Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1984, Blaðsíða 13
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. JANUAR1985.
13
SÖLUTURN
TIL SÖLU
Lítill söluturn í Hafnarfirði til sölu.
Upplýsingar í síma 53647.
-L Gangavarsla
Tímabundið starf við gangavörslu í skóla í Hafnarfirði er
laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 25. janúar nk.
Uppl. gefnar í síma 53444.
Fræðsluskrifstofa Hafnarfjarðar.
Sendill óskast
Iðnaðarráðuneytið óskar að ráða sendil hálfan eða allan
daginn.
Nánari upplýsingar í ráðuneytinu.
Iðnaðarráðuneytið, Arnarhvoli.
SJÚKAHÚS
SKAGFIRÐINGA,
Sauðárkróki, óskar að ráða:
Sjúkraþjálfara nú þegareða eftir nánara samkomulagi.
Ljósmóður til afleysinga í vetrarleyfum.
Einnig óskast:
Hjúkrunarfræðingar, Ijósmæður, sjúkraþjálfarar, meina-
tæknar og sjúkraliðar til sumarafleysinga.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
95-5270.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á hluta í Álftahólum 4, þingl. eign Körlu Sigurjóns-
dóttur, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans, Þorfinns Egils-
sonar hdl., Árna Einarssonar hdl., og Gjaldheimtunnar i Reykjavík á
eigninni sjálfri fimmtudaginn 24. janúar 1985 kl. 13.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 51., 55. og 57. tbl. Lögbirtingablaös 1984 á Máshólum
6, þingl. eign Jóns K. Guðbergssonar, fer fram eftir kröfu Sveins H.
Valdimarssonar hrl., SigriðarThorlacius hdl. og Ævars Guömundssonar
hdl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 24. janúar 1985 kl. 14.15.
Borgarfógetaembættiö í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annaö og siöasta á eigninni Bollagöröum 33, Seltjarnarnesi, þingl. eign
Hrafnhildar Guðmundsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 25.
janúar 1985 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi.
Nauðungaruppboð
annað og síöasta á eigninni Miðbraut 23, 2. hæð, norðurenda,
Seltjarnarnesi, þingl. eign Jóns Sigurðssonar, ferfram á eigninni sjálfri
föstudaginn 25. janúar 1985 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 21., 23. og 24. tölublaöi Lögbirtingablaösins 1984 á
eigninni Nesbala 94, Seltjarnarnesi, þingl. eign Harðar Sigurjónssonar,
fer fram eftir kröfu Baldurs Guðlaugssonar hrl. og Gjaldheimtunnar i
Reykjavik á eigninni sjálfri föstudaginn 25. janúar 1985 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi.
Nauðungaruppboð
annaö og síðasta eigninni Hagalandi 16, Mosfellshreppi, talinni eign
Jakobs S. Þórarinssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 25.
janúar 1985 kl. 16.00.
Sýslumaöurinn i Kjósarsýslu.
Heimsmeistaraeinvígið í Moskvu:
Ný byrjun —
óbreytt úrslit
Karpov lenti í erfiðleikum en tókst að halda jöfnu
Garrí Kasparov var ekki langt frá
því að minnka muninn í heimsmeist-
araeinvíginu í Moskvu í gær er 44.
skákin var tefld. Eftir tuttugu leiki
voru stórmeistarar á einu máli um
að staða hans væri betri þar sem
hann var með biskupapariö og snjall
leikur hans skömmu síðar gaf honum
frumkvæðið. I 30. leik hafnaði hann
hins vegar vænlegri leið eftir 14 mín-
útna umhugsun og þá var eins og
Karpov næði að rétta úr kútnum. I
tímahrakinu var mikil spenna í skák-
höllinni og enginn vissi hvor hafði
betur. Þar kom að taflið einfaldaðist
og eftir 38 leiki bauö Kasparov
jafntefli. Þá átti hann aðeins tvær
mínútur eftir á klukkunni en
jafnteflið blasti við.
Spænski leikurinn, sú vinsæla
skákbyrjun, sást nú í fyrsta skipti í
einvíginu og þótti mörgum tími til
kominn. Báðir skákmeistaramir
eiga hann á vísum stað í vopna-
búrinu og Karpov hefur varið svörtu
stöðuna frá því í frumbemsku.
Kasparov hristi nýjung fram úr erm-
inni í 14. leik eftir langa umhugsun.
