Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1984, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1984, Side 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. JANUAR1985. 5 Opinn bill við barnaheimilið Fálkaborg. Betra að vera vel á verði og DV-mynd GVA læsa bilnum. Foreldrar fómarlömb þiófa við bamaheimili Borið hefur á því að undanfömu að þjófar stundi iðju sína fyrir utan barnaheimilið Fálkaborg við Arnar- bakka í Breiðholti. A morgnana, meðan foreldrar fara inn með böm- in, læðist þjófurinn í bíla og stelur handtöskum og öðm verðmætu. Samkvæmt upplýsingum ‘frá rannsóknarlögreglunni vora fimm tilfelli kærð í síðustu viku. Þá gerðist það fjóra daga í röð að stolið var úr bilum á bílastæðinu við Fálkaborg. Hafði þjófurinn sex þúsund krónur upp úr krafsinu i eitt skiptiö. Bílastæðið, sem um ræðir, er við enda bamaheimilisins og í hvarfi við húsið. Þar er því gott fyrir þjófinn að athafna sig í morgunskimunni. Að sögn er það algengt að fólk sé í tímaþröng þama á morgnana. Skilja sumir bíla sína eftir ólæsta og jafn- vel í gangi. Það eru eindregin tilmæli frá lögreglu að þeir sem leggja leið sína að Fálkaborg séu vel á verði og læsi bílum sínum. -EH. Frá Ólafi B. Thoroddsen, Dalvik: Kiwanisklúbburinn Hrólfur á Dalvík gaf stórgjöf til landssöfnunar Hjálparstofnunar kirkjunnar, Brauð handa hungruðum heimi, nýlaga. Eins og undanfarin ár hefur Kiwanisklúbburinn verið með flugeldasölu milli jóla og nýárs. Að jiessu sinni var ákveðið að allur ágóðinn rynni til Eþíópiusöfnunarinnar. Agóðinn af flugeldasölunni að þessu sinni var 76 þúsund krónur. Sóknarprestinum, sóra Jóni Helga Þórarinssyni, var afhent þessi upphseð. Á myndinni sést formaður flug- eldanefndar, Sigurður Jónsson, afhenda sára Jóni ávísunina. Á myndinni eru einnig Jón Geir Jónatansson, Geir Guðsteinsson og Gunnar Aðal- bjömsson. EH/DV-mynd Ólafur B. Thoroddsen. Þau eru mörg undrin. Kalt úti, hlýtt inni. Eins gott að vera réttu megin við rúðuna á sporttreyj- unni sinni. DV-mynd GVA Rás tvö líklega norður um mánaðamót Horfur eru á að rás tvö nái til Norðurlands um mánaðamótin. Að sögn Haralds Sigurðssonar, yfirverk- fræðihgs hjá Pósti og síma, er sendir- inn, sem verður settur upp á Vaðla- heiði, kominn til landsins en ekki búið að setja hann upp. Hins vegar hefur hingaö til staðið á dagskrárflutnings- tækjum sem þjóna þeim tilgangi að flytja dagskrána norður í land á örbylgju. Þessi búnaöur er enn allur í tolli. „Von okkar er að ef réttir hlutir koma upp úr kössunum þá verði þetta um mánaðamótin,” sagði Haraldur. Starfsmenn Pósts og síma vora í síð- ustu viku við mælingar á Akureyri vegna staöbundna útvarpsins sem á að fara af stað í byrjun mars. Haraldur sagði að mælingunum væri lokið en niðurstöður ekki komnar. Þær yrðu lagðar fyrir útvarpsráð í vikunni. JBH/Akureyri. 5. Áður 2.890, 6. Áður 3.560, 7. Áður 670, 8. Áður 1.285, 9. Áður 1.885, 10. Áður 2.285, 11. Áður 3.360, 12. Áður 1.185, 14. Áður 870 15. Áður 1.195, 16. Áður 570 Nú 1.995, Nú 2.495, Nú 350, Nú 895, Nú 1.385, Nú 1.785, Nú 1.995, Nú 895, Nú 250, Nú 995, Nú 298, Póstsendum 1. Áður 3.495,- Nú 2.595, 2. Áður 2.965,- Nú 1.995 3. Áður 3.495,- Nú 2.595 4. Áður 3.560,- NÚ2.495 Skóverslun Þórðar Péturssonar Laugavegi 95, sími 13570 — Kirkjuhvoii 8, simi 14181.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.