Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1984, Síða 15
DV. FOSTUDAGUR 24. FEBRUAR1984.
Sala bílasíma
tekur fjörkipp
—aðeins þrjátfu tæki í notkun fyrir
niðurf ellingu opinberu gjaldanna
„Eftir niðurfellinguna hefur sala
bílasíma tekið verulegan kipp,” sagði
Olafur Indriðason hjá Pósti og síma í
samtaliviöDV.
Sem kunnugt er voru ýmis opinber
gjöld felld niður af bílasímum fyrr í
þessum mánuði. Lækkuöu þeir við það
í verði um tæpan helming. Bílasími
kostar nú um 60 þúsund krónur.
Fyrir niðurfellinguna voru ekki
nema um þrjátíu bílasímar komnir í
notkun utan Pósts og síma. Þeir voru
hjá ólíkustu aöilum; verktakafyrir-
tækjum, lögreglu í dreifbýli, slökkvi-
liði, mjólkurbúi, olíufélagi, fasteigna-
sölu, dýralækni, stórverslun, ökukenn-
ara, sjúkrahúsi og Veðurstofu og
Ríkisútvarpi. Þá var sími kominn í tvo
ráðherrabíla og veiðihús svo að eitt-
hvaö sé nefnt. Minna er um síma í bíl-
um einstaklinga. Þó má sjá nokkra for-
stjóra skráða fyrir bilasíma.
Bílasímar gætu einnig hentað vel í
sumarbústööum, veiðihúsum, fjalla-
skálum og afskekktum sveitabæjum.
„Það geta verið slíkar aðstæður að
það sé miklu einfaldari lausn að taka
sér bílasíma,” sagði Jón Skúlason,
póst- og símamálastjóri.
„Ef kannski er um einstaka bæi að
ræða og það kostar kannski mörg
hundruð þúsund krónur að leggja línu
þangað myndum við hugsanlega mæla
meðbílasíma,” sagði Jón.
Bilasimi er fullkomnari en gamli,
handvirki sveitasíminn. Hann hefur þó
einnig þann ókost að aðrir geta hlustað
á samtal.
Tveir aðilar selja bilasima hérlend-
is. Það eru Georg Ámundason og
Heimilistæki.
-KMU.
Örn Guðmundsson, fjármálastjóri Árfells hf., heldur hér á sýnishorni af
Lindshammar kristal sem fyrirtækið hefur umboð fyrir. Og kristalsvörun-
um er stillt upp ibaksýn iÁrfellsskilrúm. DV-mynd GVA.
Góðar móttökur á
erlendum sýningum
„Viö höfum nýlega sent sýnishom
af Árfellsskilrúmum til Kanada, en við
höfum tekið þátt í erlendum sýningum
og fengið góðar móttökur,” sagði Arni
Guðjónsson framkvæmdastjóri Ár-
fells hf., í viötali viö DV. Einnig gat
Árni þess að líkur væru á því að mark-
aður væri að opnast í Luxemborg fyrir
þessa íslensku iönaðarvöru. Veggskil-
rúm fyrirtækisins, sem bæði eru ætluð
á skrifstofur og heimahús, hafa verið
mjög vinsæl hér innanlands, enda er
hægt að raða skilrúmunum upp á þús-
und mismunandi vegu. Bæði hönnun og
smíði skilrúmanna er á vegum fyrir-
tækisins. Arfell hf„ sem er til húsa að
Ármúla 20, hefur fleira á boöstólum en
skilrúmin og það em kristalsvörur frá
sænska fyrirtækinu Lindshammar.
Nýlega var gengið frá umboðssamn-
ingi á milli þessara fyrirtækja. Linds-
hammar-vörurnar eru frá glösum,
vösum til listmuna og húsáhalda, allt
handunnar hágæðavörur. -ÞG
Fjárhagsáætlun Akureyrar 1984:
Álagning út-
svarsi
I frumvarpi að fjárhagsáætlun fyrir
1984 sem lagt var fram á fundi bæjar-
stjórnar Akureyrar á þriðjudag er gert
ráö fyrir að útsvarsálagning verði
10,6%. Hún var 12,1% í fyrra.
Niðurstöðutala á rekstraráætlun er
325,3 milljónir, rekstrargjöld 226,5
milljónir. Stærstu útgjaldaliðir em
félagsmál, almannatryggingar og
fræðslumál, rúmar 100 milljónir.
Mesta skerðing á fjárveitingum er til
10,6%
gatna og holræsa. Mun hún valda 40—
50% samdrætti á því sviði.
Nýframkvæmdir verða fáar á árinu
en þess í stað reynt að Ijúka því sem
verið hefur í gangi. Af stómm f járfest-
ingummá nefna að íþróttahúsið fær7,5
milljónir króna, verkmenntaskóli 20 og
nýbygging Síöuskóla 16 milljónir.
Algjör samstaða náðist milli bæjar-
stjómarflokkanna um þetta frumvarp
aöfjárhagsáætlun. JBH/Akureyri
Nýtt stjórnmálasamband:
ÍSLAND OG ÁSTRALÍA
Ríkisstjómir Islands og Ástralíu Anthony Frederic Dingle til þess að
hafa tekið upp stjórnmálasamband sín vera sendiherra á Islandi, með aðsetur
á milli. í Kaupmanpahöfn.
Ríkisstjórn Astralíu hefur skipað
15
★★★★★★★★ ★★r^f
Þú átt möguleika á glæsilegum
*
★
vinningi í Þórscafé!
Frá Þórscafé
Hótel
*
* tll
*
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★ ★**
Don
Hvader
rrnUjon
, Milljónasti gestur Þórscafé hlýtur glœsilegan <
ferdavinning fyrir tvo í 26 daga til Benidormf^
*
★
Dva/ist á Hótel
Don Pancho — fullt
fæði i 26 daga
Að sjálfsögðu
verður boðið upp á
kvöldverð í Tiffanys '
A Og einnig nætur-
klúbbaferð til
Benidorm Palace
SÁ HEPPIMI ER Á LEIÐINNI
í ÞÓRSCAFÉ
Hótel Don Pancho
Don Pancho er glæsilegasta hóteliö í Benidorm. Er það
við aöalgötu bæjarins í u.þ.b. 100 m fjarlægö frá
ströndinni. I öllum herbergjum er bað, útvarp, simi og
svalir sem snúa út að sjó.
Oll herbergin eru loftkæld. Uti er stór sundlaug og
önnur minni fyrir börnin. Sólbaðsaðstaða er mjög góð.
A neðstu hæð er bar og setustofur búnar glæsilegum
húsgögnum. Uppi er matsalur og næturklúbbur sem
býður upp á fjölbreytt skemmtiatriði og dans á hverju
kvöldi.
Kröfuharðir velja Don Pancho. Það gera gestir Þórs-
café.
Benidorm er á Costa Blanca, hvítu
ströndinni, á Suðaustur-Spáni. Liggur
bærinn í 42 km f jarlægð frá Alicante og
i 141 km fjarlægð frá Valencia. A þrjár
hliðar er hann umkringdur fjallahring
sem tengist saman meö fallegri sand-
strönd Miðjarðarhafsins. Benidorm er
því einn veöursælasti staður Spánar og
meðalárshiti er 22 stig C.
★
*
*
I*
*
★
★ ★★★★★★★★★ ★-k
Benidorm
t