Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Síða 34
34
DV. ÞRIÐJUDAGUR15. NOVEMBER1983.
Hér er allt
gengið komiö
saman. Fólk úr
öllum deitdum
hjá Flugleið
um. Gott fyrir
fyrirtækið að
hafa svona
frisklegt fólk i
vinnu.
Ao lokmm lendmgu stillti fjaðurboltinn sér upp með þessum frísklegu
Flugleiðastúlkum. Ánægður var hann með fíugið, þó oft hafi nú verið milli-
lent og flughæðin verið misjöfn.
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
Bridge, fjaðurbolti,
og gripið f píanó
Komiði sæiir, féiagar og vinir góðir, og við bjóðum
ykkur ekki birginn þegar við bjóðum góðan daginn.
Við erum bara ansi fjaðurmagnaðir í þetta skiptið.
Fjöiium um fjaðurboita, bridge og píanóieik sem
afslöppun.
Fyrst verður rætt við hann Jóhann Jónsson, eða
„Jóa Sigió" og „Double second best of Scotland",
eins og sumir hafa kallað hann. Þekktur bridgari,
Jóhann.
Þá bönkum við upp á hjá honum Clarence Edward
Glad. En hann útskrifaðist í haust frá Háskóla íslands
bæði úr guðfræðideild og heimspekideild, eftir aðeins
fjögurra ára nám í skólanum.
Og þá er það fjaðurmögnunin feikivinsæla. Við
sláum til og kikjum inn í KR-heimilið, þar sem Flug-
leiðafólk spilar fjaðurbolta, öðru nafni badminton, sér
til hressingar. Hraust og traust fjaðurboltafólkið hjá
Flugleiðum.
Við sláum þá punktinn á sinn stað með spaðanum.
Texti: Jón G. Hauksson
Myndir: Gunnar V. Andrésson
Flugleiðafólk
í fjaðurbolta
— „Hraust fólk hjá traustu félagi”
Þeir fljúga vel og örugglega fjaður-
boltarnir hjá Flugleiðafólkinu í KR-
heimilinu á fimmtudagskvöldum.
Enda ekki viö öðru að búast, það er
hraust og traust fólk sem heldur um
spaðana.
Við í Dægradvölinni fréttum af þessu
flugi fjaðurboltanna. Og með hjálp
Alex og Farskrárinnar vorum viö bók-
aðir í síðasta fimmtudagsflug.
Þetta var ljúft flug og hið skemmti-
legasta. Tilþrifin leyna sér heldur ekki
á æfingunum. Góð „flugtök” og rokna
„smöss”.
„BESTA MEÐAUÐ AÐ
SPILAÁ PÍANÓIД
—segir Clarence E. Glad, sem útskrifaðist í haust úr Háskóla íslands með
embætt ispróf í guðf ræði og BA-próf í heimspeki eftir aðeins fjðgurra ára nám
Hann heitir Clarence E. Glad og
nafnið er enskt. Foreldramir eru
finnskir. Hann fæddist á Sauðárkróki
og náði sérí íslenskan ríkisborgararétt
vegna körfuboltalandsleikja. Og nú í
haust útskrifaðist hann úr Háskóla Is-
lands, meö embættispróf í guðfræði og
einnig BA-próf í heimspeki, með forn-
grísku sem aukagrein eftir fjögurra
ára setu í háskólanum.
Dægradvölin fékk áhuga á að rabba
við manninn og það var samþykkt, þó
Clarence yrði nú hálfhissa þegar við
hringdum í hann.
„Foreldrar mínir eru Daniel Glad
Clarence Glad grípur oft I pianóið tH aö slappa af. Hér spllar hann lag Paul McCartneys, Yestorday,
fyrir okkur. Clarence var 2 1/2 ér í MH og vantaði aðeins tvo punkta í stúdentsprófið, er hann fór i
bandariskan héskóla i Belgíu. Þar lauk hann BA-prófi i guðfræði og fékk viðurkennda 53 punkta úr
þeim skóla, er hann hóf ném i guðfræðideild Héskóla Islands.
trúboöi og Marianne Glad. Þau komu
hingað árið 1952,” sagði Clarence, er
við impruðum á ættfræðinni við hann.
