Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1984, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1984, Side 9
DV. FOSTUDAGUR 24. FEBRUAR1984. 9 Útlönd Útlönd BLOÐRUDRENGUR- INN ÞOLDI EKKI AÐFENGNA MERG- INN OG DÓ Drengurinn David, sem lifði nær öll 12 ár ævi sinnar í einangrunarkúlu, dó í gær og dánarorsökina má sennilegast rekja til beinmergjarins sem græddur var í hann til aö reyna að lækna ónæmisbæklunina. Læknir hans greindi frá dánarfregn- inni á blaðamannafuhdi í Boston í gær og fékk ekki varist tárum á meðan. Drengurinn haföi verið hvers manns hugljúfi á sjúkrahúsinu og geröi aö gamni sínu allt f ram í andlátið. Strax fyrir fæðingu Davids hafði læknana grunað að ekki mundi allt með felldu varöandi hvítvoöunginn því að eldri bróðir hans hafði andast af sömu ónæmisbækluninni nokkrum mánuðum fyrr. I október var reynt að ráöa bót á með því að gefa drengnum merg úr 15 ára systur hans og virtist allt horfa vel en í febrúar veiktist David. Til þess aö glíma við þau veikindi slepptu læknamir honum úr einangruninni og þá fyrst, orðinn tólf ára, fékk hann að komast í snertingu við sína nánustu. Það sem dró drenginn til bana var einskonar krabbamem (kallað B- frumu lymphoma). Viröist sem aðfengni mergurinn hafi orðiö til ofvaxtar á b-frumum í innyflum, lung- umogmænu. Fymim fang- ar fá pólsk vegabréf Nær 2000 fyrrverandi fangar og and- ófsmenn hafa nú fengiö vegabréf svo aö þeir geti flust frá Póllandi til Vesturlanda. Yfirmaður vegabréfsskrifstofunnar í Varsjá sagði PAP-fréttastofunni pólsku að borist heföu 2800 umsóknir um vegabréf og aö 1921 heföi verið af- greidd. — Afgangurinn er í athugun en líklega verður fáum neitað. Þegar munu 1054 umsækjendur sem afgreiðslu hafa hlotiö vera famir úr landi. 1 einhverjum tilvikum hefur brottförin dregist vegna þess aö „auö- valdsríki” hafa neitað aö taka vega- bréfsáritunina gilda. í fyrra vom gefin út 470 þúsund vegabréf pólsk til ferðalaga á Vestur- löndum. Um 100 þúsund sneru ekki aftur heim. (A fyrstu mánuðum 1982 höfðu um 200 þúsund hætt við að snúa heim til Póllands úr ferðum í V- Evrópu.) Njósnir á Kýpur Breska leyniþjónustan segist hafa ljóstraö upp um njósnahring á Kýpur sem einbeitti sér að því að ráða á mála hjá Sovétmönnum unga breska her- menn og flugliða. Nokkrir ungu fluglið- anna gerðu viðvart þegar reynt var að tæla þá til njósna en upp um aðra komst og hafa þeir þegar verið dregnir fyrir herrétt. Breskir gagnnjósnarar höfðu hálft í hvoru búist viö því að upp risi á Kýpur öflug sovésk njósnastöö eftir að njósnakerfi Sovétmanna í Líbanon fór í mola í borgarastríðinu þar. Höfðu breskir dátar og flugliðar verið sér- staklega varaðir við því að láta ekki ginnast í gildrur sem egndar væru fyrir þá með hispursmeyjum á Kýpur. Flestir vöru- bílstjóranna halda áfram mótmælunum Vörubílstjórarnir sem hamla umferð Um Mont Blanc-jarðgöngin til Italíu hóta því aö herða enn mótmælaaögerð- ir sínar á morgun ef franska stjórnin veröur ekki við kröfum þeir ra. Hefur þykkja vörubílstjóranna magnast eftir þvi sem lengur dregst að stjórnvöld gangi til samninga við þá. Þeir segjast hafa gefiö yfirvaldinu nægan frest. Fyrst þrjá daga áður en þeir gripu til þess að leggja trukkunum á aðalvegum landsins og síðan er liðin vika án þess að samkomulag hafi náðst. Um 200 vörubílatálmar voru á veg- um enn í gærkvöldi og silast umferöin víða með snigilshraða eins og viö landamæri Belgíu. Umferöaröngþveit- iö þykir víða ofboðslegt eins og við landamæri Lúxembourg og V-Þýska- lands. — Samgöngur landveginn hafa nær alveg lagst niöur til borga eins og Lyons, Toulous, Nice og Marseilles, en í Miö-Frakklandi og noröur af París "hafa bílstjórar margir fjarlægt trukka sína. Italskir tollverðir hafa nú aflétt yfir- vinnubanni sínu og mun tollafgreiðsla Italíumegin geta gengið eðlilega fyrir sig. Þar hafa hundruð vörubíla beðið hátt á aðra viku eftir því aö komast leiðarsinnar. Hjá EBE hafa mótmælaaðgerðir frönsku vörubílstjóranna komið til um- ræðu en þær hafa hindrað flutninga á EBE-vörum sem öðrum. I vændum eru breytingar á tollafgreiðslu vörubila við landamæri EBE-landanna og eiga þær að stytta afgreiðslutímann um helming. FERMINGARBORÐ VEITINGAMANNSINS1984 Veislueldhús Veitingamannsins býður að venju glæsilegt en ódýrt fermingarborð Fyrir aðeins 390 kr. á mann bjóðum við: LÉTTSTEIKTAN NAUTAVÖÐVA FRAMREIDDAN með remúlaðisósu, spergilkáli og maískorni. GRILLSTEIKTA KJÚKLINGA með strákartöflum, rósakáli og gulrótum. REYKT GRÍSALÆRI með rauðkáli, grænum baunum og ananas. LAMBAKÓRÓNU FRAMREIDDA með blómkáli, hrásalati og rjómasósu. LAXARÖND skreytta m.a. með rækjum, eggjum, aspas ásamt chentillysósu. Þár er ekki sama hver matreiðir fyrir þig og gesti þína. Fyrsta flokks hráefni og margra ára reynsla Lárusar Loftssonar tryggir þér veislumatinn eins og þú vilt hafa hann. Allt kemur tilbúið beint á veisluborðið. Upplýsingar í síma 86880 eftir kl. 13.00 dag- lega, einnig á laugardögum. « VEISLUELDHÚS VEITINGAMANNSINS HF.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.