Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1984, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1984, Blaðsíða 32
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krönur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. ÞRIÐJUDAGUR 22. JANUAR 1985. Olíuverð: Mikil hækkun framundan? — Olíufélögin hafa nú farlð fram á umtalsverða hækkun á verði bensíns og olíu. Beiðni félaganna hljóðar upp á 6 prósent hækkun á bensínverðinu, 16 prósent á gasolíu og 21 prósent á svartolíu. Forsendur hækkunarinnar eru tvíþættar að mati olíufélaganna. Annars vegar er þvi haldið fram að siðasta hækkun hafi ekki nægt til aö standa undir kostnaði við olíusölu. Því hafi halli haldiö áfram að vaxa á innkaupajöfnunarsjóði. HaUinn er nú rúmar 200 miiljónir. Hins vegar hef- ur fallandi gengi íslensku krónunnar hækkaö innkaupsverö á oh'u. Enn er ekki vitað hvort oh'ufélögin fá ósk sína uppfyllta. Þórður Asgeirsson hjá Olís sagði að „enginn grundvöll- —-ur væri fyrir olíusölu ef hækkunin fengist ekki” Á hinn bóginn hefur væntanleg hækkun sætt mikilli gagn- rýni frá útvegsmönnum sem m.a. þrýsta á stjómvöld um að halda verði á oliu niðri. -GK Búsetihefur framkvæmdir , Húsnæöissamvinnufélögin í Reykjavík, Arnessýslu og á Akureyri stefna að því að hefja framkvæmdir á þessu ári þar sem þau hafa fengið heimild til lána úr Byggingarsjóði verkamanna og Húsnæðisstofnun ríkisins. Félagsmenn í húsnæðissamvinnu- félaginu Búseta eru nú um þrjú þúsund talsins, en svonefnd Búseta- félög eru nú starfandi í Reykjavík, Amessýslu, Borgarfirði og á Akur- eyri. I tilkynningu frá Búseta segir aö sótt hafi veriö um framkvæmda- lán úr Byggingarsjóði verkamanna á síðastliðnu ári til byggingar 76 bú- seturéttaríbúða, þar af 56 í Reykja- vík. Oef Allt efni sem á að koma í HVAÐ ER A SEYÐI UM HELGINA, sem fylgir blaðinu á föstudögum, þarf að berast ritstjóm blaösins í allra síð- asta lagi fyrir hádegi á miðvikudög- um. Bílstjórarnir aðstoða StnDIBiLDSTÖDin Verkfallsboðun á farskipunum? Samkvæmt heimildum DV fékk samninganefnd Sjómannafélags Reykjavíkur heimild á fundi trúnaðarmannaráös félagsins i gær- kvöldi til að boða til verkfalls undir- manna á farskipum. Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannafélagsins, vildi hvorki játa né neita að þessi heimild hefði verið gefin, í samtali við DV í morgun. Sjómannafélagið átti í gær fund með viðsemjendum sínum en þar var ekkert tilboð lagt fram af hálfu skipafélaganna. Nýr fundur hófst klukkan 9.30 í morgun. Guömundur sagði að ákvarðanir um framhald viðræðnanna myndu teknar eftir fundinn í dag. Fram- haldið myndi ráöast af viðbrögðum viðsemjenda þeirra. Samningar undirmanna á farskip- um hafa verið lausir frá áramótum. ÓEF Þungar viflarplötur hrundu af vörubilspalli vifl gatnamótin á Laugavegi og Kringlumýrarbraut um fimm- laytifl i gærdag. Var vörubifreiðin að koma með hlassifl frá Sundahöfn. Þegar bílstjórinn ætlafli að taka af stafl á Ijósunum fóru viflarplöturnar, sem festar höfflu verifl mefl reipi, á fleygiferð