Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1984, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1984, Síða 6
6 DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. JANUAR1985. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Lyktsterkt þjóöráö viö ræktunina Breskur landeigandi greip til þess aö bera ljónaskít i staðinn fyrir húsdýraáburð á ræktunarreiti sína til þess aö stugga burt hjartar- dýrum er vildu sækja í verömæta akrana. En hann varö fljótlega uppiskroppa því aö þessi tegund á- buröar er fágæt í Bretlandi. Einn dýragarðurinn hljóp undir bagga með honum og útvegaði honum í staöinn þaö sem mokaö er frá tígrisdýrum og hefur þaö gert svipað gagn. fsraelsmenn gripu fyrir mörgum árum fyrstir til þess bragðs aö bera ljónaskít á ræktar- lönd sín því aö ljónalyktin fældi gasellur frá gróöurreitunum. Aftökufrestaö vegna knattleiks Þúsundir manna sem mætt höföu á póló-leikvanginn í Lagos í Nígeríu til þess aö horfa á opinbera aftöku, fóru fýluferö því aö aftökunni var frestaö. Hún rakst nefnilega á póló- knattleik sem fara átti fram um leið þennan sunnudag. Hinn dauðadæmdi var einn þess- ara ræningja sem herjað hafa á er- lend skip á ytri höfninni í Lagos undanfarin ár. Afmælitilrauna- glasabama Breskur kvensjúkdómalæknir efndi til mikillar afmælisveislu á sunnudaginn við Cromwell-sjúkra- húsiö í London. Veislan var til heiðurs meira en 30 tilraunaglasa- bömum, þar á meðal tvennum þrí- burum. Ian Craft yfirlæknir sjúkra- hússins vildi með veislunni vekja athygli á hverja gleði þessi aðferö til frjóvgunar óbyrjum heföi fært; mörgum barnlausum heimilum. — j Á sjúkrahúsi hans eru nú samtals komnar 58 fæðingar þar sem börn- in haf a komið undir í tilraunaglasi. tilraunaglasi. Getavísindin endurskapaö risaeölurnar? Háskólakennari í jarösögu- og dýrafræði við Queensháskóla í Bel- fast skrifar í tímaritiö New Scientist að vísindamenn kunni í framtiðinni að skapa að nýju löngu útdauðar dýrategundir, eins og til dæmis risaeölur fomaldar. Dr. Michael Benton heldur því fram að sú stund muni renna upp að vísindamenn geti búið til eggja- hvítuefnin i beinin i dínósár með réttri samsetningu gena og réttum eiginleikum. Veltir hann vöngum yfir þeim möguleika að eitthvert dýr yröi látiö ala slíkan skapnaö eftir gervifr jóvgun og meögöngu. Kennarinn vísar þama til tilrauna vísindamanna meö frumur og nýjar samsetningar á þeim og sammna eins og í plöntum og skriðdýrum ýmsum. Taka höndum samangegn bamakláminu Sænsk og bandarísk yfirvöld hafa tekið höndum saman til þess aö sporna gegn bamaklámi. Bandarískir embættismenn hafa verið í ferðum í liösbón i Svíþjóð, Hollandi og Danmörku til að fá yfirvöld þar til liðs viö yfirvöld í Washington til að berjast gegn framleiöslu og dreifingu á bama- klámi. Sameiginlegar yfirlýsingar hafa verið gefiiar um að þessi iðja sé forkastanleg og að með öllum ráðum þurfi að k veða hana niður. Fjöldi embættismanna handtekinn út af njósnunum á Indlandi Fimm embættismenn, flestir úr málsins sem uppvíst varð um þessa vamarmálaráðuneytinu, vora hand- helgi. — Áður höfðu tólf embættismenn teknir á Indlandi í gær í kjölfar njósna- og þrír kaupsýslumenn indverskir ver- Spjöllin af völdum súrs regns stinga í augun í Svartaskögi í V-Þýskalandi en loftmengun frá verksmiðjum á Bretiandseyjum er aö hluta kennt um. Gramir Bretum út ið handteknir en vestrænn diplómat var látinn yfirgefa land fyrirvaralaust áður en til brottvísunar kæmi. Dagblöðin á Indlandi segja aö Frakkland, Vestur-Þýskaland og Bandaríkin, auk Sovétríkjanna, hafi öll verið viðriðin njósnir þessar og að sex diplómötum til viðbótar hafi verið sagt aö hafa sig á brott af landinu. Kemur fram í þessum blaöafréttum að trúnaöarmál um landvamir og kaupsýslumál hafi verið seld útlend- ingunum fyrir stundum ekki meira en einaviskíflösku. Njósnahneyksli þetta hefur leitt til þess að einn helsti aðstoöarmaður Rajivs Gandhis forsætisráðherra, P.C. Alexander, hefur sagt af sér eftir að eitthvað af starfsfólki Alexanders var handtekiö. Sérstakur ríkisstjórnarfundur var haldinn út af þessu máli sem einnig