Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1983, Síða 40
Varmi
Bifasprautun hf.
i
Auöbrekku 14 Kópavogi
Simi 44250
7
Tómas
Guðmundsson
skáld látinn
Tómas Guðmundsson, eitt ástsæl-
asta skáld þjóðarinnar á okkar öld, lést
á Borgarspítalanum í gær. Hann hafði
átt við vanheilsu aö stríða um nokkurt
skeið. Tómas skilur eftir sig margar
vinsælar ljóðabækur, þ.á.m. Fagra
veröid, sem út kom 1933 og hlaut
Tómas titilinn borgarskáld fyrir þaö
verk. Margir hafa líkt honum við Jón-
as Hallgrimsson sem ættjaröarskáld.
Eftir Tómas Guðmundsson liggja
mörg verk, hið síðasta, Heim til þín Is-
land, sem út kom 1977, Fljótið helga,
1950, Við sundin blá, 1925 en heildarút-
gáfa ljóða hans kom út 1953.
Tómas Guðmundsson fæddist 6.
janúar 1901 á Efri-Brú í Grímsnesi í
Árnessýslu. Hann varð stúdent frá MR
1921 og cand. juris frá Hl 1926. Starfaði
hann í fyrstu við málflutningsstörf og
við Hagstofuna um 14 ára skeið. Auk
ljóðanna liggja eftir Tómas ritstörf af
ýmsu tagi. -HÞ
Loðnanennófundin
„Þeir eru bara ekki búnir aö finna
loðnuna enn,” sagði Andrés Finnboga-
son í loðnunefnd í morgun. Bátamir
eru nú að leita fyrir sér 50 til 60 mílur
noröur af Langanesi og fékk aöeins
einn þeirra, Albert GK, slatta í nótt.
Veöurerþokkalegtámiðunum. -GS
Tvö umferðar-
óhöpp í Svarf-
aðardal
Tvö umferöaróhöpp urðu í Svarf-
aðardal um síðustu helgi. Hiö fyrra
varð við bæinn Ytra-Hvarf. Þar rákust
tvær fólksbifreiðar saman og skemmd-
ust þær mikið en meiðsli á fólki urðu
engin.
Síöara óhappið varö skammt frá
bænum Tjörn en þar ók fólksbifreið út
af veginum. Ökumaður meiddist lítiö
og slapp hann með smáskrámur. Bif-
reiðin skemmdist mikiö.
Mikil hálka hefur verið á vegum í
Svarfaðardal að undanfömu og má
rekja orsakir þessara óhappa til henn-
ar. ÖBT/Dalvík
LOKI
Var Matti ekki að gefa
gjaldeyrinn frjálsan?
27022
AUGLYSINGAR
SÍÐUMÚLA33
SAAAAUGLYSINGAR
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI 11
AFGREIÐSLA
86611
RITSTJORN
SÍÐUMÚLA 12—14
ÞRIÐJUDAGUR 15. NOVEMBER 1983.
Sviku 40 þúsund
pund út úr bönkum
— tveir menn ákærðir fyrir gjaldeyrissvik, skjalafals og ávísanamisferli
Tveir menn hafa verið handteknir
fyrir umfangsmikil gjaldeyrissvik
og skjalafals sem áttu sér staö í síð-
ustu viku. Annar mannanna hefur
verið úrskuröaður í gæsluvarðhald.
Rannsóknarlögregla ríkisins hefur
gert kröfu um að hinn verði einnig
úrskurðaöur í gæsluvarðhald og
veröur tekin afstaða til þess í dag.
Mennirnir sviku út rúmlega 40
þúsund pund úr Landsbankanum og
Búnaðarbankanum en upphæðin
jafngildir um 1,7 milljónum
íslenskra króna. Mennirnir fengu
gjaldeyrinn aö hluta til yfirfærðan á
fyrirtæki sem annar þeirra rak áður
en borguðu fyrir með innistæöu-
lausum ávísunum. Svik þessi áttu
sér staö á tveimur dögum í síðustu
viku og uppgötvuöust á föstudaginn
er í ljós kom að greitt hafði verið fyr-
ir gjaldeyrinn með innistæöulausum
ávísunum. Bankamir kærðu þá
mennina fyrir ávísanafals, skjala-
fals og gjaldeyrissvik. Gerð var
krafa um að þeir yrðu settir í
gæsluvarðhald enda lék grunur á að
þeir hafi ætlað að komast úr landi.
