Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1984, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1984, Síða 12
12 DV. FÖSTUDAGUR 30. MARS1984. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvaemdastjóriogútgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoðarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS H AR ALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P.STEINSSON. Ritstjórn: SÍDUMÚLA 12—14. SÍMI 86611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI II. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 86611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF„ SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf„ Skeifunni 19. Áskriftarverð á mánuði 250 kr. Verð í lausasölu 22 kr. Helgarblað25 kr. Fréttaskot Enn einu sinni hefur DV brotiö upp á nýmæli í sam- skiptum blaösins og almennings. I gær var hleypt af stokkunum svokölluðu fréttaskoti, sem felst í því aö hver og einn borgari getur hringt til blaösins og skotið að því frétt eða fréttahugmynd gegn greiðslu fyrir þá þjónustu. Sérstakur sími verður opinn allan sólarhringinn þar sem upplýsingunum er veitt viðtaka. Blaðamenn DV munu síðan vinna úr fréttaskotunum, og allt það, stórt eða smátt, sem birt verður í framhaldi af fréttaskoti, verður verðlaunað með þúsund krónum. I hverri viku verða síð- an greiddar þrjú þúsund krónur til þess, sem skotið hefur að blaðinu bestu fréttinni eða fréttahugmyndinni. Tilgangur fréttaskotsins er margþættur. Fyrir það fyrsta er þess að vænta að fréttir blaðsins verði betri og fjölbreyttari og auki gæði þess lesefnis sem fyrir augu ber á degi hverjum. A DV starfar stór hópur hæfra blaða- manna sem afla frétta og miðla upplýsingum til lesenda af dugnaði og árvekni. En þjóðfélagið er margbrotið og margskrúðugt og útilokað að eitt dagblað geti þefað uppi allar fréttir, hvar og hvenær sem þær gerast. Vitaskuld hafa lesendur iðulega hringt til blaðsins og bent á frétta- efni, en nú vill DV opna þá leið enn frekar með sérstakri umbun fyrir áðurnefnd fréttaskot. Tengsl dagblaðs og al- mennings eiga ekki aö vera einhliöa. Þau eiga ekki ein- göngu að vera á þann veg að blaðið miðli lesendum. Lesendur eiga engu að síður að miðla blaðinu af þeirri vitneskju sem þeir búa yfir um fréttnæma atburði. Þann- ig virka samskiptin í báðar áttir og báðum til gagns. I nútímaþjóðfélagi getur enginn þjóðfélagsþegn verið án dagblaðs, eins eða fleiri. En dagblað getur heldur ekki án lesenda verið. Með lifandi tengslum, virku samstarfi og upplýsingastreymi í báðar áttir verður blaðið gagnlegur og ómissandi vettvangur fyrir frásagnir af atburðum líð- andi stundar. Þann tíma sem DV hefur verið gefið út hefur það staðið opið öllum almenningi hvað varðar greinaskrif, lesenda- bréf og skoðanaskipti. En það þarf einnig að vera opið fyrir fréttir og frásagnir af atburðum, athöfnum og að- gerðum, sem fólkið sjálft vill koma á framfæri. Frjálst og óháð dagblað á að fletta ofan af spillingu, veita stjórn- völdum aðhald og segja opinskátt frá misrétti og vald- níðslu. Blaðið á einnig, og ekki síður, að geta þess sem vel er gert, afreka og umsvifa og umbóta. Fólk á ekki að vera feimið við að upplýsa