Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Síða 35
DV. ÞRIÐJUDAGUR15. NOVEMBER1983. 35 DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL Ipi áfcii.5 Fjaðurboltínn á fullu hjá Farskránni." Þetta var alveg bókaður boiti, þrátt fyrir að Alex væri ekki á staðnum. Þjálfari og kafteinn á þessum æfing- um er Oskar nokkur Guðmundsson, margfaldur Islandsmeistari í íþrótt- inni. Hann sagði okkur að það væru um tuttugu manns sem kæmu á æfingam- ar, sem væru ekki aöeins á fimmtu- dagskvöldum heldur einnig á sunnu- dögum. „Þau em geysilega áhugasöm og þetta er hress hópur. Hér er fólk sem hefur æft í nokkur ár og einnig nokkrir byrjendur.” Flugleiðir taka þátt í badminton- keppnum við önnur flugfélög víða um . . .„You can depend on us," stendur skrifað á bolnum hjá henni þessari. Og hún er enda traust á svipinn. heim. Og nýlega var flogið til Singa- pore og keppt viö flugfélagið Cathay Pacific. „Og okkar fólk sigraði,” svo notuð séu orð Oskars Guðmundssonar. Flugleiðafólkiö tekur einnig þátt í Asíukeppninni svokölluðu, en í henni taka þátt öll stærstu flugfélög i heimi. Sú keppni stendur yfir í f jögur ár. Og nú þegar hafa þau hjá Flugleið- um slegið „kollega” sina hjá British . Airways og þýska flugfélaginu Luft- Fótaburðurinn verður líka að vera í iagi þegar fóik slær tíl og spilar badminton. DV-myndir: GVA. hansa út úr keppninni. Þar með eru þau komin í úrslit í Evrópuriðlinum. Keppa til úrslita við SAS-fólkið og fer sá leikur fram í Danmörku með vor- inu. En þrátt fyrir allar keppnirnar þá er nú tiigangurinn með badmintoninu sá að ná sér í holla hreyfingu og eiga ánægjulega kvöldstund með fjaður- boltanum. „Já-á-á-á.” „Velgert, þúátthann.”! ,,Æi-æ-æ.” „Góður.” „Hvemig stendur?” „Látt ’ann fara.” „Og svo- oo-o.” „Flott þetta.” „Þetta er ekki bú- ið.” Það er greinilegt að það á að taka SAS-arana í karphúsiö í vor. -JGH i „Það nægði þótil að bursta ykkur” — rætt við Jóhann Jónsson bridgara sem hefur viðurnef nið „ Jói Sigló” og „Dobble second best of Scotland” „Þetta var vorið 1955. Ég hafði flutt til Reykjavíkur frá Siglufirði fyrir um ári og var reyndar nýorðinn Reykja- víkurmeistari með sveit Harðar heitins Þórðarsonar. En þá hringir fyrrum makkerinn minn á Siglufirði, Sigurður Kristjáns- son, í mig og biður mig að koma norður og keppa með Siglfirðingum á móti Akureyringum í bæjarkeppni. Mér var þaö ljúft og skylt og fór norður. Þegar ég kom svo aftur í bæinn til baka, sögðu félagar mínir í sveit Harðar: Nei, er ekki Jói Sigló mættur. Þaö var nóg. Þetta nafn festist við mig.” Þannig sagðist Jóhanni Jónssyni, bridgespilara með meiru, frá, er viö litum inn til hans um daginn, en eins og hann segir þá hefur hann jafnan geng- ið undir nafninu Jói Sigló. Jóhann er margfaldur íslandsmeist- ari í bridge. Hann hefur verið í sveit meö mönnum eins og Herði Þóröarsyni, Stefáni Guðjohnsen, Jóni Arasyni og Benedikt Jóhannssyni. Allt kunnir bridgespilarar hér á árum áður. Líka kallaður „Double second best of Scotland" „Fyrst við vorum að ræöa um viður- nefnið Jóa Sigló þá má kannski geta þess aö Skotarnir gáfu mér einnig nafn. En ég hef haft þaö fyrir sið að keppa á skoska meistaramótinu á hverju ári frá 1969, að tveimur árum undanskildum. En þannig var að ég varð í öðru sæti árin ’78 og ’79. Það dugöi til þess aö í veislu að loknu mótinu ’79 var ég kallaöur „Double second best of Scot- Jóhann við spilaborðið heima hjá sár. Búinn að gefa og klár i slaginn. „Már sýnist á þetta." um sex lauf DV-myndir: GVA. hef alls ekki séð eftir tímanum sem hefurfariðíþetta.” IMotar gamla Vínarkerfið Það hefur vakiö undrun margra bridgespilara að Jóhann hefur jafnan haldið sig við gamla góða Vínarkerfið. Og það hefur gefist vel. „Jú, jú, þeir hafa margir orðið hissa. Ég man til dæmis eftir því að eftir landsleikinn viö Skotland áriö '69, þar sem við Benedikt heitinn Jóhannsson spiluðum saman, þá hafði forseti Evrópusambandsins, Baron De Nixon, orðá þessu. Hann stóð upp i veislu og sagði að hann væri mjög undrandi að þessir spilarar skyldu nota svo gamalt kerfi. Ég stóöst þá ekki mátið og stóð upp og sagði: Það nægði þó.til að bursta ykkur. Menn höföu gaman af þessu.” Rauða laufið — Aldrei notað neitt annað kerfi? „Jú, ég og Stefán Guðjohnsen spil- uöum Rauöa laufið svokallaöa um tíma, en hættum því. Og svo nota ég annaö kerfi þegar ég spila á skosku meistaramótunum með makker mín-, um, Frank Lamara frá Edinborg.” Varla er hægt að komast hjá því að spyrja Jóhann um eftirminnilegasta spilið. „Þau eru nú orðin mörg eftirminni- leg. En þegar þú spyrð svona þá dettur , mér fyrst í hug spil frá því á ólympíu- mótinu ’64. Þetta var heljarmikið mót, um fjög- ur þúsund þátttakendur. Og hver og einn spilaði í heimalandi sínu. Fyrirkomulagið var þannig að menn fengu fyrirfram ákveðin spil. Það var gefið sérstaklega fyrir sagnir en síðan kom miði í lokuöu umslagi þar sem sagt var hvaða sögn ætti aðspila. Aðeins tveir af þúsund sem tókst að standa spilið I einu spilanna þurfti ég að spila sex grönd. Og í ljós kom eftir á að við vorum aðeins tveir af um þúsund, sem tókst að standa spilið. Hinn var Englendingur, Flint aðnafni. — Og það er ekkert verið að láta deigan síga í bridginu? „Nei, nei. Þetta er skemmtilegt spil og ég hef kynnst ógrynni af vinum og kunningjum í gegnum spila- mennskuna.” -JGH land”. Og þeir kalla mig það ennþá, Skotarnir.” Svo mikill er áhugi Jóhanns á bridge að hann hefur í gegnum árin gefið sér lítinn tima til að fara í bíó og leikhús og þess háttar. ,,Ég held að nú séu komin átta ár síðan ég fór í leikhús og um þrjú ár í bíó. Maður spilar mest á kvöldin, en ég „En þá hringir fyrrum makkerinn minn á Siglufirði, Sigurður Kristjánsson, i mig og biður mig að koma norður og koppa með Sigl- firðingum á mótí Akureyringum i bæjarkeppni. Már var það Ijúft og skylt og fór norður. . . "

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.