Að sögn Þóris Oddssonar cru grun-
semdir um aö fleiri aöilar tengist
þessu máli.
-ÓEF.
FÉLAGSFUNDUR VR:
Tillaga st jóraar samþykkt
um breyttan afgreidslutíma
Formaður Verslunarmannafé/ags Reykjavikur, Magnús L. Svainsson, kynnti fyrir fólagsmönnum
samkomulagsdrög um breyttan afgreiðslutíma verslana i Reykjavik á fjölmennum fundi á Hótel Sögu i
gærkvöldi. Konur voru i miklum meirihluta á fundinum. Tillaga stjórnar var samþykkt. DV-mynd GVA.
Á fjölmennum fundi Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur, sem hald-
inn var í gærkvöldi á Hótel Sögu, lagði
stjóm félagsins fram tillögu um breytt
fyrirkomulag afgreiðslutíma verslana
í Reykjavík. „Tillagan var samþykkt
með 178 atkvæðum, 78 voru á móti og
auöir og ógildir seölar voru 72,” sagði
Sigfinnur Sigurðsson hagfræðingur VR
í samtali við DV í morgun. „Það var
alveg viöbúiö ef þetta samkomulag
hefði ekki verið samþykkt af félags-
mönnum að borgarstjóm Reykjavíkur
myndi afnema núgildandi reglugerð
svo þaö er þó til bóta að hafa reglur til
aðfaraeftir.”
Að sögn Sigfinns voru umræður á
fundinum fjömgar og afgreiðslufólk í
verslunum í yfirgnæfandi meirihluta.
Samkomulag þetta felur í sér að
verslanir í Reykjavík mega vera opnar
frá klukkan 8—20 mánudaga til
fimmtudaga, föstudaga frá klukkan
8—22 og laugardaga frá klukkan 8—16.
Heimildin leyfir ekki meira en 15
klukkustundir umfram venjulegan af-
greiðslutíma. Samkomulag þetta gild-
irtil 1. júnínk.
-ÞG
Varaformennska
íAlþýðu-
bandalaginu:
Steingrímur-
Vilborg-
Grétar
Smalamenn beyt-
I J
ast um landið
„Formannskjör íhaldsins bliknar í
samanburði við varaformannskjöriö
hjá okkur," sagði einn af máttar-
stólpum Alþýðubandalagsins í gær-
kvöld. Tilkynnt hefur verið framboð
Vilborgar Harðardóttur upplýsinga-
stjóra. I loftinu liggja framboð Grét-
ars Þorsteinssonar, formanns Tré-
smíðafélags Reykjavíkur, og Stein-
gríms Sigfússonar alþingismanns.
Steingrímur hefur vikum saman
helst verið oröaður viö varafor-
mannssætið sem fulltrúi strjálbýlis-
manna í bandalaginu og nægilega
þekktur. Auk þess sem hann er af
næstu kynslóð á eftir Svavari Gests-
syni formanni og hans jafnöldrum.
Bandalagskonur á höfuðborgarsvæð-
inu hafa mikinn viöbúnað og njóta
einhvers stuönings kynsystra sinna
víöar. En þær hafa nú sameinast um
f ramboð V ilborgar á síðustu stundu.
Grétar er líklegasti frambjóðandi
af hálfu verkalýössinna í banda-
laginu en undirbúningur af þeirra
hálfu er talinn hafa frekar lítinn
hljómgrunn ennþá að minnsta kosti.
Svo mikil harka er á hinn bóginn í
fylgismönnum frambjóðenda strjál-
býlis og kvenna að smalamenn þeyt-
ast um landið nú siðustu dagana
fyrir landsfund Alþýöubandalagsins.
Hann hefst á fimmtudag.
Á fundinum er búist við mlkilli tog-
streitu ef ekki hörkuátökum um til-
lögur að nýju skipulagi bandalags-
ins. Því er meðal annars ætlað að
opna eins konar dilka fyrir minni
smáflokka, „leiti þeir tU byggða
frekar en verða úti”, eins og einn
viðmælandi DV orðaði það.
Þá fylgir sá möguleiki að fjölga í
stjórn og hafa fleiri en einn varafor-
mann með verkaskiptingu út á viö og
inn á við. Þvi gæti svo farið að vara-
formannsslagurinn endaði meö því
aö Steingrímur og Vilborg yrðu bæði
varaformenn, hann í póUtíkinni og
hún í skipulagi og innra flokksstarfi.
-HERB.