Bjó á Sauðárkróki til 9 ára
aldurs
Clarence bjó á Sauöárkróki til níu
ára aldurs, en hann fæddist árið 1956.
Þá fór hann utan til Finnlands með for-
eldrum sínum og var þar í eitt ár.
„Við komum svo hingaö aftur og
fluttum þá í Stykkishólm, þar sem við
bjuggum til ársins 1970, er við fluttum
til Reykjavíkur.”
Er við leiðum talið að dægradvöl
hans, ef svo má segja, því námið sjálft
hlýtur jú að vera aöaldægradvölin,
kemur í ljós aö hann spilar mikið á
píanó.
„Þegar setið er lengi viö lestur,
kannski tíu til fimmtán tima á sólar-
hring, þá finnst mér albesta meðalið
aö hlaupa fram og spila á píanóiö. Þaö
er besta læknismeðalið og maður
hressistallurvið.”
Clarence byrjaöi að læra á píanó hjá
Víkingi Jóhannssyni í Stykkishólmi, og
var í tímum hjá honum í alls fjóra vet-
ur. Síðan var hann einn vetur hjá
Rögnvaldi Sigurjónssyni, eftir aö hann
flutti til Reykjavíkur.
Uppáhaldstónlistín
— Einhver sérstök uppáhaldstón-
list?
„Ég er á vissan hátt alæta á tónlist
en hef þó mjög gaman af að hlusta á
klassíkina, til dæmis Tjsækovskí.”
Og því má skjóta hér inn í aö
Clarence hefur spilað undir á síðustu
árum hjá Fíladelfíukórnum og hann er
sjálfur í Fíladelf íusöfnuðinum.
„Ég hef þó ekki spilað undir hjá
kómumívetur.”
„Ég var að dunda i körfubolta
með Ármanni og skipti um rjkis-
borgararétt til að ég gæti spilað
með unglingalandsliðinu i Polar
Cup árið 1975." DV-myndir: GVA. 1
Við sögðum í upphafi að Clarence
heföi náð sér í íslenskan ríkisborgara-
rétt vegna körfuboltalandsleikja.
„Já, ég spilaöi körfubolta með
Ármanni og skipti um ríkisborgararétt
til að ég gæti spilaö með unglinga-
landsliðinu í Polar Cup árið 1975.”
— Og hvernig gekk í Polar Cup?
„Mig minnir að við höfum lent í
þriðja sæti, eins og reyndar oft hefur
hent h já íslenska körfuboltalandsliðinu
íþessarikeppni.”
Og þá má geta þess að Clarence
keppti á sínum tima í sundi og viða-
vangshlaupi fyrir HSH þegar hann bjó
íStykkishólmi.
Talandi um guðfræðina. Þú varst í
skóla í Belgíu áður en þú byrjaðir hér í
háskólanum.
„Já, ég fór um haustið ’75 til Belgíu
og lauk þar BA-prófi frá bandarískum
college í Brussel vorið ’79. Og þá um
sumarið fór ég til Jerúsalem til að læra
hebresku.
Eftir þaö ætlaði ég að fara til Banda-
ríkjanna en fékk áhuga á að kynna mér
guðfræðikennsluna hérna, þar sem ég
er ekki í þjóðkirkjunni.”
Verð í grísku og latínu í
vetur
— Ogframtíöin?
„ Já, ég var nú að skríða út úr egginu
í háskólanum. Én ætla að læra þár
grísku og latínu í vetur. Eftir það hef
ég hugsaö mér aö fara til Bandaríkj-
anna í frekara nám í guöfræðinni.”
-JGH