Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Síða 31
RRpr fiaaMavrtvr f,r RTíDAarnrTTHcj w DV. ÞRIÐJUDAGUR15. NOVEMBER1983. Sandkorn Sandkörn Sandkorn Hagnýtar rann- sóknir Steingrímur J. Sigfússon þykir meö athyglisverðari þingmönnum allaballa um þessar mundir og jafnvel líklegur til stórrœða. Hann mun um tima hafa búið í kjallaranum hjá Gunn- ari heitnum Thoroddsen sem var eins og minnugir muna varaformaður Sjálfstæðis- flokksins. Nú býr Steingrím- ur hins vegar í Skógargerði í Reykjavik í næsta húsi við Friðrik Sophusson núverandi varaformann sama flokks. Þykir sýnt að Alþýðubanda- lagsþingmaðurinn hafi að undanförnu verið að kanna atferli og hegðunareinkenni varaformanna. Virðast honum ætla að nýtast þessar atferlisrannsóknir vel því sjálfur er hann nú talinn líklegastur tO að verða vara- formaður Alþýðubandaiags- ins. Arni. Dágóð uppbót Þingmönnum úr dreifbýlis- kjördæmum hafa löngum verið veittar uppbætur vegna aukins kostnaðar við að halda heimUi á tveim stöðum. Þannig fær þingmaður með lögheimili utan Reykjavíkur, en sem þarf að búa í Reykja- vík, 7400 krónur á mánuði í húsnæðiskostnaö. Hann fær HaUdór. að auki 250 krónur á dag i dvalarkostnað. Það gera 7500 kr. mlðað við 30 daga i mánuði. Loks fær vlðkomandi þingmaður 8700 krónur á mánuði í ferðakostnað i kjör- dæmið. Samtals nemur þessl aukaþóknun því um 23.600 krónumá mánuði. Það hefur vUjað brenna við að þingmenn sem kosnir eru í drelfbýliskjördæmum láti Halldór. skrá lögheimUi sitt í kjör- dæmum sínum og fái þar með fyrrnefnda upphæð í budd- una. Svo mun t.d. vera um Arna Johnsen sem hefur búið árum saman í Reykjavík en er með lögheimUi l Vest- mannaeyjum. HaUdór Ás- grimsson sjávarútvegsráð- herra hefur einnig búið og starfað um langt skeið i höfuðborginni en er með Steingrfmur. skráð lögheimtti á Höfn í Hornaflrðl. Sama máU gegnir um HaUdór Blöndai sem er með skráð lögheimUi á Akur- eyri. Steingrímur J. Sigfús- son hefur einnlg búiö og starf að í Reykjavík að undan- fömu, en er með lögheimUi að Gunnlaugsstöðum í N.-Þing- eyjarsýslu. Auk þeirrar drjúgu Iauna- uppbótar sem þetta fyrir- komulag gefur í aðra hönd greiða viðkomandl þingmenn gjarnan lægra útsvar og lægrl iðgjöld af bílum sinum. Utsvarið rennur svo að sjáU- sögðu tU þeirra hreppa sem þeir eru skráðir í þótt þeir starfi og búi í Reykjavík. Svolítið snúið, ekki satt? Steliþjófar Nú á dögunum stóð tU að opna nýja ljósa- og nuddstofu á Seltjamaraesi. Skyldl hún heita Sól-Nes. Ekki reyndust aUir jafnkát- ir með þá nafngift þegar hún spurðist út. Þótti t.d. Júlíusi Sóbies bæjarfuUtrúa og hans f jölskyldu þetta nokkuð langt gengiö því þaraa væri verið að nappa lögveraduðu ættar- nafni og setja það á nudd- stofu. Segir sagan að Július hafi falið lögfræðingi sínum að sjá svo um að þessi ósómi næði ekki fram að ganga. Ekki vitum vér hverjar mála- lyktir urðu. Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Regnboginn—Verónika Voss: I greipum lyfja Regnboginn, Verónika Voss: Stjórn: Rainer Werner Fassbinder og fleiri. Handrit: Rainer Werner Fassbinder og fleiri. Kvikmyndun: Xaver Schwarzenberger. Tónlist: Peer Raben. Aðalleikarar: Rosel Zech, Hilmar Thate, Corne- lia Forboess, Annemarie DUringer, Doris Schade, Eric Schaumann, Rudolf Platte, Jo- hanna Hofer. Rainer Wemer Fassbinder veröur að telja í hópi allra áhugaverðustu leikstjóra siðustu ára. Þaö er ekki aðeins sakir þeirra heiUandi og áræðnu viðfangsefna sem hann hefur tekið sér fyrir hendur á tUtölulega stuttum en afkstamiklum leik- stjórnarferU heldur ekki síður fyrir listrænt handbragð hans og frum- leika í útfærslu verka. Frægðarsól Fassbinders reis sennUega hæst á síðustu tveimur árum þegar hann hafði sent frá sér á mjög stuttum tíma hvert stórvirkið á fætur ööru; myndir sem sópuðu að sér nær öUum viðurkenningum sem kvikmyndir geta öðlast í Evrópu. Einmitt þá bárust kvikmyndaunnendum þau hryggUegu tíðmdi að Fassbinder væri aUur, áralöng heróínneysla hans hefði að lokum dregið hann til dauða. Aðdáendur meistarans komust við og þeir voru margir. Menn óraði ekki fyrir að þessi liðlega hálffertugi snUUngur félU frá, rétt á hádegi vinnudagsins. En nóg um það. Ein af allra síðustu myndunum sem Fassbinder vann að, og að því er taUð er sú síðasta sem hann náði að fullgera, er kvikmyndin um löngun og þrár kvikmyndastjöm- unnar Veróniku Voss aö öðlast aftur fyrri heimsathygli eftú áralanga baráttu við taugabUun og lyfja- neyslu. Þetta sálarstríö leUrkonunn- ar fá kvikmyndaunnendur að sjá um þessar mundir í stærsta sal Regn- bogans. Kvikmynd þessi geymir alla helstu meistaratakta Fassbinders, svo sem frábæra leikstjórn og sviðsetningar, glöggt auga fyrir kvUcmynduninni og þar meö talinni bútu og notkun ljós- gjafa og síðast en ekki síst þessum ótrúlega góðu tilþrifum sem hann nær út úr leikurum sem hann hefur valið tU verksins, en margir hafa ein- mitt furðað sig á handlagni Fass- binders í því síðastnefnda. I flestum myndum sínum vúðist hann hafa getað stjómaö leikurum sínum sem um leikbrúður væri að ræða, svo Atriði úr kvikmyndinni um Verónlkn Voss, síðasta verkinu sem Fassbind- er náði að fuUgera áður en hann féll frá á siðasta ári. 9»-----► algjörlega fara þeir að stjórn hans og vilja. Kvikmyndin um Veróniku Voss gerist um og upp úr sjötta áratugn- um og f jaUar um uppgjafa leikkonu sem átti sitt blómaskeið í kvUt- myndum í síðara heúnsstríði. Þegar myndin gerist hefur hún ekki leikið lengi í kvikmyndum vegna þess ein- faldlega að hvorki leikstjórar né handritahöfundar hafa lengur áhuga fyrú hennar týpu í myndum sínum. Þetta leggst mjög á sálarlíf hennar, hjónaband hennar og handritahöf- undar nokkurs, sem átti ekki svo litinn þátt í að skjóta henni upp á stjömuhimininn, er að fara í rúst, vinaleysi er farið að hrjá hana. Og í einmanaleika sínum og örvæntingu leitar hún á náðú velþekkts tauga- læknis sem lengi vel hefur séð um að útvega frægu fólki róandi lyf til að stUla þrautir þess. Eitt sinn, af tilviljun, hittú Verón- ika ungan íþróttafréttamann sem býðst til að lána henni regnhlíf sína og vemd og fylgja henni heún þar sem hún stendur umkomulaus úti í grenjandi ofankomu og veit greúii- lega ekki hvað hún á af sér að gera; halda þessu ömurlega lífi áfram í von um að komast aftur af stað í kvikmyndaleik eða brnda enda á þetta allt saman. Þessi fundur þeirra verður upphaf að næsta undarlegu sambandi sem er á mörkum heitrar ástar og saklauss vúiskapar, á mörkum þrár eftú trausti eða út- rásar fyrir angist: Allt eftú því hversu hátt uppi eða langt niðri Verónika er af völdum lyfjanotkunar sinnar. Nánar skal ekki fjallað um þetta samband þeirra nema nefna það til að fréttamaðurinn leiðist út í það að reyna að bjarga þessari vin- konu