aftur af pallinum. Mikil mildi var afl enginn bíll var á eftir vörubilnum þegar óhappifl varfl. EH/DV-mynd S. Öllumstarfs- mönnum Rækjuvers sagtupp „Þetta þýðir einfaldlega það aö þessi atvinnuvegur leggst niður hér á Bíldudal um óákveðinn tíma,” sagði Gunnar Þórðarson, verkstjóri Rækjuvers hf. á Bíldudal, í samtali viöDV. Síöastliðinn föstudag var öllum starfsmönnum fyrirtækisins, um 15 að tölu, sagt upp störfum sinum. Taka uppsagnirnar gildi næsta föstu- dag. Koma þær í framhaldi af deilum forráðamanna við sjómenn um kaup á af urðum þeirra síðamefndu. „Þetta er fyrirtækinu aö kenna. Þaö hefur keypt undanfarin ár alls konar drasl af sjómönnum. Nú þegar átti að fara að stokka aflann upp, una sjómenn því alls ekki að fá ekki lengur sama verð fyrir afurðirnar. Eg lái þeim það ekki,” sagði Gunnar. Hann sagðist ekki sjá neina lausn í sjónmáli eins og staðan væri nú. Reynt hefði verið að ná samkomu- lagi sem ekki hefði tekist. Nú væru engir fundir milli deiluaðila og hann sagðist ekki vita tU þess að slíkir fundirstæðutil. -KÞ Finnifærbók- menntaverðlaun TUky nnt var i gær að Finninn Antti Tuuri fengi bókmenntaverölaun Norðurlandaráðs. Hann fær verö- launin fyrir skáldsögu sina Pohjanmaa. Verðlaunin verða af- hent á þingi Norðurlandaráðs i Reykjavik í mars næstkomandi. Af Islands hálfu voru verk þeirra Hannesar Péturssonar og Kristjáns Karissonar tilnefnd. -KMU. Þrjú innbrot á Asgeirssonar hálfum mánuði „Það er búið að brjótast inn þrisv- ar hjá mér á hálfum mánuöi,” sagði Gunnar Asgeirsson, aðaleigandi Veltishf. Gunnar er einn f jölmargra sumar- bústaöaeigenda viö ÞingvaUavatn sem orðiö hafa fyrir barðinu á umrenningum að undanfömu. Rann- sóknarlögreglan hefur nú tvo þeirra í haldi, karlmenn á þrítugsaldri. Áöur hefur verið upplýst að kona á fertugsaldri hafði dvalið i óleyfi i einhverjum bústöðum. „Þaö hafa sáralítil skemmdarverk verið unnin og yfirleitt hafa þeir gengið snyrtilega um. Þó er búið að brjóta tvo glugga hjá mér og bátur- inn er horfinn. Þetta er vélbátur, óyfirbyggður. Farið var inn í báta- skýlið, sjö metra langir teinar rifnir upp og þeim kastað langar leiöir,” sagði Gunnar Ásgeirsson. Inn í nokkra af þessum bústoSum vifl Þingvallavatn hefur verifl brotist. Myndin var tekin f laitarflugi sem sumarbústaflaeigendur stóflu fyrir. DV-mynd KAE. Bústaðir sona Gunnars, Ásgeirs og Stefáns, hafa einnig fengiö heim- sóknir óboðinna gesta. Þaðan hefur verið stoliö víni og segulbandstæki. Innbrotin munu nú upplýst. Asgeir Gunnarsson fékk kunningja sinn til að fara í leitarflug um helg- ina. Þeir flugu yfir Þingvallavatn í leit að bátnum en fundu ekki. Ur lofti sáu þeir aö mörg bátaskýli stóðu opin. I einum bústaðanna, sem útigangs- maður hafði hreiðrað um sig i, sá eigandinn aö litsjónvarp stóö óvænt á gólfinu þar sem verið hafði svart- hvítt sjónvarp. Flækingurinn hafði þá tekið litsjónvarpið úr öðrum bú- stað og fært það yfir í bústað þann sem honum leist betur á að dveljast í. -KMU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.