Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1983, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1983, Blaðsíða 4
DV um borð íÞyrli íKristian- sund: Frá Pétri Ástvaldssyni fréttamanni DV í Noregl: Þaö var hráslagalegt og fremur kalt í veðri síöastliöinn þriöjudag, er tíðinda- maöur DV í Noregi brá sér til Kristian- sund, 20.000 manna bæjar á vestur- ströndinni. Þar hitti hann að máli skipverja á olíuskipinu Þyrli sem legið hefur í höfn síðan 12. nóvember síðast- liöinn en þann dag var skipið kyrrsett í Kristiansund vegna skulda í Gauta- borg, Bordeaux og Sarpsborg. Þyrill er 1100 tonna tankskip, smíðað í Vestur-Þýskalandi fyrir 20 árum, og hefur 850 tonna burðargetu. Það hefur einkum verið í siglingum til Dan- merkur, Þýskalands og Englands og aðallega flutt lýsi. Þyrill hefur verið gerður út af fyrirtækinu Olíuskip í Reykjavík og er eina skip fyrir- tækisins. Eftir því sem næst veröur komist, voru fjárkröfur skuldaeigenda orðnar meira en 100.000 norskar krónur og er stærstur hluti þeirra hafnargjöld. Áhöfn skipsins á einnig inni margra DV. MÁNUDAGUR12. DESEMBER1983. mm Þyrill, við hlið hans fraktarí sem hefur veríð lagt. Beðiö i skammdegisóvissu ‘fr mánaða laun, eða hátt í 150.000 norskar krónur. Þegar þetta er skrifað voru miklar líkur á því að nýr rekstraraðili tæki við skipinu og voru skipverjar orðnir bjartsýnir á að þessu máli færi því senn að ljúka, jafnvel innan fárra daga. áíðastliðinn þriðjudag voru sex manns eftir um borð í Þyrli af ellefu manna áhöfn. Fimm fóru heim í síðustu viku, m.a. af heilsufars- ástæðum, og greiddi Félagsmála- stofnunin í Kristiansund fargjald þeirra. Þeir sex sem enn voru um borð á þriðjudaginn eru: Hallgrímur Pétursson skipstjóri, Ragnar K. Agnarsson 1. stýrimaður, Siguröur Einarsson 2. stýrimaður, Hannes Snorrason 1. vélstjóri, Haukur Þórólfs- son bryti og Jón Stefánsson háseti. Matarlitlir í rúmar þrjár vikur „Við erum búnir að vera hér matar- litlir í rúmar þrjár vikur,” sagði Siguröur Einarsson, sem verið hefur sjö mánuði á skipinu. „Það er nú ekki alveg rétt sem kom fram í blööunum að við hefðum veriö matariausir þegar við komum hingaö til Noregs. Það var til kjöt og fiskur og hrísgrjón og enn er dálítið eftir af því. Jú, og svo áttum við kaffi. Skipstjórinn hefur keypt mat fyrir sína peninga og svo fengum við frá ,,sósíalnum” hérna 200 krónur á mann í tvær vikur, 2200 á viku í hálfan mánuö til matarkaupa. Það hefur ekki dugaö og í dag vorum viö að klára þann skammt,” sagði Sigurður. Þess skal getið að þennan dag áttu skipverjar von á peningasendingu aö heiman. Talið barst að móralnum um borö í allan þennan tíma, rúmar þrjár vikur. „Mórallinn hefur verið alveg lygilega góður, miðað við aðstæður. Við höfum mest verið í skipinu, höfum ekkert verið að fara í land, þangað er ekkert að sæk ja í sjálfu sér. En við höfum haft mjög gott samband við Islendinga sem búa héma og þeir hafa fært okkur mat. Og norska sjómannakirkjan færði okkur tertur og vöfflur með kaffinu einndaginn.” Haukur Þórólfsson bryti sagði að mikið tóbaksleysi hefði veriö um borð, og því gilti sú regla að bannað væri að henda úr öskubökkum, það væri aldrei að vita hvenær þyrfti að reykja stubb- ana. Um afþreyingu sagði Haukur að I dag mælir Dagfari í dag mælir Dagfari í dag mælir Dagfari Skattarnir hækka og lækka Nú er hafin fróðleg umræöa um