Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Blaðsíða 30
30
DV. ÞKŒXJUDAGUR14 FEBRUAR1981
Viðskipti Viðskipti Viðskipti Viðskipti
Fyrsta gagnfúa-
varnarvélin hér
— Rammi hf. í Njarðvík fjárfestir upp á 2 milljónir án þess að kröfur um
gagnfúavörn séu enn komnar hér
Ný stjóm íFélagi
íslenskra
ferðaskrifstofa:
Böðvar Val-
geirsson kjör-
inn formaður
Ný stjórn var kjörin í Félagi
íslenskra ferðaskrifstofa á aðalfundi
félagsins nýlega. Böðvar Valgeirs-
son var kjörinn formaöur í staö
Steins Lárussonar, sem gegnt hefur
því embætti frá 76 en fer nú til.
Oslóar á vegum Flugleiða. Helgi
Jóhannsson og Islaug Aðalsteins-
dóttir voru kjörin meðstjórnendur
og Ulfar Jacobsen varamaður.
Eysteinn Helgason, sem veriö hefur í
stjórninni sl. þrjú ár, gaf ekki kost á
sér til endurkjörs enda á förum til
Bandaríkjanna á vegum Sam-
bandsins.
Tækni og
jafnrétti
— ráðstefna á Hótel
Esju á föstudag
Skýrslutæknifélag Islands og Jafn-
réttisráð efna sameiginlega til
ráðstefnu um tækni og jafnrétti aö
Hótel Esju á föstudaginn kl. 13, þar
sem fjallað verður um áhrif tækni-
breytinga á atvinnulifið meö tilliti til
jafnréttis kynjanna. Þar verðurm.a.
rætt um áhrif tæknibreytinga hjá
einstökum fyrirtækjum. Stööu og
stefnu í tæknivæðingarmálum hjá
Sambandi bankamanna og um
nefndarstörf, um áhrif tæknivæðing-
arinnar á atvinnulífið. Stefna allra
stjórnmálaflokkanna í þessum
málum verður kynnt, Svo og stefna
VSI og ASI. Þátttaka tilkynnist á
skrifstofu Jafnréttisráðs.
Almennur lífeyrissjóður
iðnaðarmanna:
Nýjarreglurum
lánveitingar
Nýverið samþykkti stjórn
Almenns lífeyrissjóðs iðnaðarmanna
nýjar reglur um lánveitingar úr
sjóðnum. Hljóta þær að teljast hag-
stæðar sjóðfélögunum séu þær
bomar saman viö sambærilegar
reglur ýmissa annarra lífeyrissjóða.
Eftir aöeins 2ja ára aðild aö lífeyris-
sjóðnum eignast sjóðfélagi veruleg-
an lántökurétt. Hver ársfjóröungsleg
aöild að sjóðnum e^kur lántökurétt
sjóðfélagans og geta hámarkslán
numið allt að kr. 420.000. Lánstími
getur orðið allt að 25 árum og af
hálfu sjóösins er kappkostaö aö af-
greiðsla lánanna gangi vel og
snurðulaust. Þess vegna eru lán veitt
á öllum tímum ársins og afgreiðslu-
tími lána lítill sem enginn.
Formaður stjórnar Almenns h'f-
eyrissjóðs iðnaðarmanna er Eyþór
Þórðarson. Aðrir í stjórn eru Olafur
Pálsson og Þórir Jónsson, en þeir eru
kosnir á Iðnþingi Islendinga, Þor-
berg Olafsson og Sigmar Ármanns-
son. Framkvæmdastjóri er Þórleifur
Jónsson. Skrifstofa sjóösins er í Húsi
iðnaöarins að Hahveigarstíg 1
Reykjavík, en samkvæmt sérstökum
samningi annast Landssamband
iðnaðarmanna rekstur sjóðsins.
Gluggaverksmiðjan Rammi hf.,
Njarðvík, hefur tekið upp nýja að-
ferð viö gagnfúavöm hér á landi,
sem fólgin er í því að fúavarnarefnið
gengur inn í viðinn en er ekki aðeins
boriö utan á, eins og tíökast hefur.
Hefur fyrirtækið fest kaup á búnaði
til gagnfúavarnar á fullunnum tré-
einingum og hafið framleiðslu á fúa-
vöröum gluggum. Búnaður og fúa-
vamarefni er framleitt af Gori A/S í
Danmörku og vömin í flokki B,
samkv. stöðlum, samræmdum af
Norræna timburvemdarráðinu
(NTR). Framleiðslan verður undir
áháðu gæðaeftirhti Iðntæknistofn-
unar Islands og varan merkt eftir
reglum NTR. Auk eigin framleiðslu
mun Rammi taka að sér gagnfúa-
vörn fyrir aðra.
Vélin kostar uppsett um tvær
milljónir króna og vegur um 10 tonn.
Fúavarnargeymirinn tekur 13 tonn
og vélin tekur 22 fermetra gólfpláss.
Svona fúavörn er orðin skylda
annars staðar á Norðurlöndum en
ekki hér. Sé henni beitt á að verða
mun minni hætta af áföllum vegna
fúa síðar meir, svo Rammi virðist
meö þessu hafa stigið mikið fram-
faraspor í íslenskum byggingar-
iðnaöi.
Rammi hf. var stofnaður 1965 og
framleiðir glugga, útihurðir og bíla-
Nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum
sýning á nýjum íslenskum skóla- og
skrifstofuhúsgögnum sem ber yfir-
skriftina „Hönnun til heilsu-
verndar”.
A sýningunni eru kynnt skólahús-
gögn sem Stálhúsgagnagerð Steinars
hefur hannað meö aukna heilbrigði
islenskra skólabarna að leiðarljósi.
