Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Blaðsíða 9
DV. ÞRÍÐJUmGUR 14. FEBRUAR19B4 Útlönd Útlönd 9 Utlönd Útlönd LÆKKAÐ VERÐ Á ÖLLUM SKÓM SKÓBÚÐIN SNORRABRAUT SÍM114190 Diana á von á sér af tur Diana prinsessa af Wales á von á sér ööru sinni. Þaö var aöalfrétt margra bresku dagblaöanna í morgun og nýjustu tíöindi frá Moskvu uröu meira aö segja að víkja fyrir þessari „stórfrétt”. Talsmaður Buckingham-hallar batt enda á mánaöalangar vanga- veltur bresku þjóðarinnar um þetta efni er hann skýröi frá því að Diana ætti von á ööru barni sínu og Karls, erfingja bresku krúnunnar. Barniö á aö fæöast í september aö sögn talsmannsins. Karl prins sem nú er 35 ára gamall hefur ekki farið dult meö þá ósk sína aö eignast sæg af börnum. Bandaríkin ætla að nota tækifærið Þrátt fyrir aö f jölmargir bandarískir sérfræöingar álíti Konstantin Chern- enko, hinn nýja leiötoga Sovétríkj- anna, íhaldssaman og fastheldinn við ríkjandi stefnu, þá stefna ráðamenn í Hvíta húsinu að því að nota nú tækifær- iö til að bæta samskiptin viö Sovétríkin. „Við gerum okkur vonir um aö framundan séu tækifæri til aö koma á friði í róstusömum heimshlutum, aö minnka kjarnorkuvopnaforðann veru- lega og aö auka samband og samskipti þjóöa okkar,” sagöi George Bush, varaforseti Bandaríkjanna, viö komuna til Moskvu. Reagan Bandaríkjaforseti gaf sér sjálfur tíma til aö líta viö í sendiráöi Sovétríkjanna í Moskvu og votta þannig hinum látna leiötoga Sovét- manna virðingu sína. I fréttatilkynn- ingu frá Hvíta húsinu var hin nýja stjórn Sovétríkjanna hvött til „aö vinna meö okkur að auknum skilningi og samstarfi.” BÆNDUR STÖÐVUÐU KJÖTIÐ Um 300 franskir bændur mótmæltu í gær innflutningi á ódýru bresku kjöti meö því aö koma í veg fyrir aö innflytj- endurnir gætu afhent kjötiö í slátur- húsum í Norðvestur-Frakklandi. Um var aö ræða tvo flutningabíla meö alis 20 tonn af bresku kjöti. Talsmaður bændanna sagöi: „Viö höfum ekkert á móti Bretum en viö getum ekki liöið aö haft sé rangt viö í frjálsri samkeppni.” Frönsku bænd- urnir halda því fram aö breska kjötiö sé selt undir kostnaöarveröi og ó- eðlilegt að þeir búi viö slíka samkeppni. Breskir kolanámumenn á leiö heim úr vinnu. Kolanámumenn íyfírvinnu- banni Neil Kinnock: Um 20 þúsund breskir kolanámu- menn voru sendir heim í gær í launa- laust frí og hafa ekki jafnmargir veriö reknir heim frá vinnu fyrr, síðan sam- tök kolanámumanna skelltu á yfir- vinnubanni fyrir 15 vikum. Loka þurfti nokkrum námum til viö- •geröa og viðhalds sem venjulega er unnið um helgar í yfirvinnu. Kolanámumenn settu á yfirvinnu- bann til þess aö reyna aö knýja fram meiri launahækkanir en þau 5,2% sem kolaráö ríkisins haföi boðið. Grunn- laun eru um 5300 krónur á viku hjá kolanámumönnum. Leiðtogar námamanna í Edinborg fengu frestaö í gær ákvöröun um hvort boðað skuli allsherjarverkfall í Skot- landi. Skoskir kolanámumenn vilja auk kröfunnar um launahækkun mót- mæla lokun á fimm námum á tæpu ári. Munum skila eldflaugunum Neil Kinnock, formaður breska Verkamannaflokksins. Neil Kinnock, leiötogi Verkamanna- flokksins breska, hét því í gær aö hann myndi senda eldflaugar Bandaríkja- manna aftur til fyrri heimkynna sinna ef flokkur hans kæmist til valda í Bretlandi. I ræöu, þar sem Kinnock f jallaöi um kjarnorkuvopnakapphlaupiö og sakaöi Reagan-stjórnina um aö leggja höfuö- áherslu á hernaðarlega yfirburöi yfir Sovétríkin, sagöi hann um hinar nýju meðaldrægu kjarnorkueldflaugar sem Bandaríkjamenn hafa komið fyrir á Bretlandi og meginlandi Evrópu: „Verkamannaflokkurinn mun senda eldflaugarnar til baka jafnskjótt og hann kemst til valda,” Kinnock sagöi ennfremur aö eldflaugarnar geröu Bretland aö skotmarki og heföu ekki öryggi í för með sér. Hlé á bardögunum í Beirut Hlé varö loks á bardögum í Beirút í gær og sæmilegur friður hélst í nótt, þar sem stjórnarhermenn og múslimar virtu aö mestu vopnahléð. En ekkert bólar hins vegar á póli- tískri lausn deilunnar, sem afstýrt geti því aö bardagar hefjist aö nýju. I fyrradag var opnaö fyrir umferö milli austurhluta höfuöborgarinnar Múhamcöstrúarmaður hjálpar særöum félaga sinum í Beirút á meðan hié er gert á skothríðinni. þar sem kristnir búa og vesturhlut- ans sem er á valdi múhameös- manna. Var þessum samgangi haldiö opnum áfram í gær. Franskir friöargæslumenn og múhameöskir byltingarmenn höföu eftirlit meö umferöinni. Níu ára borgarastríö (meö hléum) í Líbanon hefur kennt mönnum aö vopnahlé þar hafa enst stutt og eru afskaplega ótraust. Bardagar geta blossaö upp hvenær sem er og þá fyrirvaralaust.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.