Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1984, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1984, Blaðsíða 13
DV. MIÐVKUDAGUR 25. JANUAR1984. 13 Með 100% nýtingu má auka þessi verðmæti um a.m.k. 25 miiijónir og þar á ég við á þeim togurum, sem hafa orðið hvað verst úti. á ári. Það er varla von að útgerðar- menn sjái aöra leið betri en meltu- framleiðslu enda gæfi sú aðferð sem undirritaður benti á í DV 5. janúar sl. þeim 46 sinnum meira í aðra hönd. Melta er að sjálfsögðu ágæt svo langt sem hún nær. En spurningar vakna. Hvað kostar að breyta þessu blauta hráefni í mjöl, miðað við að hakka ruslið og frysta? Meðhökkunog frystingu vinnst að í snigilpressu má minnka vökvainnihald hráefnisins talsvert og nýta þá jöfnum höndum sem loðdýrafóður, mjölefni og jafnvel í áburð á túnin. Hver eru móttökuskil- yrði í landi fyrir meltu? Hvað kostar að skapa þau skilyrði? Vill einhver fiskimjölsverksmiðja kaupa meltu á því verði að þaö borgi sig aö framleiöa hana til m jölvinnslu? Kaflar úr ellefu hundruð ára sögu F ramsóknarf lokksins Ötímabærar athugasemdir ræmdu á til þess að hafa fé af Is- lendingum, heldur til þess að hjálpa okkur, tryggja siglingar hingað: fram- sóknarmenn höfðu komið sér fyrir í Rentukammerinu í Kaupmannahöfn ekki síöur en uppi á Islandi, héldu þá sem nú, að ríkisafskipti í góðum tilgangi hlytu að hafa góöar af- leiðingar. Aftur hafði orðið tregt um siglingar til landsins, liklega af því að ágæt mið fundust við Nýfundnaland og eftirspurnin eftir íslenskum fiski minnkaði. En hvers vegna varð að tryggja siglingar hingað? Vegna þess að ströng verölagshöft voru hér á nauðsynjavöru og sala hennar var þvi ekki gróöavænleg. Islenskir embættis- menn og bændur, flestir framsóknar- menn, fengust ekki til að fella úr gildi úreltar verðlagsskrár. Afleiðingarnar voru, að verö innfluttrar nauðsynja- vöru og útfluttra sjávarafurða var hér- lendis allt of lágt, en kaupmenn gátu stundum bætt sér upp tapið á sölu nauösynjavörunnar með því, að verð munaöarvamings hérlendis og sjávar- afuröa okkar á útlendum mörkuðum var miklu hærra. Danska einokunin var vond, en íslensku verðlagshöftin jafnvel enn verri: Danskir kaupmenn féflettu tslendinga, og Islendingar fé- flettu sjálfa sig! Innflutningshöftin á kreppuárunum Jón forseti Sigurðsson, sem barðist alla sína ævi við framsóknarmennina heima á Islandi og í dönsku ráðuneytunum reit í Ný félagsrlt árið 1843: „Verzlaninni er eins háttað á Islandi eins og annarsstaöar: að því frjálsari sem hún verður, því hagsælli verður hún landinu.” Við fengum og fullt verslunarfrelsi árið 1855. En framsóknarmenn létu sér þetta ekki lynda. Atti að leyfa fólkinu að kaupa „óþarfa”? Eða flytja á mölina? Þeir náöu ríkisvaldinu 1927 og komu hér á ströngum innflutningshöftum á kreppuárunum. Þeir gerðu þetta ekki af neinni mannvonsku, heldur af því að þeir sáu ekki annaö ráð til þess aö setja jafnaðarmerki á milli innflutnings og útflutnings en hefta innflutning „óþarfa”. Þeir komu alls ekki auga á hyggilegra ráðið, sem var að setja þetta sama jafnaðarmerki með þvi aö hækka verð innflutnings og lækka verð útflutnings (þaö er: með gengislækkun), svo að minna seldist hérlendis af innfluttri vöru og meira erlendis af útfluttri vöru. Þeir sáu það ekki heldur (sem dr. Benjamín Eiríks- son benti á í lftilli bók árið 1938, Or- sökum erfiðleikanna í atvinnu- og gjaldeyrismálum), aö innflutn- ingurinn hafði haft tilhneigingu til að fara fram úr útflutningi vegna peningaþenslu, en henni olli að sjálf- sögðu ríkið — það er: framsóknar- mennimir. Þeir voru því meö innflutningshöftum sínum að skipa þeim draugi að leggjast niður, sem þeir höfðu sjálfir vakið upp og haldiö gangandi! Frjálshyggjumenn og framsóknarmenn Við værum að einfalda Islands- söguna með því að segja, að hún hefði alltaf verið barátta frjálshyggju- manna og framsóknarmanna. Við get- um ekki skipt Islendingum í þessa tvo hópa, því að í sérhverjum Islendingi býr einhver framsóknarmaður og ein- HANNES H. GISSURARSON CAND. MAG. hver frjálshyggjumaður. En sumir eru þó meiri framsóknarmenn en aðrir. Sigurlaug B jarnadóttir og Sverrir Her- mannsson eru meiri framsóknarmenn en Eyjólfur Konráð Jónsson og Ragnhildur Helgadóttir, sem eru bæði miklir frjálshyggjumenn og litlir framsóknarmenn, en líklega eru þau Sigurlaug og Sverrir minni fram- sóknarmenn en þeir Halldór Kristjáns- son frá Kirkjubóli og Páll frændi minn Pétursson. Hreinræktaðasti fram- sóknarmaðurinn, sem ég veit um, er Sveinn heitinn Olafsson í Firöi. Eg vona, aö framsóknarmennimir í okkur Islendingum nái ekki aftur und- irtökunum, en ein huggun er þó harmi gegn, takist þeim að breyta landinu í byggöasafn; nokkrar tekjur geta orðið af öllum þeim útlendingum, sem hljóta að gera sér ferð hingað til þess að skoða fyrirbærið. A „Framsóknarflokkurinn . . . hefur verið ^ til, frá því að ísland byggðist, því að framsóknarstefnan er í rauninni ekki stefna heldur sálarástand, hugarfar.” G

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.