Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Blaðsíða 40
Símar 38877, 687520 og 39424 77022 auglýsingar SÍÐUMÚLA 33 SMÁAUGLÝSINGAR AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR _______ÞVEBHOLT111___ OCC11 RITSTJÓRN ÖUU II SÍÐUMÚLA12-14 AKUREYRI SKIPAGÖTU 13 AFGREIÐSLA (96)25013 BLAÐAMAÐUR (96)26613 Allt á floti á Suðurlandi — Hvítá f læðir úr farvegi sfnum og yfirallan Flóann Klakastífla sem myndaöist i Hvítá viö Langatanga hjá Brúnastööum hefur gert þaö að verkum að áin flæöir nú úr farvegi sínum og yfir allt láglendi í Hraungeröishreppi. „Þaö má segja aö Hvítá flæöi hér yfir allan Flóann og þaö tekur tímana tvo áður en hér verður þurrt á ný,” sagöi Olafur Gíslason hjá Vegagerðinni á Selfossi. 10—12 bæir í Hraungerðishreppi eru umflotnir vatni en aö sögn Olafs hefur sjatnað í vatninu frá því í gær og horfir ekki iila eins og stendur. Þó hafa orðið verulegar skemmdir á túnum og girðingum en Suöurlandsvegur sloppið til þessa. Aftur á móti ganga viðgerðir vel viö Markarfljót, þar sem vegurinn var illa farinn og gersamlega ófær eftir vatnselg helgarinnar, og er búist viö að þar verði fært öllum bílum um eöa eftir hádegi í dag. Allar viögerðir á vegum eru þó til bráöabirgða. -EIR. STYTTIST í STRAUMSVIKUR- SAMNINGA Bjartsýni ríkir nú um aö farið sé aö styttast i endalok kjaradeilunnar í Straumsvík. „Eg geri ráö fyrir aö viö séum aö nálgast þaö aö ljúka þessu. Menn eru aö hugleiða hvaöa möguleikar séu á því,” sagði Orn Friðriksson, aðal- trúnaöarmaöur starfsmanna. Undanfarna daga hafa verið haldnir stífir fundir hjá sátta- semjara. I dag er hlé til að aðilum gefist kostur á að skoöa hugmyndir um hvemig hægt sé aö ljúka málinu. Om Friöriksson sagði aö önnur atriði en launataxtarnir væru ekki fyrirstaða nema ISAL afhenti öðrum aðila samningsumboð sitt. Þá myndi starfsmenn gera kröfu til þess að sérstakar undanþágur um fram- kvæmd vinnustöövana á álverinu féllu niður. TrúnaÖarmenn munu í dag ræöa við starfsmenn, kynna þeim stöðuna og fá fram vilja þeirra. Næsti samn- ingafundur hefur verið boðaöur klukkan níu í fyrramálið. -KMU. Eidur að Laugavegi 24 í nótt: ÓTTAST VAR AÐ FÓLK VÆRIINNI í ÍBÚÐINNI Reykjavíkurskákmótið: Hef st í dag Ellefta Reykjavíkurskákmótið hefst i dag kl. 17 í Kristalsal Hótel I.oftleiöa. Utlend stórmenni í skáklist hafa flykkst til landsins undanfarna daga og skal þar fyrstan telja Geller hinn gerska og landa hans Balashov; einnig eru þar Larry Christiansen, Byrne og öldungurinn Reshevsky frá Banda- ríkjunum, Ree frá Hollandi, Axel Ornstein og Schiissler frá Svíþjóö auk hinna útlendu keppenda af Búnaöar- bankamótinu. Friðrik Olafsson veröur meö í þessari miklu rimmu og allir hinir sterkustu skákmenn íslenskir. Alls verða keppendur eitthvað á sjö- unda tuginn. Tefldar veröa 11 umferðir samkvæmt svissneska kerfinu og lýkur mótinu 26. febrúar. Vel verður gert viö áhorfendur — skákskýringar í svonefndum ráöstefnusal og beinar út- sendingar um sjónvarp frammi á göngum. -BH LOKI SkylcJi Steingrímur hafa fært horíum graut? Slökkviliðið í Reykjavík var kallaö klukkan þrjú í nótt aö Fálkahúsinu að I^augaveg 24. Var þar mikill reykur í íbúð á 4. hæð og var óttast að fólk væri þar inni. Tveir reykkafarar fóru strax inn í ibúðina aö innanverðu og aðrir tveir brutu sér leið inn í hana af svölunum eftir að hafa verið híföir upp á þær með körfubíl. Enginn maöur fannst í íbúöinni og heldur ekki á hæðinni fyrir neðan, en þar er verið að innrétta skrifstofur. Greiðlega gekk að ráða niöurlögum eldsins sem allur var í ibúöinni. Urðu töluverðar skemmdir á henni af völdum vatns og reyks. -klp- Bankastjórastaða Búnaðarbanka: Haukur og Helgi styðja Jón Adolf Bæöi Haukur Helgason og Helgi Selj- an fullyrtu viö DV í morgun aö þeir myndu styðja Jón Adolf Guöjónsson í stööu bankastjóra Búnaðarbankans. Fundur bankaráðs verður haldinn rétt fyrir hádegi og verður þar væntanlega gengið frá því endanlega hvor fær stöðuna, Jón Adolf Guöjónsson eða Lárus Jónsson þingmaöur Sjálfstæöis- flokks. Bankaráðsfundi var frestað tvisvar í síðustu viku er ljóst varö aö Lárus Jónsson naut eingöngu stuðnings þeirra Friðjóns Þórðarsonar og Gunnars Gíslasonar. Haukur Helgason sagðist styðja Jón Adolf enda væri „slíkt spor í rétta átt” eins og annar ritstjóra DV hefði orðað það. „Jón Adolf er líka sjálfstæðismaö- ur og góöur og gegn bankamaður.” Helgi Seljan aftók einnig aö sér heföi snúist hugur eöa aö hann heföi látiö undan flokksþrýstingi. Jafnframt er óbklegt aö Stefáni Valgeirssyni snúist hugur. Hann varö sjálfur að lúta í lægra haldi i sókn sinni eftir banka- stjórastöðu nýverið” og er ekki til við- ræðu við sína flokksstjórn um þessi mál. Hann lítur svo á að trúnaðarkerfi flokkanna í þessu sambandi sé brostið,” sagði ebm þmgmanna Fram- sóknar við DV áðan. Allt bendir því til að Jón Adolf fái stöðuna. HÞ Lftið þokast í samningum Ríkissáttasemjari hefur boöaö samninganefnd' Félags bókageröar- manna og viðsemjendur þeirra á fund í dag. Lítiö hefur þokast í þessum samningum. Unnið er aö samræmingu þriggja kjarasamninga en enn er ekki farið að ræða launaliði nýs samnings. Fulltrúar BSRB og fjármála- ráöuneytisins hafa veriö boðaöir á fund sáttasemjara klukkan 13.30 á morgun. Samninganefnd BSRB kemur saman í dag til aö ræöa nýja kröfugerð sem svonefnd tíumannanefnd hefur unnið aö síöustu daga. t t t t t t t t t i i i i í i Í Í i i I t 4 OEF

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.