blaðið um slík mál, til lofs eða lasts, vegna þess að í frjálsu og óháðu dagblaði er sagan sögð, lýðræðið framkvæmt og réttur einstaklingsins varinn. Flokkspólitískum málgögnum og ríkisfjölmiðlum eru takmörk sett, af ástæðum sem óþarft er að tíunda. Dag- blaö, sem hvorki þarf að sækja línuna til flokks eða hlíta yfirstjórn ríkisvalds, er aftur á móti málgagn fólksins, hins frjálsa manns. Fréttaskotið er kjörin leið, bein lína við DV sem tekur á móti slíkum upplýsingum allan sólarhringinn. Síminn sefur aldrei hjá okkur. Sá sem hringir inn og vill skjóta að okkur frétta- ábendingu, án þess að láta nafns síns getið, getur treyst því að fyllsta trúnaðar mun verða gætt. Tilgangur- inn er ekki sá að koma viðkomandi í klípu, heldur hitt að fréttin sjálf komist til skila. Fréttaskotið verður þjónusta við fólkið í landinu, vegna þess að DV er blað fólksins og fjöldans. ebs MINNKUM SAMNEYSLUNA 1 Morgunblaöinu hafa undanfariö birst greinargeröir um þróun kaup- máttar og þjóðartekjur undanfarin ár. Af þeim er ljóst að þjóöartekjur eru nú minni en um margra ára skeið, voru áriö 1983 lægri en áriö 1977. Af sjálfu leiðir aö slik tekju- minnkun hlýtur aö koma fram í sam- drætti, og þá ekki síst hjá ríkissjóði. Og þaö er þess vegna ekkert undar- legt þótt fjármálaráðherrann hafi til- kynnt um gat í fjárlögunum, — annað gat ekki gerst, fyrst menn hættu aö brúa mismun tekna og gjalda með lántökum erlendis. Þaö er vitanlega erfiö raun fyrir stjómmálamenn aö mæta minnk- andi þjóöartekjum. Þeir hafa alltaf haft tilhneigingu til þess aö skipta kökunni eins og hún væri örlítiö stærri en hún í raun er. Hins vegar er þetta ekki í fyrsta sinn sem sh'kt er gert. Magnús heit- inn Jónsson fjármálaráðherra tókst á viö slíkan vanda í fjármálaráð- herratíð sinni og tókst vel. Hann þurfti hins vegar ekki aö fást viö fal- inn vanda fyrri ára eins og Albert Guömundsson. Við hvað á að miða? Ef litið er til baka má fyllilega bera saman tímabiliö 1967 til 1970 og núverandi ástand i efnahagsmálum. Meginvandamáliö nú er aö fisk- veiöar verða mun minni en búist hafði verið viö. En svipað ástand var 1967 eftir hrun sildarstofnanna. Verkalýðshreyfingin tók höndum saman með viðreisnarstjóminni þá til þess aö leysa efnahagsvandann eins og verkálýðshreyfingin gerir nú. Kjarasamningar ASI og VSI voru hófsamir og lögöu línuna. Og þaö er hlægilegt aö halda því fram að Dagsbrúnarsamningarnir séu utan viö ramma ASI. Þvert á móti eru þeir í samræmi viö meginlínuna. Breytingarnar stafa af sérstökum aöstæðum hér í Reykjavík, sem út af fyrir sig er ekkert óeðlilegt aö taka tillit til — unglingataxtinn er fyrst og fremst áróðursmál og hefur engin áhrif á heildarstefnu i kj aramálum. Hrakfarir kennara í BSRB vom ánægjulegar. Það er hins vegar Kjallarinn HARALDUR BLÖNDAL LOGFRÆÐINGUR áhyggjuefni aö þeir menn, sem eiga að annast uppfræöslu i landinu, skuli vera svo círóðir um efnahagsmál sem skrif þeirra bera vitni um. Virðist full ástæða til þess að koma kennur- um landsins á námskeiö í hagfræði svo að þeir tali sig ekki frá allri virö- ingu nemenda og foreldra næst þegar kennarasamtökin taka þátt í umræðum um efnahagsmál landsins. Of mikil samneysla Þaö ber öllum