Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Blaðsíða 14
14 DVi ÞRIÐJUmGUR 14 FEBRUAR1984 Menning Menning Menning Menning Menningarverðlaun DV: Hreindýrapaté og innbakaður silungur —á matseðli hádegisverðarboðsins í Hótel Holti á fimmtudag Sherrý la Ina Hreindýrapaté. Innbakaður Laxalónssilungur með parísarkart- öflum og salati. Gewúrztraminer hvítvin fró Alsace. Kaffi og portvín. Menningarverölaun DV veröa afhent í hádegisveröarboöi í Þingholti Hótels Holts, fimmtudaginn 16. febrúar og hér aö ofan er matseðillinn, sem veröur borinn fram af því tilefni. „Þetta er mjög fínn matur,” sagöi Skúli Þorvaldsson, hótelstjóri á Hótel Holti, í samtali viö DV. „Þaö hefur fyrst og fremst alltaf vakað fyrir okk- ur að hafa uppistööuna fiskrétt, og frá því aö menningarverðlaunin voru af- hent höfum viö reynt aö vera meö nýjungarí fiskréttum.” Skúli vildi ekki skýra nákvæmlega frá uppskriftunum aö matnum sem menningarverölunahafar og aðrir gestir munu gæöa sér á. Hann sagöi þó aö fiskurinn væri afhausaöur, krydd- aöur og fylltur og síöan væri hver ein- stakur settur inn í álpappír og bakaöur inni í ofni. Viö þetta varöveitti fiskurinn allan upprunalegan safa sinn og þyrfti því ekki aö bera fram með honum sósu. Um samsetningu matseðilsins sagöi Skúli: „Þaö fer mjög vel saman aö hafa í forrétt paté, þar sem uppistaðan er kjöt og síöan fisk í aöalrétt.” Um drykkjarföngin sagöi Skúli aö la Ina væri þurrt sherrý og mjög viðeig- andi aö hafa þaö í fordrykk. Hvítvínið Eldissilungur frá Laxalóni, innbakaöur, veröur aðalrétturinn við afhendingu Menningarverölauna DV, en afhendingin fer fram á fimmtudag í Þingholti, Hótel Holti. DV-mynd GVA. væri þýskt, stabílt og gott. Þaö er nokkuö kryddað og ekki mikiö um slík vín. Menningarverölaun DV eru nú veitt í 6. sinn og sem fyrr er tilgangur þeirra þríþættur: aö heiöra gott listafólk fyrir vinnu sína, aö eiga saman góöa stund í fallegu umhverfi og neyta þess besta, sem íslensk matargeröarlist getur boð- ið upp á. Verölaunagripirnir aö þessu sinni eru sex sérlega glæsilegir skúlptúrar, sem Jens Guöjónsson gullsmiður hefur gert fyrir DV. Verðlaunahafar verða kynntir í blaö- inu á fimmtudag, en nánar verður skýrt frá verðlaunaafhendingunni á föstudag. -gb Menningarverölaun DV veröa afhent í 6. sinn í hádegisverðarboði á Hótel Holti á fimmtudag. Myndin hér aö ofan var tekin við sama tilefni í fyrra. LÚTA BACHS UPP Á UNGVERSKU Gergely Sórközy leikur verk eftir Johann Sebastian Bach ó lútu. — Prelúdki í c-moll BWV 999, fúgu í g-moll BWV 1000, Prelúdki, allegró og fúgu í Es-dúr BWV 998 og Svítu í g- moll BWV 995. Útgáfustjóri: Jánus Mátyás. Upptökustjórn: István Berényi. Útgefandi: Hungaroton SLPX 12157. Hið sama gildir um hljómplötu- markaöinn hér á Islandi og flest annaö efni alþjóðlegrar fjölmiöl- unar. örfá stór og vönduö merki eru allsráðandi. Þau hafa allt til alls; mesta peninga, bestu tæknina, fær- asta tækniliðiö og þekktustu lista- mennina. Þykjast menn nú kannast við hliöstæöur sjónvarpsrisanna og veldi engilsaxa á þeim vettvangi. Svo þegar aörir leggja sig alla fram, en