Viö hönnun skólahúsgagnanna var
tekiö mið af ítarlegri skýrslu sem
danska menntamálaráðuneytið lét
gera um skólahúsgögn og réttar
vinnustellingar barna. Auk þess var
geymsluhuröir. Starfsmenn eru um
25 talsins og núverandi aðaleigendur
þrír smiðir, sem allir hafa starfað
þar um árabil, Einar Guðberg Gunn-
arsson framkvæmdastjóri, Gísli
Grétar Björnsson og Sigþór Stefáns-
leitað til íslenskra sjúkraþjálfara,
arkitekta og skólastarfsmanna um
aðstoð og ráðleggingar.
Þetta mun vera í fyrsta skipti sem
svo markvisst er unnið aö hönnun
skólahúsgagna hér á landi.
A sýningunni eru einnig kynnt ný
skrifstofuhúsgögn sem líkt og skóla-
húsgögn fylgja nýjustu kröfum um
réttar vinnustellingar og aukna heil-
brigði.
Sýningin „Hönnun til heilsuvemd-
ar” er opin alla daga frá kl. 14—22
framtil 19.febrúar.
son. Framleiðslustjóri er Birgir
Jónasson. Rammi selur mikinn
meirihluta framleiðslu sinnar á
höfuðborgarsvæðið og söluskrif-
stofan í Reykjavík er Iönverk hf.,
Nóatúni 17.
Fjárveitingar
Iðnrekstrarsjóðs:
Málmur og
ull fá mest
I skýrslu um starfsemi
Iðnrekstrarsjóðs fyrir árið 1982
kemur í ljós að málmiðnaður og
ullar- og skinnaiönaður hafa fengiö
langmest úthlutað úr sjóðnum, eða
nálega helming. Skýrsla fyrir
síðasta starfsár liggur ekki enn
fyrir.
Hlutverk sjóösins er að auka út-
flutning iönaðarvara, auka sam-
keppnishæfni íslensks iönaðar á
innlendum og erlendum mörkuðum,
örva nýsköpun í átt til aukinnar og
bættrar iðnaðarframleiðslu og aö
auka framleiöni í samkeppnisiönaöi.
Sjóðurinn hefur fyrst og fremst
veitt styrki og framlög til erlendrar
markaðsöflunar og markaðs-
aðlögunar og einnig styrkt þróunar-
verkefni, sem hafa mikla þýðingu
fyrir þróun heilla greina eða iðnaöar-
ins í heild. Formaöur er Vilhjálmur
Lúðvíksson og framkvæmdastjóri er
Hulda Kristinsdóttir.
Akureyri:
Pan hf. klárar
útvarpshúsið
Fyrirtækið Pan hf. á Akureyri
mun liklegast klára útvarpshúsið á
Akureyri þar sem það átti lægsta
tilboðí verkið.
Um er að ræða innréttingar, raf-
lagnir og loftræstingu í hinu nýja út-
varpshúsi og hljóðaði kostnaðar-
áætlun upp á 3.985.450 krónur. Tilboð
Pan hf. var upp á 3.318,466 krónur
eða 83,27% af kostnaðaráætlun.
Tilboð frá Aðalgeiri og Viöari var
upp á 3.839.990 krónur eða 96,35% og
tilboð frá Híbýli hf. var upp á
4.157,379 krónur, eða 4% hærra en
kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir.
Guðmundur Þórð-
arson framkvæmda-
stjóri f jármálasviðs
Þýsk-fslenska
Við skipulagsbreytingar inn-
an Þýsk-íslenska nýverið gerð-
ist Guðmundur Þórðarson
framkvæmdastjóri fármála-
sviðs. Hann er stúdent frá MR
’65 og lauk lögfræðiprófi frá Hl
1971. Næstu fimm árin starfaði
hann hjá rannsóknadeild ríkis-
skattstjóra og rak síðan eigin
lögfræðiskrifstofu í fimm ár
uns hann réðst til Þýsk-íslenska
sem fjármálastjóri fyrir tveim
árum. Guðmundur er 38 ára.
Ingi Karl Ingason
aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Þýsk
íslenska
Ingi Karl Ingason tók nýverið
við starfi aðstoðarfram-
kvæmdastjóra hjá Þýsk-ís-
lenska hf. Ingi varð stúdent frá
Menntaskólanum viö Tjörnina
74, vann síðan ýmis störf uns
hann hóf nám í HI og lauk það-
an BA prófi í ensku árið 1980.
Næstu tvö árin kenndi hann við
Breiðholtsskóla en haustið ’82
réðst hann til Þýsk-íslenska,
fyrst sem innkaupafulltrúi, síð-
an innkaupastjóri og nú
aðstoðarframkvæmdastjóri.
Ingi Karler29ára.
SævarGuðlaugsson
forstöðumaður
véladeildar Heklu
Sævar Guðlaugsson hefur
verið ráðinn forstöðumaður
véladeildar Heklu. Hann lauk
fiskimannsprófi frá Stýri-
mannaskólanum ’53 og far-
mannsprófi frá sama skóla ’55.
Ariö ’53 hóf hann störf hjá Eim-
skip, fyrst sem háseti, síðan
sem stýrimaður og skipstjóri
frá 1975 til ársins ’81 aö hann
réðst til Heklu sem innheimtu-
stjóri. Því starfi gegndi hann
þar til hann tók við nýju stöð-
unni. Sævar er 52 ára.
Aðaleigendur Ramma: Sigurþór Stefánsson, Einar Guðberg Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri og Gísli Grétar Björnsson.
Meðal annarra hluta eru sýnd íslensk tölvuborð.
♦
Stálhúsgagnagerð Steinars með sýningu
á Kjarvalsstöðum:
Hönnun til
heilsuvemdar