Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1984, Qupperneq 28
,, 28
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. JANUAR1985.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Eins og alþjóð veit er Ryan O’Neal
og Farrah Fawcett afskaplega vel
tll vina, svo vel að nú eiga þau von
á bami saman. En þar stendur ein-
mitt hnífurinn í kúnni, því þau deila
hart um nafn væntanlegs barns.
Vili Ryan að eftirnafnið verði
O’Neal en Farrah Fawcett-O’Neal.
Enn er verið að framleiða Dallas-
þætti. Nýjasta þáttaröðin gerist
fyrir fimmtiu árum þegar Miss
Ellie giftist Jock og J.R. var í heim-
inn fæddur og svo framvegis. Eru
leikarar allir nýir, sem ekki hafa
komið fram í þáttunum áður.
Brooke Shields er svo gott sem trú-
lofuð um þessar mundir. Sá iukku-
legi heltlr Michael Ives og starfar
sem tískusýningarherra. .j.
Ollvia Newton—John gekk í það
heilaga á dögunum. Það þótti
tiðindum sæta að leikkonan keypti
sjálf giftingarhringinn sinn sem er
alsettur demöntum. Og svo lét hún
einkaritarann sinn sjá um að sækja
hann i verslunina daginn fyrir gift-
inguna. Eiginmaðurinn vlrðist því
hvergi hafa komið þar nærri, eins
og venjan er þó.
Boy George hefur veriö komið upp í
brúðumynd á vaxmyndasafni
Madame Tussaud í Lundúnum. En
einhver hefur gert sér lítið fyrir og
stolið höfði brúðunnar og hefur
ekkertspursttilþesssíðan. ^
Brigitte Bardot varð býsna reið á
dögunum er hún komst að því, að
sonur hennar, Nicholas Charrier,
24 ára gamall, hefði verið glftur i
tvo mánuði án þess að iáta svo lítið
að segja henni frá því.
Móðir Napóleons var 18 ára þegar
hún átti hann. Þegar hún var
gengin sex mánuði á leið tók hún
þátt í uppreisn á Korsiku, barðist
með kjafti og klóm á hestbaki og
var i fremstu viglinu.
Móðir Georges III. Englands-
konungs var kölluð nornin af
samtíðarmönnum sinum.
Sumir segja að hatur Hitlers só tilkomið vegna þess að móðir hans lést i
umsjá læknis af gyðingaættum.
Svona er að eiga
skrýtna mömmu
Skýringuna á háttum allra helstu
harðstjóra sögunnar er að finna í
einkennilegu lífshlaupi mæðra þeirra.
Klara, móðir Adolfs Hitlers, varð til
aö mynda þriðja eiginkona frænda síns
eins. Þaú voru þremenningar en hann
var 23 árum eldri en hún. Kynni þeirra
hófust þegar hann réði hana sem
vinnukonu á heimili sitt. Og hún
kallaði hann alltaf Alois frænda.
Hitler varð ávöxtur þessa skrýtna
hjónabands. Sem bam var hún eini
vinur hans og hann bugaðist gersam-
lega þegar hún dó úr krabbameini
þegar hann var 18 ára.
Læknir hennar, Eduard Bloch, var
gyðingur. Margir vilja meina að hatur
Hitlers á gyðingum megi rekja til þess
aö hann sakaöi Bloch um að hafa ekki
gætt móður hans nógu vel.
Agrippinu, móður Nerós, var nauög-
að af bróður sínum, Caiigula, þegar
hún var 12 ára og hann 15. Hún gifti sig
fyrst 13 ára. Sagan segir að hún hafi
eitraö fyrir eiginmann númer tvö til að
giftast frænda sínum, Kládíusi 1. Síðar
eitraði hún líka fyrir hann til að Neró
kæmist í keisarasætið.
Móðir Napóleons giftist 13 ára
gömul. Sagan segir að þegar hún var
gengin sex mánuði með keisarann til-
vonandi hafi hún tekið þátt í uppreisn á
eynni Korsíku og verið í fremstu víg-
línu á hestbaki. Þegar hún var 34ra ára
voru bömin orðin 12.
Georg III. Englandskonungur var
sonur Agústu prinsessu af Wales.
Þegar hún var 16 ára lék hún sér enn
að brúöum er hún kom fram opinber-
lega. Hún var sínöldrandi í Georg og
stjómaði honum gersamlega alla tíð.
Svo rammt kvað að afskiptasemi
hennar að samtíðarmenn hennar
köiluðu hana nomina.
Brooke Shields sýnir á sér nýja hlifl
um þessar mundir. Hún er farin að
koma fram sem poppsöngkona og
er bara látifl vel af því. Segja kunn-
ugir afl vinir honnar tveir, Michael
Jackson og Julio Iglesias, hafi
hvatt hana til þessa.
Peggy Spencer, þriðja frá hægri á myndinni, leiðbeinir nemendum
Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar í svokölluðum formation-dansi efla
mynsturdansi eins og hann hefur verið kallaður á íslensku.
DV-mynd S.
Heimsfrægur dans
kennari kennir
landanum sporið
„Við reynum að fá erlenda dans-
kennara til okkar á hverjum vetri,”
sagði Heiðar Ástvaldsson, en fyrir
skömmu var Peggy Spencer, einn
frægasti danskennari veraldar,
stödd hér á landi og leiðbeindi kenn-
urum og nemendum Dansskóla
Heiðars í dansi.
„Peggy hefur ámm saman rekið
dansskóla í Lundúnum. Hún hefur
getið sér mjög gott orö, meðal ann-
ars sá Bretadrottning ástæðu til að
veita henni orðu fyrir vel unnin
störf, ” sagði Heiðar.
Hann sagði að Peggy hefði unnið til
fjölda viðurkenninga fyrir dans-
kennslu sína og afskipti sín af því
máli. Hún hefði ferðast út um allan
heim til að kenna fólki réttu sporin,
meðal annars hefðu margir nemend-
ur hennar orðið heimsmeistarar í
dansi.
— En hvernig gengur að reka
dansskóla á Islandi í dag?
„Það gengur ágætlega. Aösóknin
nú í vetur er mun meiri en hún hefur
verið lengi, enda er þetta ódýr
skemmtun. Það er ódýrara fyrir par
að koma í danstíma en að fara í bíó.
Eg hef líka haft það að keppikefli að
hafa þetta ódýrt svo enginn þurfi að
neita sér um þessa skemmtun,”
sagöi Heiðar.
— Og hver er svo vinsælasti dans-
inn í dag?
„Ætli það sé ekki skrykkurinn.
Annars held ég að hann lognist út af
frá og með þessum vetri. Það kemur
alltaf upp einhver tiskualda. Það
kemur eitthvað annað næsta vetur,”
sagði Heiðar Astvaldsson.
Larry Hagman, betur þekktur sem
JR, hélt upp á 30 ára brúflkaups-
afmæli fyrir stuttu. Auflvitafl voru
„báflar eiginkonur" hans til staflar,
þafl er afl segja eiginkona Larry
Hagman, Maj, og eiginkona JR,
Sue Ellen efla Linda Gray.
Doris Day braut allmörg rifbein
á dögunum þegar hundurinn
hennar flaöraöi upp um hana
svo að hún féll við. Hún er sögð
vera að hjarna við.