kom til umræöu í þinginu í Nýju Delhí í gær. Rannsókn beinist nú að öllu starfsfólki varnarmálaráðuneytisins. Æðardúnssængur til Ameríku? Óskar Magnússon, Washington: Aðfaranótt mánudags var ein kald- asta nótt sem mælst hefur í um 20 borg- um Bandaríkjanna. Frostið fór niður fyrir mínus 20 gráður hér í Washington og mjög nistandi. örfáir sáust á ferli í úthverfum borgarinnar. Bílar fóru seint og illa í gang, enda menn hér ekki undir slíka frosthörku búnir. Hús eru mjög illa einangruö og þvi skreytt um þessar mundir með frost- rósum á gluggum. Á mánudagsmorgni vora skólar lokaöir vegna kulda. Ein- ungis höröustu Islendingar mættu í skóla þrátt fyrir allt. Ameríkanar kvarta mest yfir næturkuldanum og má vel vera að markaður sé aö skapast fyrir íslenskan æðardún í dún- mjúkarsængur. af súm regni Kanadamenn minnka selveiðina Sænskir vísindamenn hafa afþakkað 4,5 milljóna króna styrk frá Bretum til þess að rannsaka áhrifin af súru regni. Þeir kenna mengun frá breskum iðn- aði um spjöll á skógum og stöðuvötn- um á Norðurlöndum. Tilgangur með þessu tilboði er að kaupa frest svo aö Bretlandi geti hald- ið áfram að spúa eimyrju yfir Evrópu,” sagði Sten Bergström hjá, veðurstofu Svíþ jóðar. Taldi hann siðferðilega rangt að þiggja peninga frá breskum orkuiðn- aði á meðan Bretland neitaði að draga Kona, sem ákærð hefur verið fyrir morð á gamanleikaranum John Belushi, ákvaö í gær að fara til Banda- ríkjanna af fúsum og frjálsum vilja. Hún hefur verið í Kanada og barist þar gegn því að verða framseld. Kathy Evelyn Smith hefur verið á- kærð um annarrar gráðu morð fyrir að gefa Belushi fíknilyf. Rannsóknar- úr brennisteinsinnihaldi útblásturs frá stórum verksmiöjum en slík loftmeng- un er talin valda miklu um myndun súrs regns. I nóvember í vetur var þvi lýst yfir af Norðurlöndunum að þúsundir stöðu- vatna og skóga á Norðurlöndum hefðu orðið fyrir mengun sem bærist frá Bretlandseyjum. Bretland neitaði í desember að ganga í lið með f jórtán öðrum Evrópu- ríkjum, Sovétríkjunum og Kanada til þess aö draga 30% úr loftmengun á næsta áratug. dómur í Los Angeles komst að þeirri niðurstöðu að Belushi hefði dáið vegna þess að hann fékk of stóran skammt af heróíni og kókaíni á 30 tíma eiturlyf ja- fylleríi. Smith er kanadisk. Hún hefur fengiö að ganga laus gegn 100.000 dollara tryggingu. Solveiðimaöur heggur afl varnar- lausum kópi. Eigi skal höggva, sagja dýravinir. Þessa vertíðina kann að verða dregið mjög úr selveiöi Kanadamanna sem einatt hefur verið mótmælt af dýravinum og umhverfisvemdar- mönnum seinni árin. En hún verður ekki lögð alveg niður, að því er John Fraser, sjávarútvegsráðherra Kanada, segir. Þó kunngerði eina fyrirtækið á Nýfundnalandi sem keypt hefur sel- skinn af self öngurum að það muni ekki kaupa nein selskinn þessa vertíðina. Carino Ltd. sagöi í siöustu viku aö mót- mæli selveiðiandstæðinga og hörð sam- keppni frá Grænlandi og dönskum sel- föngurum, sem byðu selskinn gegn lægra verði, réði þessari ákvörðun fyrirtækisins. I fyrra voru aðeins veiddir 5000 selir við Kanada, og þá aöallega kjötsins vegna, þar sem andstæðingum sel- veiöa tókst aö fá Efnahagsbandalag Evrópu til að banna innflutning á sel- skinnum. Aður veiddu Norðmenn og Kanadamenn um 300 þús. seli árlega. Fraser ráðherra lét í veðri vaka að Kanada leitaði um þessar mundir nýrra markaða fyrir selskinn. FER FÚS TIL BANDARÍKJANNA Um 40 prósent námamanna hafa snúifl aftur til vinnu, segir yfirstjórn námanna. Námamenn í vinnu Námamenn og yfirstjóm kolanáma í Bretlandi töluðust við í fýrsta skipti í þrjá mánuði í gærkvöldi. Deiluaðilar eru ósammála um hversu þeim varð ágengt i viðræðunum. Arthur Scargill, leiðtogi náma- manna, sagði að eftir viðræðumar hefði komið upp ný von um árangur í deilunni. En kolaráðið sagði ekkert hafa bent til þess að beinar samningaviðræður lægju fýrir í náinni framtíð. Kolaráð stjórnarinnar sagði að í gær hefðu 1.847 menn snúið aftur til vinnu. Nú væru 40 prósent hinna 188.000 námamanna i vinnu. Verkalýðsfélagið sagði að tölurnar væra falsaðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.