Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1984, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1984, Blaðsíða 11
DV. MIÐVIKUDAGUR11. JANUAR1984.' 11 26908—----—HALLDÓRS kvöldmaður sjónvarpsins Páll Magnússon heitir nýjasti frétta- maöurinn hjá sjónvarpinu. Eldskím- ina fékk hann á mánudagskvöld, þegar síöari fréttatími sjónvarpsins hóf göngu sína. Páll mun hafa umsjón meö fréttatímum þessum fyrsta kastið, en þeir verða fluttir í dagskrárlok 4 daga vikunnar. Um miöjan mánuöinn tekur Páll svo viö sem þingfréttamaöur af Ingva Hrafni Jónssyni. „Þetta leggst bara vel í mig,” sagöi Páll í samtali viö DV, þegar hann var spurður hvernig honum litist á blik- una. Páll er enda þaulvanur fréttamaður og því ætti fátt aö koma honum á óvart í þessu starfi. En skyldi hann ætla að breyta eitthvaö til meö þingfréttirnar? ,,Eg reikna ekki meö að þaö verði óskaplegar breytingar, en þaö verða kannski einhverjar breytingar á áherslupunktum. Ingvi Hrafn hefur staöiö sig mjög vel og þaö verður erfitt aöbetrumbæta.” — Ertu kvíöinn fyrir aö koma fram fyrir myndavélarnar? ,,I sjálfu sér ekki, en það er dálítill taugatitringur í kringum þetta. Eg hef þó skólast aöeins í útvarpinu,” sagöi Páll, en hann hefur séö um Síðdegis- vökuna þar ásamt Páli Heiðari Jóns- syni. Páll hóf blaðamennskuferil sinn á Vísi vorið 1979. Þar var hann í um tvö ár, þar til hann tók viö fréttastjóra- stöðu á Tímanum. Því embætti gegndi hann fram á mitt sumar 1982 er hann varö aðstoöarritstjóri tímaritsins Storöar og Iceland Review. I haust hóf hann svo störf við útvarpiö. Páll var spuröur hvað hann kynni nú best viö af þessu öllusaman. „Eg kann vel viö þetta allt,” sagði hann. „Tímaritamennskan á ekkert skylt viö fréttamennsku. Þar er veriö að vinna efni sem hægt var aö vinna fyrir einu ári eða sem veröur hægt aö vinna eftir eitt ár. Þar er allt annar hraöi. Utvarpiö er á margan hátt skemmtilegast af öllu. Þaö er meira „spontant” miöill en hinir. 80—90% þáttarins eru í beinni útsendingu og því gefst enginn tími til aö snurfusa viötöl- in, sem er bæði kostur og galli.” Auk starfa sinna hjá sjónvarpinu, sinnir Páll útgáfu sameiginlegs frétta- bréfs verkfræðinga og tæknifræðinga. Þaö veröur því greinilega nóg að gera. „Eg sé ekki fram ó aö gera mikið meira en aö sinna vinnunni,” sagði hann. Frístundir á hann þó einhverjar og þær notar hann til lesturs og tafl- mennsku, en segist þó tefla meira af vilja en mætti. Páll Magnússon er kvæntur Maríu Jónsdóttur og þau eiga tvær dætur, 8 og 3 ára. -GB „Ég só ekki fram á að gera mikið meira en aó sinna vinnunni," segir hinn nýi þingfréttamaður sjón- varpsins, Páii Magnússon. • fli' fl/. MÁLASKÓLI-----------------------------26908 • Danska, sænska, enska, þýska, franska, íta/ska, spænska og íslenska fyrir útlendinga. • Innritun daglega kl. 13—19. • Kennsla hefst 16. janúar. • Skírteini afhent 13. janúar (föstudag) kl. 16—19. • Umboö fyrir málaskóla: EUROCENTRES, SAMPERE o. f/. i helstu borgum Evróþu, svo og í New York. Veturinn hefur gert áþreifanlega vart við sig á hinu nýbyrjaða ári. A milli élja birtirþó til. Þá er tækifæri tilþess að munda myndavélina. DV-mynd S. AgnarGuðnason, blaðafulltrúi bændasamtakanna: Kjarnfóðurgjaldið og verð á eggjum I DV 2. janúar sl. var haft eftir Einari Eiríkssyni, fyrrverandi for- manni Sambands eggjaframleiöenda, aö kjarnfóöurgjaldiö hækki heildsölu- verð á eggjum um 17—18%. Þá var einnig fullyrt aö helmingur af tekjum kjarnfóöursjóðsins kæmi frá innfluttu svína-og alifuglafóöri. Þar sem þetta er ekki alveg rétt hjá Einari eru þessar linur sendar DV til birtingar. A síöasta ári varð nokkur aukning í hlutdeild svína- og alifuglafóöurs í tekjum kjamfóðursjóös. Á árunum 1981 og 1982 var kjarnfóöurskatturinn af þessum fóðurtegundum um 35% af heildartekjum sjóösins, en á síðasta ári var þetta hlutfall komið í um 40%, en þaö er ekki sama og helmingur. Mesta ónákvæmni í umræddri frétt var þaö aö kjarnfóöurgjaldiö orsakaöi 18% hækkun á heildsöluverði eggja. Þetta stenst ekki nema annaö hvort kæmi til, að íslenskir hænsnabændur kunni lítið meö hænsni aö fara eöa aö hænumar sem þeir eru meö séu af- spyrnu lélegar. A vel reknu hænsnabúi þar sem hlut- irnir eru í lagi, þarf 3,0—3,5 kg af fóöurblöndu fyrir hvert kg af eggjum. Þaö er hugsanlegt aö hér á landi þurfi um 4,4 kg af fóðurblöndu á móti 1 kg af eggjum, en þaö er ótrúlegt að meðal- fóöurneysla sé meiri. Ef smásöluverö á 1 kg af eggjum er 99 kr., þá hækkar kjamfóöurgjaldiö á erlendri fóður- blöndu smásöluverð eggja um 11,2% en ef innlend blanda er notuö er hækk- unin7,8%. Ef þaö er rétt hjá Einari aö heild- söluverð á eggjum frá han hænsnabúi hækki um 18% vegna kjarnfóður- gjaldsins, þá viröist vera aö hans hæn- ur þurfi 9,2 kg af fóðurblöndu til aö skila einu kg af eggjum ef hann notar innlenda blöndu, en ef um erlenda fóðurblöndu er aö ræöa nota þær 6,3 kg á móti einu kg af eggjum. Hænsnabændur, sem eyöa þetta miklu fóöri í varphænur sínar, a{ kjamfóðurgjaldiö hækkar heildsölu verðið um 18%, hljóta aö reka búiö mei miklu tapi. Þeir ættu því sem allr? fyrst aö fá sér nýjar hænur, ef þeii vilja halda áfram aö framleiða egg. U-BIX90 Smávaxna eftirherman Þo U-BIX 90 se minnsta eftirherman í U-BIX fjölskyldunni hefur hún alls enga minnimáttarkennd, enda óvenju hæfileikarík og stórhuga eftirherma. Einstaklingar og fyrirtæki sem til hennar þekkja láta heldur ekki á sér standa og pantanir streyma inn. VMJCtf. SKRI FST< 3FUVÉLAR H.F. + : x \ R? Hverfisgötu 33 — Simi 20560 - „Dálítill taugatitring- ur í kringum þetta” — segir Páll Magnússon, þingf réttaritari og

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.