Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1984, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1984, Qupperneq 6
■‘■^VMflfrmöAGURSOJFEBKUARJOM. Neytendur Neytendur athugaö hvaö matarkostnaður er hár af heildargjöldum. Þaðsakarekkiað geta þess einu sinni enn að við reiknum svo út mánaðarlega meðal- tal matarkostnaðar eftir öllum inn- sendum upplýsingaseðlum sem nefnist landsmeðaltal. I desember var það 2.844 krónur. Að sjálfsögðu er matarkostnaöur margra undir þeirri tölu og eins margra yfir. Þessi samanburður sem hér hefur verið gerður á heildargjöldum þess- ara fjölskyldna og matarkostnaði segir okkur svona í fljótu bragði að séu launin innan við 20 þúsund krónur fari um eða yfir 50% þeirra til matarkaupa. Þegar launin eru komin í 25 eða 30 þúsund krónur og allt að 40 þúsundum fara um 30—35% af þeim í mat. Síöan eftir því sem launin eru meiri og kaupgetan, t.d. þegar launin eru komin yfir 40 þúsund krónur lækkar matarkostnaður miðað við heildina og fer niður í um 25%. Matarkostnaður í fjórða dæminu hér á undan var um 20% af heildarút- gjöldum sem voru frá 57—70 þúsund krónur. Og enn er lægst hlutfall matarkostnaðar eða tæp 10% hjá f jölskyldunum sem höfðu 80 þúsund og þaðan af hærri útgjöld. -ÞG. Hver er matar- kostnaðurinn — miðað við heildarútgjöld? Á föstudag var hér á neytenda- síðunni greint frá heildarútgjöldum tíu fjölskyldna í desember. Þau heildarútgjöld voru rúmlega ein milljón króna, en þar valdir saman þeir seðlar sem voru með hvað hæstu niðurstöðutölum. 1 þessum tiu fjöl- skyldum eru fjörutíu manns og reiknaðist okkur til að framfærsla hvers einstaklings hefði verið um þrjátíu þúsund krónur í desember. Þar af höfðu tæp tíu prósent farið til matarkaupa en rúmlega níutíu prósent af heildarútgjöldum í annað, svo sem greiðslur af lánum og reikningum hvers konar. Sjálfsagt eru einhverjir þessara aðila i byggingarframkvæmdum. Meðaltal matarkostnaðar hvers einstaklings í þessum hópi var 2913 krónur. Hæsta tala sem var á einum seðlinum yfir heildarútgjöldin var yfir tvö hundruð þúsund krónur. Við höldum áfram að gera úttekt á upplýsingaseðlum desember- mánaöar sem er síðasti uppgjörs- mánuður í heimilisbókhaldi DV. I dag erum við með fjörutíu upplýsingaseðla frá jafnmörgum fjölskyldum sem í eru alls 170 einstaklingar. Við skiptum seðlunum fjörutíu í fjóra hópa, sem sagt tíu fjölskyldur í hverjum hópi. Fyrsti hópur I fyrsta hópnum eru alls 39 ein- staklingar. Á seölunum tíu eru heildarút- gjöldin 189.646,15 krónur. Lægsta tala á seðli er 13.217 krónur og hæsta 27.439,20 krónur. Hafa þessir 39 einstaklingar farið með 99.414,71 krónur í mat- og hrein- lætisvörur og 90.231,44 krónur í annað. Matarkostnaður í þessu dæmi er því 52,4% af heildarútgjöldum, annar kostnaður 47,6% af heildinni. Að meðaltali hefur hver einstaklingur þurft 4.863 krónur til framfærslu og þar af hafa 2.549 krónur farið til matarkaupa. Hjá þessum hópi er mikill munur á hlut- falli á milli matarkostnaðar og ann- arra útgjalda frá hópnum sem til- greindur var í f östudagsblaöinu. Annar hópur Hjá hópi númer tvö eru heildarút- gjöld hverrar fjölskyldu í desember á milli 30 og 40 þúsund krónur. Lægsta tala á seðli er 30.013,84 krónur og sú hæsta er 38.360 krónur, alls tíu seðlar sem fyrr. I hópnum eru 48 einstaklingar og alls eru heildarútgjöld 338.543,94 krónur. Meöaltal á einstakling 7.053 krónur sem f ramfærslukostnaður. I mat höfðu þessir einstaklingar varið 121.017,66 krónum en í önnur útgjöld 217.526,28 krónum. Af heildinni eru matarútgjöld því 35,7%, önnur útgjöld 64,3%. Meöaltal matarkostnaðar á einstakling hefur því verið 2.521 króna. Mjög svipuð tala og meðal- talsmatarkostnaöur einstaklinga í fyrsta hópnum, en matarútgjöld í prósentum „aðeins” 35,7% af heildarútgjöldum á móti 52,4% í fyrsta hópnum. Þriðji hópur I þriðja hópnum eru 43 einstaklingar og enn tíu upplýsinga- seðlar. Á þeim öllum eru útgjöldin komin yfir 40 þúsund krónur. Lægsta tala nú er 41.793 krónur og hæsta 56.942 krónur. Heildarútg jöld á öllum tíu seðlunum eru 494.414,05 krónur. Meöaltal á einstakling 11.498 krónur. Af