hafa aðeins yfir að ráða næstbestu tækjunum, mun minni fjárráð og aöra aöstööu eftir því, eru þeir jafnan bornir saman við elítuhópinn, sem hefur tögl og hagldir á markaðn- um. Ekki þarf að tíunda þann þrönga kost sem íslensk hljómplötuútgáfa býr viö og hafa menn þó oft náð ótrúlega góöum árangri. Um leið og okkur finnst það ekki tiltökumál aö hér í fámenninu nái menn ekki sama árangri og þeir allra stærstu finnst, held ég, nærri öllum sjálfsagt að milljónaþjóöirnar hljóti aö geta gert eins vel og elítan alþjóölega. En þegar elítan er undanskilin er alls ekki svo mikill munur á stærö þjóöa, aö minnsta kosti ef tekið er miö af hljómplötuútgáfu þeirra og skiptir þá litlu máli hvort hausarnir eru taldir í hundruöum þúsunda eöa tug- um milljóna. Samkvæmt pólitískum grund- vallarreglum gilda ekki sömu mark- aðslögmál í löndunum austan viö járntjaldið og þeim sem vestan markálínunnar eru. En kúnstin þrífst ekki síður austan tjalds en vestan og inn á milli fáum við teikn þar um. Plötumar frá Hungaroton hafa, sé litið á umbúðirnar, á sér hvaö vestrænast yfirbragö allra hljómplatna frá löndunum handan járntjaldsins. Á Haydn ári, áttatíu og tvö, stóö fyrirtækið fyrir mynd- Hljómplötur Eyjótfur Melsted arlegum Haydn útgáfum af allháum gæöaflokki. Svona rétt til aö minna sjálfan sig á að talræn beinskurðar- tækni sé enn ekki á hvers manns valdi greip ég plötu meö lútuleik Gergely Sárközys þar sem þessi upprunalega cellisti spilar Bach. Leikur Sárközys ber meö sér að hann er vel heima í fræöum barokksins. Hann er líka ófeiminn viö aö taka sér listamannsleyfi því aöra plötusíðuna fyllir ekki uppruna- legt lútuverk heldur ein af svítunum sex fyrir celló einsamalt. En viti menn, takist manni aö þurrka út úr minni sínu að þetta eigi nú þrátt fyrir allt aö spilast á celló þá má njóta þess aö hlýöa á aldeilis glerfínan lútuleik. Og svo til aö rétta sig af er ekkert auðveldara en að finna sér góöa upptöku meö cellósvítunni, leik- inni með réttu lagi. En frjálshyggjan birtist í fleiru en efnismeöförum. Lútumar, tónfagrar, em meö há- marksfjölda strengja og vel þaö. En frjálsræöiö kemur kannski beinast fram í því að gripbretti er framlengt undir bassastrengina, sem venjulega leika á lausu, þannig aö á þá má leika krómatískt. Það er náttúmlega spursmál hversu langt má ganga í því aö spinna aö eigin vild upp úr sagn- fræðilegum staðreyndum og hálf- staöreyndum. En allt aö einu — and- rúmsloft (ef svo má aö oröi komast) plötunnar er einkar skemmtilega barokk og lútuleikarinn Gergely Sár- közy kann vel á sín tól aö leika. Upptakan stendur í samanburöi við elítuframleiöslu, tæpast framar- lega. Þaö er fariö alveg ofan í hljóö- færiö og reynt aö hvelfa tóninn sem mest, en um leið fiskast upp suö og kliöurinn sem veröur þegar fingur mætir streng, til fulls. En þaö er líka hverjum manni hollt aö hlusta af og til á eitthvað annað en þaö tæknilega allrabesta. Því listin hefur lengi komist ágæt- lega af án hátækninnar og hreint ekki svo víst aö hátæknin sé hið eina rétta. -EM.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.