Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1984, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1984, Page 5
DV. MIÐVIKUDAGUR 25. JANUAR1984. 5 Páll Ásgeir Tryggvason: „Norðmenn felmtri slegnir” „Þaö eru allir hér felmtri slegnir eftir handtöku Arne Treholt, sem nú hefur veriö uppnefndur fyrsta mold- varpan í sögu Noregs,” sagöi Páll As- geir Tryggvason, sendiherra tslands í Osló, í samtali viöDV í gær. Dagblaðið Verdens Gang fjallar um máliö á 18 síöum í dag, Aftenposten helgar því forsíðuna og í sjónvarps- fréttum í gærkvöldi var fjallaö um máliö í meira en hálftíma. Jens Even- sen, fyrrverandi hafréttarráðherra Noregs, hætti við feröalag sitt í Afríku og sneri aftur til Oslóar, en i ráöherra- tíö hans var Arne Treholt hans hægri hönd, byrjaöi sem persónulegur ritari hans og varð síðar aöstoöarráðherra. Saman tóku þeir þátt í samninga- fundum Norömanna viö Sovétmenn út af fiskveiöilögsögunni á Barentshafi. Af þeim viöræðum varö lítill árangur enda vissu Rússar fyrirfram hvemig Norömenn myndu taka á því máli. En Evensen hefur lýst því yfir aö á milli hans og Arne Treholt hafi verið náinn vinskapur, auk þess sem þeir störfuöu saman og hann hafi litiö á Arne Treholt sem sína hægri hönd. Má bóka aö Evenson var ekki aö halda hlutum leyndum fyrir Treholt í ráðherratíð sinni og má búast viö aö þær upplýsingar, sem Treholt fékk hjá hon- um, hafi ekki eingöngu snert hafréttar- mál heldur og önnur mál, nákomin ríkisstjóminni,” sagöi Páll Ásgeir Páll Ásgeir Tryggvason. Tryggvason. Páll Ásgeir sagðist ekki hafa kynnst Ame Treholt persónulega, en þegar hann tók viö sendiherrastööunni í Osló haustiö 1979, hafði Ame Treholt tekiö sæti í fastanefnd Noregs hjá Samein- uöu þjóðunum i New York. Ame Tre- holt kom síöan aftur til Oslóar í fyrra- vetur, 1982, og fékk þá inngöngu í norska landvamaskólann. „Þeir voru farnir aö gruna hann fyrir löngu, sumir segja fyrir áratug,” sagði Páll Ásgeir. „Bæði bandaríska leyniþjónustan CIA og alrikislögreglan FBI fylgdust víst náið meö Ame Tre- holt meðan hann var hjá Sameinuðu þjóöunum í New York. Fyrir nokkrum árum dó norsk kona í fangelsi áður en meint njósnamál hennar haföi verið rannsakað, en hún hafði veriö í tygjum viö einhvem Rússa. Þá lék einnig gmnur á því að Rússar væru í tengslum viö einhvern vemlega hátt- settan aðila í norska stjórnkerfinu.” , ,Bæði Arne Treholt og J ens Evensen voru vinstra megin við miöju í Verka- mannaflokknum og talið er aö Ame Treholt hafi samiö ræöuna um kjarnorkuvopnalaus svæði á Noröur- löndum, sem Evensen flutti haustið 1980 og kom sér mjög illa fyrir Knut Frydenlund. Þá kom það fram aö hann var mjög mótfallinn því að Bandaríkjamenn geymdu hergögn í Þrændalögum.” Sagði Páll Asgeú: aö faðir Ame Tre- holt væri fyrrverandi ráðherra og alþingismaöur og Arne hafi löngum haft mjög góð sambönd. Aö sjálfsögðu hefur fólk samúð með f jölskyldu þessa manns vegna þessarar smánar, en aðallega eru menn þó felmtri slegnir enda hefur þetta komiö stjómvöldum hér í opna skjöldu,” sagöi Páll Ásgeir Tryggvason. -HÞ Bílainnf lutningur í fyrra: Nær helmings samdráttur — 45% færri nýir bílar fluttir til landsins miðað við árið áður Vemlegur samdráttur varö á bilainn- flutningi á síðasta ári miöaö við áriö áöur. Nákvæmar tölur