Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1984, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1984, Blaðsíða 14
14 DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. JANUAR1985. Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir „Leikreynsla sterk- asta vopn Víkinga” — segir Bogdan Kowalczyk þjálfari um Evrópuleiki Víkings og bikarmeistara „Það eru alltaf mögulelkar í íþrótt- um og við getum tekið sem dæmi að þegar tsland lék við Júgóslavíu á ólympíuleikunum bjuggust allir við 8— 10 marka tapi. Jafntefli varð þar sem sigurinn gekk okkur úr greipum. Við vitum ekki mikið um mótherja Víkings í Evrópukeppni bikarhafa, Crvenka, en við vitum að bikarmeistarar frá landi ólympíumeistara eru mjög sterkt lið,” sagði Bogdan Kowaiczyk, Vik- ingsþjálfari, á blaðamannafundi Vík- ings í gær vegna Evrópuleikja Víkings og Crvenka. Þeir verða báðir í Laugar- dalshöll. Fyrri leikurinn næstkomandi föstudagskvöld kl. 20.30 én síðari leikurinn, heimaleikur Vikings, á sunnudagskvöld á sama tíma. „Leikmenn Crvenka eru mjög tekn- ískir, leika fallegan handbolta og byggja mikið á hraðupphlaupum. Ung- ir leikmenn og gegn þeim verður leik- reynsla sterkasta vopn Víkinga. Allt leikmenn með gífurlega reynslu gegn- um árin með Víkingi og landsliöinu. I vetur hafa Víkingar leikið miklu betur í Evrópukeppninni en á Islandsmótinu, slegið út bikarmeistara Noregs og Spánar og þó leikið alla leikina erlend- is. Þetta eru mjög mikilvægir leikir. Liðið sem sigrar kemst í undanúrslit Evrópukeppninnar og önnur liö sem hafa mesta möguleika til þess eru Bareelona, CZKA Moskvu og St. Ot- mar, Sviss,” sagði Bogdan ennfremur. Mikið happdrætti „Júgóslavneska liðið, sem nú er í Júgóslavíu, Crvenka • Bogdan Kowalczyk, Vikingsþjálfari. fimmta sæti i 1. deild í Júgóslaviu af 14 liðum, kemur hingað til lands á fimmtudag. Þaö er mikil áhætta hjá okkur — mikið happdrætti — að leika báða leikina hér heima en það gefur okkur meiri möguleika á aö komast áfram í keppninni,” sagði Hallur Hallsson, stjórnarmaður í handknatt- leiksdeild Víkings. Víkingar þurfa um 4000 áhorfendur á báða leikina til að dæmið gangi upp fjárhagslega. I liði Crvenka eru þrír júgóslavneskir lands- liðsmenn og tveir unglingalandsliðs- menn. Leikmenn ungir að árum, með- aialdurinn 22 ár. Víkingur lék mjög vel í Evrópuleikj- unum í Noregi og þó einkum á Kanarí- eyjum þar sem þeir sigruðu Corona með miklum mun í báðum leikjunum. Nýlega sigraði Corona Spánarmeist- ara Atletico Madrid, sem léku sér að Danmerkurmeisturum Gladsaxe í Kaupmannahöfn. Víkingar voru þá í toppformi en síðan kom eyða í allt saman, verkfallið, utanför landsliðsins og fleira „en mér finnst hafa verið góöur stígandi í þessu hjá okkur að undanförnu. Allt að smella saman aft- ur,” sagði Guðmundur Víkingsfyrirliði Guömundsson. I byrjunarliði Víkings eru allt leik- menn með mikla reynslu, leikmenn, sem hafa leikið samtals 419 landsleiki fyrir Island. Þorbergur Aðalsteinsson er með flesta landsleiki eöa 116. Krist- ján Sigurðsson 95, Guömundur Guð- mundsson 75, Viggó Sigurðsson 66 og Steinar Birgisson 55. Aðrir færri. bsím. Gilling- ham lagði Cardiff Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta- manni DV i Englandi: Gillingham tryggði sér rétt til að leika í 4. umferð ensku bikarkeppninn- ar í gærkvöldi — mætir þá Ipswich, þegar félagið vann Cardiff í gærkvöldi, 2—1. Martin Robertson og John Leslie skoruðu mörk Gillingham, en Chris Withe mark Cardiff. • Derek Johnstone er farinn frá Chel- sea til Glasgow Rangers á 15 þús. pund. -SOS 4/5 1/5 smjör sojaolia „Þessi afuiö sameinar bragðgæði og bætiefnainnihald smjörs og mýkt olíunnar" segir Dr. Jón Óttar Ragnarsson í grein sinni, „Mjúka fitan og neytandinn” sem