Skömmu síðar hugsaði Karpov sig
um einn leik í 35 mínútur en ekki
fann hann viðunandi framhald og
varð að sætta sig við lakari stööu.
Milli skáka heldur Karpov til í
vUlu, um 40 km fyrir utan Moskvu,
og herbúðir Kasparovs eru einnig
utan borgarmarkanna. Samkvæmt
heimildum David Goodman, frétta-
ritara DV í Moskvu, vakir Karpov
lengi fram eftir á nóttunni og sefur
fram að hádegi. Þessar síðustu vikur
hefur Kasparov sofið 12 stundir á
sólarhring og hann hressir sig við
með gönguferðum. Honum feUur
sveitaloftið betur og lætur yfirleitt
ekki sjá sig í borginni, nema rétt til
þess aðsemja jafntefli.
Og ekki er búist við að einvíginu
fari að ljúka. Taflan í skákhölUnni
þar sem úrslitin eru skráð var lengd í
gær svo nú komast þar fyrir úrsUt
úr 52 skákum.
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Spænskur leikur.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6
Petrovs-vörnin (2. —Rf6) er látin
liggja milU hluta enda er Karpov
búinn að sýna Kasparov hvernig á að
tefla gegn henni með hvítu.
3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 04) Be7 6.
Hel b5 7. Bb3 d6 8. c3 0-0 9. h3 Bb7
10. d4He811. a4h6
Nú beinist taflið yfir i farveg
Smyslov-afbrigðisins svonefnda.
Eftir 11. — Bf8 hefur reynslan sýnt
að hvítur nær betra tafU með upp-
skiptum á b5, framrásinni d4—d5,
síðan Ra3 og siðast en ekki síst Bg5,
sem svartur hindrar með síðasta leik
sínum.
12. Rbd2 exd413. cxd4 Rb414. De2! ?
Ovænt hugmynd sem hleypir nýju
blóð í stöðuna. Kasparov hugsaði um
þennan leik í 21 minútu enda fimm
mánuðir síðan hann undirbjó sig
fyrir einvígið og margt sem þarf að
rif ja upp.
14. — Bf815. e5Bc6
Og nú hugsaði Karpov sig um í 35
mínútur. Hann hótar að taka brodd-
inn úr hvítu stööunni með 16. — bxa4
16. axb5Bxb517.Ddl
Hvítur er náttúrlega búinn að tapa
leik en á móti kemur að biskupinn
stendur ekki sérlega vel á b5 eins og
síðar kemuríljós.
17. — Rfd5 18. Re4 c6 19. Rc3 Hb8 20.
Rxb5 axb5 21. exd6 Bxd6 22. Bd2 Dc7
23. Dbl!
Skák
Jón L. Ámason
Nú er gremilegt að hvítur hefur
náð frumkvæðinu. Síöasti leikur
hans er bráðsnjall, því hann var í
vandræðum með að koma drottn-
ingunni út úr borðinu. Nú hótar hann
24. Df5 svo Karpov gefur eftir e5-reit-
inn.
23. — Dd7 24. Re5 Bxe5 25. Hxe5 Hxe5
26. dxe5 c5 27. De4
Biskuparnir eru yfirleitt betri en
riddararnir þegar báðir eiga peða-
meirihluta. Kasparov átti nú 28
mínútur eftir á klukkunni, Karpov 24
mínútur.
!7. — c4 28. Bdl Rd3 29. Bg4 Db7
30. Dd4 (?)
I fyrstu var talið að 30. Bf3 myndi
hreinlega gera út um taflið en
svartur á svarið 30. — Db6! með
hótun á f2 og losar sig úr leppuninni.
Hins vegar er 30. e6! mun sterkara
en textaleikurinn. T.d. 30. — Rc5 31.
exf7+ Dxf7 32. Dd4 Rb3 33. De5 He8
34. Ha8! Rc7 35. Bh5 g6 36. Bc3 og
vinnur.
30. — Db6! 31. Dxd5 Dxf2+ 32. Kh2
Dxd2 33. Hfl Dg5! 34. Dxf7+ Kh8 35.
e6 Re5 36. Df5 Rxg4+ 37. hxg4 He8
38. Dxg5
Og um leið og Kasparov lék bauð
hann jafntefli, sem Karpov þáði.
Hróksendataflið leysist upp í jafn-
tefli.
-JLA.
AFGREIÐSLA
SÍMI27022