liggja ekki enn fyrir en að sögn Jónasar Þórs Steinars- sonar, framkvæmdastjóra Bílgreina- sambandsins, vom fluttir inn um 5.400 bílar á síðasta ári og er þaö 45% minnkun f rá árinu áöur. Innflutningur notaöra bíla hefur einnig dregist saman um 30% og voru f luttir inn á milli 3 og 400 bílar á síöasta ári. Em þaö aöallega bílar fólks sem er að flytja til landsins. -JR Þörf fyrir álíka margar ástralskar stúlkur í f iskvinnu og áður: Þeim áströlsku boðið þegar þær íslensku haf a afþakkað boðið — f rystihúsin geiða fargjöldin f rá Englandi ogtilbaka „Oft berast hingað nokkur bréf á dag hvaðanæva að úr heiminum meö fyrirspurnum um vinnu hér. Eftir- spurn eftir vinnu hér er þvi margfalt meiri en framboð atvinnutækifær- anna og því getum viö vandaö mjög vel val þess erlenda starfsfólks sem hingað er ráöið,” sagöi Bjarni Elías- son, aðalgjaldkeri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í viðtali viö DV í gær. Tilefni spjallsins var aö þrátt fyrir atvinnuleysi hér heima em þessa dagana 40 til 50 ástralskar stúlkur á leið hingaö til aö vinna í fiskvinnu og eru líklega nálega 100 löndur þeirra hér fyrir í þeim störfum. Einkum eru þær á Aust- og Vestfjöröum. Bjami sagði aö þegar viðkomandi frystihús heföu auglýst eftir fólki hér án nægilegs árangurs, heföu þau samband við viðkomandi verkalýðs- félög á stööunum sem veittu þá leyfi til ráöningar erlends vinnuafls. Þrátt fyrir vaxandi atvinnuieysi nú veröa álika margar ástralskar stúlkur hér viö störf og verið hafa mörg undanfarin ár. Eina skýringin á þvi taldi Bjami geta veriö að at- vinnuleysið hér -væri einkum á stærstu þéttbýlissvíeðunum. Fólk byggist ekki viö löngu atvinnuleysi og vildi ógjaman kljúfa fjölskyldur sínar um lengri eða skemmri tima með því aö annaö hvort hjóna færi út á land til aö vinna í nokkra mánuöi. Samgönguerfiðleikar innanlands yfir vetrartímann ættu ef til vill sinn þátt líka. Öllum fyrirspumum um vinnu hér er svaraö á þann hátt aö fólki er bent á aö snúa sér til sölufyrirtækis SH í Grimsby, en hins vegar eru nær ein- göngu ástralskar stúlkur ráðnar. Aö sögn Bjama er ástæðan sú aö þær hafa reynst afburðavel í gegnum ár- in. I Grimsby ræðir Islendingur viö stúlkurnar og gerir þeim grein fyrir landi og staöháttum. Hann velur einnig þær úr sem honum líst best á. Þær fara síðan í ítarlega læknisskoð- un áöur en þær koma hingaö. Viðkomandi frystihús greiðir svo ferðakostnaðinn frá Englandi hingað og aftur þangað að afloknum sex mánaöa ráðningartíma. Stúlkurnar njóta í einu og öllu sömu réttinda og Islendingar í sömu störfum. Þær geta vikulega skipt hluta launa sinna yf ir í gjaldeyri skv. reglum þar um sem fólgnar eru í at- vinnuleyfinu. Þá eiga þær endur- greiðslurétt á sínum hlut af lífeyris- sjóðsgreiöslum þegar þær fara. Eini muhurinn er aö þær staðgreiða skatta. Aöbúnaður þessa fólks hefur veriö bættur til muna eftir aö Heilbrigðis- eftirlit rikisins geröi úttekt á þeim málum fyrir nokkrum árum og sagöi Bjarni aö kvartanir vegna aöbúnaö- ar eöa vegna þess aö ekki væri staðið við ráðningarsamninginn heyrðu nú nánastfortíöinnitil. -GS. HEFSTI FYRRAMÁLIÐ KL. 9 í VERSLUIMUM OKKAR ViSA ISiiiii ® EUROCARD ViNNUFA TABÚDiN LAUGA VEGi 76 - HVERFiSGÖTU26

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.