skatta. Ýmist eiga þeir að hækka eða lækka. Stjórnarsinnar halda því fram að skattar muni ekki hækka, en stjórnarandstæðingar segja þá ekki lækka. Nú, síðan er einnig deilt um hvort skattar hækki minna en þeir ella hefðu gert, sem þýðir að skattar hækki án þess þó að hækka, og svo er einnig munur á því hvort skattar lækki eöa lækki minna en elia, sem þýöir að skattar lækki án þess að þeir lækki. Allir skilja væntanlega að hækkun sem er minni en hækkun, sem ella hefði orðið er bæði hækkun og Iækk- un. Þannig liggur í augum uppi að óbreyttir skattar frá fyrra ári eru lækkun á næsta ári, ef lækkunin á næsta ári er minni en hækkunin á þessu ári. Þetta er því skýrara ef framtal er hærra á þessu ári, heldur en það var á fyrra ári. Það sem þannig hækkar á næsta ári getur ver- ið mun lægra ef miðað er við hækkun- ina á þessu ári. Þetta getur á hinn bóginn breyst ef lækk.unin er ekki eins mikil og hækkunin á milli ára. í þessari lærðu umræðu hefur það ennfremur komið fram að greiðslu- byrði skatta er ekki þaö sama og skattbyrði greiðslna. Skattbyrði get- ur verið þung þótt greiðslubyrðin sé létt. Og öfugt. Þetta hefur rikisskatt- stjóri skýrt með dæmum sem eru svo glögg að menn velta því einkum fyrir sér hvort sé betra að hafa greiðslu- byrði skatta eða skattabyrði greiðslna. Að vísu flækist málið eilítið, eftir því hvort miðað er við framtalsár eða greiðsluár. Skattar geta þyngst ef miðað er við framtalsár, en lést ef borið er saman við greiðsluár. Þeir geta líka bæði hækkað eða lækkað ef miðað er við þjóðarframleiðslu og þjóðartekjur, en sú viðmiðun hefur ekki þýðingu þar sem þjóðartekjur eru ekki taldar fram til skatts. Fjármálaráðherra hefur eins og oft áður lagt skynsamlegt til mál- anna. Hann hefur bent á að skatta- hækkun verði engin, en hinsvegar kunni menn að vera lengur að vinna fyrir sköttunum á næsta ári. Hvort hann hefur skattbyrðina eða greiðslubyrðina í huga skal ósagt lát- ið, en hverjum manni er væntanlega Ijóst að þetta er vísindaleg röksemd sem felur í sér mikinn sannleik. Ef menn vinna minna, þá hafa þeir minni tekjur og þá eru þeir lengur að það meira og minna þarflaust snakk þegar rætt er um hækkaða eða lækk- aða skatta. Aðalatriðið er vitaskuld hitt, hvað menn vinna lengi og vel. Skattbyrðin getur þess vegna hækk- að eða lækkaö að vild, en greiðslu- byrðin er undir skattþeganum einum komin, eftir því hvað vinnudagurinn er langur. Og þar sem enginn getur sagt til um það, hversu duglegir menn kunna að verða á næsta ári, er til einskis að þræta um það á þessu stigi málsins hvort skattar hækki eða lækki. Með þessi einföldu sannindi í huga skiptir nákvæmlega engu máli, hvort skattar hækka eða Iækka á álagning- arseðlinum. Skattana verða menn að mæla í vinnunni þegar þar að kemur. Þannig munu skattar hækka ef minna er unnið, en lækka ef meir er unnið. Skattbyrðin kann að aukast en greiðslubyrðin að léttast. Greiðslu- byrðin getur þyngst en skattbyrðin að léttast. Þetta liggur í augum uppi. Niðurstaðan er þvi sú að báðir hafa rétt fyrir sér og þó hvorugur. Skattar geta bæði hækkað og lækkað, af því að þeir hækka ef þeir lækka og lækka ef þeir hækka. Eöa þannig, sko. Dagfari vinna sér inn fyrir sköttunum. Ef nú, þá eru þeir auðvitað fljótari með þeir vinna meir og lengur en áður, skattgreiðslurnar. Þannig verður

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.