að bera síðari kostinn. Þýskt ríkisfyrir- tæki sett ámarkað Ári eftir að samsteypustjóm kristilegra demókrata og frjáls- lyndra kom til valda undir forsæti Helmut Kohl kanslara skal nú hafist handa við að gera alvöru úr fyrir- ætlunum um aö selja ríkisfyrirtæki eða ríkishluta í hlutafélögum til einkaframtaksins. Fyrsta skrefið er sala á drjúgum hluta af hlutafjáreign í vestur-þýsku orkusamsteypunni VEBA. Þar á aö minnka eignarhlut ríkisins úr 43,75% í 30%. — Sala á öörum eignarhlutum veröur undir því komin hve mikinn áhuga almenningur hefur á þeim fyr- irtækjum. Meö sölunni á VEBA-bréfunum efnir ríkisstjórnin mikilvægan þátt í loforöi sínu um „meiri markaðs- hyggju, minni ríkisafskipti” í at- vinnulífinu. Aö vísu eru aðeins fá af ríkisfyrir- tækjunum jafn eiguleg og orkusam- steypan, svo að salan á hinum getur gengið dræmt. En búist er við að þeir ríkishlutir, sem settir veröi á mark- aö — og þá með forgangskauprétti hinna lægra launuðu — muni færa ríkissjóði 700 milijónir marka. Rúm/ega 900 fyrirtæki á sinni könnu Mörg önnur fyrirtæki, sem ríkið er hluthafi í — og sem veita yfir hálfri milljón manna atvinnu — eru rekin með tapi. I gegnum þýsku póststof- una og ríkisjámbrautirnar hefur rík- ið töglin og hagldimar í 101 fyrirtæki. Allt frá risasamsteypum niður í smá- fyrirtæki. Að nafnverði er þetta höfuöstóll upp á 12 milljarða þýskra marka. I 77 þessara fyrirtækja á ríkið meirihluta. I 24 á þaö svonefndan neitunarminnihluta (það er aö segja meira en 25% hlutabréfa, þar sem lög hlutafélagsins gera ráð fyrir að þrjá fjórðu atkvæða þurfi fyrir sam- þykktum aðalfunda). Fyrir utan þessi fyrirtæki sem rík- ið hefur á sínu valdi beint em önnur 827 fyrirtæki sem ríkiö á hlut að og í sumum þeirra neitunarminnihluta, eða er á annan hátt óbeinn hluthafi í. Nefna mætti Volkswagenverksmiðj- umar, sem sambandsstjómin á 20% í (og Neöra-Saxland önnur 20%). Léleg afkoma Utgreiddur arður af þessari hluta- bréfaeign, sem nemur árlega um 200 milljónum marka, er sagöur vera eins og dropi í hafið í viðmiðun viö heildartapið af öllum fyrirtækjum sem ríkið kemur nærri. Nefnt er í því sambandi að „Salzgitter AG”, málm- og jámiðnaöarsamsteypan, sem teygir arma sína út í fjölda verktakafyrirtækja, skipasmíða- stööva, vélsmiðjur o.fl., hafi á síð- asta bókhaldsári verið 630 milljónir marka í tapi. Þau fyrirtæki, sem ríkið á meiri- hluta í, eru flest á iönaðarsviðinu (Salzgitter, Saarberg-verksmiðj urn- ar, VIAG og IVG), samgöngumála- sviöinu (Lufthansa, Schenker, jám- brautirnar), lánastofnanir, bygging- arfélög (íbúða), orkumálasviðinu og á sviði vísindalegra rannsókna. VW-samsteypan var meðal fyratu þýsku fyrirtœkjanna sem seld voru úr rikiseigu til elnkaframtaksins. Nú ætlar Kohl-stjórnin í Bonn að láta fíeiri fytgja á eftir. Arðsemi og eftirspurn 1 Mörgum þessara ríkisfyrirtækja var aldrei ætlað að skila hagnaði. Nefna má GTZ, fyrirtæki um tækni- lega