birtist í Frétta- bréfi um heiibrigSismál, júníhefti 1981, um Bregott sem er sænskt smjör, blandað mjög mjúkri jurtaolíu. SMJÖRVI er eins og áður segir að 4/5 hiutum smjör en að 1/5 hluta sojaolía. Smjörvi- sá eini símjuki með smjörbragði. Mikill darr- aðardans — og KR-ingar náðu að jafna, 19:19, gegn Val á elleftu stundu Olafur Lárusson tryggöi KR-ingum jafntefli, 19—19, gegn Valsmönnum á elleftu stundu, þegar hann skoraði jöfnunarmarkið úr vítakasti þegar 7 sek. voru til leiksloka eftir að Þorbjöm Jensson hafði brotið á Jóhannesi Stef- ánssyni, línumanni KR. Leikur iiðanna var í járnum nær all- an tímann en rétt fyrir leikslok virtist þó sigur Valsmanna í öruggri höfn — þeir voru yfir, 19—17, og voru þá með knöttinn. Olafur minnkaði muninn þá í 19—18 úr vítakasti og eftir það var stig- inn mikill darraðardans á fjölum Laugardalshallarinnar. KR-ingar náöu knettinum, þegar 1.47 mín. voru til leiksloka, en Einar Þorvarðarson varöi þá skot Jóhannesar Stefánsson- ar. Jón Pétur Jónsson átti skot í stöng- ina á marki KR þegar 1.06 min. voru tii leiksloka. Olafur skoraði siðan jöfnun- armarkið eins og fyrr segir. Leikurinn var ekki í háum gæða- flokki þó að hann væri í jafnvægi allan tímann. Vaismenn vom þó yfirleitt með frumkvæðið í seinni hálfleik — þetta tveimur mörkum yfir, þar til I lokleiksins. Markverðirnir Jens Einarsson hjá KR og Einar Þorvarðarson hjá Val voru bestu leikmenn liðanna. Þeir sem skoruðu mörkin í leiknum, voru: Valur: Þorbjöm G. 6, Jakob S. 4, Geir 2, Jón Pétur 2, Júlíus 2, Valdimar 1/1, Theodór 1 og Þorbjörn J. 1. KR: Páli B. 4, Olafur L. 4/3, Haukur G. 3/1, Jakob J. 2, Friðrik Þ. 2, Hörður H. 3 og Pétur A.l. -SÖS P Sannleikur Iþróttasíðu DV hefur borist eftlrfar- andi athugasemd frá þremur leik- mönnum úr Keflavík sem gengu til liðs við Víði í Garði. Eftir að hafa iesið viðtal við Kristján Inga Helgason, formann knatt- spyrnuráðs Keflavíkur, í DV 16. janúar sl., teljum við undirritaðir okk- ur ekki annað fært en að skýra sjónar- mið „klíkuhópsins” sem formaður kallar svo í þeirri grein. Kristján Ingi segir að félagsskiptin hafi ekki komið eins og þruma úr heið- skíru lofti. Það er alveg rétt. Aðdragandi þessa máls er nú oröinn nokkuö langur. A undanförnum árum hafa of margir leikmenn IBK yfirgefið félagið vegna samskiptaörðugleika við ákveðinn leikmann liösins og vitaö er um aðra sem ekki gátu hugsað sér að hefja æfingar af sömu ástæðu. Kristjáni Inga var fullkunnugt um þessi tilvik. Seinni hluta keppnistímabilsins 1983 var ástandiöorðiöþaðslæmtaöboðað var til fundar með þjálfara og leik- mönnum og voru mál þá sjötluð. Að loknu keppnistímabilinu 1983 yfirgáfu , félagið að minnsta kosti fjórir leik- menn. Við undirritaðir höfðum þá einnig tekið þá ákvörðun að hætta að leika með IBK. Fyrir orð ýmissa aðila, meöal annarra Kristjáns Inga, um aö ef upp kæmu sömu vandamál varðandi umræddan leikmann yrði tekið á málinu. Þá ákváðum við að vera á- fram. Skemmst er frá því að segja að ástandið á keppnistímabilinu 1984 reyndist ekki betra en árið 1983 að okkar dómi og lítið fór fyrir efndum á loforðum formanns knattspyrnuráðs. Þetta virðist einnig hafa verið skoöun hans því 25. sept. sl. eöa tíu dögum eftir að knattspyrnutímabilinu lauk boöaði hann til fundar knattspyrnu- ráðs. A þeim fundi gerðist eftirfarandi efnislega: Fundurinn var boðaður til að finna lausn á leiðindamáli sem aftur hefur komið upp á meðal leikmanna IBK. Fyrir lægi að meirihluti leik- manna hygðist hætta að æfa með IBK ef ákveðinn leikmaður yrði með liðinu næsta tímabil. Bent var á að svipuð llivlUIUlli Uþ >VIU IIIUI pu kJjvUUVl i iv IIU/UVU bUliUVU> UVllV *Ul u uv o v ip uv Iþróttir íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.