heildargjöldum fóru 25,3% til matarkaupa eða 124.913,10 krónur. Til annarra hluta vörðu þessir einstaklingar 369.500,95 krónum eða 74,7% af heildargjöldum. Meðaltal matarkostnaðar hvers einstaklings hefur því verið 2905 krónur í desember, það er að segja í þessum hópi. Fjórði hópur I f jórða og síðasta hópnum eru 40 einstaklingar í tíu fjölskyldum. Heildargjöld fyrir mánuðinn námu 634.878,45 krónum. Á þeim seðli sem heildartalan var lægst var hún 57.659 krónur en hæst 69.839,45 krónur. Hver maöur í þessum fjörutíu manna hópi hefur því þurft 15.871,96 krónur til allrar framfærslu. En meðaltal matarkostnaðar á hvem einstakan var 3.304 krónur. Matarkostnaður var 20,8% af heildargjöldum eða 132.140,43 krónur, í annaö en mat höfðu þessir einstaklingar samtals varið 502.738,02 krónum eða 79,2% af heild- arútgjöldum mánaöarins. Á þessum dæmum ætti fólk aö geta borið saman sín eigin útgjöld og Tóbaksneysla jókst um 4 prósent 1983 Leiðrétting: Viðgerðarkostnaður á símtalfærum Fyrir skömmu birtust tölur i einu dagblaðanna um tóbaksinnflutning. Fullyrt var aö tóbaksinnflutningur Sparnaður í heimilisrekstri hlýtur aö vera mjög gagnlegur á tímum minnkandi kaupgetu sérstaklega. I kvöld hefst námskeiö á vegum Neyt- endafélags Akureyrar og nágrennis og Félagsmálastofnunar Akureyrar sem mun fjalla um spamað í heimilisrekstri. Námskeiöið tekur fimm kvöld og stendur yfir hvert kvöld frá kl. 20.30—23.00 og verður haldið í sal Trésmíöafélags Akureyr- ar. hefði aukist um 40% á árinu 1983 miðað við árið 1982. Þar af hafði inn- flutningur á sígarettum aukist um Undirbúningur námskeiðsins hefur staðið yfir í nokkra mánuði. Helstu þættir sem teknir verða fyrir em heimilisbókhald, hagkvæmni i innkaupum, neysluvenjur, lánamál, orkusparnaöur, fjárhagsáætlanir og fasteignakaup eða í einu orði sagt, heimilishagfræði. Þátttökugjald er 250 krónur og er námskeiðið öllum opið. -ÞG. 45%. Hjá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins kannaðist enginn við þessar tölur. Það er ekki þar með sagt að þessar tölur séu rangar. En þær segja ekkert um hver hin raunveru- lega sala var á árinu 1983. Hjá Krabbameinsfélagi Reykja- víkur fengum við þær upplýsingar að söluaukning á tóbaki heföi verið 4%. Sala á sígarettum jókst um 5,1%, á píputóbaki dróst hún saman um 5,6%, jókstum2,8%á vindlum ogum 1% á neftóbaki. Sígarettur og vindlar eru reiknaðir í stykkjatali og píputóbak og neftóbak í kilóatali. Þorvarður ömólfsson, fram- kvæmdastjóri Krabbameinsfélags Reykjavíkur, sagði aö það væri slæmt aö tóbaksnotkun heföi aukist á árinu. Erfitt væri að skýra það út til hlítar. Hugsanlegar skýringar væru m.a. þær að reykingavenjur kvenna væru að breytast. Fram að þessu íiefðu þær reykt minna en karlmenn en væru nú í auknum mæli að aðlag- ast reykingavenjum þeirra. Þá hefði þjóðinni f jölgað á árinu og unglingar byr juðu fy rr að reykja en áður. Einn- ig væri algengt að þeir sem reyktu ykjureykingarsínar. -APH. 1 síðustu viku skýröum viö frá því að Póstur og sími hefði ákveðið að fella niöur svokallað rekstrargjald sem allir símnotendur hafa greitt reglulega á hverjum ársfjórðungi. Gjald þetta hefur verið 32 krónur fyrir hvert talfæri. Tilgangur rekstr- argjaldsins var að standa undir öllum viögerðarkostnaöi á símtal- færum sem verður vegna eðlilegs slits á snúru, taldós og hlust. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að hver og einn sjái um þennan kostnaö í stað þess að allir simaeigendur taki þátt í þessum kostnaði. I greininni sem viö birtum var ranglega fariö með kostnaö þann sem símnotendur þurfa að greiða þegar síminn þarfn- ast viðgerðar þegar um eðlilegt slit er að ræða. Ef viðgerðarmaður er fenginn heim þarf að greiða 280 krónur og er það áætluð hálftíma vinna og einnig kostnaður í sam- bandi við keyrslu. Að auki verður aö greiða allan hugsanlegan efnis- kostnað samfara viögeröinni. Með því að fara sjálfur með símann í viðgerð er greiðslan fyrir hálftíma vinnu 104 krónur plús efniskostn- aður. -APH. Akureyri: Heimilishagfræði kennd á fimm kvölda námskeiði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.