samvinnu, sem starfar í löndum Þriðja heimsins og vinnur aö verk- efnum til þróunaraðstoðar. önnur fyrirtæki eins og almenn byggingar- félög, sem eiga að leysa úr húsnæðis- eklu almennings, áttu rétt að standa undir sér eða rúmlega það. Og sum eins og rannsóknarstofnanir eru bor- in uppi af ríkisstvrkjum. Strax áriö 1959 seldi vestur-þýska ríkið „Preussag”, orkufyrirtæki, sem áður var ríkiseign. Og 1965 voru fyrstu ríkishlutabréfin í VEBA seld á almennum markaði. I báöum tilvik- um var lágtekjufólk látið njóta for- gangsmöguleika á að komast yfir bréfin, því að þeim vora seld bréfin meö „lágtekju-afslætti” (social-, rabat) og þaöan er komið hugtakiö „alþýðu-bréf”. Nú er alls ókunnugt hvaða ríkisfyr- irtæki verður selt næst á eftir VEBA, en hitt er auðvitað fyrirséð að kaup- endur verða naumast að öðruin fyr- irtækjum en þeim sem þykja vel rek- in og skila góðri afkomu. Því er ljóst- að Bonnstjómin mun leitast við að fá rekstur margra þeirra fyrirtækja sem selja á til þess að skila hagnaði í komandi framtíð, svo að þau verði auðseljanlegri. fíaúl AHonsin eftir kosningasigurinn i hópi fróttamanna i Buenos Aires. Raúl Alfonsín: NYR LEIÐTOGI — NYTT TÍMABIL? Með kjöri Raúl Alfonsín í forseta- embætti hefur verið bundinn endi á stjóm herforingjanna og væntanlega er áratugalöngu ófri indarástandi lokið, „sem ekki einu sinni Argentínumenn eiga skilið”, eins og breska blaðið Economist orðar þaö. Veldi „Róttæka” flokksins hefur veriö endurreist — en þessi flokkur, sem frekar er miðjuflokkur en rót- tæknrog byggir fylgi sitt á miðstétt- inni, var ráðandi afl í stjórnmálum Argentinu fram til 1930. Frá lok- um heimsstyrjaldarinnar hafa perónistar, sem nú era komnir í stjórnarandstööu, ráöið. Vald Peróns og fýlgifiska hans var m.a. grundvallaö á spilltri verkalýðsfor- ystu og tókst perónistum svo að segja að sigla þjóðarskútunni í kaf. Erlendar skuldir eru um 40 milljarðar Bandaríkjadala og verðbólgan er yfir 350 prósent á árs- grundvelli. Alfonsín, sem er 57 ára gamall, var tilnefndur frambjóðandi flokks síns í júlí sl. Uppgangur flokks hans er mikiö honum sjálfum aö þakka. Og sigur hans byggir á auknu fylgi verkalýðs, sem hingað til hefur fylgt perónistum. I kosningabaráttunni lagði Alfonsín áherslu á mannrétt- indi, lýðræði, jöfnuð og félagslegar framfarir. Hann lofaði launa- hækkunum, stöðugra verðlagi og lækkuðum vöxtum, aukinni eftir- spurn eftir innlendum vamingi og í kjölfar þess minnkandi atvinnuleysi, sem nú er 15 prósent. Hann hafði ekki hátt um það hvort skilyrðum þeim sem Alþjóðag jaldeyris-. sjóöurinn setur hinum stórskuldugu þjóðum Suður-Ameríku sem sjóður- inn er að hlaupa undir bagga með yrði nákvæmlega fylgt. Enda augljóst að afleiðingar slíkra skil- yrða krefjast mikilla fórna heima fyrir og því ekki heppilegt að nota þau í kosningaáróðri. Alfonsín hefur gefið í skyn að hann

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.