saman um aö sam- neysla hafi aukist jafnt og þétt undanfarin ár. A venjulegu máli þýðir samneysla sama og skattlagn- ing. Minnkandi skattbyröi þýðir jafn- framt minni samneyslu. Það er oft talað um aö mæta eigi auknum útgjöldum ríkissjóös meö auknum sparnaöi hjá hinum og þessum ríkisstofnunum. AUt slíkt tal erblekking. Flest ríkisfyrirtæki eru nokkuö vel rekin og aðhalds gætt. Og þaö er mikiU misskilningur aö halda aö fylla verði upp í fjárlagagatið meö því að neita aö greiöa rekstrar- kostnaö opinberra stofnana. Þessar stofnanir þurfa tUtekna fjármuni og hlægilegt aö skera niður t.d. gólf- þvott eöa pappírsnotkun þegar vitað er aö um hreinan talnaleik er að ræöa. Ef menn vUja í alvöru fylla upp í margnefnt fjárlagagat án þess að auka skatta er ekki nema ein leiö fær. Hún er aö minnka samneysluna skipulega. Miða við lok viðreisnar AUir eru sammála um að skattar stórhækkuðu eftir lok viðreisnar- tímabilsins. Því ekki að miða viö þá skattbyrði sem þá var, — svona til þess aö byrja meö. En jafnframt verður aö færa opinbera þjónustu í svipað horf og þá var. Taka má einföld dæmi. Á þeim tíma var réttilega litið á sjúkratryggingar eins og hverja aöra tryggingarstarfsemi og reynt aö jafna sjúkrakostnaöinum i landinu niður meö sjúkratryggingar- iögjaldi sem hver og einn greiddi. Aukinn sjúkrakostnaður leiddi tU hækkaðra iögjalda en var ekki hluti af heUdarskattheimtu landsins. Menn greiddu meðul sín sjálfir í meira mæli en nú. I dag borga menn fast gjald án tiUits til þess hversu mikið magn er keypt og er enginn munur geröur á þeim sem kaupir sér meöal vegna tilfallandi umgangs- sóttar eöa manns sem á viö veikindi aö stríöa. Þaö eru gífurlegar fjár- hæöir sem ríkissjóður þarf að greiöa vegna meðalakaupa sem miklu eöU- legra væri aö neytendur greiddu sjálfir. Þá voru skólabækur aö nokkrum hluta greiddar af foreldrum. Bækur voru þá samdar meö hUösjón af því að nota mætti þær ár eftir ár og ekki gert ráð fyrir því aö börnin skrifuðu í kennslubækumar eins og nú er gert. Þá voru námslán innan skynsam- legra marka en skólakerfiö miöaö viö þaö aö nemendur gætu unnið fyrir námskostnaöi aö verulegu leyti í sumarleyfum sínum. Þá var byggðastefna stunduð af skynsemi. Meira treyst á að heUbrigt atvinnuh'f í þorpum landsins stuðlaöi aö bættum hag sveitarinnar heldur en skattpeningi væri sóaö til þess að byggja sjúkrahús sem standa auö (Patreksfjörður), skóla sem standa auðir (Krísuvík) eöa leggja raf- magnslínur í tómri vitleysu. Enda var þá tekjuafgangur hjá ríkissjóði, góð lífskjör hjá almenn- ingi, sjóðir landsmanna fulUr og verðbólga í lágmarki. „Það eru gifurlegar fjárhæðir sem rikissjóður þarf að greiða vegna meðalakaupa sem miklu eðlilegra væri að neytendur greiddu sjálfir. " HH „Og þaö er mikill misskiiningur að halda ^ að fyllt verði upp í fjárlagagatið með því að neita að greiða rekstrarkostnað opinberra stofnana.” Kjallarahöf undar, athugið: Hafid greinamar stuttar Kjallarahöfundar eru beðnir að athuga að greinar þeirra séu ekki lengri en 600— 700 orð eða sem svarar um tveimur vélrituðum A4 blöðum. DV áskilur sér rétt til að stytta eða hafna lengri greinum. -HH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.