Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1984, Side 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR1985.
3
Ekki bjartsýnn
á neinn árangur
— segir Guðmundur Einarsson um tilboð
Alþýðubandalagsins um samstarf vinstri f lokkanna
„Ég er ekki bjatsýnn á aö þessar
viöræður geti leitt af sér neinn
árangur,” sagði Guömundur Einars^
son, þingmaður Bandalags jafnaöar-
manna, um þaö tilboð Alþýðubanda-
iagsins aö stjórnarandstöðu-
flokkarnir taki upp viöræður um
frekarasamstarf.
Guömundur sagði að Bandalag
jafnaöarmanna hefði ekki tekið
formlega afstöðu til bréfs Alþýðu-
bandalagsins sem barst i síðustu
viku. „Menn hafa rætt þetta og sjá
ekki hvað út úr þessum viðræðum
gæti komið. í samræðum manna á
milli hefur þessu verið tekið mjög
dauflega. Stærstu stjórnarandstööu-
flokkarnir, Alþýðuflokkur og Alþýöu-
bandalag, eru einnig í andstöðu við
mörg stór mál sem við höfum lagt
fram, til dæmis frumvarp okkar um
verkalýðshreyfinguna. Þeir hafa
heldur ekki viljað rjúfa samtrygg-
ingu flokkanna i stjórnkerfinu eins
og komið hefur i ljós við kosningar til
bankaráða. Þannig að ég sé engar
forsendur fyrir þessum viðræðum,”
sagði Guðmundur Einarsson.
Guðrún Agnarsdóttir, þingmaður
Kvennalistans, sagöi að bréflö hefði
verið tekið fyrir á þingflokksfundi en
engin formleg afstaða tekin. Bréfið
mun verða lagt fyrir framkvæmda-
ráð samtakanna. Guðrún sagöist
ekki vita hvenær það yrði. ,,Ég held
að það liggi ekkert á þessu. Við mun-
um gefa okkur góöan tima til að
svara,” sagðiGuðrún.
Jóhanna Sigurðardóttir, varafor-
maöur Alþýðuflokksins, sagði að
ekkert hefði verið fjallað um bréflð
innan hennar flokks. Það yrði að
líkindum tekið f^rir á fundi fram-
kvæmdastjórnar i næstu viku.
ÖEF
Eskifjörður:
Fóru suður í
fimm mínútur
Utvarpsráð með fund
á Akureyrí
Utvarpsráðsfundur verður í fyrsta
skipti haldinn á Akureyri á föstudag-
inn kemur. Fundinn sitja ennfremur
Markús öm Antonsson útvarpsstjóri,
Jónas Jónasson, deildarstjóri útvarps-
ins á Akureyri, og Hörður Vilhjálms-
son, fjármálastjóri Ríkisútvarpsins.
Að sögn Ingu Jónu Þórðardóttur, for-
manns útvarpsráðs, er tilefni fundar-
ins á Akureyri tengd starfseminni sem
orðin er þar á vegum Ríkisútvarpsins.
Ætlunin er að helga RÚVAK þennan
fund, fjalla um málefni deildarinnar
og væntanlega útvíkkun hennar með
staðbundnu útvarpi. Búast má við að
fyrir fundinum liggi niðurstöður mæl-
inga Pósts og sima á sendingar og mót-
tökuskilyrðum fýrir staöarútvarpið.
Annar tilgangur norðurferðarinnar
sagði Inga Jóna að væri sá að útvarps-'
ráðsmenn fengju að kynnast aðstöö-
unni fyrir norðan og ræða við starfs-
menn og dagskrárgerðarfólk RÚVAK.
JBH/Akureyri
Frá Emil Thorarensen Eskifirði:
Heilsugæslustöðinni á Eskifirði
barst höfðingleg gjöf i síðustu viku,
tæki til mælinga á miöeyra. Slíkt tæki
hefur ekki áður verið í eigu heilsu-
gæslustöðvarinnar. Er þessi gjöf Esk-
firðingum og Reyðfirðingum afar kær-
komin. Hingað til hafa menn þurft að
fara til Reykjavikur til að láta mæla
heymina. Prófunin tekur u.þ.b. fimm
mínútur.
Gefendur voru Lionsklúbbur Eski-
fjarðar, Kvenfélag Eskifjaröar og
Kvenfélagið á Reyðarf irði. Kostar tæk-
ið sextíu þúsund krónur þegar búið er
að fella niður aðflutningsgjöld.
Auðbergur Jónsson héraöslæknir
veitti gjöfinni móttöku. Sagði hann að
það ætti eftir að koma i góðar þarfir. I
máli Auðbergs kom fram að mjög
langan tima tekur að fá nauðsynleg-
ustu tæki til heilsugæslustöðvarinnar.
Því miður sinnti ríkisvaldið þessum
málum ekki eins og skyldi. Að lokum
sagði Auðbergur, af sinni alkunnu
gamansemi, að næst vantaði sig fram-
köllunartæki fyrir röntgenmyndir og
svohjartalínurit.
-EH.
HVAÐA KEPPNI?
Aö undanförnu hafa í auglýsingum birst ummæli
tveggja mætra rallkappa par sem peirsegja aö í keppni
sé betra aö aka afturhjóladrifnum bíl.
Flestir bílstjórar vita hins vegar aö í öllum almennum
akstri hefur framhjóladrif yfirburöi yfir afturhjóladrif-
iö ekki síst í snjó og annarri ófærö.
Afturhjóladrif er í góðu lagi fyrir rallkappa ef þeir svo
kjósa. Framhjóladrifiö er hins vegar það eina rétta fyrir
okkur hina í allan venjulegan akstur þar sem eina
keppnin er aö komast klakklaust á leiöarenda, líka þeg-
ar snjóar.
FRAMHJOLADRIF, VELDU
LÁTTU AÐRA UM ÁHÆTT-
KAUPTU
ÖRYGCIÐ
UNA.
(/#70/
ER AUÐVITAÐ FRAMHJÓLADRIFINN.
(/#70/45 Super á götuna
280.000.-
kr.
KOMDU OG KÍKTU Á KJÖRIN.
anno
EGILL
VILHJÁLMSSON HF.
Smidjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202.