sinni úr heljargreipum lyfja og þess læknis sem dælir þeim í hana. Það verður hatrömm barátta. Það eru margú þættú sem vúina saman aöfullkomnun þessa stórvúk- is. Kvikmyndalega er myndin ákaf- lega fögur og næmni Fassbinders fyrir töfrum ljóss og skugga kemur glögglega fram í þessu svart/hvíta verki hans. Hann hiefur og náð því út úr leikurum sínum sem hægt var að ná sem svo oft áður. Leikur er oft á tíðum með slík:im ágætum að maður hrífst af og vil ég þar sérstaklega nefna Rosel Zech og Hilmar Thate í hlutverkum Voss og fréttamannsins. Persónur þeirra verða manni óefað lengi eftirminnilegar í meðförum þeirra. Skemmtilegur er þessi hrái stíll sem einkennt hefur margar myndú Fassbinders og þessá einnig sem hér er til umfjöllunar. Urvinnsla söguþráðarins og þaö hvernig hann tengú atriði myndar saman er aldrei skipulegt eða rútínerað út í gegn, heldur er jafnan að finna nýjar og frumlegar lausnú eftú því sem fram heldur. Þetta setur einstakan blæ á heildaryfirbragð verksins og heldur áhorfendum fastar við efniö en ella væri. Leiðú kvikmyndavélarinnar um sviðið og þau sjónarhorn sem henni er valið aö skjóta frá koma mönnum oft á óvart og gleðja augaö iðulega. Þetta síðasta verk sem Fassbinder náöi að fullgera á stuttum leik- stjómarferli sínum (sem skilur þó eftir rúmlega þrjátíu kvikmyndú, eða að jafnaði tvær á ári) er einmitt mikiö augnayndi. Verónika Voss og margar fyrri myndir þessa þýska listamanns eiga eftir að mrnna unn- endur góðra kvikmynda á nafn hans oft í framtíðinni. - Slgmundur Eraú Rúnarsson. Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir AÐALFUNDUR Aðalfundur knattspyrnudeildar Ármanns verður haldinn fimmtudaginn 17.11. kl. 19.30 í Ármanns- heimilinu við Sigtún. Stjórnin. Sumarhús til sölu Sumarhús, sem notað hefir verið um eins og hálfs árs skeið sem skrifstofuhúsnæði, er til sölu. Flatarmál hússins er ca 50 m2. Tilboöa er óskað í þetta hús, sem er til sýnis hjá Áburðarverk- smiðjunni í Gufunesi til 30. nóvember 1983. Þeir sem kunna að vilja gera tilboð í húsið skili tilboðum eigi síðar en 30. nóvember 1983. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði, sem berast kann, eða hafna öllum. Áburðarverksmiðja ríkisins. LÆKNAHÚSIÐ Síðumúla 29 Almennar skurðlækningar Sími: 85788 Barnaskurðlækningar Blóð- og þvagrannsóknir Bæklunarskurðlækningar Svæfingarldeyfingar Þvagfæraskurðlækningar Æðaskurðlækningar Skurðstofur Læknastofur Rannsóknarstofur Höfum opnað lækningastofur okkar í „Lækna- húsinu", Síðumúla 29 Reykjavík. Viðtalsbeiðnir í síma 85788 á milli kl. 13:00 og 18:00 daglega. Egill A. Jacobsen Guðmundur Bjarnason Guðmundur V. Einarsson Halldór Jóhannsson Hannes Finnbogason Ingvar E. Kjartansson Jón Sigurðsson Matthías Kjeld Páll Gíslason Sighvatur Snæbjörnsson Sigurjón Sigurðsson Valdemar Hansen Þórarinn Ólafsson Sérgrein: Sérgrein: Sérgrein: Sérgrein: Sérgrein: Sérgrein: Sérgrein: Sérgrein: Sérgrein: Sérgrein: Sérgrein: Sérgrein: Sérgrein: Skurðlækningar og þvagfæraskurðlækningar. Skurðlækningar og barnaskurðlækningar. Þvagfæraskurðlækningar. Skurðlækningar og æðaskurðlækningar. Skurðlækningar. Skurðlækningar og æðaskurðlækningar. Svæfingar og deyfingar. Meinefnafræði. Skurðlækningar. Svæfingar og deyfingar. Bæklunarlækningar. Svæfingar og deyfingar. Svæfingar og deyfingar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.