Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1984, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1984, Qupperneq 4
DV. FÖSTUDAGUR 24. FEBRUAR1984. I Ljóst þykir að milljónatjón varð þegar snjóflóð eyðilagði hús steypustöðvarinnar Bjargs í útjaðri Ólafsvíkur undir miönættið í fyrrakvöld. Tveir menn voru í húsinu þegar flóðið skall á því og þykir það ganga kraftaverki næst að þeir skyldu sleppa lifandi frá þessu. Annar mannanna brotnaði þó illa á fæti og hinn maröist mikið. Stórvirkar vinnuvélar og bifreiðar í eigu steypustöðvarinnar og verktakafyrirtækisins Hagvirkis, sem voru í og við húsið, eyðilögðust einnig, svo og ýmis önnur smærri tæki og verkfæri. -GB. Semen tstankar voru meðal þess sem eyðilagðist utan við hús steypu■ stöðvarinnar. D V-myndir Ægir Þórðarson/Hellissan Afl flóðsins varsvo mikið aðþaðþeytti tilþungum vinnuvélum sem voru inniihúsinu. •- Tvö snjóflóð, að minnsta kosti, féllu á nýja Ennisveginn i fyrrakvöld og hér er verið að ryðja öðru þeirra burtu. Bifreiðarnar lágu eins og hráviði um allt eftir að snjóflóðið hafði farið um. Tilfinnanlegt tjón hjá Hagvirki: Lapplander-jeppinn fremst á myndinni gjöreyðilagðist þegar flóðið hentihonum . til. Stórvirkar vinnuvélar ónýtar Verktakafyrirtækið Hagvirki varð fyrir tilfinnanlegu tjóni í snjóflóðinu í fyrrakvöld. Veghefill sem var inni í húsinu er ónýtur, sömuleiðis rútubif- reið og Lapplander jeppi. Þá er önnur jeppabifreið verulega skemmd. Auk þess eyðilögðust ýmis önnur smærri tæki og verkfæri. „Beint og óbeint tjón skiptir örugglega milljónum,” sagði Arni Baldursson, staðarstjóri Hagvirkis, í samtali við DV í gær. Tækin sem fóru Gengur kraftaverki næst að 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.